Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 28
28 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 26. AGUST 1990 01990 Univefsal Pfess Syndicate ,, ég þarF-eJckL a& úr Jö iunurtv, ej'þcub ?" Ást er... 7-Z7 ... að vera fús til sam- komulags. TM Rog. U.S. Pat Off.—all rights rasarvod ° 1990 Los Angales Timos Syndicate Með morgunkaffmu Þú ert svo sæt, mamma, þegar þú ert reið, það seg-ir pabbi. HOQNI HKEKKVISI „ KE7TÍK KOMA ALLTAF MiOOK. 'A FjdTURbtA I ‘ Vill Þorsteinn beita sér fyrir því að fólk geti valið og hafnað? Til Velvakanda. Eg undirrituð vil taka undir með Maríu G. sem skrifar í Morgun- blaðið þann 15.8. sl. um afnotagjöld ríkissjónvarpsins. Mér finnst þetta alveg óþolandi aðfarir i lýðræðisþjóðfélagi — nóg er nú samt um skatta og gjöld, bein og óbein og virðist hugmyndaflug stjórnvalda með ólíkindum í þeim efnum! En að fólk sé skyldugt til að borga af sjónvarpsstöð sem það horf- ir ekki á og kærir sig ekkert um, það fínnst mér furðulegt að stenst lagalega, — það eru þá skrítin lög. Ég lét loka fyrir Stöð 2 um síðustu mánaðamót til að spara örlítið og vegna fjarveru að heiman, — en mér finnst ég vera svo gott sem sjón- varpslaus síðan. Á mánudagskvöld settist ég framan við „imbann“, ætl- aði að slappa af og horfa á eitthvað skemmtilegt — það endaði með því að ég horfði á efni af myndbandi, sem ég hafði tekið upp frá Stöð 2. Annars fínnst mér Stöð 2 hafa farið talsvert aftur eftir að Jón Óttar hætti þar — en það er önnur saga. Nú langar mig til að spyija Þor- stein Pálsson formann Sjálfstæðis- flokksins hvort hann muni beita sér fyrir því að breyta þessu misrétti ef flokkurinn kemst í meirihluta eftir næstu alþingiskosningar, þannig að fólk geti valið og hafnað í þessum efnum? _ A. „ Gunnlaug Olafs. Hvar er hægt að fá bald- eraða borða? Til Velvakanda. Mig langar til að vita hvort ein- hver lesandi Velvakanda geti hjálpað mér í vandræðum mínum. Þannig er að ég hef leitað logandi ljósi að balderuðum borðum á upp- hlut en án árangurs. Ég veit að fleiri hafa átt í erfiðleikum með að fá borðana þannig að viti einhver um borða til sölu eða einhvem sem tekur að sér að baldera væru ábend- ingar mjög vel þegnar. SigTÚn. A FORNUM VEGI Blönduós: * Islending- ar meira á ferðinni Blönduósi. Ferðalög og þjónusta í tengsl- um við þau er vaxandi á landi voru eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu. Blöndu- ós er kaupstaður fyrir botni Húnaflóa og það hefur oft komið fram í umræðunni að ferða- mannastraumurinn renni í gegn- um bæinn án þess að staldra við nema þá helst til að kaupa sér pylsu og kók. Er þetta svo í raun- inni? Hefur ferðamannastraum- urinn farið hjá? Hlíf Hreiðarsdóttir hótelstjóri á Hótel Blönduósi segir nýting una á hótelinu hafa aukist frá því í fyrra bæði í júní- og júlímánuði. Hlíf taldi helstu ástæðumar fyrir þessum aukna ferðamannastraumi þær að veðrið í sumar hafi verið einstaklega gott. Hlíf hélt því einn- ig fram að Islendingar ferðuðust svoh'tið öðruvísi í ár en áður — væru mun meira á ferðinni en oft áður. Að sögn Hlífar hafa orðið nokkur afföll á pöntunum hjá er- lendum ferðahópum en það hefur ekki komið eins mikið að sök og oft áður því íslendingar hafa fyllt upp í þau skörð. Hlíf sagði hlutfall íslendinga í gistingu á hótelinu hafa heldur vaxið ef eitthað væri en gat þess jafnframt að hótelið byggi töluvert á gistingu fyrir lax- og silungsveiðimenn sem kæmu til veiða í héraðinu og væri það vax- andi þáttur. Hlíf sagði að það þyrfti með einhverjum ráðum að fá fleiri ferðamenn til að staldra við á Blönduósi og í því sambandi nefndi hún útvistarsvæði Blöndósinga í Vatnahverfi. „í Vatnahverfinu eig- Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hlíf Hreiðarsdóttir, hótel- stjóri. um við ómælda möguleika sem tek- ur nokkur ár að byggja upp. Nú þegar er þar níu holu golfvöllur og aðstaða til hvers kyns vatnaíþrótta og silungsveiði er þar fyrir hendi. Á vetmm er þama aðstaða til skíða- og skautaiðkunar og ég held að vandfundin sé betri aðstaða á landinu til jafn fjölbreyttrar tóm- stundaiðju," sagði Hlíf Hreiðars- dóttir að lokum. Ómældir möguleikar í Vatnahverfí Orð Hífar Hreiðarsdóttur hótel- stjóra á Blönduósi um möguleikana sem felast í útvistarsvæði Blöndós- inga í Vatnahverfi gaf fyllilega ástæðu til að hitta að máli vallar- stjórann á golfvelli Blöndósinga í Vatnahverfi, Pál Valgeirsson. Hann sagði að fjöldi gesta á völlinn væri ekki mjög mikill en færi þó stöðugt vaxandi. „Ástæðan fyrir þessu er eflaust sú að golfvöllurinn stendur ekki við hringveginn heldur er hann á Skagastrandarleið, þrem kíló- metmm norðan við Blönduós, og því vita ekki mjög margir af hon- um.“ Um golfvallarstæðið sagði Páll að það væri einstakt og land- stærð leyfði átján holu völl og vel það en sú framkvæmd byði betri Víkveiji skrifar Víkveiji þessa sunnudags hefur lítillega fylgst með þeim bú- vöruskottís og loftferðaræl, sem landbúnaðarráðherra og utanríkis- ráðherra hafa stigið af miklum móð á fjölmiðlafjölum undanfarið. Haft var eftir utanrík isráðherra „að Alþýðuflokkurinn muni aldrei sam- þykkja nýjan búvömsamning", sem landbúnaðarráðherra stendur í ströngu við að smíða ásamt for- svarsmönnum landbúnaðarins. ítem að hugsanlegur loftferðasamningur við Sovétríkin komi þessum sama ráðherra hreint ekkert við. Allur er þessi pólitíski ballett ráðherranna í takt við starfshefðir á stjórnar- heimilinu. Víkveiji fletti af rælni upp í fjár- lögum líðandi árs. Þar kennir margra landbúnaðargrasa sem vænta má. Til dæmis ganga litlir fjórir milljarðar (4.000 m.kr.) til niðurgreiðslu á vöruverði. Þæfa má um, hvort þessir skattpeningar, sóttir í launaumslög fólks, séu reiddir af hendi fyrir neytendur eða framleiðendur. Þeir, sem telja þá landbúnaðarskatt, staðhæfa, að neytendur geti flutt inn þær búvör- ur, sem þeir hafi hug á, fyrir brot af innlendu framleiðsluverði. Fjár- lögin skenka og litlar 767 m.kr. sem útflutningsbætur á búvörur, svo hægt séð að koma þeim ofan í út- lendinga, sem og dulitlar 614 m.kr. í framleiðnisjóð bænda. Samtals eru þetta hvorki meira né minna en 5.380 m.kr. Eru þó ekki öll fjalla- grös fjárlaganna með talin. Það var ekki ætlun Víkveija að leggja dóm á þessi útgjöld, sem taka til sín u.þ.b. helming af tekju- skatti einstaklinga á líðandi ári. Það voru margslugin fangbrögð ráð- herranna sem fönguðu athygli hans. Það er nefnilega eins konar ríkisstjórnarkækur, nú orðið, að stjórnarflokkar og ráðherrar mót- mæli á háum nótum gjörðum sam- ráðherra í gjallarhornum fjölmiðla — en láta síðan kjurt liggja. Það þykir trúlega klókur látbragðsleikur að halda sýndarmótmælum innan þeirra „skynsemismarka“, að valda- stólum sé ekki teflt í tvísýnu. Loftferðasamningi við Sovétríkin mætti gjarnan fylgja, að dómi Víkveija, einnar leiðar farðseðill fyrir helft ráðherranna. Víkveiji dagsins var á sínum tíma harður stuðningsmaður viðreisnarstjórnarinnar 1959— 1971. Tveir tindar skaga upp úr öðru á færsælum ferli hennar. í fyrsta lagi var verðbólga innan við 10% að meðaltali á ári, og oft vel innan þessara marka, öll viðreisnar- árin. I annann stað steig þess stjórn ýmis merk skref til fijálsræðis í efnhags- og atvinnulífinu — frá höftum fyrri tíðar — og lagaði sam- félag okkar að viðskiptalegum sam- búðarháttum þjóða á þeirri tíð. Eftir 1971 höfum við búið við margs konar stjórnarform, misgóð eða misslæm eftir atvikum. Ekkert þeirra kemst í hálfkvisti við við- reisnina. Ekki er hægt að stað- hæfa, að þettá stjórnarform :skili sama árangri nú, enda gengnir þeir gömlu og góðu stjórnmálamenn, sem þá stóðu í brú þjóðarskútunnar. Miðsumars 1971 myndar Olafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, fyrra ráðu- neyti sitt. Allar götur síðan, eða í tæpa tvo áratugi, hefur Framsókn- arflokkurinn átt aðild að ríkisstjórn- um, sem hér hafa setið að völdum, ef undan er skilin fárra mánaða minnihlutastjórn Benedikts Gröndal 1979/80. Þetta eru einar átta ríkis- stjórnir, þar af fimm með Fram- sóknarflokkinn í forsæti! Einu gildir hvort flokkurinn hefur fengið meira eða minna kjörfylgi. Hann hefur ætíð smogið inn um valdadyr stjórn- arráðsins, galopinn í báða enda. Hér fer máske vel á því að segja amen eftir efninu með tilvitnun í Steinn skáld Steinar: „Ekki meir, ekki meir!“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.