Alþýðublaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 4
HJéieg! JERÚSALEM er vel á vegi með a'ð verða alþjóð- legt menntasetur. Stúdent- ar hvaðanæva úr heiminum stunda nám við hebrezka háskólann í Jerúsalem, Jap- anir, Pólverjar, Malajar og Kanadamenri sækja þangað menntun. Hebrezka er hið opinbera mál, sem allir verða að læra. Kennslubæk- ur eru þó margar á ensltu. ísraelsstjórn veitir marga skólastyrki til erlendra stúd enta á hverju ári. Á mynd- inni sést stúdent frá Eþíó- píu, sem stundar þjóðrétt- fræðinám við liáskólann í Jerúsalem. H a n n e s á h o r n i n u fk Þegar verkamennirnir fórnuðu einir allra. Biðu í heilan ársfjórð- ung eftir að aðrir höfðu fengið hækkað kaup Alger stefnubreyting: Lækkað afurðaverð fyrst. ...... ik Af gefnu tilefni. „ . . , MIKLU FYRR hefði átt -semja um breytingar á kjörum verkamanna, en stjórnendur Dagsbrúnar vildu það ekki. Nú verða’verkamenn í Dagsbrún að vinna i al!í að fjóra mánuði íii þess eins að vinna upp þaö tap, sem þeir hafa beðið vegna þess hversu seint var samið . . . “ — Þessi ummasli birtir Þjóðvilj- inn á sunnutJaginn og reynir með því að sanna það, að mér hafi snúist hugur í afstöðunni itil kaups og kjara veikamanna. Grein sína skrifar Þjóðviijinn til þess að reyna að afsanna það, að hugrekki og hreinskilni marki stefnu Alþýðuflokks- stjórnarinnar. ÞESSI UMMÆLI mín birti ég í haust eftir að verkamenn í Reykjavík, einir allra stétta, — höfðu beðið eftir kjarabótum í heilan ársfjórðung. Flestar stétt- ir ög stéttahópar höfðu þá feng- ið kjarabætur fyrir löngu, nema yerkamennirnir í Dagsbrún — og vísitalan hafði hækkað. Hvers •vogna höfðu. verkamennirnir Jerið látnir bíða svona lengi ftir kjarabótum? Ástæðan var Lt, að kommúnistar lágu á þeim neituðu að hefja samninga um tiætt kjör þeim til handa. Að þremur mánuðum liðnum réð- it31 þeir loks í það og samning- ar gengu vel, enda lá í augum uppi að Dagsbrúnarmefin áttu að fá kjarabætur eins og allir aðrir og jafnvel fremur en allir aðrir, því að Dagsbrúnarmenn iiafa alltaf búið við skarðastan Jilut. KOMMÚNISTAR létu verka- rnennina bíða í heilan ársfjórð- u ng eftir að dýrtíðin hafði auk- izt meðal annars vegna kaup- 'iiækkana annarra. — Þeir byrj- y.ðu ekki á því að lækka verð nauðsynjavara, þeir byrjuðu á því að hækka það. Kauphækk- un til verkamanna kom þrem mánuðum seinna. Hvað var fyrsta verk Emils Jónssonar? — Alþýðuflokksstjórnin byrjaði á því að lækka verðið — og þar með vísitöluna niður í 189 — en enn fá launþegar kaup borgað eftir vísitölu 202. Þarna er mis- muninn á stefnunni að finna. -—• Þarna er brennipunktur þessara deilna. í FYRRASUJVIAR létu kom.m- únistar verkafólkið borga hækk andi vöruverð án þess að það fengi það bætt með kaupi. Nú greiðir verkafólkið stórlækkað vöruverð án þess að kaupið hafi verið lækkað enn. Hins vegar er að því stefnt að lækka allt. Afurðaverðið, vísitöluna ög kaupið. í FYRRASUMAR létu komm- únistar verkamennina fórna eina, aleina. Nú er farið fram á það, eftir að afurðaverðið og vísitalan þar méð hefur lækkað, að ailir fórni nokkru, allir hver einn og einasti starfshópur í sveit og við sjó. Með því á að I gera tilarun til að sjá atvinnu- vegunum farborða, draga úr dýr tíðinni og skapa gjaldeyri okk- ar nokkuð verðgildi, að minnsta kosti meira gildi en vei'ið hefur. ÞETTA er öllum sagt og skýrt og skilmerkilega. Er það ekki hreinskilni? Það er gengið beint framan að fólki og krafist fórna af því vegna afkomu þjóðarinn- ar. Er það ekki hugrekki? Það er að minnsta kosti meira liugrekki en aðrir íslenzkir stjórnmála- flckkar hafa sýnt. Þeirra starf hefur til skamms tíma stefnt í aðra átt, —• og komimúnistar eru við sarna heygarðshorn. Þeir vilja áframhaldandi spennu, — yaxandi dýrtíð. Það sýna gjörðir þeirra þó að þeir segi kannski annað. ÞEIR hafa ætlað sér að sprengja vertíðina í loft upp með verkföllujm. Hvers vegna? Til þess að eyðileggja þá viðleitni, sem miðar að því að stöðva hrun ið, sem fyrirsjáanlegt er ef Al- þýðuflokksstjórninni tekst ekki að framkvæma þá stefnu, sem hún hefur haft du.g og þor, — hreinskilni og hugreltki til að ^segja þjóðinni allri að hún vilji framkvæma. ÁÐUR FYRR voru verka- menn alltaf á undan öðrum með kjarabéetur. Undir stjórn komrn únista hafa þeir verið látnir reka lestina seint og síðar meir, að minnsta kosti, ef kommúnistar hafa' setið í ríkisstjórn! — VINARBREF. HVAÐ hún er gömul er erf- itt'a'ð geta upp á. Að hún sé búin að lifa sitt bezta — já í vissum skilningi: Hún er ekki lengur ung og fög- ur. Að hún hafi nokkurn tíma veriS fögur — enginn, sem sér hana nú gæti sagt það nieð góðri sanivizku. Hún er einn af elztu og traustustu „stammgestum" á Kaffi Póst. Hún situr alltaf við sama borðið, borðið fram við hurðina, beint undir sjónvarp- inu. En þau á Póst eru nýbúin að fá sjónvarp. Sjónvarpið dregur að suma, en fælir burt aðra. Þau á Póst segja, að sal- an hafi margfaldast, síðan þau fengu sjónvarpið. En þetta- notalega • kaffihús breytist á hverju kvöldi úr hlýjum, frið- sælum kaffireit í lítið kvik- myndahús, þar sem reykingar eru leyfðar. En gamla konan kemur eins og venjulega. Hun klæðist enn sömu káp- unni og hún klæddist fyrir þrem árum, þegar ég sá hana fyrst; brúnni kápu með belti •— leðurbelti. Stundum hefur hún annað hvort ekki fundið beltið eða týnt því. Þá hnýtir hún snæri um kápuna. Af hverju belti er á kápunni, er erfitt um að segja — sam- vizkusamur maður myndi sennilega velta . þeirri spurn- ingu lengi og vel fyrir sér, jafn ýel sofa á henni — áður en hann kvæði nökkuð á um það. Kápan er nefnilega alls ekki gerð fyrir beiti. Bæði er hún svonefndur „svagger", og svo hefur gamla konan enga líkam- tega miðju, sem beltið getur fallið inn í. Ólin situr því á kápunni eins og tunnugjörð, losnuð frá tunnusmiðjunni. En hvað um það, ólin er oftast á sínuni stað: um mjaðrnarbeinin eins og á japönskum jiu-jitsu kappa. Ól- in er misjafnlega fast strengd: stundum liggur hún laus á káp- unni, þá dáhtið dýpra að fram- an ,en aftan. Stundum er óli.n fast strengd, og leggst þá kápan á stóra, þykka fellingu yfi’r ólina Oj Stofnuðu félag og œfðu sig í rœðuflutningi - - - - Rætt við víðförulan sjómann frá Siglufirði. Þ, IÐ FYLGIST MEÐ öllu, fclaðamennirnir, svo að ég get víst lítil tíðindi sagt þér frá Súgandafirði, en þess finnst mér raunar vert að geta, að ekki alls fyrir löngu kom þang að læknir og settist þar að. Þannig fórust Eyjólfi S. Bjarnasyni frá Súgandafirði orð, er tíðindamaður blaðsins innti hann frétta að vestan. Eyjólfur er þrítugur að aldri, sonur Bjarna Friðrikssonar, formanns verkalýðsfélagsins í Súgandafirði. Hann dvelst um tíma syðra, sumpart í atvinnu- leit, sumpart til að fá undir- stöðuæfingu og tilsögn í húsa- málun, segir hann. Hann mál- aði húsið fyrir föður sinn, og vill verða betur fær um að inna slíkan greiða af hendi heima í þorpinu. —■ Það verður víst ekkert af slíku námi, segir Eyjólfur. S J ÓMENNSK A. Eyjólfur hefur aðallega stundað sjó, síðan hann komst á legg, farið suður í verið, ann- að slagið, einkum áður fyrr. Síðustu ár hafa þeir feðgarnir mikið stundað sjó á bát, sem þeir eiga sjálfir. — Þetta var atvinnan hjá flestum, segir Eyjólfur, en nú Eyjólfur S. Bjarnason er orðin svo mikil atvinna, að það þarf enginn að fara brott á vertíðinni. Útgerðin hefur aukizt svo mikið síðustu ár. Þorpsbúar hafa lengi verið 380—400, en nú hefur fjölgað, svo að íbúatalan losar eitthvað 40 . Framhald á 10. síðu. $ 20. jarr. 1959 — Alþýðublaðið , hylur hana, þegar ólin er svona I fast strengd, koma í ljós stutt- ir, sterklegir fætur í snú.num? brúnum bómullarsokkum. Skórnir — svartir kvarthæl- ar. Hafa sennilega verið í m.óð, þegar Vín var enn höfuðborg keisaradæmisins Austurríki- Ungverjaland. Skórnir eru eig- inlega neðri póllinn á egglaga hring, en.stuttir fæturnir miöj- an Gamla konan hefur — eítir öllum sólarmerkjum — byrjaS of snemma að staulast í æsku á rykugum götunum í Vín. Þá hafa beinin enn veriö brjósk. Hún greiðir hárið eða strýk- ur aftur frá enninu og bindur í hnút í hnakkanum. Hárið er skolgrátt. Á hárinu situr svört alpa- húfa — dálítið lúin alpahúfa. Alpahúfan eins og mittisólin, situr oftast á sama stað. Stöku sinnum hleypur einhver fjár- inn í húfuna eins og í óþekka belju, sem röltir í þveröfuga átt við allar hinar kýrnar. Þá er húfan slengd langt niður á enni eða hún hallast út í ann- an hvorn vangann eins og six- pensari á drukknum manni. Einnig situr húfan á hnakka- hnúínum eins og maður á ó- temju, og bíður maður þá eft- ir að hún detti. Andlitið á gömlu konunni er dálítið gulleitt, með íestulegan munn yfir lítilli kvenlegri höku. Augun eru grá — germ- anísk. Ef einhver hefur áhuga á gráum augum, myndi hann áreiðanlega skoða þessi augu nánar. Þau eru einhvers konar bland af djúpri alvöru og lífs- gleði manns, sem segir: etum, drekkum og verum glaðir. Þessi blanda í augum gömlu konunnar getur komið manni til að rifja upp gamlar minn- ingar. Kemur þá gjarnan and- litið á gömlum vélstjóra, sem þekkir vélina sína og allar hennar kenjar í ljós á tjaldi minninganna. Ekkert virtist koma þessum gamla vélstjóra á óvart. Gamla konan er líka „stamm gestur“ hjá Schaak, gasthaus- ins við hliðina á Póst. Þar situr hún löngum fremst í salnum á móti skenkiborðinu, þar sem herra Schaak fyllir bjórkrúsir og vínglös. Þar sitja þær fleiri á hennar reki og segja auf- Wiedersehen við gestina, sem fara út og koma þannig til móts við herra Schaak, sem er of önnum kafinn til að geta sagt auf-wiedersehen við hvern sem út fer. Ef gamla konan situr ekki hjá Schaak yfir glasi af víni, situr hún við borðið sitt á Póst og les blöð eða bara situr. Oft situr hún á Póst og tautar. eitt- hvað við sjálfa sig á milli þess, sem hún gnístir tönnum. Ekki samt svo að maður heyri gníst- ið heldur má sjá það á vöng- unum. Þegar gamla kpnan gnístir þannig tönnum hangir hárið aftast í flyksum niðu.r undan alpahúfunni, og stendur oft í allar áttir. Húfan situr þá ým- ist á hnakkahnútnum, eða hún ýtir henni með snöggri hreyf- ingu djúpt fram á enriið og lít- ur þá gjarnan dimm á svip á gestina í kring. Þegar húfan hefur þessar stellingar og gamla konan tautar þannig við Framhald á 11- =íðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.