Alþýðublaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 5
F YPJR þremur árum lentu f'imm menn flugvél sinni í frumskógum Ecuador. Erindi þeirra var að kynna sér lifn- aðarhætti Aucasindíána, sem enn eru á steinaldarstigi og enginn hvítur maður hafði sloppið lifandi frá, og boða þeim trú. Fimmmenningarnir kom- ust í vinfengi við nokkra Indí- ána, en einn góðan veðurdag voru þeir allir myrtir. Ættingj- ar hinna ungu kristniboða héldu áfram starfi þeirra og nú er ekkja eins þeirra komin til Aucasindíánanna ásamt dóttur sinni á fjórða ári og systur eins hins myrta. Hinar ungu konur undirbjuggu starf sitt af mikilli kostgæfni. Þær lærðu hið flókna mál Aucas- manna og leituðu handleiðslu Guðs með bæn og biblíulestri. Þær ætluðu sér að dveljast um ársskeið hjá þessum frumstæða kynþætti og boða þeim kristna trú. En þótt Betty Elliot og Rachel Saint vinni vináttu krisfna frú Aucasmanna, þá eru þær í sí- felldri hættu. Aðrir kynþættir í nágrenninu eru óvinir Aucas- , manna og búast má við átökum þúrra á hverri stundu. í síðasta hefti bandaríska tímaritsins Life er birtur kafli úr dagbók Betty Elliot, ekkju eins hinna myrtu. Segir þar frá þeim örðugleikum, sem á vcgi þeirra vinkvennanna varð. Fyrst og fremst erfiðleikunum við að ná sambandi við Aucas- mennina. I°yrir rúmu ári hittu þær tvær Aucaskonur, sem af forvitni höfðu reikað út úr frumskóginum. Þær bjuggu um tírna með Quichusindíán- um, sem vinveitíir eru hvítum mönnum. Þar námu þær málið af Aucaskonunum tveim, sem er flókið og erfitt í framburði. Eftir nokkra mánuði sneru ■Aucaskonurnar heim aftur og hófú að undirbúa komu hvítu kvennanna til ættbálks síns. Að stuttum tíma liðnum komu þær aftur og með þeim sjö Aucasmenn og var konunum Trúboðskonan hiá rauðum kynsystrum sínum. agnrýnandinn og angrimlahjólið ÞAÐ vakti mikla athygli og umtal á sínum tíma, er óflutt útvarpserindi var gagnrýnt hér í dagblaði. Bað blaðið síð- an að sjálfsögðu lesendur og erindishöfund afsökunar, en gagnrýnandinn sá sér vænleg- ast að rita ekki framar um út- varpsefni. Ekki veit ég .hvernig almenn ingsálitið dæmir það nú, er Sig- urður A. Magnússon gagnrýnir í Morgunblaðinu sögu mína, „Gangrimlahjólið“ — án þess að hafa lesið hana. Því ekki ætla ég honum þá varmennsku •— og mundi engum ætla — að hann rangfæri söguna og falsi efnislega, vitandi vits. Annar meginþáttur sögunn- ar fjallar til dæmis ekki fyrst og fremst um vélamenninguna og „gangrimlahjólið" er þar ekki fyrst og fremst tákn henn- ar, eins og hann vill vera láta, heldur mua hver skyni borinn maður sjá það við lestur, að þar er sögð þróun þjóðfélags- hátta og deilt á ofskipulag og einræði. Gangrimlahjólið á þar því ekki táknrænt — fremur en tæknilega í veruleikanum — neitt skylt við venjulegt vélarhjól, og skapar því engin tengsl með þessum þætti sögu minnar og tilnefndu léikriti Thornton Wilders, eins og gagn rýnandinn gefur í skyn. Þá lætur ungi maðurinn í hinum meginþætti sögunnar ekki í ljós neina löngun til að fara á sjóinn, heldur maðurinn með stimpilinn; þar vinnur gagn- rýnandinn það afrek að gera eina persónu úr tveim. Sanna Framhald á 10. síðu. Htvíta stúlk'ui k;á Indíánabörnunum. boðið formlega að koma scm gestir þeirra inn í frumskóg- inn. Einn Aucasmanna bar litlu telpuna á bakinu alla leið. Aucaskynþátturinn er mjög i frumstæður. Þeir lifa mest á1 apakjöti og fuglum, sem þeir steikja gjarnan lifandi. Vopn þeirra eru spjót og eiturörvar, sem þeir blása úr pípum. Þeir kunna að ríða net og körfur og eru það svo til eina iðnin, sem þeir kunna. Klukkutímum saman sitja þeir og syngj'a endalaust söngva , með dáleiðandi hrynjandi. Þeir eru náttúrubörn og óttinn er sterkasta aflið í lífi þeirra. Betty Elliot segir að þeir hafi ekki drepið mann sinn og fé- laga hans af illmennsku heldur vegna þess að þeir héldu að hinir hvítu menn væru mann- ætur og drápu þá blátt áfram í varnarskyni. Trúboðskonurnar eru bjart- sýnar og telja að allt muni fara vel. Hlutverk þeirra er mikið. Þær eru fyrstu hvítu mann- eskjurnar, sem fá tækifæri til þess að kynnast þessum undar- lega og dularfulla kynflokki. Gjaldeyrissfaðan SAMKVÆMT upplýsinguni nýútkominna Fjármálatíðinda. batnaöi gjaldeyrisstaða bank- anna allmikið í október og til nóvemberloka. Að viðbættum kröfum á út- lönd en að ábyrgðum og greiðsluskuldbingingum frá- dregnum var gjaldeyrisstaðaa í nóvemberlok óhagstæð um 246 millj. kr., en var á sama tíma í fyrra óhagstæð um 290 millj. kr. BETRI FJÁRHEGUR RÍKISSJÓÐS. Þróun peningamálanna hef- ur einnig verið nokkuð hag- stæðari í október og nóvember sl. en á sama tíma í fyrra. Að- staða bankanna út á við batn- aði vegna mjög mikilla tekna. af útflutningi og heildarútlán. bankanna lækkuðu um 52 millj. kr. Þrátt fyrir það hefur út- lánaaukningin orðið 494 millj. kr. fyrstu 11 mánuði ársins, ert það er miklu meiri aukning en. á sama tíma í fyrra. í nóvem- berlok voru heildarútlán 36S millj. kr. meiri en á sama tíma í fyrra. Hagstæðari þróun tvo síS- ustu. mánuði er svo að segja eingöngu að þakka betri fjár- hag ríkissióðs og ríkisstofn- ana, bar á meðal Útflutnings- sjóðs, miðað við sama tíma * fyrra. Samtals batnaði að- staða ríkissjóðs og ríkisstofn- ana í okt. og nóv. unt 115 millj. kr. gagnvart Seðlabank anum og var í nóv. lok 135 millj. kr. betri en á sama tíma í fyrra. Aðstaða banka og pen ingastofnana gagnvart Seðla- bankanum hefur hins vegar versnað á sama tíma. ; _ INNANLANDS. — • Togararnir: Aðalviðburð ; ur hjá þeim í s. 1. viku : voru landanir tveggja ■ þeirra í Englandi: Ingólf- ■ ur Arnarson með 145 t. á j £ 11.593 (ísl. kr. 528.000, ■ 00) og Fylkir með 150 t. á ■ £ 12.992 (ísl. kr. 592.000, j 00). Einn togari seldi í ; Þýzkalandi. Það var Jón ■ Forseti með 158 t. á DM j 119.422 (ísl. kr. 465,000,00). : Afli á heimamiðum er enn ■ þá tregur, og þeim fer fjölg ; andi, sem stunda vilja veið : ina héf heima á þessum • tíma. Karfaaflinn er góður ; á NýfundnalandsmiðUnum. : Reykjavík: Róið var ■ hvern dag vikunnar, þar ; sem veður var mjög hag- I stætt. Afli línubáta var : nokkuð misjafn og frá 4— ■ 8 tonn. Mikil ýsa er hjá j sumum bátunum. Þessir ; útilegubátar lönduðu í vik ■ unni: Guðmundur Þórðar- j son 52 t., Helga 58 t., Haf- : þór 50 t., Rifsnes 41 t. og ; Björn Jónsson með eitt- ■ hvað yfir 40 t. Lagnir voru ; yfirleitt 6 eða 7 og miðað ; er við fisk slægðan með ■ haus. Ilafnarfjörður: Aðeins ■ 2 bátar réru og öfluðu vel. ■ Faxaborg, sem er á úti]egu : landaði 45 tonnum. Samn- ; ingar voru samþykktir • með 15:14 og keppast menn : nú um að útfoúa bátana til ; róðra. i Keflavík: Alla vikuna á- ■ gæt róðrarveður og róið : daglega. 29 bátar eru bvrj- ; aðir og hafa farið samt. ■ 152 róðra og heildarafli er 1003 t. óslægt. (Í5. jan.) (í fyrra á sáma tíma: 171 róður og 855 t.). Hæstu bátar: Ólafur Magnússon 70,5 t. í 8 róðrum; Hilmir 61 t. í 7 róðrum; Guðm. Þórðarson 60 t. í 8 róðrum og Vilborg 59 t. í 7 róðrum. Ýsuafli hefur minnkað talsvert, en var allt að helmingur fyrst. Sandgerði: Róið var alla daga vikunnar, enda veður daga vikunnar. Afli er mis jafn, en yfirleitt 5—12 t., þó fengu sumir talsvert betra og Kári fékk 18 t. á föstudaginn, en mestur afl- inn var langa og keila. Akranes: Róið var alla daga vikunnar og afli ágætur eða 5—11 t. Heild- arafli 15. jan. var 483 t. i 74 róðrum. Hæstu bátar eru Sigurvon 60 t., Sigrún 56 t., Höfrungur 52 t. ágæt. Afli var mjög góður miðað við árstíma og fékkst allt að 14,5 t. (Guð- björg), annárs yfirleitt frá 5—12 t. Þann 15. jan. höfðu 17 bátar hafið róðra og farið 95 ferðir og aflað samtals 678,5 t. niiðað við slægt með haus. (1958 477 t; 1957 434 t. á sama tíma). Nú þegar hafa nokkrir bát- ar fengið meiri afla en þeir fengu allan janúar 1957, og nærri því eins mikið og þeir fengu allan janúar í fyrra. 15. jan. var Guð- björg aflahæst með 66 t. Þorláksliöfn: Þaðan hafa 6 bátar hafið róðra og afl- að ágætlega miðað við árs- tíma, 5—8 t. í lögn. Mikil ýsa veiðist þar einnig. Vestmannaeyjar: í Eyj- um eru 41 bátur byrjaðir með línu og róið var alla Tállmafjörður: Þaðan hafa bátar róið í allt haust og vetur og afli verið ágæt ur eða 5—12 t. Mikil ýsa veiðist. Þessir tveir bátar veita öllu vinnandi fólki á Sveinseyri næga atvinnu. Eins og málin standa í dag er engin von til þess að Færeyingar komi til vinnu hér í vetur. Enn vantar talsvert af mönnum á bátana og einnig í frvsti- húsin. Rætt hefur verið um að fá skólafólk til vinnu og væri vel eí svo skipað- ist málum Einhverjir munu rísa npp og mót- mæla þessu kröftuglega og færa þau rök til, að ekki veiti af tímanum til náms. En benda má á eftirfarandi í því sambandi. Veturinn. 1948—49 gekk hinn al- Framhald á 11. síðu. Alþýðublaðið — 20. jan. 1959 ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.