Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
B 13
Trillufiski
ekið f rá
Vopnafirði
á markað
á Dalvík
EINAR Sigurjónsson, sem gerir
út trilluna Nóa EA frá Vopna-
firði, hefur í röskan tvo og hálf-
an mánuð ekið öllum afia til
Dalvíkur þar sem hann er seldur
á hærra verði á gólfmarkaði
Fiskmiðlunar Norðurlands held-
ur en á Vopnafirði. Fleiri hafa
fylgt í kjölfarið og hefur Einar
ekið rúmum 100 tonnum af fiski
á markaðinn frá því um miðjan
júní og er verðmæti aflans um 8
milljónir króna. Nú selja fjórir
til fimm bátar frá Vopnafirði
afla á markaðnum og hefur Ein-
ar tvo bíla í flutningunum, en
leiðin sem ekin er með fiskinn
og heim aftur er um 570 kíló-
metrar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Einar Sigurjónsson.
„Frá því í fyrrahaust hef ég
fylgst með verði á fiskmörkuðunum
og var auðvitað hundóánægður með
lágmarksverðið sem Tangi greiðir
fyrir fiskinn. Ég fór að selja minn
fisk sjálfur á svæðinu frá Egilsstöð-
um o g allt norður að Laugum í
Reykjadal og það var mjög
skemmtilegt. Þegar svo varð ófært
í vetur tók ég lífinu með ró, hélt
áfram að fylgjast með fiskverði og
tók þátt í fundahöldum með Tanga-
mönnum um hækkun á verði, en
það gekk ekki upp. Eftir að grá-
sleppuvertíð lauk í vor fór ég að
skima eftir manni á bátinn og réð
Heimi Þór Gíslason og keyrði sjálf-
ur aflann á markaðinn á Dalvík,“
sagði Einar Siguijónsson.
Fljótlega fór Einar einnig að
flytja fisk á markaðinn fyrir eigend-
ur bátanna Ólafar NS og Sæborgar
NS og síðan bættist sá fjórði í hóp-
inn, Rita NS, auk þess sem afli úr
Heiðu Ósk NS hefur stöku sinnum
farið með. Samtals hefur Einar
flutt 106 tonn af fiski til Dalvíkur
og verðmæti aflans er um 8 milljón-
ir króna. „Menn verða að bjarga
sér, hér fæst gott verð fyrir aflann
og mun hærra en Tangi á Vopna-
firði greiðir og á meðan svo er þá
flyt ég minn afla hingað,“ sagði
Einar. Hann benti á til samanburð-
ar að fyrir skömmu hefði hann land-
að 190 kílóum hjá Tanga og fengið
fyrir kílóið 45,02 krónurogværi
þá með talið heimalöndunarálag,
línuuppbót og kassauppbót. Á
markaðnum á Dalvík hefði hann á
sama tíma fengið 86 krónur fyrir
kílóið.
Með tvo bila í flutningum
Einar er með tvo bíla í fiskflutn-
ingunum, hann átti 3,5 tonna flutn-
ingabíl þegar hann hóf að flytja
fisk á markaðinn, en eftir að um-
svifin jukust festi hann kaup á
stærri bíl, eða 5 tonna. Hann er
utn ijórar klukkustundir hvora leið
og er kostnaðurinn við flutning
fisksins frá Vopnafirði um 11 krón-
ur á kíló.
SAUÐATAÐ OG BESTA
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jón B. Rögnvaldsson, sem starfað hefúr á vigtinni undanfarin ár
sagði að það væri helst ef togararnir væru með lausan fisk að það
væri vigtað og svo eitthvað af ferskri rækju. Annars væri þetta
allt mögulegt frá Pétri og Páli, allt frá sauðataði og upp í besta
loðnunýöl, eins og hann orðaði það.
Fleira vigtað
en fiskurinn
MIKLAR breytingar urðu á vigt-
un afla er skuttogarar leystu
síðutogara af hólmi og kassar
komu til sögunnar. Er nú svo
komið að flest annað en fiskur
er vigtaður á hafnarvigtinni á
mörgum stöðum, t.d. á Akur-
eyri.
Guðmundur Sigurbjörnsson,
hafnarstjóri sagði þróunina í bæn-
um hafa verið þannig að nánast
ekkert væri vigtað af fiski lengur.
Áður hefði verið vigtað á höfninni
en eftir að kassarnir komu, fyrir
um tíu árum, hefði nær einvörð-
ungu verið stuðst við úrtaksvigtun
af útgerðarfélagsmönnum. Trillu-
fiskurinn væri aftur á móti vigtað-
ur í smábátahöfninni og sæju
starfsmenn KEA um þá vigtun
enda keypti KEA nánast allan afla
smábátanna.
Hann sagði að reglugerðar-
breyting sem nú væri að taka gildi
myndi aðallega hafa þau áhrif á
Akureyri að einungis hafnarstarfs-
menn myndu fá að vigta triilufisk-
inn. Taldi hann líklegt að áfram
yrði stuðst við vigtina í smábáta-
höfninni en ekki bílavigt Akur-
eyrarhafnar. Þetta þýddi aukin
útgjöld sem enn væri óvíst hver
ætti að bera. Guðmundur sagði að
farið hefði verið fram á það við
ráðuneytið að starfsmenn kaupfé-
lagsins myndu áfram fá að vigta.
Hvað afia togaranna varðaði
yrði áfram stuðst við úrtaksvigtun,
þar fengist undanþága. „Það er
óframkvæmanlegt að fara aftur til
fortíðar og vigta allt á hafnarvog-
inni,“ sagði Guðmundur. Aftur á
móti yrði ÚA að gefa upp löndun-
armagn daglega og yrði þeim upp-
lýsingum komið samdægurs til ráð-
uneytisins.
MsM
FRETTIR
s_____________*
„Ef þú býður vöru eða
þjónustu fyrir fiskvinnslu
og útgerð skaltu auglýsa í
FISKIFRÉTTUM. Ég hef
sannreynt að auglýsing í
FISKIFRÉTTUM vegur
þungt! ”
Jónas Agústsson,
sölustjóri Pólstækni.
I
VEGUR
ÞUNGT
FISKIFRÉTTIR -ferskar í hverri viku
____
múDi
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA