Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER „Þeim fannsl þetta ekkert voðalega sniðugt í fyrstu“ ^^■■■■■■■■^^■■^■■■■■■■■■■■i Á Vélaverk- í Sjóminjasafni Jósafats riSontr Hmj Hinrikssonar í Súðarvoginum ^ðysVo|inþ™ og menn í önn- um. Vélagnýrinn tekur á móti manni þegar inn er komið og skellibjartir rafsuðuglamparnir lemja á verkstæðisveggjunum. Þarna er meðal annars verið að smíða toghlerana, sem borið hafa hróður fyrirtækisins vítt og breitt, smáa hlera og stóra hlera, sem sumir eru nærri fimm tonn að þyngd, og það hvarflar ekki að neinum, að hann sé kominn inn á safn. Svo er heldur ekki en það er þó ekki langt undan. „Sjóminjasafn“ stendur yfir dyr- unum á hringlaga uppgönguturni við norðurenda verkstæðishúss J. Hinrikssonar og þegar upp er kom- ið blasir við augum eitt merkileg- asta minjasafn hér á landi, hátt á annað þúsund munir, sem segja sína sögu um líf og starf kynslóðanna við sjósókn og fiskvinnslu og önnur störf. Sumir eru „aðeins“ nokkurra áratuga gamlir, aðrir geta talið ald- ur sinn í öldum. Það er athafnamað- urinn Jósafat Hinriksson, sem hefur safnað þeim saman, og hann hefur ekki einu sinni leitt hugann að því hvað það hefur kostað í fé og fyrir- höfn. „Þeim fannst þetta ekkert voða- lega sniðugt í fyrstu, sonum mínum, þegar ég var að byija á söfnuninni, en þetta er sniðugt, al- veg ómetanlegt,“ segir Jósafat þeg- ar við göngum inn í salinn og hann byijar á að sýna okkur brúna eða stýrispallinn, sem hann er „dálítið stoltur af“. Ekki spil, heldur gömul stýrismaskina „Þetta er gömul stýrismaskína, allt að 100 ára, sem hefur verið ofandekks á skútu. Mjög dobluð og létt að stýra en rattið fékk ég ann- ars staðar frá. Hélt raunar fyrst, að þetta væri spil'en þegar það hafði verið hreinsað kom þessi merkilegi hlutur í ljós. Hér er líka kompás og fóturinn úr þessum fína harðviði, ekta mahoní. Hann var svo skítugur þegar ég fékk hann, að það tók einn mann 16 daga að þrífa hann,“ segir Jósafat og snýr sér nú að öðru telegrafinu. „Sjóminjasafn íslands á ekki tele-' graf, Jósafat á það,“ segir hann og lætur klingja í gljáandi gripnum, sem virðist ekki vera deginum eldri en frá í gær. Þannig var hann þó ekki þegar Jósafat fékk hann í hendur, þá sást ekki í koparinn fyrir ótal málningarlögum. Líkön af noröfirskum skipum Jósafat er fæddur í Reykjavík en fluttist ungur með fjölskyldunni austur á Neskaupstað þar sem fað- ir hans setti upp vélsmiðju. Síðan hefur hann alltaf verið mikill Norð- firðingur í sér. Meðal fjölmargra Jósafat gægist fram á milli gamalla blakka en þeim eins og öllum munum á safninu er einstaklega vel og snyrtilega fyrir komið. RÆKTVIÐ SÖGUNA skipslíkana á safninu eru Atli NK-1, sem Jósafat fékk vin sinn í Noregi til að smíða eftir uppgefnum málum, og Magni NK-68, sem fórst frá Sandgerði 1946. Var Jósafat sjálfur á Magna sem strákur og hann segist staðráðinn í að koma sér upp fleiri skipsmódelum af norð- firskum skipum. Auk þess eru svo á safninu myndir af öllum gufutog- urunum og öðrum gufuskipum hér áður fyrr. í vélsmiðju föðurins Segja má, að á Sjóminjasafninu hans Jósafats sé annað safn, sem er dálítill heimur út af fyrir sig, nákvæm eftirlíking' í fullri stærð af vélsmiðju föður hans á Neskaup- stað. Það er að segja af húsinu sjálfu því að tvískipt hurðin er upp- hafleg og allt innanstokks. „Hér stóð gamli maðurinn við vinnu sína, hér er peningaskúffan með leynilegri læsingu og hér er vinnuborðið okkar strákanna. í sumar komst ég svo yfir borvél úr smiðjunni, handsnúna auðvitað, og svo hef ég verið að safna ýmsu, sem er smíðað í smiðju og engin rafsuða kom nálægt. Þarna er fyrsti steðjinn hans — heyrirðu hvað það lætur kynlega í honum,“ segir Jósafat þegar hann gengur um þessar „gömlu æskuslóðir". Sjón er sögu ríkari A Sjóminjasafninu eru alls kyns verkfæri og vélar, blakkir og borar, skipslíkön, sjóúr, uppstoppaðir fugl- ar og mikið af myndum svo fátt eitt sé nefnt. Þegar við göngum út bendir Jósafat á dálítið djásn, sem hangir uppi á vegg. „Þetta er áttkantur, sem var notaður til að taka sólarhæð áður en sextanturinn kom til sögunnar. Eg gæti trúað, að hann væri orðinn allt að 260 ára gamall, franskur að gerð og hefur líklega komið í land á Norðfirði af einhverri skút- unni,“ segir Jósafat, sem sumir telja jafnvel stærsta, sjálfstæða framleiðanda toghlera í heiminuin. NEC/MEFAX IMYNDSENDITÆKI OPUS iÍMKERII Storno Farsímar cetelco Farsímar Við erum ó sjávarútvegssýningunni Póstur og sími kappkostar að veita útgerðarmönnum og skipstjórnar- mönnum skjóta og örugga pjónustu. Auk pess hafa söludeildir okkar á boðstólum traustan fjarskipta- og símabúnað frá viðurkenndum framleiðendum. Öllum búnaði fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku og íslenskur texti er á skjá tækja og lyklaborði myndsenditækja. Vertu velkomin(n) í sýningarbás okkar, E 110, á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll. Við tökum vel á móti þér og komum þér á óvart me5 DfSCTt IR fVZ CÍIVill góðum tilboðum. rU^IUK UU >IIVll Söludeildir I Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27 og á póst- og símstöðvum um land allt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.