Morgunblaðið - 19.09.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SJÁVARÚTVEGSSYNINGBIM
MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER
B 11
Marel hf. með nýja
kynslóð af vogum
NÝJA VOGIN
Fjarstýring er ein þeirra nýjunga, sem einkenna framleiðslu
Marels á M2000-vogunum.
M2000-línan, ný
kynslóð voga frá
Marel, verður í
fyrsta sinn
kynnt opinber-
lega á sýningu
nú. Vogir þessar eru hannaðar
af tæknideild Marel og hefur
vinna við þær tekið um tvö ár.
Markmiðið við hönnunina hefur
verið aukin nákvæmni og hrað-
virkni, en vcgir þessar eru einn-
ig fáanlegar með fjarstýringu
til notkunar við stillingu og
skráningu. Vogir af þessu tagi
eru þegar í notkun í fiskvinnslu
bæði hér heima og erlendis.
Þórólfur Árnason, markaðs- og
framleiðslustjóri Marel, segir vog-
irnar valda byltingu í vigtun og
skráningu í fiskiðnaði. Vogirnar
standist ströngustu löggildingar-
kröfur sem gerðar séu í löndum
Evrópubandalagsins, en auk ijar-
stýringarinnar, sem sé mikil fram-
úrstefna, megi nefna, að í vogunum
séu stórir tölustafir fyrir upplýsing-
ar og sérstakir skjáir til útskýringa
og leiðbeininga við notkun. Því sé
enn gengið lengra en áður í því að
framleiða vogir, sem auðveidar séu
í notkun. Nákvæmni hinna nýju
voga sé svo einstök, eða allt að 1
gramms nákvæmni við vigtun 200
stykkja á mínútu.
Að sögn Þórólfs hefur Marei ver-
ið leiðandi í heiminum í framleiðslu
á skipavogum og hafi nú yfir 50%
markaðshlutdeild á því sviði. Mikið
af vogum hafi verið selt til Seattle
í Bandaríkjunum og síðustu tvö
árin hafi um 200 skipavogir verið
seldar til Sovétríkjanna. í marz síð-
astliðnum afhenti Marel færibanda-
flokkara í vestur-þýzka frystiskipið
Kiel. Hann flokkar 100 til 120 flök
á mínútu með 5 gramma nákvæmni
í ólgusjó. Þá hefur Marel sett upp
vogir í frystihúsunum í Eyjum,
flokkunarsamstæðu hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa, flokkara fyrir
saltfiskvinnslu í Sjófiski í Hafnar-
firði og Tinnu í Vestmannaeyjum
og tékkvog hjá Norðurstjörnunni í
Hafnarfirði.
Á sýningunni verða flest þessara
tækja sýnd, en Marel mun einnig
standa fyrir kynningu í húsakynn-
um sínum í Höfðabakka meðan á
sýningunni stendur, þar sem meðal
annars verður fjallað um notkun
tölvusjónar eða myndgreiningar í
fiskiðnaði.
Hampiðjan kynnir
ofurtrollið Gloriu
„GLORIA“, ofurtrollið, sem Hampiðjan hefur
hannað fyrir úthafskarfaveiðarnar, er meðal
þess, sem fyrirtækið kynnir á sjávarútvegssýn-
ingunni. Um 2 tugir íslenzkra togara nota Glor-
iu við úthafskarfann og um tugur norskra tog-
ara. Samdóma álit skipstjórnarmanna er að
fískni þessa trolls sé allt að þrisvar sinnum meiri en þeirra
trolla, sem til skamms tíma voru notuð, en þau eru reyndar
miklu minni.
SAMVINNA
VIÐ
SJÓMENN
HÖNNUN ofurtrollsins fór
að töluverðu leyti fram í
samvinnu við útgerð frysti-
togara Sjólastöðvarinnar og
um borð í þeim. Hér eru
þeir Páll B. Eyjólfsson, skip-
stjóri á Haraldi Kristjáns-
syni, og Guðmundur Gunn-
arsson, sölustjóri hjá Hamp-
iðjunni, að binda fjögurra
metra möskva í trollið og
njóta við það aðstoðar
tveggja skipverja.
Hampiðjan hefur einnig hannað
minna troll, þar sem stpra trollið
reyndist of þungt í vöfum fyrir
minni togara og hefur það, og
reyndar það stóra líka, verið notað
með góðum árangri við karfaveið-
ar á hefðbundum miðum, ekki
aðeins á úthafskarfanum suðvest-
ur í hafi. Guðmundur Gunnarsson,
sölustjóri Hampiðjunnar segir að
þessi þróun hafi byijað með sam-
vinnu við útgerð frystistogara
Sjólastöðvarinnar, en þeir hafi
fyrstir reynt fyrir sér á þessurn
veiðum. Það sé þeim því mikið að
þakka hve vel hafi gengið.
20 tonn á móti 10 tonnum
Skipveijar á Haraldi Kristjáns-
syni, frystitogara frá Hafnarfirði,
voru fyrstir til að reyna Gloriu í
Skeijadýpi og segir einn skipveija,
Eirikur Ragnarsson, stýrimaður,
svo frá í Pokahominu, tækniriti
Hampiðjunnar, um veiðar og veið-
arfæri: „Við voram staddir 80
sjómílur vestsuðvestur af jökli,
nánar tiltekið á Jökultungu. Við
fréttum að togararnir Vigri og
Víðir hefðu verið á veiðum með
flottroli, austarlega í Skeijadýpi,
og verið að fá 5 til 12 tonn í
hali. Þar sem við orum með ofur-
trollið Gloriu uppi á flottrollskefl-
inu var ákveðið að keyra suður í
Skeijadýpi og reyna gripinn þar
... Trollið var mikið dregið með
fótreipið 5 til 10 faðma frá botni,
en þá var höfuðlínan 45 til 50
faðma frá botni, því Gloria er með
ti'ollopnun upp á eina 40 faðma
milli höfuðlínu og fótreipis. Dregið
var í fimm og hálfan tíma þetta
fyrsta hal og reyndist aflinn vera
20 til 25 tonn, en þá voru fjórir
aðrir togarar að fá 7 til 12 tonn
i hefðbundin flottroll með 18 til
22 faðma opnun.“
Framleiðslan víða um heim
Gloria verður eitt að því, sem
kynnt verður á vegum Hampiðj-
unnar á sýningunni, en auk þess
verða þar kynntir aðrir hefðbundn-
ir þættir starfseminnar. Þróun og
hönnum veiðarfæra er snar þáttur
í starfseminni og þar má meðal
annars nefna tilraunir um borð í
rannsóknarskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni í sumar, en þá vora
könnuð áhrif notkunar ýmissa lita
í trollinu. Á sýningunni verða sýnd
myndbönd frá þessari könnun.
Hampiðjan selur nú framleiðslu
sína, trollnet og snurvoðartóg, svo
dæmi séu tekin, víða um heim auk
þess, sem selt er hér heima.
Eimskip kynnir
flutningakerfið
Á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll mun Eim-
skipafélag íslands leggja áherslu á að kynna flutning-
akerfi fyrirtækisins, áætlunarferðir til hafna á meg-
inlandi Evrópu, Bretlandi og Norður-Ameríku og
jafnframt þá mikilvægu þjónustu, sem siglingar til
nokkurra helstu hafna hérlendis eru.
Þórður Sverrisson sagði, að
áherslan yrði lögð á að kynna flutn-
ingaþjónustuna, bæði fyrir útflytj-
endur hér heim og þá gesti, sem
koma erlendis frá. Verður fyrirtæk-
ið með sýningarpláss inni og annað
utandyra fyrir gáma en gámaflutn-
ingar hafa vaxið mjög á síðustu
árum, einkum þegar um er að ræða
smærri flutningaeiningar. Ræður
Eimskipafélagið nú yfir tveimur
ekjuskipum, sem eru jafnframt
stærstu skipin í íslenska flotanum.
Sagði Þórður, að á undanförnum
árum hefði Eimskip tekist að auka
mjög hagkvæmni í flutningum með
markvissri skipulagningu, bættri
upplýsingamiðlun og nýjungum í
flutningatækni og yrði þessu öllu
gerð góð skil á sýningunni.
HUGBUNAÐUR
SEMNÝTIST
ÞÍNU FYRIRTÆKI
9 FRAMLEIÐSLU- OG BIRGÐABÓKHALD
heldur utan um framleiðslu og birgóir í
frystihúsi. Öflugur millilager og afreikningur.
Veósetningar skv. reglum afuröalánadeilda.
Skráning á upplýsingum getur fariö fram á
vönduó tæki í vinnslusal.
0 UMBÚÐALAGER heldur utan um
umbúöir sem notaðar eru viá framleióslu í
frystihúsi. Tengist við framleiöslu- og
birgðabókhaldskerfið. Sjálfvirk niðurtalning á
umbúðum sem notaðar eru við framleióslu.
0 HL UTASKIPTAKERFI til Útreiknings á
kaupauka starfsfólks vió framleióslu í
frystikhúsum skv. samningum. Tengist vió
framleióslu- og birgðabókhaldskerfið og getur
einnig verið sjálfstætt.
0 TÍMASKRÁNINGARKERFI leysir
handunnar stimpilklukkuvinnslur af hólmj,
Kerfið notar strikamerkja- eða
segulrandalesara. Skilar færslum yfir í
launabókhald. Öflugar úrvinnslur. Stjórnun á
takmörkuðum aðgangi aó hurðum vinnustaða
með aðstoð strikamerkja- og
segulrandalesara.
0 UPPBOÐSKERFI fyrir fiskmarkaöi og
aóra uppboðsmarkaði til að auóvelda
uppboö, reikningagerö og margþætta
skýrslugeró til stofnana og kaupenda.
Beintenging vió vogir.
0 GÆÐAEFTIRLITSKERFI til eftirlits og
stýringar á gæóum framleióslu í frystihúsum.
Reiknar út kaupauka starfsfólks í frystihúsi.
Skráning á upplýsingum fer fram á vönduó
tæki í vinnslusal.
0 HUGBÚNAÐUR OG TÆKI vinna
á IBM S36 og/eða IBM AS400 tölvur. Vió
bjóðum hugbúnaóinn og tæki ásamt
uppsetningu og þeirri þjónustu sem óskað er
eftir.
Góð reynsla stórra fyrirtækja
er trygging sem treystandi er á.
Leitaðu nánari upplýsinga.
ftlllllltfclll HUGBÚNAÐARHÚSIÐ hf.
Síðumúla 21, 108 Reykjavík. Sími 688811