Morgunblaðið - 19.09.1990, Síða 22

Morgunblaðið - 19.09.1990, Síða 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER í bás okkar á sjávarútvegssýningunni, 100-E, sýnum við meðal annars PERKINS dfselvél og LINDE LANSING lyftara. Hvar sem þörf er á tryggu afli kemur PERKINS til skjalanna. Um allan heim knýja PERKINS vélar skip og báta( vinnuvélar og bíla, og það eru hvarvetna talin meðmœli með atvinnutœki, efíþví er PERKINSvél. PERKINS vélar eru meðal annars í LINDE-LANSING lyfturunum, sem við kynnum einnig í básnum okkar á sjávarútvegssýningunni. Verið velkomin í bás 100-E á sjávarútvegssýningunni. Vonandi getum við komið til liðs við ykkur. Perkins o/Znke- Lansing HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVIK SIMI 91 -670000 Þjónustugjöld á ferska fisknum hækka í Englandi Breytir litlu íyrLr okkur segir Jón Olgeirsson FRÁ og með apríl á næsta ári verður sérstakur skatt- ur, sem Weskir fiskkaup- endur greiða af hverju tonni, hækkaður um 31% eða úr 640 kr. á tonn í 975 kr. Er frá þessu skýrt í breska sjávarvöru- tímaritinu Seafood News en skattinum er ætlað að standa undir rekstri Seafish, sem er opinber en sjálfstæð þjónustustofnun við breskan fiskiðnað, og á hækkunarinnar að einhverju leyti að gæta í fiskverði til neytenda. Jón Olgeirsson, ræðismaður íslands í Grims- by, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hér væri þó um það litlar upphæðir að ræða, að þær breyttu litlu til eða frá. Þessari skattahækkun hefur ver- ið tekið misjafnlega og er það fisk- vinnslan í Skotlandi, einkum þó í Aberdeen, sem hefur mótmælt henni. Segir talsmaður hennar, Robert Milne, að fyrir það fyrsta eigi allir aðilar, líka útgerðin, að taka þátt í henni og hann kveðst efast um, að unnt sé að skila hækk- uninni áleiðis til annarra kaupenda. Aðrir hafa tekið betur í skatta- hækkunina og segja, að með henni sé aðeins verið að samræma gjaldið almennri verðlagsþróun til hags- bóta fyrir Seafish og breskan sjáv- arútveg. Jón Olgeirsson sagði, að Seafish- stofnun, sem þessi sérstaki skattur rennur til, væri í eigu ríkisins en þó óháð og annaðist alls konar þjón- ustu og upplýsingaöflun fyrir fisk- iðnaðinn. Tæki til dæmis saman allar tölur um veiðar, vinnslu og fisklandanir, fylgdist með fiskneysl- unni og þeim breytingum, sem á henni yrðu, og kæmi á framfæri upplýsingum um nýjustu tækni og þróun. Þá sæi stofnunin einnig um víðtæka markaðskynningu á fiski og öðrum sjávarafurðum, til dæmis í sjónvarpi. Kvaðst Jón telja stofn- unina hafa unnið gott starf en þeir væru þó til, sem um það efuðust. Sagði hann ólíklegt, að skatturinn, sem í sjáifum sér væri ekki hár, myndi hafa nokkur áhrif á það verð, sem íslensku skipin hafa verið að fá fyrir fiskinn í Bretlandi. Þess má geta, að skatturinn tek- ur ekki til bræðslufisks, innflutts fiskimjöls, saltfisks og fisks, sem er verkaður með öðrum hætti. Aukinn ufsa- og karfaafli SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Fiskifélagsins um afla fyrstu átta mánuði ársins hefur ufsa- og karfaafli aukizt í ár. Fyrstu átta mánuði þessa árs komu á land 55.854 tonn af karfa á móti 53.980 t í fyrra. Af ufsa komu á land fyrstu átta mánuðina í ár 60.274 t samanborið við 46.420 t. í Vestmannaeyjum jókst karfa- afli um 2.500 tonn og ufsaafli var 10 þúsund t á móti 8.736. í Hafnar- firði 4.663 t á móti 3.448 tonnum, ísafirði 1.243 á moti 667 tonnum, Siglufirði 1.964 á móti 961 t, Nes- kaupstað 1.708 á móti 1.212 og Fáskrúðsfirði 1.362 tonn móti 537. Mikill samdráttur hefur orðið í grálúðuafla á árinu, um síðustu mánaðamót höfðu komið á land rúmlega 31 þúsund tonn á móti 54 þúsund tonnum á sama tíma í fyrra. Mestur er samdrátturinn í grálúðuafla á stöðum eins og Vest- mannaeyjum, 362 tonn á móti 1.664, Hafnarfirði 5.664 tonn á móti 8.887 tonnum, Reykjavík 1.801 tonn á móti 5.964 tonnum, Akranesi 984 tonn á móti 2.720 og ísafirði 3.148 tonn í ár á móti 6.431 tonni fyrstu 8 mánuðina í fyrra svo dæmi séu tekin. Jssiord Intematlonal ,HVDR,Hnl’lfiim1«ili: ($) rúfuviðgerðir og nýsmíði • Westfaiia skilvindur • Hydraulik Brattvaag spilkerfi • stálgrindahús larðsál 'búnaður í fiskimjölsverksmiðjur frá Stord Bartz • Boiler katlar • ventlar frá Stafsjö Bruk Lítið af laxi við Græn- land LAXVEIÐARNAR við Vest- ur-Grænland hafa gengið rnjög illa það, sem af er, og eru aðeins komin 113 tonn á land. Svarar það ekki nema til 12% af kvótanum. Laxakvótanum er skipt upp á milli sveitarfélaganna en vegna þess hve lítið hefur veiðst hefur landsstjómin nú gefið veiðarnar fíjálsar. Mega öll skip undir 50 brúttólestir stunda þær nema þau, sem eru 30-50 brl. og sérbúin til rækju- veiða. Stöðugtdregurúrlax- veiðunum eins og sést á því, að fyrir tveimur árum náðist að veiða upp í allan kvótann, 1.000 tonn, fyrir ári veiddust aðeins 37% af honum og nú em ekki komin á land nema 12% eins og fyrr sagði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.