Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
ERLENT
INNLENT
Olíuverð-
hækkunin
komin til
Islands
VERÐ á gasolíu hérlendis hækk-
aði um 40% í vikunni og svartolía
hækkaði um 17%. Þá hækka far-
gjöld Flugleiða innanlands um
mánaðamótin vegna olíuverðs-
hækkunar. Ekki hefur enn verið
tekin afstaða til beiðni olíufélag-
anna um 15,4% bensínverðshækk-
un. Launþegasamtök og vinnu-
veitendur hafa krafist þess að
ríkið lækki skatthlutfall af bensíni
og olíu til að vega á móti inn-
kaupsverðshækkun, en fjármála-
ráðuneytið telur að ríkið tapi um
450 milljónum króna á heilu ári
vegna olíuverðshækkunarinnar.
Álsamningar í næstu viku
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagði eftir fund með for-
stjórum Atlantalfyrirtækjanna í
New York á föstudag, að sam-
komulag um meginatriði samn-
inga um nýtt álver verði gert á
næstu dögum og kynnt í lok
næstu viku. Ráðherrar og þing-
menn Alþýðubandalagsins hafa
gagnrýnt mjög það samkomulag
um orkuverð til álversins, sem nú
liggur fyrir, og hefur Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
látið svo ummælt að hann muni
aldrei samþykkja það óbreytt. Jón
Sigurðsson segist hins vegar telja
orkuverðið vel viðunandi.
Nafnvextir lækka
Nafnvextir lækkuðu seinni
hluta septembermánuðar en verð-
bólguhraðinn hefur verið um 4%
að jafnaði síðustu mánuði. Meðal-
vextir af almennum skuldabréfum
hafa lækkað úr 14,2% í 12,9%.
Gasolía í sjóinn
Verulegt magn af gasolíu lak
í sjóinn við Laugarnes í
Reykjavík þegar verið var að losa
sovéskt olíuskip. Suða á neðan-
sjálvarleiðslu gaf sig og um 30-50
tonn fóru í hafið. Strandlengja
Viðeyjar er öll olíublaut og telja
fuglafræðingar fyrirsjáanlegt að
hundruð fugla drepist af þeim
sökum. Olía fór einnig í sjóinn við
Garðsskaga þegar sanddælup-
ramma hvolfdi. Þá lak olía í sjóinn
við Akranes þegar verið var að
fylla á eldsneytisgeyma Akra-
borgar.
Þorskur hækkar í
Bandaríkjum
Verð á þorskblokk hækkaði um
7% og á þorskflökum um 5% á
Bandaríkjamarkaði. Ástæðan er
skortur á fiski, og vonast íslensku
fisksölufélögin í Bandaríkjunum
eftir því að þessi verðhækkun leiði
til aukinnar framleiðslu fyrir
Bandaríkjamarkað.
Matthías hættir þingmennsku
Matthías Á.
Mathiesen þing-
maður Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjanesi
hefur ákveðið að
gefa ekki kost á
sér til þingfram-
boðs á ný. Matt-
hías Bjarnason þingmaður
flokksins á Vestfjörðum hefur
hins vegar ákveðið að bjóða sig
fram á ný, en hann hafði áður
tekið þá ákvörðun að gefa ekki
kost á sér aftur.
Eldur í búð á Laugavegi
Eldur kom upp í snyrtivörubúð
á Laugavegi í vikunni. Litlu
mátti muna að eldurinn kæmist í
'gullsmíðabúð við hliðina og íbúð
á efri hæð, en því tókst að forða.
ERLENT
Gorbatsjov
fær tilskip-
anavald
Æðsta ráð Sovétríkjanna sam-
þykkti á mánudag að veita
Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins og
forseta ríkisins, aukin völd til að
takast á við kreppuna í sovésku
efnahagslífi og vaxandi ólgu í
samfélaginu. Með þessu hefur
Gorbatsjov verið fengið vald til
að gefa út tilskipanir er varða
flestöll meginsvið samfélagsins
fram til 31. mars 1992. Þingið
samþykkti fyrr sama dag, að
kröfu Gorbatsjovs, að fresta at-
kvæðagreiðslu um hvernig inn-
leiða beri markaðskerfi í Sov-
étríkjunum.
Ben Bella snýr heim
og vill hjálpa írökum
Ahmed Ben Bella, fyrsti forseti
Alsírs og leiðtogi þjóðernissinna í
baráttunni gegn yfirráðum
Frakka, sneri aftur heim á
fimmtudag eftir að hafa dvalist
tíu ár í útlegð. Tugþúsundir
manna fögnuðu honum við heim-
komuna og létu hrifningu sína í
ljós er hann hvatti alþýðu manna
til að ganga til liðs við Saddam
Hussein íraksforseta í Persaflóa-
deilunni.
Sjálfsmorðsalda á Indlandi
Lögreglusveitir á Indlandi
skutu ekki færri en sex manns
til bana á miðvikudag er hópar
fólks komu saman til að mótmæla
þeirri ákvörðun stjórnvalda að
Lögreglumenn bera ungan
námsmann á brott eftir mót-
mæli í Nýju Delhí.
fjölga atvinnutækifærum til
handa fólki sem telst til réttlausra
stéttleysingja (paría) samkvæmt
hindúasið. Fjölmörg ungmenni
hefa freistað þess að undanfömu
að binda enda á líf sitt með sjálfs-
íkveikju og eiturdrykkju sökum
þessara áforma, sem talin eru
skerða afkomumöguleika þeirra
sem bornir eru til stjórnsýslu-
starfa.
Öryggisráðið samþykk-
ir loftferðabann á írak
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti á þriðjudag loft-
ferðabann á írak í refsingarskyni
fyrír innrásina í Kúvæt 2. ágúst
síðastliðinn. Öll flugumferð til og
frá landinu verður stöðvuð nema
það stríði gegn mannúðarsjónar-
miðum. Á miðvikudag fóru stjóm-
völd í Bagdad fram á að fá afhent-
an lista með nöfnum óbreyttra
borgara sem leitað höfðu skjóls í
bandaríska sendiráðinu í Bagdad
og hótuðu að hengja hvern þann
sem ekki teldist opinber starfs-
maður. Þessi hótun var dregin til
baka á fimmtudag. Sama dag
ákváðu írösk stjórnvöld að hætta
að selja útlendingum í Irak og
Kuvæt mat frá næstkomandi
mánudegi. Er búist við að þessi
ákvörðun leiði til vaxandi flótta-
mannastraums til Jórdaníu.
Moskva:
Missir KGB viðhafnarsæti
sín í Bolshoi-leikhúsinu?
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA öryggislögreglan,
KGB, kann að missa viðhafnar-
sæti sín í Bolshoi-leikhúsinu í
Moskvu. Það yrði enn eitt áfallið
sem þessi fræga stofnun hefur
orðið að þola að undanförnu.
Margir beina nú spjótum sínum
að henni og segja að hún sé minj-
ar um einræðisstjórn fortíðarinn-
ar.
Stjórn Bolshoi-leikhússins hefur
krafist þess að „sérstöku
plássi“, sem eingöngu hefur verið
ætlað æðstu embættismönnum Sov-
étríkjanna og lotið yfirumsjón KGB,
verði ráðstafað á annan hátt, að
því er sagði í Komsomolskaja Prav-
da, málgagni æskulýðsfylkingar
kommúnistaflokksins, í gær.
Forstjóri leikhússins sagði í við-
tali við blaðið að 60 sæti bættust
við í húsinu ef viðhafnarstúkurnar
yrðu fjarlægðar, þar á meðal fyrr-
verandi keisarastúka og tvær til
viðbótar við hliðina á henni.
„Að sjálfsögðu er ekkert athuga-
vert við það að taka frá nokkur
sæti fyrir ríkisstjórnina,“ sagði
blaðið, „en þau ættu ekki að vera
svona mörg og ættu þar að auki
að vera í umsjá leikhússins." Blaðið
bætti við að sætin hefðu oftlega
staðið auð á sýningum.
Stúkurnar sem um er að ræða
hafa sér útgang, lyftu, stiga og
aðgang að sviðinu, svo að ráða-
mönnum gæfist tækifæri til að
að getur ekki göfugra verkefni
en að bæta framtíðarmögu-
leika allra barna,“ segir í drögum
að yfírlýsingu ráðstefnunnar. Þar
er fjallað um vinnuþrælkun og
vændi barna víða í heiminum, einn-
ig böm sem eiga sér engan að.
Meðal markmiða, sem lagt er til
að verði náð innan áratugar, eru
stórfelld lækkun á dánartíðni ung-
heilsa upp á stjörnurnar. „Plássið
hefur eingöngu verið í umsjá KGB
og leikhússtjórnin ekki einu sinni
haft aðgang að því,“ sagði blaðið.
Ævinlega er uppselt á sýningar
leikhússins, sem tekur 2150 manns
í sæti.
barna og mæðra ásamt því að bæta
úr vannæringu og ólæsi hjá full-
orðnum, einkum konum.
Þótt lögð sé mikil áhersla á gildi
fjölskyldunnar er jafnframt hvatt
til þess að börn séu vernduð fyrir
kúgun foreldra og liggur í orðunum
að stjórnvöld séu ábyrg fyrir velferð
barna.
SÞ-ráðstefna um bætt kjör
barna hafin í New York
SÞ. Reuter.
UM 70 þjóðarleiðtogar hófu í gær ráðstefnu á vegum barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna um kjör fátækra og kúgaðra barna í heiminum
og möguleika á að rétta hlut þeirra. Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra er í hópi þátttakenda en ráðstefnan var sett með við-
hafnarkvöldverði.
Fólksfjölgun á Indlandi um 2% á ári:
Ráðamenn gefa slæmt for-
dæmi og hlaða niður bömum
ÞAU tíðindi spurðust fyrir skömmu að forsætisráðherra Bihars,
eins fjölmennasta sambandsríkisins á Indlandi, hefði nýlega
orðið faðir í níunda sinn. Ráðherrann, Laloo Prasad Yadav, var
ekki vitund sneyptur yfir þessari fjölgun í fjölskyldunni. Hann
svaraði gagnrýnisröddum með því að fyrstu börnin hefði hann
eignast í mótmælaskyni við harkalegar áætlanir ríkisstjórnar
Indiru Gandhi á árunum 1975 -1977, er hún stjórnaði með neyðar-
lögum, um að stemma stigu við óstöðvandi mannfjölgun í
landinu. Þess má einnig geta að einn af forsetum Indlands á
áttunda áratugnum var stoltur faðir 10 barna.
Með neyðarlögunum hafði Ind-
ira Gandhi í reynd einræði-
svöld, þingið var leyst upp og
helstu leiðtogar stjórnarandstæð-
inga sátu inni.
Hún lagði gíf-
urlega áherslu
á áætlunina um
takmörkun
bameigna.
Þrýst var á
embættismenn
og lækna um að gera fjölda ungra
kvenna og karla ófijóan. Sett voru
markmið um iltekinn fjölda að-
gerða og valdbeiting ekki spöruð.
I reynd var það svo að þegar neyð-
arlögunum var aflétt 1977 og
kosningar haldnar voru víðtæk
andstaða og bræði ríkjandi vegna
framkvæmdar mannfjöldaáætlan-
anna helsta ástæðurnar fyrir
ósigri Gandhi. Léttúð ráðherrans
í Bihar er skiljanleg í ljósi þessara
atburða.
Er Indland varð sjálfstætt ríki
fyrir 43 árum var íbúafjöldinn um
400 milljónir. Indveijar eru nú lið-
lega 835 milljónir, næst-fjölmenn-
astir allra þjóða, aðeins Kínveijar
eru fleiri. Framleiðslan á komi til
manneldis hefur aukist mun meira
hlutfallslega en íbúaljöldinn á
þessum fjórum áratugum; úr 55
milljónum tonna á ári í 175 millj-
ónir tonna. Menn hljóta þó að
velta fyrir.sér hve ástandið væri
ótrúlega mikið betra ef mannfjöld-
inn hefði ekki aukist svona gífur-
lega. Ljóst er að ekki er hægt að
reyna aftur áætlanir sem byggjast
einfaldlega á valdboði því að ekki
er veijandi að fórna lýðræðinu á
altari íjölskylduáætlana. Áhyggj-
ur vegna fjölgunarinnar, sem er
um 2% á ári, fara þó vaxandi. Til
samanburðar íjölgar Kínveijum
um einn af hundraði árlega og
fjölgunin í Indlandi er meiri en í
flestum nágrannalöndum. í Indó-
nesíu er þorri íbúa múhameðstrú-
ar og stjórnvöld eiga af trúará-
stæðum óhægt um vik með að
boða takmörkun barneigna en
samt er fjölg-
unin minni þar
en í Indlandi.
Hvernig
hefur öðrum
þjóðum tekist
það sem Ind-
veijum geta
ekki? Mikilvægast er að þeim hef-
ur tekist að bæta heilbrigðis-
ástandið hjá almenningi og læsi
hefur stóraukist, einkum meðal
kvenna. í þessum löndum geta
ung, nýgift hjón með nokkra
menntun verið nokkuð viss um
að eignist þau aðeins tvö börn
geti börnin vænst þéss að ná full-
orðinsaldri. Hjónin ákveða því að
látatvö börn nægja. Indversk hjón
eignast fleiri börn af ótta við að
eitt eða fleiri muni annaðhvort
deyja úr einhveijum sjúkdómum
eða af völdum lélegrar heilsu-
gæslu.
Fyrir fjórum áratugum var
ólæsi algengara í Indónesíu og
Tælandi en í Indlandi, dánartíðni
barna var einnig hærri. Nú eru
60% Indónesa og 75% Tælendinga
læsir en aðeins 40% Indveija; líf-
slíkur ndveija eru jafnframt mun
minni en þessara þjóða. Indverska
sambandsríkið Kerala, þar sem
íbúarnir urðu eitt sinn frægir fyr-
ir að lúta einu kommúnistastjórn-
inni sem komist hefur til valda
með lýðræðislegum hætti, hefur
vísað veginn. Þar er læsi 75%,
heilsugæsla með ágætum og
fólksfjöldaaukningin _aðeins um
hálfur af hundraði. Áðurnefndur
forsætisráðherra í Bihar, með
börnin sín níu, hefði aldrei fengið
að gegna sams konar embætti í
Kerala.
kóleru. Indversk hjón gera yfirleitt ráð fyrir að mörg barna
þeirra deyi áður en fullorðinsaldri er náð og eignast því fleiri
en ella.
BAKSVIÐ
eftir Rahul Singh og D.K.
Hirlekar í Bombay