Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 44
44
ÚTVARP
RÁS1
FM 92,4/93,5
8,00 Fréttir.
8.07 Morgunandakt. Séra Guömundur Þorsteins
son prófastur í Reykjavikurprófastsdæmi flytur
ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir.
8.20 Kirkjutónlist.
— Þuriður Pálsdóttir syngur þrú lög eftir Victor
Urbancic; Jórunn Viðar leikur með á pianó.
- Rut L. Magnusson syngur lög eftir Sveinbjöm
Sveinbjömsson við enska texta; Jónas Ingimund-
arson leikur með á píanó.
—-Erna Guðmundsdóttir syngur spænsk og
amerisk lög; Hólmfriður Sigurðardóttir leikur með
á pianó.
9.00 Fréttir.
9.03 Spjallað um guðspjöll. Friðjón Guðröðarson
sýslumaður ræðir um guðspjall dagsins, Jóhann-
es 11, 19-27, við Bernharð Guðmundsson.
9.30 Barokktónlist.
10.00 Fréttir.
10.00 Veðurfregnir.
10.25 Ferðasögur af segulbandi. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
11.00 Messa i Árbæjarkirkju. Prestur séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
12.10 Á dagskrá. Litið yfir dagskrá sunnudagsins
í Útvarpinu.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar. Tónlist.
13.00 Djasskaffið. Ólafur Þórðarson tekur á móti
gestum í Útvarpshúsinu.
14.00 „Frá draumi til draums." Dagskrá í umsjá
Viðars Eggertssonar og Vilborgar Dagbjartsdótt
ur um hið fræga Ijóð Jóhanns Jónssonar „Sökn-
uð".
14.50 Stefnumót. Finnur Torfi Stefánsson spjallar
við Davíð Oddsson, borgarstjóra um klassiska
tónlist.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Með himininn i höföinu. Berglind Gunnars-
dóttir ræðir við Sveinbjörn Beinteinsson allsherj-
argoða. (Endurtekinn þáttur frá fyrra ári.)
17.00 i tónleikasal. Um'sjón: Sigríður Jónsdóttir.
18.00 Sagan; „Kafteinninn," kafli úr „Gulleyjunni"
eftir Robert Louis Stevenson. Vernharður Linnet
flytur þýðingu Einars Braga.
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregnír.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
'PC-f;' y\
IppíiÍÉ
Þvol er emn elsti
uppþvottalögur hér á landi.
Samsetningu Þvols hefur
hins vegar margoft verið
breytt í kjölfar nýrra hráefna
sem komið hafa á markaðinn.
Við vekjum sérstaklega
athygli á að Þvol er drýgra
í notkun, vegna þess að
það inniheldur meira af
virkum sápuefnum, það
gefur meiri gljáa og er milt
fyrir hendur.
Lyngási 1, Garðabæ,
Sími: 65-18-22, Telefax: 65-18-57
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/ SJOI\l VARP SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
19.31 í sviösljósinu. Tónlist eftir Hjálmar H. Ragn-
arsson.
— Söngur þvottakvennanna, úr „Yermu," leikritL
eftir Fredrico Garcia Lorca. Háskólakórinn syng-
ur, Pétur Grétarsson leikur á slagverk; Árni Harð-
arsson stjórnar.
— „Rómeó og Júlía," svíta i sjö þáttum fyrir
hljómsveit. Hljóðfæraleikarar úr Sinfóniuhljóm-
sveit íslands leika; Hjálmar H. Ragnarsson stjórn-
ar.
20.00 Sinfónia númer 1 i D-dúr eftir Gustav Ma-
hler. Filharmóniusveit Vinarborgar leikur; Lorin
Mazel stjómar.
21.00 Lokasinna. Endurtekinn þáttur frá laugar-
degi. Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 islenskir einsöngvarar og kórar.
— Fjórir madrígalar um ástina eftir Rodrigo.
— Þrjú sönglög við Ijóð bandarískra skálda eftir
Ned Rorem. Ema Guðmundsdóttirsyngur, Hólm-
friður Sigurðardóttir leikur með á pianó.
23.00 Frjálsar hendur. Illugi Jökulsson sér um þátt-
inn.
24.00 Fréttir.
00.07 Um lágnættið. Bergþóra Jónsdóttir kynnir
sigilda tónlist.
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Sjónvarpið:
Hinrik fimmti
■■■■ Vart getur vandaðri uppfærslur á sígildum verkum Sha-
-é q 30 kespeares en sjónvarpsútgáfu breska sjónvarpsins BBC sem
JLö gerðar voru fyrir áratug. í dag sýnir Sjónvarpið eitt verk-
ið úr þessum hópi, Hinrik fimmta er Shakespeare samdi árið 1599.
Leikritið er eitt ijögurra er hann samdi upp úr sögu Englands og
sótti efnisþráðinn aftur til ársins 1415.
í þann tíð áttu konungar Englendinga og Frakka í stöðugum skær-
um, þar eð hinir fyrrnefndu gerðu tilkall til frönsku krúnunnar.
Leikurinn fylgir herför Hinriks fimmta Bretakonungs til Frankarík-
is, árangursríku umsátri heija hans um múra Harfleur og orr-
ustunni við Agincourt þar sem hinir engilsaxnesku herir unnu stóra
sigra á sundruðum höfðingjum Franka. Einnig rekur Shakespeare
kvonbænir Hinriks til Katrínar af Frankaríki, dóttur Karls sjötta
Frankakonungs, en kvonfangið tryggði honum rétt til ríkiserfða á
franskri grund. Ýmsu fleiru er fléttað inn í gang leiksins, svo sem
handtöku sir Thomas Greys og jarlsins af Cambridge, fyrir aðild að
samsæri gegn konungi, og kátlegum tiltækjum bragðarefanna Nyms
og Bardolphs er létta hinn þunga, sagnfræðilega efnisþráð.
í helstu hlutverkum eru Davíð Gwilim, Martin Smith, Rob Ed-
wards, Roger Davenport, Clifford Parrish, Derek Hollis og Robert
Asby.
Sjónvarpið:
Ungmennafélagið
■■■■ Á Geirfuglaskeri kallast góðra vina fundur Ungmennafé-
-| Q 20 lagsins að þessu sinni, enda stýrt á haf út. Þau Eggert
Aö — og Málfríður stigu ölduna á glæsilegasta herskipi lýðveldis-
ins, Tý, og notuðu að sjálfsögðu tækifærið til að skoða fleyið. Hám-
ark siglingarinnar var svo stutt heimsókn í Geirfuglaskerið, en þyrla
Landhelgisgæslunar flutti mýs og menn frá skipsfjöl yfir í skerið.
Með í þeirri för voru gashylki til að endurnýja lífskraftinn í vitanum
sem lýsir sæförum frá skerinu. Stjórn upptöku annaðist Eggert
Gunnarsson.
KYNNINGAR-
FUNDUR
Alþjóðahópur Ungmennahreyfingar Rauða
kross íslands heldur kynningarfund
mánudaginn 1. okt. kl. 20.30 í Tjarnargötu
35 í Reykjavík (kjallara).
DAGSKRÁ:
1. Fyrri þróunarverkefni
2. Ný þróunarverkefni
3. Verslun sem þróunaraðstoð
4. Störf alþjóðahópsins í vetur
Allt áhugafólk uelkomið.
Ungmennahreyfing
Rauða kross íslands
RÁS2
FM 90,1
8.15 Djassþáttur. Jón Múli Árnason. (Endurtekinn
frá þriðjudagskvöldi á Rás 1.)
9.03 Söngur villiandarinnar. Þórður Árnason leikur
islensk dægurlög frá fyrri tið. (Endurtekinn þáttur
frá laugardegi.)
10.00 Helgarútgáfan. Úrvalvikunnaroguppgjörvið
atburði líðandi stundar. Umsjón: Gyða Dröfn
Tryggvadóttir.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Sunnudagssveiflan. Umsjón: Gunnar Sal-
varsson. (Einnig útvarpað aðfaranótt þriðjudags
kl. 1.00.)
15.00 ístoppurinn. Umsjón: Óskar Páll Sveinsson.
16.05 Konungurinn. MagnúsÞórJónssonfjallarum
Elvis Presley og sögu hans. Tiundi og siðasti
þáttur endurtekinn frá liðnum vetri.
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson tengir saman
lög úr ýmsum áttum. (Frá Akureyri.) (Úrvali út-
' varpað i næturútvarpi aðfaranótt sunnudags kl.
5.01.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Lausa rásin. Útvarp framhaldsskólanna.
Umsjón: Jón Atli Jónasson og Hlynur Hallsson.
20.30 Gullskífan.
21.00 Nýjasta nýtt. Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
(Endurtekinn þáttur frá föstudagskvöjdi.)
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr-
vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.)
00.10 í háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttir kl. 8.00, 9.00. 10.00, 12.20,16.00,19.00,
22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARP
1.00 Nætursól. Herdis Hallvarðsdóttir. (Endurtek-
inn þáttur frá föstudagskvöldi.)
2.00 Fréttir.
4.03 í dagsins önn - Rústir og grafarræningjar.
Umsjón: Valgerður Benediktsdóttir. (Endurtekinn
þáttur frá föstudegi á Rás 1.)
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við fólk til sjávar og sveita. (Endurtekið
úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
8.00 Endurteknir þættir: Sálartetrið.
10.00 Sunnudagur í sælu. Umsjón Oddur Magnús.
12.00 Hádegi á helgidegi. Randver Jensson.
13.00 Vitninn. Umsjón Júlíus Brjánsson. Tekið fyrir
listir og menningu liðandi stundar. Fær til sin
myndlistarmenn, rithöfunda, skáld og lífskúnstn-
era.
16.00 Það finnst mér. Umsjón Inger Anna Aikman.
Þáttur um málefni líðandi stundar.
18.00 Sígildir tónar. Umsjón Jón Óttar Ragnarsson.
Eiríkur Guðmundsson leikari hefur umsjón með dagskrárgerð
fram haldsskólanema.
Sjónvarpið:
Þættir fyrir
ungt fólk
Sjónvarpið leitaði til framhaldsskólanema í landinu veturinn 1987-88
og virkjaði sköpunargáfu og andagift þeirra til dagskrárgerðar fyrir
unglinga. Útkoman varð alls 22 þættir er sýndir voru í Sjónvarpinu
þann sama vetur, undir nafninu Ánnir og appelsínur. Umsjónarmað-
ur þeirra var Eiríkur Guðmundsson leikari sem einnig hefur annast
fjölþætta dagskrárgerð fyrir Sjónvarpið.
Fjörugt ímyndunarafl og efnistök framhaldsskólanema mæltist
hvoru tveggja vel fyrir hjá sjónvarpsáhorfendum og urðu undirtektirn-
ar hvati að frekari efnisleit í röðum námsfólks mennta- og fjölbrauta-
skóla. Sem fyrr var Eiríkur í forsvari þessarar dagskrárgerðar og
leggur hann til efnisþætti, ásamt nemendum nokkurra skóla af höfuð-
borgarsvæðinu og af suð-vesturhorninu.
Utkoman birtist nú í formi þriggja þátta um ungt fólk og fyrir
ungt fólk. Nefna höfundar þá eftir skapanornunum þremur úr nor-
rænni goðafræði: Urði, Verðandi og Skuld.
Svo sem nöfnin benda til, leitar umsjónarfólkið á vit þriggja tíma-
skeiða: Fortíðar, samtíðar og framtíðar, og er hvert skeið séð með
augum ungu kynslóðarinnar hveiju sinni.
Urður
I þessum fyrsta þætti, er verður á dagskrá Sjónvarpsins föstudaginn
5. október hylla nemendur samtíðarinnar forvera sína á skólabekk,
kynslóð foreldra sinna, og bregða upp mynd af tímabilinu milli
1960-70. Sagan er sögð með tilstyrk tvennra hjóna, er rifja upp
„gömlu, góðu daganna“, jafnt í'myndum, máli og tónum. Ekki er
þó víst að þeir, er þá voru á sínum sokkabandsárum, þekki sig að fullu
í þessari krossferð til fortíðar - því ímyndunaraflinu er óspart gefinn
laus taumur.
Verðandi
Samtíðin, með öllum sínum kostum og Iöstum, er yrkisefni annars
þáttar, sem væntanlegur er á skjáinn föstudaginn 12. október. Hér
er tæpt á helstu hræringum í hugarheimi þeirra er erfa munu landið
og viðhorf þeirra til ýmissa stórmála samtíðarinnar konriuð. Má þar
nefna afstöðu framhaldsskólanema til mengunar og umhverfismála,
dauðans, lífsgæðakapphlaupsins og þróunar heimsmála. Einnig er
hér að ftnna leikgerð á verki „menntaskólaskálds" og stutta úttekt
á sterkustu straumum í íslensku menningarlífi samtímans.
Tónlistin skipar dijúgan sess í samtíðarrýninni og er hér m.a. að
fínna svonefnda hráhljómsveit, ólíkar fegundir gítartónlistar og ein-
söngvara úr röðum skólafólks.
Skuld
Enginn veit hvað verðúr . . . en fyrir bragðið hafði dagskrárgerðar-
hópur Skuldar næsta frjálsar hendur um sköpun framtíðarsýnar
sinnar. Hér gefur að líta aðstæður unga fólksins á Islandi eftir tutt-
ugu ár - eins og skólakrakkar samtímans, ráðsettir og miðaldra for-
eldrar framtíðarinnar gera sér þær í hugarlund. Sett var saman
dálítil „fantasía" um framtíðarijölskylduna að morgni dags og er sú
komin öllu lengra á neyslu- og velferðarbraut en vísitöluíjölskylda
tíunda áratugsins. Sem í fyrri þáttum skipar svo tónlistin veglegan
sess og öll er hún á könnu listafólks af skólabekkjum.