Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 Kaldhæðnin, er það hún sem sameinar þegar öllu er á botninnn hvolft? „í Austur-Þýskalandi eltast 16 milljónir andspyrnumanna við 16 milljónir stalínista," varð einum heimamanna að orði fyrir skemmstu. Annar komst svo að orði að nú væri æðsta stigi sósíal- ismans náð: „Ríkið hefur verið leyst upp og engin vinna er lengur fyrir hendi.“ Eða er það eljusemin? Þjóðveijar gera allt 120%, sögðu tveir vestur- þýskir þingmenn í samtali við Morg- unblaðið fyrir rúmu ári á meðan „þýska spurningin“ hélt ekki vöku „Þegar ég mætti var enginn kenn- ari og kúrsinn féll niður. Svo reyndi ég að tala um heimspeki við hina stúdentana, ólíkar stefnur og strauma. Það var bara glápt á mig og spurt hvað ég ætti við. Þau höfðu verið í heimspeki árum saman í skólanum og það var bara marx- lenínismi." Tæp sextíu ár í alræðisríki (ef þriðja ríkið er meðtalið) setja sitt mark á íbúana. „Óttinn er enn fyr- ir hendi,“ segir Jóhanna Eydís. „Alltaf mátti búast við að einhver uppljóstrari væri í hópnum. í öllum bekkjum, vinnuhópum og vinnu- Kjörbúðir Allsnægtir og örbirgð. fyrir neinum. Gat það verið tilviljun að þýsku ríkin voru hvort um sig stolt sinnar þjóðfélagsskipanar, fyr- irmyndardrengirnir hvor í sínum bekk, kaþólskari en páfinn. Fjörutíu ára aðskilnaður verður ekki yfirunninn á einni nóttu. Deilan milli rithöfunda í austri og vestri (sjá rammagrein) sýnir í hnotskurn hin mismunandi viðhorf sem byggj- ast á ólíkri reynslu. Jafnvel einstök orð hafa ólíka merkingu. „Á seinni önninni minni ætlaði ég að fara í heimspeki," segir Jóhanna Eydís Þórarinsdóttir sem var við nám í Austur-Berlín síðastliðinn vetur. stöðum var einhver á vegum Stasi og enginn vissi hver það var. Það var því aldrei hægt að láta skoðun sína í ljós nema í innsta hring.“ Grær nú saman það sem heyrir hvort öðru til? Eru Þjóðveijar í austri og vestri líkt og tvíburar sem alist hafa upp aðskildir í ijörutíu ár? Eða má frekar líkja þeim við eðlisólík systkin sem ekki eiga lund saman? „Állt þetta sem sagt er um Vestur-Þjóðveija; nákvæmni, spar- semi, agij'1' segir Jóhanna Eydís, „á alveg eins við um Austur-Þjóðveija — miðað við okkur að minnsta kosti...“ hafi tekið þessa ákvörðun og gert skilmerkilega grein fyrir henni í fyrstu skáldsögu sinni, „Hinn tví- skipti himinn" (Der geteilte Himmel) 1963, þar sem ung stúlka lendir í þeirri tragísku aðstöðu að þurfa að velja milli þess að fylgja unnusta sínum vestur yfir múrinn eða að taka þátt í að byggja upp „réttlátara þjóð- • félag“ austan megin við hann. Hún velur seinni kostinn. Og það sýnir sig að Wolf Biermann tekur upp hanskann fyrir Christu Wolf, sem er engan veginn sjálfgefið þegar litið er til sögu hans sjálfs. Föður hans myrtu nasistar í Auschwitz fyrir þann tvöfalda „glæp“ að vera bæði kommúnisti og gyðingur; sjálfur flutti hann 17 ára að aldri frá Ham- borg til Austur-Berlínar til að byggja upp paradís verkalýðsins í hinum „andfasíska" hluta Þýska- lands. Þessum eldheita baráttumanni sem brátt varð dáðasta ljóðskáld sinnar kynslóðar í Austur-Þýskalandi bönnuðu yfirvöld að koma fram opin- berlega eða gefa út bækur eða plöt- ur þegar 1965. Ljóðin bárust áfram mann frá manni en þekktustu plötur hans voru teknar upp á laun í tveggja herbergja leiguíbúð í Austur- Berlín og gefnar út í Vestur-Þýska- landi. Þekktasti ljóðasöngvari Aust- ur-Þýskalands hélt sína fyrstu tón- leika þar í landi haustið 1989 þegar landið var í raun ekki lengur til! í nýlegri blaðagrein segir Biermann að dómurinn 1965 hafi verið sitt happ, „því að' ég hefði líka frekar kosið að aðíaga mig“. Á frægustu plötu sinni söng Biermann um Flori Havemann (son efnafræð- ingsins Róberts Havemann sem var n.k. austur- þýskur Sak- harov). Gáfna- ljósið Flórí hljóp með vinkonu sinni vestur yfir múr- inn og gafst upp á baráttunni fyrir mannlegum sós- íalisma: „Hann er kominn yfrum- enfant perdu/æ, gáfuð börn deyja ung/frá austri til vesturs — eins og gerist í Þýskalandi..Og einnig: „Núna er hann mín sorg/nú húkir hann handan við múrinn/og heldur sig vera framan við hann.“ Það kemur sum sé í ljós, sem allir máttu þó vita, að þekktustu and- spyrnulistamennirnir sem stalínist- arnir í Austur-Berlín ritskoðuðu og kúguðu (mismikið þó) og vestrænir fjölmiðlar hömpuðu svo lengi sem hægt var að benda á þá sem fórn- arlömb kommúnista (auk ofan- greindra t.d. Stefan Heym, Volker Braun, Heiner Miiller, Gúnter Kun- ert) voru flestir sjálfir að berjast fyrir einhvers konar sósíalisma eða þá að þeir nutu kerflsins. í þessu liggur grundvallarmis- skilningur hinna vestrænu gagnrýn- enda sem hafa aldrei þekkt ritskoðun eða skoðanakúgun og sjá ekki að )istamennimir sem hvorki gátu né vildu allir vera hetjur töldu sig oft stefna eftir ólík- um leiðum að sömu lokatak- mörkum og ríkið sem þó kúgaði þá. Krafa þeirra sem sátu öruggir til hinna sem voru í hættu um að þeir hefðu átt að sýna meiri hetjuskap leiðir hugann að frægum þætti úr leikriti Brechts um Galileo. Þegar Rannsöknarrétt- urinn segir við hann: „Aumt er það land sem ekki á sér hetjur,“ svarar Galileo: „Aumt er það land sem hefur þörf fyrir hetjur.“ Spurningunni um raunverulegt þjóðerni Austur-Þjóðverja sem um leið er spurning um það hvort heil þjóð eða land glatist þegar þýsku ríkin sameinast 3. október næstkom- andi er enn ósvarað. Gefum Wolf Biermann aftur orðið: „Gott og vel, kommúnisminn hefur gefist upp. En hver tapaði raunverulega? . . . Alþýð- an? Verkamennirnir á færibönd- unum? Bændurnir á samyrkjubúun- um? Bull! Þeir báru aldrei neitt úr býtum og trúðu ekki á neitt. Maður glatar aðeins þeim blekkingum sem maður er haldinn. Hinir raunveru- lega sigruðu erum við — handfylli af vinstrisinnuðum menntamönn- um.“ (Die Zeit, 24. ágúst 1990). Þeir börðust gegn forpokuðum kerfi- skörlum, sem nú eru fyrstir allra til að nýta sér alla möguleika vestræns hagkerfis í eigin þágu, fyrir draumi um betra þjóðfélag, og það er þessi draumur sem nú er borinn til grafar þó hann væri hjá flestum löngu dauð- ur. Eða ætli Biermann hafi einhvern tímann sjálfur trúað á þessar ljóðlín- ur úr ljóðinu um Flori Have — „En- fant perdu“: „Austur-Þýskaland þarf til lengdar/hvorki svarthol né múr/ við munum ná svo langt!/Til okkar flýr fjöldinn/alþýðan tekur völdin/sú stund mun koma brátt. Höfundur hefur um árabil verið við nám og störf í Vestur-Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.