Morgunblaðið - 07.10.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDÁGUR 7. OKTÓBER 1990
C 13
Sósan gerir gæfumuninn
- segir Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur
TÍMABUNDNIR íslcndinga'i' þurfa ekki að óttast horfelli hin síðari
ár. — Satt best að segja er svo komið að sumir verða að gæta
aðhalds í mataræði; telja ofan í sig hitaeiningarnar. En þá hungr-
ar, hungrar — eftir fróðleik um skyndibita. Dr. Laufey Steingríms-
dóttir næringarfræðingur hjá Manneldisráði var beðin um að til-
reiða nokkra fróðleiksmola fyrir Morgunblaðsmann.
Margir telja hamborgarann
eitt lystilegasta tákn
vestrænnar menn ingar en aftur
á móti finnast þeir sem hallmæla
þessari lífsnæringu. — Laufey
Steingrímsdóttir, er hamborgari
næringarsnauður og fitandi?
„í sjálfu sér getur hamborgari
verið ágætur og hollur matur, allt
eftir því hvernig hann er tilreiddur ‘
og hvað er haft með honum.
Næringarsnauður getur hann
varla talist, því brauðið, kjötið og .
grænmetið veita töluvert af prót-
eini, járni, vítamínum. Einn og sér
er þessi matur heldur ekkert sér-
lega orkuríkur — eða fitandi eins
og það er gjarnan orðað. Brauðið
með kjöti og grænmeti veita varla
meira en 330 hitaeiningar. — En
það er sósan sem gerir gæfumun-
inn.“
— Áttu við „kokkteilsósuna"?
„Já, kokkteilsósa úr majónesi
er frómt frá sagt — álíka feit og
smjör. Algengasti skammturinn,
um 3 matskeiðar, veitir um 300
hitaeiningar. Sósan tvöfaldar
þannig hitaeiningarnar með ham-
borgaranum án þess að veita
nokkur næringarefni önnur en
fitu. Það er í rauninni kokkteilsós-
an, sem er næringarsnauð og fit-
andi, og kemur þannig óorði á
skyndibitana.“
— Ekki allt búið enn, hvað
með„frönskurnar“?
„Frönsku kartöflurnar eru yfir-
leitt ansi feitar og því mun óholl-
ari en bakaðar eða soðnar kartöfl-
ur. Einn skammtur af frönskum
eryfirleitt 100-120 grömm að
þyngd og það gerir í hitaeiningum
talið u.þ.b. 260-300. Sama magn
af soðnum eða bökuðum kartöfl-
um veitir um 80-100 hitaeiningar
og enga fitu.“
Ekki allt búið enn, ég vil •
hafa „ekta“ gos með cri.
sykri. Bara lítið glas, verð að
halda í við mig. Hvað gerir ann-
ars þessi málsverður mikið í hita-
einingum talið?
„Samlagningin verður þá eitt-
hvað í þessum dúr: Hamborgari
án sósu 330, kokkteilsósa 300,
franskar kartöflur 260, gosdrykk-
ur 100. Samtals: 990 hitaeining-
ar.“
— Þetta eru háar tölur. Hvað
þarf — eða má — venjulegur með-
almaður sem vill „sættast við vigt-
ina“, neyta margra hitaeininga?
„Það er náttúrulega einstakl-
ingsbundið og háð lífsháttum en
orkuþörf kyrrsetumanns er oftast
nálægt 2500 hitaeiningum á dag
og um 2000 fyrir konur. Hæfileg-
ur hádegisverður veitir um
500-600 hitaeiningar. Hér munar
töluverðu hvað varðar hitaeining-
arnar. En hitt er öllu verra að þú
valdir mjög feitan og sætan mat
og þar af leiðandi fremur bæti-
efnasnauðan. Um helmingur ork-
unnar kemur úr fitu, mest úr
kokkteilsósunni og frönskunum
og svo sykur úr gosinu. Það væri
mun heilsusamlegra ef þú notaðir
fituminni sósu, t.d. sinnep, tóm-
atsósu eða barbeque og fengir þér
ávöxt eða jafnvel samloku í stað-
inn. Þótt ótrúlegt sé veitir kokk-
teilsósan ein sér álíka margar
hitaeiningar og tvær lítið smurðar
brauðsneiðar með skinku og osti.
Allra best væri að þú fengir þér
salat og léttmjólkurglas í staðinn
fyrir gosið og frönskurnar þá
væri máltíðin orðin meinholl.
Sumum finnst hamborgari
og franskar kartöflur án
kokk teilsósu vera þurrar trakter-
ingar — en kokkteilsósa þarf ekki
endilega að vera gerð úr majón-
esi. Það má nota súrmjólk, jógúrt
eða sýrðan rjóma og þá lítur dæm-
ið allt öðruvísi út. í hveijum des-
ilítra af súrmjólk eru 4 grömm
af fitu en 70 í kokkteilsósu úr
majónesi.“
— Það þarf tilbreytni í fæðu-
vali; nú langar mig í pítu. — Með
grófu brauði kannski?
„Gróft pítubrauð sneisafullt af
allskyns grænmeti og ef til vill
með einhverju kjöti og fiski; það
gæti varla hollara verið. — En svo
kemur sósan. Það virðist landlægt
að setja svona einn desilítra af
sósu yfir pítur hér um slóðir. Og
þá er hitaeiningafjöldinn rokinn
upp í 900 úr 400. — Það er sár-
grætilegt að eyðileggja ágætis
mat á þennan hátt.“
— Hvað með tilbúnar samlokur?
„Samlokur með kjöti, græn-
meti, osti eða eggjum eru ágætis
fæða, holl og góð. En enn á ný
verður annað upp á teningnum
þegar majónessósan bætist við,
og það jafnvel á þykkt smurðar
brauðsneiðar."
— Ein með öllu?
„Pylsur í brauði eru ekkert
heiísufæði og auk.þess heldur rýr
næring. Ein með öllu veitir um
290 hitaeiningar. 250 ef remúlað-
inu er sleppt. Þú endist varla dag-
innáþeirriorku."
— Kínarúllur?
„ Almennt er austurlenskur
matur mjög hollur; mikið af græn-
meti og hrísgijónum, dálítið af
mögru kjöti eða fiski, sem er
brugðið á pönnuna. En við Islend-
ingar höfum tekið upp óæskilegri
hluta af matarmenningu þeirra
sem er djúpsteikingin. Og kínar-
úllan er óneitanlega feitur matur.“
— En hugum nú að.„þjóðlegri
íslenskri" matmennt. Prince-póló
frá Póllandi drukkið með drykkn-
um Coca-Cola sem Ameríkumenn
fundu upp?
Prince Póló, rétt eins og ann-
að súkklaðikex, er raunar
svipað að sam setningu og súkk-
ulaðikaka með miklu kremi. Fáir
gera sér ljóst að mikill hluti af
súkklaðikexi er smjörlíkiskrem.
Hitt vita flestir að sælgæti og gos
er engin hollusta. Þetta veitir þér
orku, um 350 hitaeiningar sam-
tals, en lítið sem ekkert af nauð-
synlegum næringarefnum. Við
íslendingar erum stórtækir í gos-
drykkjaneyslunni, eigum Evrópu-
met í þessari drykkju.“
— En svona í það heila tekið,
virðist okkar daglegi skyndibiti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laufey Steingrímsdóttir
alveg neysluhæfur. Einhveijartil-
lögur til úrbóta sem yrðu ekki of
tímafrekar?
„Skyndibitar eru í eðli sínu alls
ekkert óhollur matur, hvort sem
um er að ræða pítur, pizzur eða
hamborgara. þetta eru í rauninni
ýmis afbrigði af brauðsamloku
með grænmeti, kjöti eða osti. Ef
magrari og léttari sósur væru á
boðstólum á skyndibitastöðunum,
til dæmis jógúrtsósur, og þær
geta verið ljómandi góðar ef þær
eru kryddaðar á skemmtilegan
hátt, þá yrði mikil hollustubylting
í skyndibitamenningu íslend-
inga.“
Kjartan Erhngsson
Aukin hollusta
- segir Kjartan Erlingsson matreiðslumaður
KJARTAN Erlingsson er yfirleitt önnum kafinn í vinnunni og
fær sér því skyndibita, „fisk með frönskuin og sósu og salati“.
Hann veit að þetta er ágætismatur; Kjartan er matreiðslumað-
ur á skyndbitastaðnum Svörtu pömiunni í Tryggvagötu.
Kjartan hefur síðustu átta
árin tilreitt skyndifæði
fyrir tímabundna viðskiptavini á
Svörtu pönnunni. Hann segir ís-
lendinga vera frekar íhaldssama
í skyndbitaneyslu en þó megi
merkja ákveðnar framfarir og
þróun. „Fyrir fimmtán, tuttugu
árum voru hamborgarnir oft eins
og skósólar og varla sást. salat-
blað, núna vill fólk fá grænmeti
ogeinhveija 8Ósu á milli t.d ehili-
sósu barbeque eða sinnep."
Það er til marks um íhaldssemi
íslendinga að franskar kartöflur
með kokkteilsósu njóta enn sem
fyrr ómældra vinsælda. - Hvað
með hollustuna í slíku meðlæti?
„Já, kokkteilsósan, hun er að
mestu leyti úr majónesi, en fólk
er íhaldssamt og vill hafa ákveð-
ið bragð og því verður ekki svo
auðveldlega breytt. Annars getur
fólk pantað aðrar sósur síður fit-
andi ef það hefur áhuga á, t.d.
barbeque, bernaise eða heita
kjúklinga- eða sveppasósu.
Majónesið er ekki eins yfir-
gnæfandi og áður var;
sýrður ijómi er farinn að tíðkast,
líka jógúrt. En þá kemur upp
sígilt vandamál. Þessar vörur eru
alltof dýrar og fólk er ekki reiðu-
búið til að eyða stórfé í skyndibit-
asósu.“
- Frönsku kartöflurnar?
„Þær eru jú djúpsteiktar og
það fjölgar kaloríunum en þú
getur oftast fengið bakaðar kart-
öflur ef þú kýst. Eins og sumir
gera. Og þú getur líka valið hvort
þú vilt fá grillaðan kjúkling eða
djúpsteiktan. Þróunin er sú að
fólk liugsar meira um hollustuna
og nú biður það um ferskt græn-
meti. Við opnum salatbar fljót-
lega. Við viljum gera viðskipta-
vininum til geðs, í skyndi."
□ Kuldajakki m/hettu. Hægt
að renna ermum af.
Kr. 4.900,-
LJ Snjosleðagallar
mjög vandaðir
.............kr. 9.990,-
□ Háskólabolir
..........kr. 1.590,-
□ Bolir 100% bómull
InterLockkr. 590,-
□ Nato jakkar í felulit-
um m/hettu
..........kr. 3.900,-
□ Regnsett, bux-
ur/jakki úr þýsku
PVC efni...kr. 1.690,-
□ Jakki - vatnsheldur
m/flannelfóðri og
hettu ....kr. 3.900,-
□
□
□
□
□
□
□
Kuldajakkar, . vaxbornir með
hettu. Kr. 5.900,-
Kuldajakkarm/loðkraga......kr. 5.900,-
Stakirullar- herrajakkar frá ...kr. 5.900,-
Stakir ullar- dömujakkar frá ..kr. 5.900,-
Herra terrelinebuxur.......kr. 2.990,-
Dömubuxur, fínni,..........kr. 2.490,-
Regnföt í felulitum, buxur og jakki, sett..........kr. 3.490,-
Aðeins
6 söludagar
eftir
□ Vinnuskyrta frá
kr. 990.-
OG MARGT MARGT FLEIRA
ALLT NÝJAR VÖRUR!
=)i
STORUTSOLUMARKAÐURINN
BÍLDSHÖFÐA 10. SÍMI 674511.