Morgunblaðið - 07.10.1990, Síða 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
Ólafur Sfephensen
lék eitt sinn djasstónlist
í Harlem, skrifaði próf-
ritgerð um óróðurs-
tækni Göbbels og hefur
um órabil unnið við
auglýsingor og almenn-
ingstengsl. Hann er nú
róðgjafi markaðs- og
kynningarnef ndar f or-
sætisrúðherra, formað-
ur Íslensk-ameríska fé-
lagsins, — og er aftur
farinn að spila djass •••
Ólafur Stephensen Morgunbiaðið/Þorkeii
„Ég er heltekinn
djassdellunni
Ólafur við píanó-
ið í einkasam-
kvæmi á heimili
sínu fyrir nokkr-
um árum.
:© <1
43
43. s
eftir Svein Guðjónsson
„ÞÚ VERÐUR þá að koma í hvelli því
ég fer til London klukkan fjögur í dag,“
sagði Ólafur Stephensen þegar ég bað
hann um viðtal. Þetta lýsir manninum
ef til vill best, því hann er maður önnum
kafinn og þekktur fyrir að hafa mörg
járn í eldinum. Ég hafði frétt að ofan á
allt annað væri hann farinn að spila
djasstónlist opinberlega á ákveðnu
öldurhúsi og þótti það forvitnilegt.
Ólafur hélt hins vegar að ég hefði beðið
um viðtalið í tilefni af því að
Íslensk-ameríska félagið heldur upp á
fimmtíu ára afmæli sitt um þessa helgi,
en Ólafur er formaður þess félags. Um
það hafði ég hins vegar ekki hugmynd
þegar ég fór til hans. En vissulega er
það mun haldbetri ástæða fyrir viðtali
en hitt, að hann skuli dunda sér við
djassinn í frítímum.