Morgunblaðið - 07.10.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
C 25
Belgísk poppsveifla
BELGÍSKAR sveitir hafa
ekki verið áberandi á vin-
sældalistum utan Belgíu og
nágrannahéraða. Það varð
þó breyting þar á þegar
belgíska sveitin Vaya con
Dios var á allra vörum fyr-
ir breiðskífu sína, Night
Owls.
Kaffihúsatónlist með
mjúkri jasssveiflu og
poppfrösum hefur sótt í sig
veðrið síðustu vikur og mán-
uði og dæmi um það er Negr-
esses Vertes, þó sú sveit eigi
til að gerá tónlistarskandala
sértil skemmtunar. Vaya con
Dios, en nafnið þýðir gakktu
með guði, stendur föstum
fótum í popptónlist um leið
og sveitameðlimir bæta við
hana jass, blús, rokkabillí,
flamenco og soul. Sveitina
skipa söngkonan Dani Klein
og kontabassaleikarinn Dirk
Schouf, en í seinni tíð hefur
leikið með þeim gítarleikar-
inn Jean-Michel Gielen. í
upphafi komu þau Dani og
Dirk fram tvö og léku óraf-
magnaðar úsetningar af lög-
um úr ýmsum áttum, lög
með Elvis, Edit Piaf, Otis
Redding o.fl. Fyrsta smáskíf-
an vakti á þeim slíka athygli
að það var auðsótt að ná plöt-
usamningi og fyrsta breið-
skífan seldist í yfir 400.000
eintökum í Evrópu. Það var
á síðasta ári og fyrir stuttu
kom út önnur plata sveitar-
innar, Night Owls, sem nefnd
er hér fyrir ofan. Á Night
Owls er svipað andrúmsloft
og á fyrstu skífunni, lögin
nánast öll í órafmögnuðum
útsetningum, en þó skreytt
með rafhljóðfærum á smekk-
legan hátt. Útsetningarnar
eru fjölbreyttar að vanda:
flamencoblær á Nah Neh
Nah, soulútsetning á What’s
a Woman, gospel í Someth-
ing’s Got a Hold on Me,
blúsaður tregi í Pack Your
Memories og í lokalagi plöt-
unnar er sem áheyrandinn
sé staddur á frönsku kaffi-
húsi. Svo vel ganga útsetn-
ingarnar upp að á stundum
er sem verið sé að hlusta á
safnpiötu, en það sem tengir
hana saman er sveigjanleg
rödd Dani Klein og þéttur
bassaleikur Dirks Schoufs er
aldrei langt undan.
Gakktu með guði Jean-Michel Gielen, Dani Klein og Dirk
Scouf.
DÆGURTONLIST
Popphœnsn eba merkur listamabur?
Hlustið án fordó
GEORGE Michael er í þeirri einkennilegu aðstöðu
að vera álitinn ómerkilegt popphænsn í lieimalandi
sínu, Bretlandi, en i Bandarikjunum er hann talinn
með fremstu hvítu soulsöngvurum og tekinn alvar-
lega (of alvarlega að eigin sögn). Síðasta plata
Georges, Listen Without Prejudice, hlustið án for-
dóma, virðist vel til þess fallin að koma honum í
hóp virtra poppara breskra.
Gagnrýnendur hafa
hlaðið plötuna lofi
og.sumir talið hana
bestu poppplötu ársins
hingað til, en plötukaup-
endur hafa ekki verið síð-
ww^mmmmmmm ur já-
kvæðir,
því hún
hefur
selst í
geys-
iupplagi
eftir Árna ™ heim
Matlhlasson ahan og
herma
fregnir að ekki hafi er-
lendri plötur verið dreift í
eins miklu magni hér á
landi á árinu. Állt bendir
því til þess að George
Michael sé kominn í þá
þægilegu aðstöðu að fólk
kaupir fyrst og hlustar
svo. Öðru máli gegnir um
fyrrum félaga hans í
Wham!, Andrew Ridgeley,
en plata hans kom út
snemma á þessu ári og
var umsvifalaust jörðuð
af öllum sem um hana Jjöl-
«luðu, ekki síður en af al-
menningi. Á nýju plötunni
semur George öll lög og
sér um útsetningar, þann-
ig að ekki fer á milli mála
hvor réð ferðinni í Wham!.
Fyrir stuttu birtist við
George langt viðtal í
breska poppblaðinu Q. Þar
lýsir hann því yfir að þetta
verði síðasta viðtal sem
hann gefi um fyrirsjáan-
lega framtíð, en einnig
hyggst hann hætta að
fera tónlistarmyndbönd.
stæðuna segir hann vera
þá að hann hafi eytt tiu
árum í að koma því á
framfæri hvað hann sé
sérstakur, en núorðið
skipti. tónlistin hann
svo miklu máli að
hann vilji ekki að
persónan/popp-
stjarnan George Mic-
hael spilli. Hvað sem
því líður þá er hann
í aðstöðu til að láta
tónlistina tala, því
síðasta plata hans,
Faith, hefur selst í
um fjói-tán milljónum
eintaka og í Banda-
ríkjunum hlaut hann
Grammy-verðlaun
sem bestir samtíma-
soulsöngvarinn, en
það vakti mikla reiði
blakkra tónlistar-
manna þar í landi.
Þess má svo geta
að athygli hefur vak-
ið að á umslagi plöt-
unnar stendur Vol.
1, sem bendir til þess
að væntanlégt sé
framhald og herma
fróðir að það komi á
markað skömmu fyr-
ir jól og með laginu
Last Christmas í
nýrri útsetningu.
GeorgeMichaet
Elvis snýr aftur
POPPIÐ ristir jafnan ekki djúpt, en þó eru til hljóm-
sveitir sem leika það kallað hefur verið „gáfumanna-
popp“ og krefst meiri hlustunar og íhygli en t.a.m.
Paula Abdul eða Greifarnir. Meðal fremstu slíkra sveita
er Prefab Sprout, sem vakti aðdáun og átrúnað með
plötu sinni Steve McQueen.
Fyrir stuttu kom frá
Prefab Sprout fjórða
breiðskífa sveitarinnar (ef
ekki er talin með prufupp-
tökuplatan Protest Songs,
sem fékkst víða á síðasta
ári), Jordan: The Comeback.
Á plötunni eru nítján lög í
fullri lengd og platan því
óvenju pökkuð. Paddy
McAloon, höfuðpaur sveit-
arinnar segir á því þá eðli-
legpi skýringu að hann hafi
verið búinn að semja slík
ókjör af lögum að ekki hafi
verið undan því komist að
hafa hana þetta langa. Síð-
asta plata sveitarinnar,
From Langley Park to
Memphis, þótti í léttari
kantinum og margur varð
argur við, en Jordan er lík-
ari fyrri plötum sveitarinnar
og um leið fjölbreyttari en
oft áður. Lögunum segist
Paddy skipta í lagaflokka
og nefnir sem dæmi lögin
Jordan: The Comeback,
Jesse James Symphony,
Jesse James Bolero og Mo-
ondog, sem byggi á því að
Elvis Presley sé lifandi í
eyðimörk. Fyrsta- lagið sé
eintal hans, þar sem hann
telji sjálfan sig á að snúa
aftur og taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið og í
lokalaginu, Moondog, er
hann snúinn aftur og rödd
hans heyrist í
lokin.
Sem fyrr er
það Thomas
Dolby sem sér
um upptökur
og tekur þátt í
útsetningum,
eri lögin semur
Paddy einn síns
Iiðs. Reyndar
kallar hann ekki
saman sveitina
fyrr en hann er
búinn að taka
upp prufur af
hæfile"51 *v'"—
um
plötu.
Prefab
Sprout
„Gáfu-
mann-
apopp.“
T.é -- •'
■
Ekki þurfa aðdaendur
Prefab að bíða lengi eftir
næstu breiðskífu, því á með
an á upptökum stóð samdi
Paddy nóg lög á aðra plötu
og hefjast upptökur innan
skamms.
■ KEFL VÍSKA þunga-
rokksveitin Pandóra sendi
nýverið frá sér sína aðra
breiðskífu á vegum Geim-
steins. Sveitin sendi áður
frá sér breiðskífuna Saga
fyrir nokkru, en á þeirri
plötu voru allir textar á
ensku. Nýja platan heitir
hinsvegar Á íslensku, enda
eru allir textar sveitarinnar
nú á íslensku, en þess má
geta að þeir Bubbi Morth-
ens og Bjartinar Guð-
laugsson leggja sveitinni lið
í tveimur lögum.
■ GEISLADISKURINN
vinnur á og útgefendur eru
farnir að setja gamla titla á
diska hér á landi ekki síður
en ytra. Á næstunni koma
á geisladisk gamlar plötur
með Bubba Morthens og
hljómsveitum hans Utan-
garðsmönnum og Egó.
Ekki er búið að ákveða út-
gáfudag, en plöturnar sem
gefnar verða út eru Isbjarn-
arblús og Fingraför með
Bubba, Geislavirkir með
Utangarðsmönnum og
Breyttir tímar með Egó.
MPOSSIBILLYS tóku upp
sína aðra breiðskífu
snemma á árinu, en ekki
gekk sem skyldi að finna
útgefanda. Hann er þó
fundinn og gefur Skífan
plötuna út í næsta mánuði.
Possibillys skipa nú Jón
Ólafsson, Stefán Hjör-
leifsson og Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
■ VINSÆLASTA þunga-
rokksveit heims, Guns ’n’
Roses, hóf í haust upptökur
á þriðju breiðskífu sinni.
Upptökur hafa gengið treg-
lega þó nóg sé til af lögum,
því trymbill sveitarinnar var
rekinn fyrir heróínfíkn og
hvað eftir annað hefur slitn-
að upp úr hljóðversvinnunni
vegna lífernis sveita-
manna.
■ EFTIRLITIÐ heldur
tónleika í Hótel Borg næst-
komandi fimmtudag, 11.
október. Eftirlitið hefur
haldið nokkra tónleika síð-
ustu vikur, en sveitin er að
táka upp þráðinn þar sem
frá var horfið fyrir nokkru,
með nýjum mönnum. Tón-
list sveitarinnar telst fönk-
rokk að sögn sveitarmeð-
lima.
MBLESS heldur útgáfu-
tónleika í Kjallara Keisar-
ans næstkomandi föstudag,
til að kynna breiðskífu sveit-
arinnar, Gums, sem út kom
ytra fyrir tveimur vikum.
Ekki hefur platan enn borist
hingað til lands, en verður
gefin út miðjan mánuðinn.