Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990 i Fyrirtæki Mikilvægt skref til að tryggja reksturinn — segja Einar Jónatansson og Einar K. Guðfinnsson, framkvæmdastjórar hjá Einari Guðfinns- syni í Bolungarvík, um skipulagsbreytingarnar á fyrirtækinu SAMEINING — „Meginmarkmið með endurskipulagningunni er auðvitað að treysta rekstur fyrirtækj- anna og efla þau til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar. I fyrsta lagi er það gert með því að einfalda uppbygginguna og þess vegna höfum við brugðið á það ráð að sameina þau fyrirtækf sem hafa staðið í rekstri sjávarútvegsþátta okkar,“ segja þeir Einar K. Guðfinnsson og Einar Jónatansson framkævmdastjórar hjá Einari Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík. eftir Gunnar Hallsson Bolungarvík. MIKLA athygli vakti þegar það spurðist út að gagnger uppstokk- un væri að eiga sér stað á rekstri fyrirtækja Einars Guðf- innssonar hf. í Bolungarvík. Fyr- irtækið hefur verið eitt hið um- svifamesta í sjávarútvegi á Is- landi um langt árabil og burðar- ásinn í atvinnulífi í Bolungarvík. Samkvæmt yfirliti Frjálsrar verslunar yfir stærstu fyrirtæki í sjávarútvegi á íslandi, var fyrir- tækið talið hið fjórða stærsta árið 1989. Fyrirtækjareksturinn er mjög fjölþættur. Um er að ræða togara- útgerð, rækjuverksmiðju og frysti- hús, sem á síðasta ári var með þriðja mesta framleiðsluverðmæti húsa innan Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna. Þá starfræki fyrir- tækið saltfiskverkun, rekur ioðnu- verksmiðju ogá hlut í -loðnuskipi. Ennfremur er á höndum fyrirtækis- ins umsvifamikill verslunarrekstur og umboðsstarfsemi. En hvað veldur þessari endur- skipulagningu? Og hvað felur hún í sér? Þessar spurningar og fleiri lagði Morgunblaðið fyrir þá Einar Jónatansson og Einar K. Guðfinns- son, framkvæmdastjóra hjá Einari Guðfinnssyni hf. — Nú er vitað að fyrirtækin í Bolungarvík hafa átt í rekstrarerf- iðleikum. Hver er skýringin? „Eftir þá útreið sem íslensk sjáv- arútvegsfyrirtæki hafa fengið á síð- ustu árum kemur það varla á óvart að um erfiðleika hafí verið að ræða hjá okkur. Hins vegar hefur ýmis- legt orðið til þess að aðstæður hafa orðið okkur sérlega óhagstæðar. Fyrir alllöngu var samið um smíði hér innanlands á nýjum tog- ara sem koma skyidi í stað tveggja eldri skipa. Á smíðatíma skipsins var lánareglum gjörbreytt hjá Fisk- veiðasjóði. Skipið hlóð á sig fjár- magnskostnaði líkt og önnur skip sem voru afhent um svipað leyti. Til þess að standa undir þessum ófyrirsjáanlega kostnaði var rekstur skipsins studdur árum saman af öðrum þáttum fyrirtækjanna. Það er sorglegt til þess að vita, þegar litið er til baka, að langflest- ir þeirra togara sem smíðaðir voru innanlands um svipað leyti og á árunum á eftir hafa verið seldir nauðungarsölu og kröfur felldar niður jafnvel upp á hundruð milljóna á núvirði. Ekki var um neitt slíkt að ræða í okkar tilviki. Sviptir 100 milljóna kr. loðnukvóta Árið 1983 strandaði ms. Hafrún, sem var loðnubátur í okkar eigu. Á þeim tíma hafði loðnukvótum þegar verið úthlutað um nokkurra ára skeið, reyndar á grundvelli sömu laga og reglugerða sem enn er byggt á við úthlutun loðnukvóta. Á þessum tíma var bannað að láta smíða skip eða flytja inn jafnvel þótt sambærilegt skip hyrfi úr rekstri og ekki þekktist að flytja kvóta yfir á önnur skip sem þykir eðlilegt og sjálfsagt í dag. Þrátt fyrir mikla baráttu hefur okkur ekki enn tekist að endurheimta þann kvóta, sem af okkur var tek- inn. Það sjá allir hvílíkt reiðarslag þetta var fyrir okkur. Loðnukvóti sambærilegur við kvóta Hafrúnar er sjálfsagt verðlagður á nálægt 100 milljónir króna í dag. Þá stóð skipið undir aðalhráefnisöflun loðnuverksmiðjunnar. Segja má, að sjávarútvegsþáttur- inn í rekstri okkar skiptist í tvennt, þ.e. bolfiskveiðar og vinnslu og loðnuveiðar og vinnslu. Þegar sum- ar og haustveiðar hófust á loðnu var hún aðallega veidd út af Vest- fjörðum og Norðurlandi. Verksmiðj- an var því vel staðsett. Loðnuvinnsl- an varð þess vegna stór þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Þessi au- knu umsvif skiluðu sér með ýmsum hætti inn í bæjarfélagið, jafnt til þjónustuaðila sem sveitarfélagsins. Á þessu sést að haustveiðarnar eru okkur Bolvíkingum, mikilvægari en öðrum. Síðustu þijú haustin hafa verið okkur afar óhagstæð. Árið 1988 hófust haustveiðarnar seint. í fyrra var nánast ekki um neina haust- veiði að ræða og allir vita að þrátt fyrir að komið sé undir mánaðamót- in október/nóvember er loðnuveiði rétt að hefjast. Þetta hefur orðið okkar rekstri afskaplega óhag- kvæmt, eins og allir hljóta að sjá. Gífurleg kvótaskerðing Árið 1984 keyptum við nýtt skip, Sólrúnu ÍS 1. Þegar við sömdum um kaupin á skipinu var ekkert til sem heitir kvóti á bolfiski. Á meðan á smíði skipsins stóð var hins vegar kvótafyrirkomulagið ' innleitt. Til þess að bregðast við þessu brugðum við á það ráð að breyta skipinu á smíðatímanum og útbúa það sér- staklega til rækjuveiða og vinnslu um borð. Þá mátti stunda rækju- veiðar óhindrað. Bolfiskkvóta skips- ins veiddum við hins vegar með öðrum skipum okkar. Þannig má segja að við höfum strax í upphafi kvótafyrirkomulagsins reynt að auka hagræðinguna, með því að sameina aflaheimildir, nokkuð sem menn hvetja mjög til um þessar mundir og það með réttu. Þegar þetta er haft í huga er þeim mun undarlegra að hugsa til þess að lögum um fiskveiðistjómun var breytt á tímabilinu. Okkur var í rauninni stillt upp við vegg og gert að velja á milli þess að fá óskert aflamagn í bolfiski, en 60-70% skerðingu í rækju, eða full- an rækjukvóta en 60-70% skerðingu í bolfiskkvóta. Þar með var heildar- tekjuöflun fyrirtækisins skert gríð- arlega. Þá hrjáðu miklar bilanir rekstur skipsins og ollu okkur miklu tjóni. Allt þetta hefur vita- skuld gert það að verkum að fyrir- tæki okkar hefur orðið illa úti. Hefðu rekstrarskilyrði sjávarút- vegsins í heild verið eðlileg, hefði staðan á hinn bóginn verið allt önn- ur í dag.“ Meginmarkmið endurskipulagningarinnar — Víkjum nú að þeirri endur- skipulagningu sem staðið hefur yfir. í hverju felst hún? „Meginmarkmiðið er auðvitað að treysta rekstur fyrirtækjanna og efla þau til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar. í fyrsta lagi er það gert með því að einfalda uppbygginguna og þess vegna höf- um við brugðið á það ráð að sam- eina þau fyrirtæki sem hafa staðið í rekstri sjávarútvegsþátta okkar. Þannig verður um að ræða samein- ingu á Ishúsfélagi Bolungarvíkur hf. sem hefur rekið frystihúsið og rækjuverksmiðju, Baldri hf., sem hefur rekið togarann Dagrúnu, Völusteini hf. sem hefur rekið tog- arann Heiðrúnu og til viðbótar koma síðan loðnuverksmiðjan og saltfiskverkunin sem hafa verið hluti af Einari Guðfinnssyni hf. í öðru lagi verður stofnað sérstakt hlutafélag um verslunarreksturinn. í þriðja lagi verða seldar eignir sem við teljum að falli ekki nægilega vel að rekstri fyrirtækisins eins og hann er í dag. í fjórða lagi verða fyrirtækin opnuð fyrir nýjum aðil- um sem koma inn með nýtt hlutafé. Tímamótaákvörðun Af ýmsum ástæðum hefur rekst- urinn verið í höndum nokkurra mis- munandi hlutafélaga. Þegar Einar Guðfinnsson á sínum tíma beitti sér fyrir stofnun íshúsfélags Bolung- arvíkur hf. komu fjölmargir ein- staklingar til liðs. Hluthafar í íshús- félagi Bolungarvíkur hf. fylla nú um fimm tugi. Þegar skipakaup voru ákveðin á hinum ýmsu tímum, lágu mismunandi forsendur að baki þannig að um mismunandi eigna- raðild var að ræða. Þetta fyrirkom- ulag hefur haft sína kosti, en einn- ig sína galla. Með því að sameina þennan fyrirtækjarekstur nú er ver- ulega hægt að einfalda reksturinn og draga úr kostnaði. Þá felur ákvörðunin um samein- ingu fyrirtækjanna allra í sér það að tugir nýrra hluthafa verða nú aðilar að öllu fyrirtækinu með bein- um hætti. Eignaraðild verður því dreifðari og fyrirtækið opnara. Þetta er auðvitað tímamóta- ákvörðun á margan hátt. Fyrirtæk- ið hefur nánast verið í eigu einnar fjölskyldu. Nú verður á þessu breyt- ing. Við erum einfaldlega þeirrar skoðunar að þessi þróun sé eðlileg og sjálfsögð. Ákvörðunin var tekin af eigendunum að vel yfirlögðu ráði og allir voru vel meðvitaðir um hvað hún þýddi. Sjávarútvegurinn verður að treysta innviði sína. Það verður meðal annars- gert með því að inn í hann komi nýtt áhættufé. Við sjáum merki um þetta víða um þess- ar mundir. Enda er það ekkert nema eðlilegt. Sjávarútvegurinn hlýtur að vera áhugaverður fyrir fjárfesta á íslandi. Fyrirtæki í sjávarútvegi á landsbyggðinni verða að fylgja þró- uninni og njóta í ríkari mæli áhættuijár í stað lánsíjár. Annars er hætta á að atvinnulífið á lands- byggðinni verði undir í samkeppni við sterk fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu sem hafa þegar brugðist við þessum aðstæðum.“ „Eltum ekki ólar við allt það rugl — Jafnframt þessari uppstokkun sem þið hafið nefnt hefur verið tal- að um mikla fyrirgreiðslu opinberra sjóða ykkur til handa. „Já, það hafa verið ýmsar tölur á sveimi í þessu sambandi og við höfum ekki elt ólar við allt það endemis rugl sem þar hefur verið sett fram. Það er staðreynd málsins að Byggðastofnun ákvað að fella niður 29 milljónir af skuldum fyrir- tækisins. Þetta á sér þá skýringu, að í upphafi var það ætlun okkar að fá sérstaklega hlutafé inn í rekst- ur loðnuverksmiðju okkar. Við leit- uðum til nokkurra aðila, þar á með- al Byggðastofnunar, í þessu sam- bandi. Við bentum á að verksmiðja okkar ætti sér mikla sérstöðu, þar sem hún er hin eina á okkar svæði sem getur brætt feit bein, það er unnið úr úrgangi grálúðu og karfa. Það er því mikið hagsmunamál þessa atvinnusvæðis að rekstur hennar geti verið áfram öruggur og traustur. Byggðastofnun hefur aldrei lagt hlutafé í sjávarútvegsfyrirtæki, eins og menn geta sannfærst um við lestur ársskýrslu stofnunarinnar. Fulltrúar stofnunarinnar óttuðust fordæmisgildi þess að gera slíkt. Um svipað leyti kom ósk frá hinum nýju aðilum sem ætluðu að kaupa Sigló — rækjuverksmiðjuna á Siglu- firði um fyrirgreiðslu frá Byggða- stofnun. í því tilviki var ákveðið að fella niður skuld við stofnunina upp á 25 milljónir króna. Þar með má segja að tónninn hafi verið gefinn. Ákvörðunin um niðurfellingu okkur til handa var tekin í framhaldi af þessu.“ Fjárhagsleg endurskipulagning — En nú er þetta ekki eina fyrir- greiðslan sem þið hafið fengið úr opinberum sjóðum. Fenguð þið ekki stórt lán líka? ' „Jú, í lok síðasta árs þegar við ákváðum að ganga til endurskipu- lagningar fyrirtækja okkar, sóttum við um lán hjá Atvinnutryggingar- sjóði útflutningsgreina. Sá sjóður hefur lánað velflestum íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum til skuld- breytinga og nema heildarlánveit- ingar hans á síðustu tveimur árum um átta milljörðum króna. Við settum okkur í upphafi ákveðin markmið og lögðum línurn- ar um _ það hvernig þeim skyldi mætt. í markmiðum okkar fólst í raun og veru skuldalækkun upp á um 600 milljónir króna. Þyngst vegur vitaskuld sala þeirra eigna sem við töldum að féllu ekki nægi- lega vel að rekstri fyrirtækisins eins og hann er í dag. Þar munar auðvit- að mest um sölu Sólrúnar. Jafn- framt er um verulega hlutaíjár- aukningu að ræða. Að því koma bæði núverandi og nýir hluthafar. Atvinnutryggingarsjóður útflutn- ingsgreina samþykkti síðan til okk- ar lán að upphæð 200 milljónir króna, þegar markmiðum okkar yrði náð. Að þessu unnum við sleitulaust í sumar. Við höfum notið aðstoðar margra góðra manna. Við réðum sérstakan mann, Jon Atla Krist- jánsson hagfræðing, til þess að starfa með okkur. Það var okkur ómetanlegt, enda ómögulegt að vinna að slíkri endurskipulagningu ásamt daglegum rekstri án slíkrar utanaðkomandi hjálpar. Þá höfum við notið velvildar og trausts við- skiptabanka okkar, Landsbanka Is- lands, sem meðal annars mun koma inn í þetta dæmi með því að greiða fyrir og lána til hlutafjáraukningar. Þá hefur verið samið um að í tengsl-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.