Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
B 11
Bankar
Blómstrandi við-
skipti „fyrir austan “
Hins vegar er skortur á þjálfuðu starfsfólki
Xrier. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins
NYJU þýsku sambandslýðveldin sem til skamms tíma mynduðu
Austur-Þýskaland hafa að undanförnu orðið fyrir hálfgerðri inn-
rás vestur-þýskra fyrirtækja. Það eru ekki síst vestur-þýsku bank-
arnir sem hafa einbeitt sér að hinum nýja markaði í austri enda
var hann svo gott sem óplægður akur hvað bankastarfsemi varð-
ar. Fjármagnsmarkaðurinn átti ekki upp á pallborðið hjá hinum
kommúnísku sljórnendum Austur-Þýskalands. Vestur-þýsku lána-
stofnanirnar þurftu því að fylla upp í skarðið, og eru þær nú
nánast allar með tölu komnar með útibú, dótturfyrirtæki eða sam-
starfsaðila í nýju sambandslýðveldunum.
Þær óánægjuraddir sem uppi
voru fyrir nokkrum mánuðum
vegna samstarfs Deutsche Bank,
stærsta banka Þyskalands, og
Deutsche Kreditbank, eru nú
þagnaðar. Deutsche Kreditbank
er fyrirtæki stofnað um Staat-
bank, sem var ríkisbanki Austur-
Þýskalands og með einokunarað-
stöðu á markaðinum. Töldu aðrir
bankar, að samstarf Deutsche
Bank og Deutsche Kreditbank,
sem tilkynnt var í apríl, myndi
takmarka mjög möguleika a'nn-
arra banka að ná fótfestu.
Allir fá nóg
Nú tæpu hálfu ári síðar virðist
sem kakan hafi þrátt fyrir allt
verið nógu stór handa öllum, að
minnsta kosti heyrist ekkert nema
fagnaðarlæti úr herbúðum bank-
anna. Deutsché Bank hefur fengið
til sín 250.000 nýja viðskiptavini
og næststærsti bankinn, Dresdner
Bank, 210.000. „Við fáum fimm
þúsund nýja viðskiptavini dag-
lega,“ sagði Wolfgang Röller,
æðsti maður Dresdner Bank fyrir
skömmu. Nýir viðskiptavinir þriðja
stærsta bankans, Commerzbank,
eru 65.000.
En bankastarfsemin í nýju sam-
bandslýðveldunum hefur ekki al-
veg sloppið við vaxtaivcj’ki.
Stærsta vandamálið er skoitur á
þjálfuðu vinnuafli og ei'u dagblöð-
in full af auglýsingum þar sem
auglýst er eftir starfsfólki í nýju
bankaútibúin „fyrir austan". En
þrátt fyrir að tekist hafi að lokka
töluvert af fólki að vestan austur
yfír, m.a. með launahækkunum,
bílastyrkjum og stöðuhækkunum,
er ástandið enn þá erfitt. Deutsche
Bank skýrði á dögunum frá því
að nýir viðskiptavinir gætu þurft
að bíða í allt að hálfan mánuð
eftir því að fá viðtal við ráðgjafa
í bankanum.
Erfiðleikar vegna
starfsfólks
Sparisjóðirnir í fyrrum Austur-
Þýskalandi eru einnig taldir eiga
eftir að lenda í erfíðleikum vegna
skorts á þjálfuðu starfsfólki, að
minnta kosti er það álit sparisjóðs-
manna að vestan. Hingað til hafa
sparisjóðirnir fyrir austan, alls 196
að tölu, staðið sig vel í samkeppn-
inni við bankana og sýna markaðs-
kannanir að fólk vill sýna sam-
stöðu með sparisjóðunum „sín-
um“. Er markaðshlutdeild spari-
sjóðanna í nýju sambandslýðveld-
unum nú um 70%. Þetta forskot
er þó talið geta horfið á skömmum
tíma ef ekki fást reyndir stjórn-
endur að vestan til að skipuleggja
starfsemina. Lét Wolfgand Doi'n-
seifer, sem er formaður stjórnar
sparisjóðs Dusseldorf, það álit sitt
nýlega i ljós, að það væri ekki síst
nauðsynlegt sem hvatning fyrir
starfsfólk spax'isjóðanna að vestui--
þýskir stjómendur tækju við foi'-
ystuhlutverkunum í austur-þýsku
sparisjóðunum.
En það verður líklega ekki
mestum erfíðleikum bundið að fá
hæfa menn í æðstu stöður heldur
í önnur stjórnunarstörf nær miðju
valdapýramídans. Þar þaxí fólk í
um 3.000 störf sem gæti orðið
erfitt að fylla í. Engin leið er
fyrir vestur-þýsku sparisjóðina að
láta af hendi fólk í þau öll enda
er heildarijöldi starfsmanna vest-
ur-þýsku sparisjóðanna einungis
30.000. Því er stefnt að því að sía
úr þau 10-15% núvei-andi starfs-
manna sem hæfust eru talin og
þjálfa þannig að þeir geti tekið
við stjórnunarstörfum innan eins
árs.
En þó að þessi „blóðtaka" sé á
margan hátt erfið fyrir vestui'-
þýsku bankana veldur hún stjórn-
um bankanna ekki miklum
áhyggjunx. Þvert á móti er nú
búið að létta af mörgum því fai'gi
að þui'fa að skera niður starfsfólk
í spai'naðarskyni. Staðreyndin er
sú að í fæstar þær stöður sem
losnað hafa vegna þess að fólk
hefur flutt sig austuxyfir hefur
verið í’áðið á ný.
Ulrich Caxtelliei'i, sem sæti á í
stjórn Deutsche Bank, metur stöð-
una þannig að þróun sé komin á
skrið sem muni leiða til þess að
peningastofnunum fækki á næstu
árum. Einungis hæfustu ljármála-
stofnanirnar og hæfasta starfs-
fólkið muni lifa þessa þróun af og
uppi muni standa fáar en mjög
stórar stofnanir. „Bankarnir eru
stáliðnaður tíunda áratugarins,“
segir Cartellieri.
MCOPAR
ORLANDO PARÍS
STO NYC
STOKKHÓLMUR NEW YORK
SZG FAE
SALZBURG FÆREYJAR
GLALUX
GLASGOW IXJXEMBOURG
INNFLUTNINGUR ÚTFLUTNINGUR
Simi: Simi:
690101 672824
Fax: Fax:
690464 672355
ÞÚ HEFUR HEIMINN í HENDI ÞÉR MEÐ
Fnikt