Morgunblaðið - 25.10.1990, Side 7
MORQUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF .rLMMTyUAGUIi.25. OKTÓBER 1990 ,
.■ ■ ■■■»■■■ . — '•■rt-r-y ? ft'i"? frt'r m »— "S't ? r"i ‘ ■ .
Pappírsiðnaður
Endurvinnsla pappírs
og mengunarvarnir
VEGNA vaxandi áhuga á umhverfismálum iiafa Félag íslenska
prentiðnaðarins og pappírsfyrirtækið Hvítlist hf. fengið til landsins
Norðmanninn Tore Strand til að halda erindi um þróun á endurunn-
um og klórfríum pappír til prentunar. Guðjón Sigurðsson, eigandi
Hvítlistar sagði að það væri algengt að fólk ræddi um
endurvinnslu, klórfrían pappír, sýrufrían pappír o.fl. án þess að
hafa fullan skilning á því hvað þessi hugtök merktu í raun. Hann
sagði að tilgangur erindanna væri að skýra þróun þessara mála,
útskýra hugtök og víkka sjóndeildarhring þeirra sem áhuga hafa.
um við þessar aðgerðir verði drátt-
arvextir endurreiknaðir, enda munu
skuldir fyrirtækjanna við bankann
lækka umtalsvert.
Velta um 1,5 milljarðar
Nettóskuldir þeirra fyrirtækja,
sem munu mynda hið nýja sjávarút-
vegsfyrirtæki í Bolungarvík ásamt
Röst hf. sem átti Sólrúnu ÍS námu
ríflega 1.500 milljónum um síðustu
áramót. Að loknum þeim aðferðum
sem hér um ræðir erum við að tala
um 600 milljónum króna iægri tölu.
Skuldir verða því rúmlega 900 millj-
ónir króna og eignir því langt um-
fram þær.
Til þess að undirstrika hvaða
eignir standa undir þessum skuld-
um, er hér um að ræða tvo togara
með mikinn aflakvóta, stórt og af-
kastamikið frystihús, rækjuverk-
smiðju, saltfiskverkun og loðnu-
verksmiðju. Auk þess 47,5% eignar-
hluti í einu stærsta loðnuskipi lands-
inSj Júpiter.
I venjulegu árferði er ekki óraun-
hæft að gera ráð fyrir ársveltu upp
á 1,4 til 1,5 milljarða króna hjá
þessu fyrirtæki auk veltu Júpiters.
Þótt við vildum auðvitað að skuldir
fyrirtækisins væru lægri, er ljóst
að velta og eignir í hlutfalli við
nettóskuldir sýnir að staða okkar
er fyllilega sambærileg við það sem
gerist og gengur í íslenskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum almennt.“
Unnið að nýju
stjórnskipulagi
— Nú þegar verið er að stokka
reksturinn svona mikið upp, hlýtur
sjálft skipulagið að breytast og þar
með yfirstjórn fyrirtækisins.
„Já. Það gefur auga leið. Við
teljum það einmitt einn helsta
ávinninginn af því að sameina fyrir-
tækin, að stjórnunin verði markviss-
ari og skilvirkari. Hinu nýja fyrir-
tæki verður sett fimm manna
stjórn, sem hluthafar munu velja.
Þessa dagana erum við að vinna
að endanlegu stjórnskipulagi fyrir-
tækisins og það mun líta dagsins
ljós á næstunni.“
Framtíðarverkefnið að afla
aukins kvóta
— Nú selduð þið Sólrúnu til Súða-
víkur. Hún var eins og fram kom
hjá ykkur mikilvæg að því leyti að
kvóti hennar nýttist öðrum skipum
fyrirtækisins og aflaði þannig
frystihúsinu hráefnis. Var það þá
skynsamlegt að selja skipið?
„Já, alveg tvímælalaust. Stað-
reyndin var einfaldlega sú að sá
kvóti, sem skipið færði okkur, hafði
verið okkur of dýr. Við höfðum
ekki tekið þátt í því að afla fyrirtæk-
inu aukins kvóta með kaupum á
svokölluðum kvótabátum, vegna
þess að við nutum kvótans af Sól-
rúnu, með þeim annmörkum, sem
við höfum þegar rakið. Á hinn bóg-
inn urðum við alltaf að breyta hluta
af bolfiskkvótanum í rækju til þess
að tryggja rekstur skipsins. Enn-
fremur var karfi 0g grálúða fryst
um borð og kom því ekki til vinnslu
í landi. Uppleggssamningurinn við
Frosta hf. í Súðavík, sem keypti
skipið, er afar mikilvægur og raun-
ar hagstæður báðum aðilum. Hann
felur í sér að Frosti hf. leggi upp
hjá okkur að minnsta kosti 400
tonn árlega næstu fimm árin. Við
teljum að samstarf af þessu tagi
sé mjög þýðingarmikið. Hér á svæð-
inu hefur verið í raun virk aflamiðl-
un á milli frystihúsanna. Nú verður
reynt að gera hana enn virkari og
markvissari.
Til viðbótar ætluðum við að ein-
henda okkur í að afla aukins kvóta
til útgerðar okkar. Hlutafjáraukn-
ingin og opnun fyrirtækisins er ein-
mitt liður í þeim ásetningi okkar.
Að auki höfum við beitt okkur
fyrir því að aðilar hér innanbæjar
taki höndum saman um stofnun
fyrirtækis sem hafi það að mark-
miði að afla aukins kvóta til bæjar-
ins og tryggja jafnframt að kvóti
fari ekki úr byggðarlaginu. Þessu
hefur verið vel tekið og er nú að
komast á verulegan rekspöl. Við
eins og aðrir Bolvíkingar bindum
vonir við þetta.“
Atvinnuleysi í Bolungarvík
nær óþekkt
—Teljið þið að framtíð hins nýja
sjávarútvegsfyrirtækis sé tryggð
um ókomin ár, eftir þessa miklu
uppstokkun og endurskipulagn-
ingu?
„Það á víst vel við að segja að
aldrei sé á vísan að róa í íslenskum
sjávarútvegi. Ytri aðstæður eru
breytilegar og þau rekstrarskilyrði
sem greinin hefur lengstum búið
við svo hörmuleg. Á hinn bóginn
teljum við okkur hafa stigið mjög
mikilvægt skref til þess að treysta
reksturinn til frambúðar, enda er
það von okkar og vissa að fyrirtæk-
ið muni verða áfram burðarás í
bolvísku atvinnulífi.
Sem betur fer hefur atvinnuleysi
verið nær óþekkt fyrirbrigði í Bol-
ungarvík og er svo enn. Þetta er
eflaust ein skýring þess að íbúum
Bolungarvíkur fjölgaði umfram
landsmeðaltal á síðustu tuttugu
árum, þrátt fyrir að lægð hafi kom-
ið í íbúaþróunina upp á síðkastið
eins og annars staðar á landsbyggð-
inni.“
Tore Strand er tæknilegur fram-
kvæmdastjóri og sérfræðingur í
pappírsvinnslu hjá Basberg Papir
a/s. Aðalstarf Strand undanfarin
ár hefur verið að miðla upplýsing-
um frá fyrirtækjum í pappírsiðnaði
til yfirvalda og almennings. Eins
hefur hann unnið mikið starf í því
að hvetja til þróunar á mengunar-
minni framleiðsluaðferðum á papp-
ír. Tore Strand hefur skrifar fjöl-
margar greinar í blöð og tímarit
og kennt pappírsfræði við fagskóla
í Noregi.
Að sögn Guðjóns er hér um að
ræða fræðslufundi frekar en beina
fyrirlestra þar sem fólki verður
gefinn kostur á að spyrja Strand
út úr. Strand heldur hér tvö er-
indi. Hið fyrra er í dag kl. 20-22
í húsakynnum Félags íslenska
prentiðnaðarins að Háaleitisbraut
58-60. Þar verður aðallega fjallað
um nýjungar í prentpappír og
vandamál við tækniþróun. Þetta
erindi er einkum ætlað prenturum
og þeim sem vinna með pappír í
prentsmiðjum. Síðara erindið er á
morgun kl. 15-17 á sama stað og
er það ætlað áhuga- og .fagfólki
um pappír, t.d. útgefundum og
forsvarsmönnum prentiðnaðar,
grafískum hönnuðum, formælend-
um náttúruvemdarsamtaka,
skjala- og bókavörðum o.fl. Aðalef-
nið í því erindi er endurvinnsla,
klórfrír pappír og varðveislugildi
pappírs.
bókhaldinu lif!
Hcegt erað setja upp nýjar gagna-
skrár eftir eigin böfði og tengja við
þœr sem fyrir eru.
Notandi getur búið til fyrirspurnir og
skýrslurað vild með ótal útreiknings-
möguleikum - án forritunar.
I tkU t-Jlu 11um11iH.n1
Bókhaldið vaknar til lífsins íþrímöum
myndum sem snúa má á alla kanta
-þú bókstaflegaveltir fyrírþér rekstrí
fyrírtœkisins!
íslensk forritaþróun hf kynnir ópusallt, nýjan
viðskiptahugbúnað sent þú verður að sjá!
óþusallt sameinar tvö útbreiddustu viðskiþta-
hugbúnaðarkerfi hér á landi, Ópus og Allt, og
innifelur að auki ótal nýjungar.
Veldu reyndan viðskiptahugbúnað: Um 1200
fyrirtceki nota viðskiptahugbúnað frá íslenskri
forritaþróun hf. og flestir framhaldsskólar landsins
kenna á hann. Allir viðskiptafrœðingar frá Háskóla
íslands og stúdentar frá Verzlunarskólanum lcera á
ópuszWt. Með því að velja ópus&Wt velur þú öruggan
hugbúnað og góða þjónustufrá traustu fyrirtœki.
Otþjtérí j|f er *furarbroddk típusallt má sveigja
... og teygja í allar áttir. Jafnt lítil sem
stór fyrirtæki geta sett upp skjámyndir, skýrslur og
gagnaskrár án forritunar og lagað þannig kerfin að
eigin þörfum.
lllt erfyrir stjórnendur: ópusaWt gefur
... stjórnendum nýja möguleika með
sveigjanlegri skýrslugerð og fjölbreyttum útreikn-
ingsmöguleikum, ásamt mýhdrænum uþplýsingum í lit
og þrívídd sem snúa má á skjánum og glæða þannig
bókhaldið lífi.
...^ 1, stœkkar með þér: ópusaWt er
OpHS'cXlll fáanlegur fyrir DOS eða OS/2
stýrikerfi, og netkerfi eða UNIX fyrir stærri Jyrirtæki
með margar útstöðvar.
O/JMV'lllr er líkafyrir Stórfyrirtœkin: Allra
UfJUZkclUl stœrstu fyrirtœkin geta nýtt sér
svokallaða "client-server" vinnslu með SQL
fyrirsþurnarstaðli. Þannig má flytja uþþlýsingar
frá stóru tölvunum niður í einkatölvu með
öpwsallt, meðhöndla gögnin að vild og búa til
skýrslur og mynd- z .
ir sem mun erfið- ■■ JLSleiISK
ara er að gera á H-Jj fosrritaþróunhf.
Stóru tölvunum. Engjatdgur 3 • 105 Rcyktavllc - slmi 67 15 11.
Nýr oþússúlt hugbúnaður
ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ HANN8