Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 16
oöer íKiaörao .as huoaqutmmn ö[«ajhhuohom
88
HtatginiMofrlft
VIÐSKIFTIAIVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
Morgunblaðið/Ami Sæberg
HONNUN — Hilmar Sigurðsson, Finnur Jh. Malmquist, Anna Svava Sverrisdóttir og Halla Helgadótt-
ir eru aðstandendur Grafít hf. Þau telja að minni stofur þar sem áhersla er lögð á grafíska hönnun og
hugmyndavinnu eigi góða framtíð fyrir sér.
Auglýsingagerð
Eru lítil auglýsingafyr-
irtækiþað sem koma skal?
Rætt við fjóra stofnendur hönnunarstofunnar Grafít hf.
FYRIR skömmu tók til starfa í Reykjavík nýtt fyrirtæki á sviði
grafískrar hönnunar og auglýsingargerðar. Fyrirtækið hlaut nafn-
ið Grafít hf. og að því standa þrír af fyrrum starfsmönnum Is-
lensku auglýsingarstofunnar hf. ásamt einum starfsmanni af aug-
lýsingastofunni Góðu fólki. Grafít hf. er ekki hefðbundin auglýs-
ingastofa þar sem fyrirtækið býður upp á litla sem enga markaðs-
þjónustu heldur leggur áherslu grafíska hönnun og hugmynda-
vinnu. Stofnun þessarar nýju stofu er athyglisverð í ljósi þess að
þróunin undanfarið hefur verið i þveröfuga átt og stefnan frekar
verið sú að sameina auglýsingastofur. Ef tekið er mið af undirtekt-
unum er hins vegar ekki ólíklegt að Grafít verði fyrsta stofan af
mörgum litlum sem einbeitir sér að hönnunarvinnu á meðan þær
stærri snúa sér svo til alfarið að markaðsmálum. Morgunblaðið
brá sér í heimsókn í vinnustofu Grafít við Vatnsstíg 4 og ræddi
við Höllu Helgadóttur, Hilmar Sigurðsson, Onnu Svövu Sverrisdótt-
ur og Finn Jh. Malmquist.
ur bætti við að nú ynnu þau í beinu
Það kom strax í ljós að ein aðalá-
stæðan fyrir stofun Grafít hf. var
óánægja fjórmenninganna með þá
þróun sem hefur átt sér stað í
þessu fagi undanfarið. „Það er
orðið svolítið langt í teiknarann
sem vinnur verkið. Á auglýsinga-
stofunum er ákveðið fólk sem sér
um þjónustu við viðskiptavininn
og tengsl hans við teiknarana, svo-
kallaðir tenglar sem oftast eru
markaðsfræðingar. Mörg fyrirtæki
eru með sína eigin markaðsfræð-
inga og vilja því gjarnan fara
styttri leið og kaupa eingöngu
teikniþjónustuna," sagði Halla. „Á
þeim stöðum þar sem við unnum
áður vorum við öll komin í umsjón-
arhönnunarstöður þannnig að við
vorum að færast frá sköpunarvinn-
unni og því sem við gerum best.
Við erum óánægð með vægi hönn-
unar- og hugmyndavinnu inni á
auglýsingastofum. Peningamálin
eru óneitanlega mjög mikilvæg, en
okkur fínnst þau bitna um of á
faglegu hliðinni. Við höfum áhuga
á að reyna. að gera betri hluti en
við höfum fengið að gera, nota
færri milliliði og vinna á okkar
forsendum," sagði Hilmar og Finn-
sambandi við viðskiptavinina og
það væri í þeirra augum vænlegast
til árangurs.
Það kom skýrt fram að fjór-
menningunum fannst mjög mikil-
vægt að teiknararnir væru í sem
nánustu sambandi við viðskipta-
vinina og hlutirnir væru unnir í
beinni samvinnu þessara tveggja
aðila. „Hér er enginn annar sem
vinnur með viðskiptavininum og
kemur síðan til okkar og segir
okkur að teikna eitthvað ákveðið.
Það er alltaf erfitt að koma svona
til skila í gegnum þriðja aðila þann-
ig að með þeim vinnubrögðum
verður útkoman verður sjaldnast
rétt í fyrstu tilraun. Tengillinn
ræðir þá aftur við viðskiptavininn
og þá koma fram einhver atriði
sem teiknarinn hefði þurft að vita
frá byijun. Það er stórt atriði í
þessu fagi að kunna að spyija við-
skiptavininn véttu spurninganna til
þess að fá rétt atriði fram,“ sögðu
þau.
Ekki dæmigerð
auglýsingastofa
Grafít hf. er ekki dæmigerð
auglýsingastofa því að þar er ekki
boðið uppá markaðsþjónustu líkt
og á stærri stofunum. Fjórmenn-
ingamir lögðu þó áherslu á að þau
myndu ekki'vísa þeim viðskiptavin-
um frá sem færu fram á slíka þjón-
ustu heldur myndu þau i samvinnu
leysa það mál. „Við höfum unnið
í samvinnu við fyrirtæki á sviði
ráðgjafar og markaðssetningar og
þau fagna því að fá inn fyrirtæki
á borð við okkur. Að sjálfsögðu
eru margir viðskiptavinir sem við
gætum ekki tekið að okkur að fullu
einfaldlega vegna þess að þeir eru
of stórir. Hins vegar þarf að vera
fjölbreytni í þessu fagi og við-
skiptavinurinn verður að hafa eitt-
hvað val,“ sagði Anna Svava. Þau
sögðu ennfremur að góðar líkur
væru á viðskiptum við stóru aug-
lýsingastofurnar þar sem þar vant-
aði oft vant fólk á álagstímum.
Kannski verður þróunin sú með
tímanum að þessar stærri stofur
fari að snúa sér í ríkara mæli að
markaðsmálum og leita svo til
minni hönnunarstofa með teikni-
vinnuna. Þau hjá Grafít töldu það
ekki ólíklegt og bentu á að víða
erlendis væru auglýsingastofur án
teiknistofu og leituðu þær eftir
þjónustu hönnunaraðila með
ákveðna verkhluta.
Aðstandendur Grafít hf. eru
bjartsýnir á að þeim takist að halda
kostnaði viðskiptavinarins niðri.
„Boðleiðin verður náttúrulega
styttri vegna færri milligönguliða.
Eins verðum við fljótari að vinna
verkið því við vitum nákvæmlega
að hverju við erum að ganga og
það er einmitt aðalkosturinn við
svona litla stofu. Eins hlýtur það
líka að skila sér að við erum öll
með mikla og góða reynslu á þessu
sviði,“ sagði Hilmar.
Fólk
Hættir sem fram-
kvæmdastjóri
Örtölvutækni
■ SIGURÐUR S. Pálsson hefur
látið af störfum sem framkvæmda-
stjóri Örtölvutækni — Tölvu-
kaupa hf. Heimir Sigurðsson hef-
ur tekið við starfi framkvæmda-
stjóra þangað til annað verður
ákveðið. Heimir gegnir jafnframt
áfram starfi markaðs- og sölustjóra
fyrirtækisins. Um 25 manns starfa
hjá Örtölvutækni - Tölvukaupum
og sérhæfir fyrirtækið sig í sölu,
þjónustu og heildarlausnum á ein-
menningstölvum og búnaði. Meðal
annars hefur ÖTT-TK einkasölu-
samning við Hewlett Packard á
einmenningstölvum, teiknurum og
prenturum.
Skipulagsbreyt-
ingarhjá Sjóvá-
Almennum
M BENEDIKT Jóhannesson,
stærðfræðingur lætur af störfurti
sem deildarstjóri tjónadeildar hjá
Sjóvá-Almenn-
um tryggingum
hf. þann 1. nóv-
ember n.k. og
snýr til fyrri
starfa sem fram-
kvæmdastjóri
ráðgjafarfyrir-
tækisins Talna-
könnunar.
Hann mun þó
áfram starfa að
sérstökum verkefnum og gegna
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið.
■ GUÐMUNDUR Jóh. Jónsson
tekur við starfi deildarstjóra
tjónadeildar í stað Benedikts. Guð-
mundur hefur
BA próf í við-
skiptafræði frá
Seattle Uni-
versity. Hann
hóf störf hjá Sjó-
vátryggingafé-
laginu árið 1962
og varð starfs-
mannastjóri fé-
lagsins árið
1986. Við stofnun Sjóvá-
Almennra árið 1989 var hann ráð-
inn skipulags- og starfsmanna-
stjóri. Meginhluti verkefna sem ver-
ið hafa á starfssviði Guðmundar
munu færast til Sigurjóns Péturs-
sonar, aðstoðarframkvæmdastjóra.
Nýr starfsmaður
hjá Tæknivali
■ VALDIMAR Ó. Óskarsson,
rafmagnstæknifræðingur hefur ný-
lega hafið störf
hjá tölvufyrir-
tækinu Tækni-
val hf. sem sér-
fræðingur í
skjalasendingum
milli tölva.
Valdimar út-
skrifaðist 1987
frá Sönderborg
Teknikum í Danmörku. Eftir það
hóf hann störf hjá tæknideild Pósts
og síma þar sem hann átti m.a.
þátt í að undirbúa hina nýju gagna-
hólfaþjónustu sem verður hleypt af
stokkunum á næstunni. Hjá
Tæknivali mun Valdimar annast
ráðgjöf í sambandi við búnað frá
Retix, en hann er ætlaður staðar-
netsnotendum sem vilja notfæra sér
væntanlega gagnahóifaþjónustu
Pósts og sima.
Benedikt
Guðmundur
Valdimar
MARKAÐSÁÆTLANIR
FRAMKVÆMD
Samkeppni vex meS degi hver|um. Miklar sviptingar eru
í fyrirtækjarekstri. Ný fyrirtæki skjóta upp kollinum,
önnur lognast útaf. Hvaða öfl eru þarna aS verki? Þessi
spurning brennur ó öllum í viðskiptalífinu.
Markaðsskóli Islands hefur fengið írska
markaðsróðgjafann John Mclnerney,
sem er Senior Specialist við Irish
Manogement Institute, til að halda hér
nómskeið í markaðsóætlunum.
Farið verður yfir stefnumótun og framkvæmd nútíma
markaðsstjórnunar og þótttakendum kennt ó samspil
hinna ýmsu markaðsþótta. Hagnýt tök hafa sérstakan
forgang.
Námskeiðið er ætlað framkvæmdastjórum,
markaósstjórum, sölustjórum og öðrum sem
gera eða nota markaðsáætlanir.
Tími: 29., 30. og 31. október
kl. 8:00 - 16:00
Skráning stendur yfir í síma 621066.
Vinsamlegast athugið að þátttakendafjöldi
er takmarkaóur.
Stjómunarfelag islands
ÁNANAUSTUM 15 - REYKJAVÍK