Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 6
.6 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
STOÐ 2
Afangar
áMunka-
■■■■ Björg G. Björnsson heldur áfram
1 Q 45 að kynna landmönnum sveita-
A ir kirkjur og höfuðból í þáttaröðinni
Áfangar. í dag er á dagskrá þáttur sem
hann gerði um kirkjuna á Munkaþverá.
Hana reisti Þorsteinn á Skipalóni. Munka-
þverá var mikið höfðingjasetur og staðurinn
er merkur fyrir margt til viðbótar við kirkj-
una. Meðal annars var þar klaustur til forna,
eiiis og nafnið bendir til, en einnig er á staðn-
um minnisvarði um Jón biskup Arason.
Fiskurinn
Wanda
John Cleese í hlutverki sínu.
■■■■ Monty Python-gengið
OA 15 breytti ásýnd bresks
húmors í augum
heimsins, en breskur húmor var
í augum margra eitthvað sem
gefið var í skyn frekar en sagt
beint út, fram að því að gengið
sendi frá sér hvetja farsamynd-
ina af annarri. Hópurinn er
löngu uppleystur, en fyrrum
meðlimir hans halda sig þó jafn-
an við kímnina. Einn þeirra er
John-Cleese, sem gerði myndina
Fiskurinn Wanda, A Fish called
Wanda, og er á dagskrá Stöðvar
2 í kvöld. Myndin segir frá þjófa-
gengi sem rænir dýrmætum
demöntum. Höfuðpaurinn er
handtekinn, en kom fengnum
undan og innan gengisins er
hver hendin upp á móti annarri,
því allir vilja koma höndum yfir
þýfið. Inn í þetta allt blandast
svo málafærslumaðurinn sem á
að veija höfuðpaurinn fyrir rétti,
en fellur flatur fyrir hinni fögru
Jamie Lee Curtis, sem er einn
meðlima gengisins. Með aðal-
hlutverk fara John Cleese, Jamie
Lee Curtis, Kevin Kline og Mic-
hael Palin. Maltin gefur: ★ ★ ‘A.
Kirkjan á Munkaþverá.
SJONVARPIÐ
■■■■ Milli fjalls og fjöm, fyrsta íslenska talmyndin gerð af Lofti
1 Q 00 Guðmundssyni árið 1949, er á dagskrá Sjónvarps í dag.
lö — Mynd þessi, sem tekin var í litum, er sannkölluð sveitalífs-
mynd og er sögusviðið fært til síðustu aidar. Segir hér af viðskiptum
sýslumanns nokkurs og kotungssonar, sem ratar í þá ógæfu að vera'
vændur um sauðaþjófnað. í hlutverkum voru nokkrir af þekktustu
leikurum samtímans, þar á meðal nokkrir sem nú eru horfnir af sjón-
arsviðinu. Má þar nefna Brynjólf Jóhannesson, Alfreð Andrésson og
Ingu Þórðardóttur en einnig fara þau Gunnar Eyjólfsson, Ingibjörg
Steinsdóttir, Jón Leós og Bryndís Pétursdóttír með hlutverk.
Blómatíðí
WOLFGANG AMADEUS
■■■■ Samtíðarmenn eiga næsta erfitt með að gera sér í hugar-
qa 35 lund hvílíkan sess hin litla Flatey á Breiðafirði skipaði í
“** mtnningu og framförum í íslensku samfélagi nítjándu ald-
arinnar. Ber þar hæst tímaskeiðið frá 1822 til 1850, er eyjan var
byggð stórhuga athafnamönnum er ekkert létu sér fyrir brjósti
brenna. Utvegsbændur á borð við þá Ólaf Sívertssen og Brynjólf
Bjarnason höfðu mikil umsvif í eynni, fluttu hús sín tilhöggin frá
Noregi, létu smíða för í eynni, er höfð voru til miililandasiglinga,
auk þess sem þeir hlúðu að fátækum efnispiltum og styrktu þá til
dáða. í hópi þeirra er gott þáðu af hendi þeirrá voru m.a. Gísli Brynj-
ólfsson, Matthías Jochumsson og Sigurður málari. í eynni reis tii
að mynda hið fyrsta almenningsbókassafn er stofnað var hérlendis,
auk fyrstu menntastofnana fyrir sjómenn og bændur, svo nokkuð
sé nefnt.
■■■i Sam-Evrópskur þáttur, gerður í tilefni af 200 ára dánarafmæli Mozarts er á dagskrá Sjónvarps
1 r 00 > dag. Á árinu sem nú fer í hönd verða 200 ár liðin frá því að einn mesti tónsnillingur er
10 — mannkyn hefur eignast var jarðsettur í ómerktri ijöldagröf í fátækrakirkjugarði suður í Vínar-
borg.
Til að minnast þessa munu tónlistarmenn, hþomplötuútgáfur og sjónvarpsstöðvar víðsvegar um hinn
vestræna heim heiðra heiðra minningu tónskáldsins með hinum fjölbreytilegasta hætti á árinu. M.a.
hafa sjónvarpsstöðvar í Evrópu sameinast um gerð einnar og hálfrar klukkustundar langrar dagskrár,
er sýnd er í 15 löndum álfunnar um þt ssar mundir og bætist ísland nú í hópin.
Nútímafólk á ekki gott með að gera ér í hugarlund þá erfiðleika sem ferðalög voru fyrr á tímum. Á
18. öld þótti t.a.m. gott að leggja að baki 30 km. dagleið á eínum degi. í Ijósi þessa gjörðist tónskáld-
ið Mozart afar víðförull um sína láu daga og sótti allmargar borgir Evrópu heim. I dagskrá þessari
verður fylgt í fótspor hans á nokkrum íerðalagana, þá er hann sótti heim borgir í Austurríki, Tékkósló-
vakíu, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Niðurlöndum. Sjónvarpsstöðvar í viðkomandi löndum hafa lagt
til „tónlistarmýndbönd“ frá hinum ýmsu áfangastöðum, þar sem rakin er stuttlega dvöl tónskáldsins
á hveijum stað, leikin tónlist er hann samdi í viðkomandi landi og brugðið upp listaverkum eftir samt-
íðarmenn hans.
i' 1
i §!1 * ' fi mm i á j