Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 6

Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13j JANUAR 1991 NUDD hjá nemum Afsláttarverð Tímapantanir í símum 676612 og 686612 Nuddskóli Rafns Geirdals, Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík. Boeing: Mannleg mistök helsta éstæda flugslysa NÆRRI75% allra meiriháttar flugslysa á siðustu tíu árum má rekja til mistaka flugstjórans. Er þetta niðurstaða rannsókna, sem Boeing-verksmiðjurnar bandarísku gengust fyrir, en þær tóku til 850 flugslysa. Segir þar ennfremur, að mikið áhyggjuefni sé hve flugmenn bregðist oft seint við viðvðrunum um, að þeir fljúgioflágt. Tilgangur rannsóknanna var að hvetja flugfélög til að vera betur á verði og herða öryggiskröf- urnar en margir hafa þó orðið til að gagnrýna, að flugvélaframleið- andi skuli standa fyrir athugunum af þessu tagi. Talsmaður Boeing viðurkennir líka, að vissulega hafí fyrirtækið viljað bæta sína eigin ímynd með rannsókninni en leggur áherslu á, að hún hafi í alla staði verið hlutlæg og komi því öllum að notum. Rannsóknarnefndin segir, að á síðasta ári hafi orðið fimm flugslys vegna þess, að flugstjórarnir brugð- ust ekki við þegar viðvörunarkerfið boðaði yfirvofandi brotlendingu. Þetta viðvörunarkerfi, sem kostar hálfa aðra milljón kr., er í öllum bandarískum og breskum flugvél- um og raunar miklu fleiri en al- gengt er, að það vanti í farþegaþot- um frá Þriðja heims-ríkjum. Arlega farast um 570 manns í flugslysum og því augljóst, að flug- vélin er miklu öruggari farkostur en til dæmis bíllinn. Samt er það svo, að „flugfarþegar leiða ekki hugann að því, að eitthvað geti borið út af“. Earl Weener, yfirmað- ur öryggisdeildar Boeing, segir líka, að verði ekki gripið í taumana megi búast við, að meiriháttar flugslys- um ijölgi um fimm árlega á næstu 15 árum. Það er í flugtaki og fyrsta klifr- inu, sem mest reynir á flugvélina sjálfa og annan búnað, og við þess- ar aðstæður verða nærri 29% slys- anna. Mesta álagið á flugmennina er aftur á móti við lendingu og þá verða 40% slysanna. „í venjulegu flugi er hættan mest,.um 70%, í aðeins sex mínút- ur,“ sagði Weener. Þessar rannsóknir hafa staðíð í tvö ár og eiga að nýtast við hönnun Boeing-777-þotunnar en hún á að leysa af hólmi Lockheed TriStars- vélarnar. Upphaflega átti raunar ekki að kynna niðurstöðurnar opin- berlega en það var ákveðið þegar í ljós kom, að þær voru um margt aðrar en ætlað var. Boeing leggur einnig áherslu á, að flugmenn verði betur þjálfaðir og nefnir jafn sjálfsögð atriði eins og það, að ávallt sé gengið úr skugga um, að hjólin séu komin niður áður en lent er. „Hörð lend- ing“ er nefnilega þriðja helsta slysaástæðan á flugvöllum. Þá er lagt til, að flugmenn séu þjálfaðir í að taka skjóta ákvörðun um hvort hætt skuli við flugtak í miðjum klíðum. Er í þessu sambandi nefnt dæmi um, að flugmaður hafí reynt að hemla eftir að vélin var komin á loft. Að síðustu er stungið upp á, að í flugstjórnarklefanum verði prentari, sem prenti út „flugsög- una“ hveiju sinni auk þess, sem hún er skráð í „svarta kassanum". -PATRICK DONOVAN SKÓÚTSALA ®OGO Skðverslun Þðrðar, Laugavegi 41, Kirkjustræti 8, simi 13570 ; sími 14181 ENGlABÖRNiN Bankastræti 10 Hefst á mánudag marimekko ÚTSALAN HEFST Á MORGUN K A T N A 1) t K • G J A ¥ A V Ö R l R Laugavegi 13

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.