Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SÚNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 C 23 BORGARROKK ROKKSVEITIRNAR Ham, Bless og Infusoria héldu tónleika fyrir skemmstu í Hótel Borg. Þar kynnti Bless breiðskífu sveitarinnar, Gums, sem kom út ytra fyrir nokkru, en var gefin út hér á landi í síðustu viku, Infusoria, sem hét Sororicide í eina tíð, kynnti nýjan gítarleikara. 3 CP pr o. p c o Það var reyndar Ham sem hélt tónleikana, en sveitin kom nú fram öðru sinni með nýjum trommu- ieikara og með nokkur ný lög í farteskinu, en sveitin er að leggja drög að nýrri breiðskífu sem taka-á upp með vorinu. Einna mesta athygli vakti lagið Party Town, en sveitin kynnti einnig nýjar útsetningar á eldri lögum, eins og Rape Machine, Svín og Hold. Bless, sem var í geysigóðu formi, hélt sig aftur á móti helst við efni af Gums, en tók einnig nýrri lög í bland þéttir sveitina. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir UÞÓ nokkuð sé liðið síðan breiðskífumar Gumsmeð Bless og Crusher of Bones með Reptilicus komu út ytra, hafa plötumar verið ófáanleg- ar hér á landi. Ekki verður rakið hér hva olli, en úr rætt- ist á föstudag, því þá bárust til landsins íyrstu eintökin af plötunum tveimur. Cmsher of Bones var gefín út af breska fyrirtækinu People Wlio Can’t og er fyrsta breið- skífa Reptilicus. Áður hefur sveitin sent frá sér kassettu og plötu sem ekki var hægt að spila. Sveitin fagnar útkomunni með tón- leikum í Tveimur vinum á þriðjudag. Á undan Reptilicus spila Hilmar Óm Hilmars- son og Tibet, en þess má geta að sérstakt quadrop- honic-hljóðkerfí verður sett upp á staðnum og mun það vera í fyrsta sinn sem slíkt er gert á tónleikum hér á iandi. Gums er fyrsta breið- skífa Bless, en sveitin hefur sent frá sér tólftommu. Gums gefur bandaríska fyrirtækið Rough Trade út, en Bless hefur haldið tvenna útgáfu- tónleika síðan sveitin kom úr mikilli reisu um þvera N- Ameríku seint á síðasta ári. DÆGURTONLIST Afhverju dá íslenskirgagnrýnendurPaul Simonf Ævmtýmmennska skífur virtist sem innblást- urinn væri að yfírgefan Sim- on og hann viðurkenndi í viðtali að lagabrunnurinn væri nánast SNEMMA á síðasta ári fengu dagskrárgerðarmenn á Rás 2 valikunna sérfræðinga í dægurtónlist til að velja bestu breiðskífur áranna 1980 til 1989, erlendar og innlendar. Ekki verður hér rakið nánar hvemig fór, en eftirminni- legt er að plata Pauls Simons, Graceland, var örugg í efsta sæti. Stuttu fyrir áramót kannaði DV hug tónlistar- gagnrýnenda og -áhugamanna og í (jós kom að plata árs- ins var Rhythm of the Saints með þeim sama Paul Simon. eftir Amo Matlhíasson Líklega þarf varla að kynna Paul Simon fyr- ir þeim sem á annað borð hafa gaman af tónlist, því samstarf hans og Arts Garf- mmmmmmmmmm unkels gerði hann heims- frægan og vellauðug- an. Þrátt fyrir vel- gengnina urður þeir Art afskaplega þreyttir hvor á öðrum og slitu samstarfi, Art til að verða frægur leik- ari, en Paul til að leita nýrra leiða í tónlist. Segir ekki meira af Art, en Paul reyndi fyrir sér í alskyns tónlist og hélt áfram sigurgöngu sinni, þó ekki ætti hann eftir að ná til eins sundurleitra áheyrenda aftur eða eins margra. Paul Simon var alltaf leið- andi í samstarfi sínu við Garfunkel, samdi lögin og réð ferðinni að mestu, en uppúr slitnaði þegar hann vildi fara út af sykraða þjóð- lagapoppsporinu. Á fyrstu sólóbreiðskífu hans bar og á ævintýraþrá í poppi og næstu ár reyndi hann fyrir sér í reggí, trúartónlist, jass rytmablús og nánast öllum afbrigðum bandarískrar tónlistar. Eftir fimm breið- 1. 1 '-"jppiaa 1 \F -- • i |Sp í 4 ' \ ||| Þá fékk hann í hend- ur plötu með suður- tóniist sem f 1* ^ 1 Paul Sim- on Frá Vestur- Afríku til ! Brasilíu. hreif hann. Afrakstur þeirra hrifningar var Grac- eland, sem hann gerði með suður-afrískum tónlist- armönnum, og seldist í á áttundu milljón eintaka um heim allan. Eftir Graceland segist Paul hafa hrifíst af þróun afrískrar tónlistar í Suður- Ameríku eftir ábendingu kunningja síns, tónlistar- mannsins Miltons Nascim- entos. Paul hafði þegar kynni af trommum frá Vestur-Afríku og úr Karíbahafí og afréð að fara til Brasilíu. Þar hreifst hann af fjölrytmum götu- hljómsveita og af fjörinu í irasilsískri tónlist. Brasil- íuförin varð lengri en ætlað var og ferðimar urðu fleiri og þá með hljóðritunarapp- arötum til að taka upp trommur og áslátt. Síðan var haldið með upptökumar til New York og Paul hófst handa við að semja lög sem féllu að rytmanum. í blönd- una bætti hann svo vestur- afrískum gíturum og söng og útkoman varð Rhythm of the Saints. Rhythm of the Saints hefur fengið síðri viðtökur en Graceiand og þykir t.a.m. öllu tormeltari. Fletir gagnrýnendur hafa þó tek- ið henni vel, en þó hún hafi hvergi náð að vera valin besta plata ársins nema á íslandi, þá er hún jafnan talin með þeim bestu. GRIPIIMN GLÓÐVOLGUR Þorsteinn Magnússon vakti fyrst athygli Þorsteinn Magnússon á tónleikum með Vinum Dóra í Púlsinum 6. jan- úar. fyr- ir snjallan gítarleik Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir með tilraunarokksveitinni Eik fyrir hálfum öðrum áratug og fékk snemma viðurnefnið Steini í Eik. Hann var síðar í fralnlínu rokkbylgju þessa áratug- ar með Þey, aukinheldur sem hann lék með ijölda annarra sveita og tón- listarmanna. Fyrir nokkr- um árum hætti að heyrast í Þorsteini, en hann er snúinn aftur og sýndi það á Púlsinum að hann hefur engu gleymt. Þegar Þor- steinn var að stíga sín fyrstu spor á tónlistar- brautinni var hann kallað- ur Steini blús og það mátti heyra að hann kunni ágætlega við sig sem einn af Vinum Dóra. NY UTGAFA SVIPTINGAR eru ekki miklar í útgáfumálum hér á landi og ekki á hverjum degi sem ný fyrirtæki taka til starfa á þeim vettvangi. Fyrir stuttu gerðist það þó að Pétur Kristjánsson, sem lengi starfaði hjá Steinum og stýrði síðar útgáfu hjá Skífunni stofnaði eigin fyrirtæki. Pétur sagði að fyrirtækið nýja, sem enn hefur ekki hlotið nafn, yrði eins og hvert annað útgáfufyrirtæki í fullri samkeppni við önnur slík, en hann hygðist einnig flytja inn plötur frá ýmsum merkjum. Hann sagðist, standa í samningaviðræðum við innlenda fljdjendur um útgáfu og við áhugaverð smámerki ytra. Aðalstarf fyrirtækisins verður þó á sviði „publishing", þ.e. að annast útgáfurétt ýmissa ís- lenskra laga sem erlend fyr- irtæki hafa sýnt áhuga á að fá fyrir erlenda flytjendur. Pétur sagði að hans mat væri að þessi hlið útgáfu, sem lítið eða ekkert hefur verið sinnt hér á landi, ætti eftir að verða geysistór og vonandi að sama skapi arð- bær fyrir lagasmiði. Pétur sagði að stofnun fyrirtækis- ins hefði ekki átt sér langan aðdraganda, en þó væri Morgunblaðið/Sverri nokkuð síðan hugmyndin vaknaði. „Það hefur v.erið sagt að lífið byrji um fer- tugt. Ég var níu og hálft ár hjá Steinum og er búinn að vera tvö ár hjá Skífunni, sem hefur verið mjög ánægjulegtr en fínnst tími til kominn að breyta til, þar sem ég verð fertugur á næsta ári.“ I 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.