Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 c 27 - í Laxárdal og Guðrún Þorláksdóttir Jónssonar.prests á Skútustöðum og Rebekka Björnsdóttir frá Bakka á Tjörnesi. Komu þar saman ættir Birnu og mömmu. Rebekka og Steingrímur fluttu fljótlega til Akureyrar og þá varð litla stúlkan eftir hjá ömmu sinni og afa. Hún hét líka eftir dreng sem Guðrún og Þorbergur misstu korn- ungan. Hann hét Björn Hildigeir og Birna Hildigerður var fullt nafn Birnu. Þau voru aðeins tvö systkin- in, hún og Baldur, f. 1904. Hann býr í Reykjavík og var mikið ástríki með þeim systkinunum. Birna giftist Sigfúsi Jóelssyni 17. ágúst 1934. Hann var fæddur á Húsavík 1. febrúar 1907, sonur Jóels Friðrikssonar og Sigurveigar Sigfúsdóttur. Sigfús tók kennara- próf 1934 og sama ár fluttust þau til Reyðarfjarðar þar sem hann gerðist kennari og síðar skólastjóri og námstjóri Austurlands. Til Reykjavíkur fluttu þau árið 1962 þar sem hann kenndi við Haga- skóla meðan heilsa hans leyfði en hann lést 1977 eftirerfið veikindi. Með Birnu og Sigfúsi fluttu til Reyðarfjarðar Guðrún amma henn- ar og fóstra og Þorvaldur Þorbergs- son móðurbróðir hennar. Þau höfðu búið á Sandhólum eft- ir fráfall Þorbergs sem lést 1918. Á vegum Birnu voru þau til dauða- dags og einnig foreldrar Sigfúsar, Sigurveig og Jóel. Tveir uppkomnir synir þeirra, Friðrik og Valdimar, voru þá látnir og Sigfús einn eftir barna þeirra. Birna og Sigfús eignuðust 3 börn, þau eru: Bergþóra, búsett í Þýska- landi, Friðrik Valdimar, kennari við Verslunarskóla íslands, kona hans er Alexía M. Gunnarsdóttir og Steingrímur, loftskeytamaður, kona hans er Auður Vilhelmsdóttir. Einn- ig ólst dóttursonur þeirra, Sigfús Grétarsson, upp hjá þeim. Hann er skólastjóri á Hallormsstað kvæntur Margréti Sigbjörnsdóttur. Eftir að Birna og Sigfús settust að í Drápuhlíð 2 mátti segja að þangað lægju allra leiðir bæði að austan og norðan. Gestrisni og greiðasemi þeirra hjóna var með afbrigðum og ég held að fáir dagar hafí liðið svo að þar bæri ekki gesti að garði. Og söm var rausnin og viðmótið við hvern sem kvaddi dyra og eins mun hafa verið á Reyðar- firði. Ég hef áður sagt frá hvað vinátta mömmu og Birna átti sér djúpar rætur en hún náði til fleiri. Við systkinin frá Fjalli, okkar börn og barnabörn nutum hennar einnig og ástúð hennar og innileiki var slíkur að það var sem henni væri gerður stór greiði ef leitað var til hennar. Öll getum við tekið undir erindi sem ég sendi henni á áttræð- isafmæli hennar. Ein bjartasta minning úr bemskunnar heim er brosið og hláturinn þinn. Tryggð þín og vinátta öll þessi ár- er arfurinn þingeyski minn. Bima Steingrímsdóttir var glæsi- leg og óvenjulega vel gerð bæði í sjón og raun. Hún var mjög vel lesin og heima á flestum sviðum, fylgdist vel með og hafði sjálfstæða skoðun á hveiju málefni. En fannst líka sjálfsagt að aðrir hefðu sínar skoðanir og hún átti alla ævi sam- leið með æskufólki, fyrst vegna starfa Sigfúsar á Reyðarfirði og síðan áfram. Gestir hennar í Drápuhlíð 2 voru ekki síður ungir en aldnir því með öllum átti hún áhugamál og var alltaf jafn ung í anda þrátt fyrir háan aldur. Fyrir hönd móður minnar, systk- ina og fjölskyldna okkar færi ég vinkonu okkar og frænku dýpstu og innilegustu þakkir fyrir að vera eins og hún var. Börnum hennar, tengdadætrum, barnabörnum og langömmubörnum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur og gleðst með þeim yfir minningun- um sem hún skilur eftir sig. Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. Ásta Ketilsdóttir frá Fjalli Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! í JAPIS Á útsölunni í Japis er allt að 50% verðlækkun á eigulegustu munum, svo sem .. . HLJÓMTÆKI Sony HMK-V82, 70 wött/fjarst. án hátalara. . Fullt verð 29.800.-/NÚ 19.900,- stgr. Panasonic SG-HM09, 40 wött, m/tónjafnara. Fullt verð 24.500,-/ Nú 19.800,- stgr. Panasonic SG-HM10, 40 wött, digital útvarp. Fullt verð 31.600.-/NÚ 24.900,- stgr. FERÐATÆKI Sony CDP-291. Fullt verö 21.500.-/ NÚ 16.900,- stgr Sony CDP-391, m/fjarstýringu. Fullt verð 23.500.-/NÚ 18.900,- stgr. Technlcs SLP-1T7. Fullt verð 23.600.-/ Nú 19.900,- stgr. MYNDAVELAR/MYNDBANDSTÆKI Panasonic NV-MC20, VHS-C fullkomin fjöl- skylduvél, verð án tösku. Fullt verð 84.900,-/ Nú 69.900,- stgr. Panasonic NV-MS50, Super VHS-C Hi-Fi stereo. Fullt verð 149.000,-/NÚ 99.900,- stgr. Panasonic NV-F70, myndbandstæki, Hi-Fi stereo. Fullt verð 98.540.-/NÚ 79.900,- stgr. Samsung VK 8220. Fullt verð 51.200,-/ NÚ 29.900,- stgr. SJONVARPSTÆKI Sony CFS-204, stereo m/kassettutæki. Fullt verð 8.450.-/NÚ 6.390,- stgr. Sony CFS-D30, „Mega bass/auto reverse". Fullt verð 12.980.-/NÚ 9.9S0,- stgr. Sony CFS-W304, tvöfalt kassettutæki. Fullt verð 11.500.-/NÚ 8.900,- stgr. Panasonic RXFS420,20 wött, FM/LB/MB/SB. Fullt verð 10.750.-/NÚ 8.750,- stgr. Panasonic RXC-S750, 60 wött, lausir hátaiarar. Fullt vérð 25.400.-/NÚ 19.900,- stgr. GEISLASPILARAR Panasonic TX-2488, stereo/teletext/S-VHS, hvitt. Fullt verð 89.900,-/NÚ 69.900,- stgr. Sony KV-C2913, Nicam stereo/teletext/S-VHS. Fullt verð 178.900,-/NÚ 139.900,- stgr. VASADISKO ÖRBYLGJUOFNAR Samsung RE-576TC, 600 wött, tölvustýröur. Fullt verð 25.800,-/NÚ 16.800,- stgr. Panasonic NN-5250, 700 wött, 21 litra. Fullt verð 21.800.-/NÚ 18.960,- stgr. Panasonic NN-63S8, fullkomlnn. tölvustýrður. Fullt verð 37.500.-/NÚ 25.900,- stgr. Panasonic NN-8507, örbylgju- og grillofn. Fullt verð 65.400.-/NÚ 44.700,- stgr. RYKSUGUR Panasonic MCE-61, 850 wött/lnnb. fylgihlutUr. Fullt verð 7.980.-/NÚ 5.980,- stgr. Panasonic MCE-89, 850 wött m/styrkstilli. Fullt verð 10.950.-/NÚ 8.950,- stgr. RAKVELAR/REIKNIVELAR Panasonic RQ-P50, m/vönduðum heyrnart. Cr02/metal. Fullt verð 3.250,-/NÚ 2.600,- stgr. Panasonic RQ-V51, m/FM/AM útvarpi. Fullt verð 5.260.-/NÚ 3.990,- stgr. Panasonic RQ-V151, m/FM/AM útvarpi, „auto-reverse". Fullt verð 7.590.-/NÚ 5.990,- stgr. / 0 Panasonic ES-862, rakvél m/hleðslutæki. Fullt verð 5.450.-/NÚ 3.950,- stgr. Panasonic ES-815, rakvél f. rafhlöður. Fullt verð 1.370.-/NÚ 990,- stgr. Panasonic JE-390, reiknivél. Fullt verð 1.710.-/NÚ 850,- stgr. Panasonic JE-661, reiknivél m/strlmll. Fullt verð 5.460.-/NÚ 2.700,- stgr. ALLAR VORUR SELDAR MEÐ AFSLÆTTI EINNIG GEISLADISKAR JAPIS Brautarholti 2, simi 625200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.