Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991
ATVINNUAí JC^I YSIKIC^AR
fSBSðsí vW0' HHi Wiw ^ n>mii%**• 9 9 9 ^ð .<.. w % 9
Gríma, foreldrarekið
dagheimili,
Suðurgötu 75,
óskar að ráða fóstru eða annan uppeldis-
menntaðan starfskraft.
Upplýsingar í síma 17495.
Bókari
Þekktur veitingastaður í Reykjavík óskar að
ráða bókara til starfa nú þegar. Um er að
ræða ca 75% starf með sveigjanlegum
vinnutíma. Starfið felur í sér færslu bók-
halds, afstemmingar og greiðslu reikninga í
samstarfi við framkvæmdastjóra.
Umsóknum sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
merktum: „ B - 8632“ fyrir 22. janúar nk.
Prentari
Óskum eftir að ráða prentara eða mann,
vanan prentun. Mötuneyti á staðnum.
Einnig vantar okkur vélamann.
Upplýsingar í síma 671900 milli kl. 13.00 og
15.00.
PUfflðtoffi
KRÓKHÁLSI 6
Skrifstofustarf
-textun og úrvinnsla á kvikmyndum
Við leítum að áhugasömum starfsmanni,
^ sem hefur reynslu í almennum skrifstofu-
störfum og getur starfað sjálfstætt.
Viðkomandi verður að hafa þokkalega góða
enskukunnáttu og reynslu í vélritun.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrrí störf, sendist auglýs-
ingadeild Mbl., merktar: „T - 6818“.
m
*
Innflutningur
- skammtímastarf
Fyrirtækið er stórt og rótgróið þjónustu- og
innflutningsfyrirtæki í Reykjavík.
Starfið felst í umsjón með innflutningi á vör-
um fyrirtækisins, samskiptum við erlenda
seljendur og skjalavinnu, sem þessu tengist.
Um er að ræða starf helst til ársloka 1991
eða skemmst til septemberloka.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi lokið
stúdentsprófi, hafi fullkomið vald á ensku
ásamt reynslu og þekkingu af vöruinnflutn-
irigi.
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar
nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og raðnmgapionusui
Lidsauki hf.
Skolavordustig la - Wl ReyKi.ivk SV*? 6?hlf>r>
Röntgentæknar
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs vantar
röntgentækni til starfa sem fyrst. Um er að
ræða 80-100% starf. Röntgendeildin er vel
búin tækjum og öll aðstaða er góð. Röntgen-
skoðanir eru.um 4000 á ári.
Allar upplýsingar veita undirritaður eða deild-
arröntgentæknir í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar - starfsfólk
Hjúkrunarfræðing vantar á 60% kvöldvaktir
virka daga á heilsugæslu frá 20/3 a.m.k. fram
á haust. Einnig vantar á stakar kvöldvaktir
kl. 17-23.
Sjúkraliða og starfsfólk vantartil starfa strax
í 100% og 40% starf. Höfum barnaheimili.
Upplýsingar gefa Jónína og ída í símum
689500 og 35262.
Lagermaður
- starfsmaður
í kjötvinnslu
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða í
eftirtalin störf sem fyrst:
1. Starfsmann í framleiðslueldhús félagsins
á Smiðjuvegi 10, Kópavogi.
2. Starfsmann á vörulager á Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri á Frakka-
stíg 1, Reykjavík.
Framleiðslu-/
innkaupastjóri
Útflutningsfyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu óskar eftir að ráða starfskraft til starfa
sem fyrst. í starfinu felst m.a.:
- Gera pantanir hjá undirverktökum.
- Gera hráefnapantanir erlendis frá.
- Umsjón með afgreiðslu til viðskiptavina
og samskipti við þá.
Fyrirtækið er vel tölvuvætt og viðkomandi
þarf því að hafa reynslu af notkun PC-tölva
m.a. Word og Multiplan. Starf þetta er um-
fangsmikið og krefst að viðkomandi sé skipu-
lagður og eigi auðvelt með mannleg sam-
skipti. Viðkomandi þarf að hafa góða mennt-
un eða reynslu, sem nýtist honum vel í þessu
starfi. Æskileg málakunnátta er enska og
franska. Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „A - 170“ fyrir 1. febrúar 1991.
Síðdegisvinna
Vantar góða manneskju til að líta eftir tveim-
ur bræðrum (6 og 10 ára) á heimili þeirra í
Vesturbæ, nálægt miðbæ. Vinnutími frá kl.
13.30-17.30 eðá eftir samkbmulagi.
Hafið samband við Valgarð í síma 10624.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Aðstoðarlæknir
Ársstaða aðstoðarlæknis á barnadeild
Landakotsspítala er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júní 1991.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og fyrri störf, sendist til yfirlæknis lyflækn-
ingadeildar, sem veitir nánari upplýsingar.
Reykjavík, 15.janúar1991.
St. Jósefsspítali,
Landakoti.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
- Ijósmæður
Laus er til umsóknar staða deildarstóra á
fæðinga- og kvensjúkdómadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Æskileg menntun: Hjúkrunarfræði auk* sér-
menntunar í Ijósmæðrafræðum. Umsækj-
endur skulu hafa starfað við Ijósmæðrastörf
í a.m.k. 2 ár og hafa menntun eða reynslu
af stjórnunarstörfum.
Staðan veitist frá 1. apríl 1991.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
Upplýsingar gefur Svava Aradóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 96-22100 kl.
13-14 vírka daga.
Einnig er laus staða Ijósmóður á sömu deild.
Boðið er upp á skipulagða aðlögun undir
handleiðslu reyndrar Ijósmóður.
Upplýsingar gefa Guðrún Guðmundsdóttir,
deildarstjóri, og Svava Aradóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í síma 96-22100 kl.
13—14 virka daga.
Óskum að ráða hjúkrunarfræðing á bæklun-
ardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Deildin er 13-15 rúma, sinnir almennum
bæklunarlækningum, þ.m.t. gerviliðaaðgerð-
um auk móttöku bráðatilfella frá Norður- og
Austurlandi.
Boðið er upp á skipulagða aðlögun með
reyndum hjúkrunarfræðingi.
Upplýsingar gefa Guðmunda Óskarsdóttir,
deildarstjóri, og Svava Aradóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í síma 96-22100 kl.
13-14 virka daga.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
RADA UGL YSINGAR
TIL SÖLU
Flatningsvél - þorskanet
Baader flatningsvél til sölu. Einnig til sölu
100 þorskanet á teinum.
Upplýsingar í síma 985-22440 á daginn og
97-51115 á kvöldin.
Sérverslun - dömur
Falleg gjafavöruverslun fyrir konur v/Lauga-
veg til sölu.
Tilvalið fyrir tvær samhentar konur.
Verslun sem gefur góðan arð.
Upplýsingar á skrifstofu.
Fjárfesting, fasteignasala hf.,
Borgartúni 31, sími 624250.
Söluturn
Til sölu vel staðsettur söluturn í grónu
íbhverfi. Tryggt leiguhúsnæði. Velta 5,0 millj.
Möguleiki að'taka bíl eða íbúð upp í hluta
af söluverði.
Fasteignaþjónustan,
Austurstræti 17,
sími 26600, bílasími 985-22108.