Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 4
MÖRGÚNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1991 r- SÍF flutti út saltfisk á sl. ári fyrir 12 mill- arða íslenskra króna Saltfiskstonnið 31% verðmætara 1990 en 1989 VERÐMÆTISAUKNING á hvert saltfiskstonn milli áranna 1989 og 1990, sem Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda flutti út, er um 31 prósent. Alls flutti SÍF út saltfisk á sl. ári fyrir 12 millj- arða islenskra króna, eða 49 þúsund tonn, sem er 13% minna magn en árið 1989. Saltfisksbirgðir í upphafí 1990 voru mjög litlar eða 2.400 tonn og urðu enn minni í árslok eða aðeins um 1.400 tonp. Stærsta viðskiptaland SÍF er Portúgal, en þangað fóru 15.300 lestir af gæða- saltfiski á sl. ári. Fast á hæla Portúgals kemur Spánn með 13.700 tonn. Mikil aukning varð í saltfiskssölu til Spánar í fyrra eða um 32 prósent miðað við árið á undan. Söluaukning til Frakklands varð um 10% á sl. ári og um 35% til Þýskalands, en þar er um að ræða söltuð ufsaflök. SÍF festi kaup á franska fyrirtækinu Nord Norue á sl. ári en það er sölu- og fram- leiðslufyrirtæki sem sérhæfir slg í saltfisksréttum fyrir franskan neytendamarkað. SÍF tókst ekki að anna eftir- spurn eftir saltfiski á öllum mörk- uðum á árinu sem var að líða. Heildarframleiðsla dróst saman um 11% milli ’89 og '90. Heildar- framleiðsla á sl. ári varð 48 þús- und tonn, sem er 6 þúsund tonna minni framleiðsla en varð 1989. VEÐURHORFUR í DAG, 17. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er víðáttumikil 956 mb hér um bit kyrtstæð lægð en 1.040 mb hæð yfir sunnanverðri Skandinaviu. SPÁ: Suðlæg eða suðaustlæg átt, víðast gola eða kaldi. Dálítil él sunnanlands og vestan en bjart veður að mestu á Norður- og Austurlandi. Hiti yfirleitt nálægt frostmarki. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg eða breytileg átt og él víða um land, einkum sunnanlands og vestan. Hiti um eða undir frostmarki. HORFUR A LAUGARDAG: Suðaustlæg átt og heldur hlýnandi í bili um sunnanvert landið. Snjókoma en síðar slydda eða rigning sunnanlands og vestan en úrkomulftið norðanlands. TÁKN: Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / # * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus \7 Skúrir * V H = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —-J- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 snjóél Reykjavik 1 haglélás. klst. Bergen 3 léttskýjað Helsinki +2 léttskýjað Kaupmannahöfn vantar Marssarssuaq *14 snjókoma Nuuk +17 skafrenningur Ósló +9 súld á s. klst. Stokkhólmur +1 léttskýjað Þórshöfn 8 rigningás. klst Algarve 14 skýjað Amsterdam 1 heiðskírt Barcelona 10 mistur Berlfn 1 mistur Chlcago 1 rignlng Feneyjar 4 heiðskfrt Frankfurt 1 heiðskírt Glasgow 1 mistur Hamborg 0 I 1 las Palmas vantar London 6 mistur LosAngeles 18 heiðskfrt Lúxemborg 1 heiSskírt Madrfd 1 þokumóða Malaga 10 alskýjað Matlorca 13 rigníngás.klst. Montreal +8 snjókoma NewYork 3 þoka Orlando 18 alskýjað París 3 skýjað Róm 7 rigning Vín +1 heiðskirt Washlngton 7 rignlng Winnipeg +3 alskýjað Gjaldþrot Stemmu hf. á Höfn: Allar kröfur í búið greiddar auk fjórð- ungs dráttarvaxta Breyttar forsendur réðu góðri niður- stöðu skipta, segir skiptaráðandinn GJALDÞROTASKIPTUM í búi Stemmu hf., sem rak m.a. síldarsöltun og saltfiskvinnslu á Höfn í Homafirði, er nú lokið. Eigendur fyrirtæk- isins töldu ekki hjá því komist að fara fram á gjaldþrotaskipti haus- tið 19§6. Þrátt fyrir það vom allar kröfur í búið greiddar að fullu, miðað við höfuðstól, og því til viðbótar rúmur fjórðungur dráttar- vaxta. Skiptaráðandinn, Páll Björnsson, sýslumaður Austur-Skafta- fellssýslu, segir skýringuna þá, að eftir að búið var tekið til gjaldþrota- skipta hafi orðið mikil uppsveifla í fiskvinnslunni, m.a. hafi verð á saltfiski hækkað mjög. Það hafi gert það að verkum að hægt var að leigja eignir Stemmu og siðar selja á háu verði. Lýstar kröfur í búið, sem skipta- ráðandinn viðurkenndi, námu hátt í 87 milljónir króna. Til úthlutunar úr' búinu voru rúmar 93 milljónir. Því voru veðkröfur, tæpar 52,5 millj- ónir, forgangskröfur, rúm 800 þús- und, almennar kröfur, tæpar 26,4 milljónir og skiptakostnaður, tæpar 7 milljónir, greiddar að fullu. Þá voru eftir til úthlutunar rúmar 6 milljónir, sem fóru til greiðslu á eftir- stæðum kröfum, eða sem nam rúm- um fjórðungi dráttarvaxta krafna frá upphafsdegi skipta til skiptaloka. Páll Björnsson, skiptaráðandi, segir að þó svo virðist nú sem ástæðulaust hafi verið að óska gjald- þrotaskipta, þá hafi mál ekki horft svo við þá. „Eigendurnir gátu ekki lengur staðið í skilum við lánar- drottna, enda var það rétt, að þeir höfðu ekki lausafé handbært," segir hann. „Það er líka alltaf erfitt að meta hvað fæst fyrir eignir eins og verkunarhús og vélar. Ef slikt er selt þegar eftirspum er dræm þá fæst oft hörmulega lítið fyrir. Hins vegar varð mikil uppsveifla skömmu eftir að gjaldþrotaskipta var óskað. Það reyndist mjög hagkvæmt að leigja fiskvinnsluhúsið á næstu síldar- og vetrarvertíð og þannig komu miklir peningar inn í þrota- búið.“ Páll segir að tekist hafi að selja eignir í heilu lagi, sem væri mun hagkvæmará. Til dæmis hefði Skinney keypt aðalhús Stemmu og nær allar vélar á 38 milljónir króna. „Við seldum ekki á nauðungarupp- boðum og því fékkst meira fyrir eignimar en ella,“ segir hann. „Út- koman er því vissulega óvenju góð. Hins vegar töpuðu eigendumir auð- vitað hlutafé sínu og sumir þeirra áttu kröfur í búið, sem þeir lýstu ekki, því þeir töldu vonlaust að fá þær greiddar. Þeim kröfum hafa þeir því einnig tapað.“ Fleiri atvinniileysisdagar í fyrra en nokkru sinni Karlar í meirihluta atvinnulausra í desember FLEIRI atvinnuleysisdagar voru skráðir á síðasta ári en nokkru sinni fyrr frá því skráning hófst árið 1975. í deseniber voru, í fyrsta sinn um árabil, skráðir atvinnuleysisdagar karla fleiri en kvenna. Þessar upplýsingar koma fram í yfirliti um atvinnuástandið sem vinnumála- skrifstofa félagsmálaráðuneytisins sendi frá sér. Atvinnuleysisdagar síðasta árs voru 586 þúsund og er það meira atvinnuleysi en dæmi em um eftir að skráning hófst árið 1975. Þetta jafngildir því að allt árið í fyrra hafi að meðaltali 2.300 manns verið á atvinnuleysisskrá og er það um 1,7% af mannafla samkvæmt spá Þjóðhagstofnunar. Minnst var at- vinnuleysið í fyrra á Vestfjörðum, að meðaltali 0,4%, en mest á Norður- landi eystra og Austuriandi, 3,3% af mannafla. Atvinnuleysisdagar í desember voru 47 þúsund á landinu öllu og hafði þeim fjölgað frá því í nóvem- ber um 13 þúsund, eða 38%. Karlar voru skráðir atvinnulausir í 25 þús- und daga en konur í 22 þúsund og er þetta í fyrsta sinn um árabil sem atvinnuleysi er meira hjá körlum. Mest var atvinnuleysið í desember á Austurlandi, eða 4,7% af mannafla, en minnst á Vestfjörðum, aðeins 0,1%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.