Morgunblaðið - 09.03.1991, Síða 1
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 9. MARZ 1991 BLAÐ U
Dalur hinna blindu
Dalur hinna blindu, nefnist nýtt leik-
verk sem leikhópurinn Þíbilja frumsýn-
ir í Lindarbæ sunnudaginn 17. mars.
Verkið er byggt á smásögu eftir H.G.
Wells, „The Country of the Blind“,
Land blindingjanna, en kveikja sög-
unnar er suður-amerísk þjóðsaga.
Sagan segir frá því er Evrópubúar
námu land í Suður-Ameríku. Hópur
fólks í Ecuadorflýr harðræði spænsks
harðstjóra, og heldur upp ífjöllin. Þar
sest það að í djúpum og fögrum dal;
einskonar paradís á jörðu. Jarðskjálft-
ar ríða yfir og loka dalnum og dularfull-
ur sjúkdómur gerir það að verkum að
börnin fæðast blind og hinirfullorðnu
missa smám saman sjónina. Áður ná
þeir þó að kenna börnunum að at-
hafna sig. Með tímanum breytast líf-
sviðhorfin og vitneskjan um sjónina
glatast í dalnum, tungumálið breytist;
allt sem tengist sjóninni dettur út, svo
sem myrkur birta og litir. Lífið gengur
áfram í sátt og samlyndi, fjögurhundr-
uð ár líða og þá lét Wells nútímamann
koma í dalinn, og þar mætast ólíkar
lífsskoðanir. Leikararísýningu Þíbilju
eru tíu, og leikstjóri er ÞórTúliníus.
Þegar hópurinn kom saman í nóvem-
ber til að undirbúa sýninguna, var
drjúgum tíma eytt í að ganga um
bæinn með bundið fyrir augu, til að
öðlast skilning á aðstæðum íbúa dals-
ins, og einnig var leitað aðstoðar hjá
blindum.
Leikhópurinn Þíbylja sýnir leikgerð
byggða á smásögu eftir H.G. Wells