Morgunblaðið - 09.03.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.03.1991, Blaðsíða 8
8 B M'ORGUNBLAÐIÐ LAUGARDÁGUR 9. MARZ 1991 „Besta “gerð þrælahalds Lincoln „Chicago Beau“ McGraw- Beauchamp. Ljósraynd/Björg Sveinsdóttir FYRIR stuttu var staddur hér á landi bandaríski munnhörpuleik- arinn, rithöfundurinn, fyrirlesar- inn og útgefandinn Lincoln Mc- Graw-Beauchamp. Hann kom hingað til samningaviðræðna við prentsmiðjuna Odda um prentun á bókmenntatímariti sem hann ritstýrir og gefur út í Chicago, en einnig til tónleikahalds og lék á tvennum tónleikum með íslensk- um tónlistarmönnum. Lincoln McGraw-Beauchamp, sem gjaman er kailaður Chicago Beau, hefur fengist við tónlist síðan hann gerðist farandtónlistarmaður 17 ára á sjöunda áratugnum. Hann fluttist til Parísar 1969 og tók þá þátt í að taka saman og ritstýra ljóðasafni sem bar heitið Southside Poets og gefið var út í Lundúnum. Það ár hljóðritaði hann einnig ljóða- og prósalestur með eigin undirleik og tónlistarmanna eins og Memphis Slim og Archie Shepp og gaf út, en hann hefur gert nokkrar slíkar breið- skífur. Fram á áttunda áratuginn ferðaðist L. McGraw-Beauchamp um Evrópu og Afríku til fyrirlestrahalds, en 1974 fluttist hann til Bandaríkj- anna á ný og hóf störf hjá fjárfest- ingafyrirtæki. Meðfram starfi þar lék hann inn á hljómplötur með ýmsum af fremstu brautryðjendum jassins, t.a.m. Art Ensemble of Chicago, auk þess sem hann hljóðritaði blús. 1987 stofnaði hann útgáfuna Literati Int- emational, sem meðal annars gefur út Literati Internazionale, Literati Chicago og The Original Chicago Blues Annual. Þessi tímarit hafa vakið töluverða athygli meðal bók- menntamanna, ekki síður en tónlist- aráhugamanna, þar sem þau hafa orðið vettvangur fyrir ritverk litra Bandaríkjamanna í lausu máli og bundnu, en em þó ekki eingöngu ætluð þeim, aukinheldur sem blökku- tónlist er jafnan áberandi í þeim. I spjalli var Beau spurður hver væri staða svartra rithöfunda í Bandaríkj- unum í dag. Aðskilnaðarstefna I bókmenntum „Það er tvímælalaust aðskilnaðar- stefna í bókmenntum í Bandaríkjun- um. Það kemur fyrir að hvítir útgef- endur gefa út svarta höfunda, eins og til að mynda upp á síðkastið að svartir kvenhöfundar hafa verið gefnir út, en það er vegna þess að kvenrithöfundar em í tísku, ekki vegna áhuga á blakkri bókmennta- hefð. Hvítir útgefendur skilja ekki hvernig svartir höfundar skrifa og margir telja það ekki rétt málfræði- lega. Ýmsir svartir rithöfundar hafa á valdi sínu að skrifa á fyrsta flokks „opinberri" ensku, en svartir rithöf- undar skrifa yfirleitt eftir tilfinningu, sem hvítir ritstjórar og útgefendur skilja yfirleitt ekki, alveg eins og margir hvítir menntamenn geta ekki dansað, en að skrifa er stundum eins og að dansa. Ein ástæða þess að ég stofnaði Literati Chicago, var að gefa litum rithöfundum tækifæri til að tjá sig í riti sem væri byggt upp sem tíma- rit, án þess að hengja sig í evró- bandarískar reglur um hvað sé bók- menntir og hvað ekki.“ Töluverður munur á hvítum og svörtum rithöfundum Er einhver munur á efnistökum hvítra rithöfunda og svartra? „Já, það er töluverður munur á og ég get gefið þér dæmi úr væntan- legu hefti af Literati Intemational. Þar verður til að mynda saga eftir unga konu frá Trinidad, Elizabeth Nunes Herrel. Mörg af hennar rit- verkum fjalla um andlegar hneigðir og.eigindir blökkumanna og inn í þau fléttast pólitískt ástand hvers tíma með tilvísunum í voodoo, hoodoo og ámóta. Hvítir rithöfundar hafa vissu- lega skrifað um slíkt, en tilfinninga- tengsl foms átrúnaðar svartra þræla og afkomenda þeirra og Ijóðræna lífs þeirra kemst ekki til skila. Meðal annars þess vegna eiga svartir rithöf- undar erfítt með að fá verk sín útgef- in. Ég hef haldið námskeið sem fjalla einmitt um þetta vandamál og heita „Svartir rithöfundar og hvítir rit- stjórar". Það eru vissulega til svartir ritstjórar, en þeir vinna þá flestir hjá hvítum útgáfum og þurfa að taka tillit til þess. Vandamálið er að það eru svo fá fyrirtæki sem ljá máls á því að gefa út svarta höfunda. Um þessar mundir eru rithöfundar frá Suður-Ameríku vinsælir meðal menntamanna í Bandaríkjunum og því mikið gefið út eftir höfunda eins og Marques, Paz og Allende. Þeir falla að smekk hvítra því það er hægt að lesa þá úr samhengi við það sem er að gerast í Bandaríkjunum. Svartir höfundar eru að segja frá einhveiju sem er að gerast í fátækra- hverfínu í næsta borgarhluta eða lýsa fólkinu sem býr í næsta húsi. Önnur svört kona sem á sögu í næsta tímariti er Eugenia Collier. Hún skrifar að hluta á mállýsku og segir frá þrælskonu sem notuð er til undaneldis. í sögunni segir frá því hvemig hún fótbrýtur eitt barnið til að það verði ekki selt frá henni. Einn- ig verða í blaðinu sögur eftir rithöf- unda úr ýmsum smærri menningar- samfélögum, t.a.m. portóríkanska rithöfundinn Miguel Avanin, sem rekur ljóðkaffihús í New York. Að vissu leyti eru samskipti milli hvítra og spænskumælandi manna ágæt, en merkimiðinn „spænskumælandi", sem hannaður er af hvítum, nær yfír fólk með ólíkan uppruna og menningu. Meðal þess er stéttabar- átta og kynþáttafordómar og innan sömu Ijölskyldu geta verið einstakl- ingar sem eru nánast svartir og aðr- ir sem eru nánast hvítir." í Brasilíu fyrir stuttu sá ég að í því þjóðfélagi, sem er nánast ein- göngu skipað kynblendingum, er allmikið um kynþáttafordóma og þeir sem unnu skítverkin voru þeir sem voru með afrískasta útlitið. „Ástandið var svipað í Bandaríkj- unum fram að því að þrælahaldi var aflétt, því þar settu blendingar sig skör hærra en þeir sem voru „kol- svartir“. Eftir að þrælahaldi var af- létt settu ríkin mörg lög sem skil- greindu stöðu svartra, s.k. Jim Crow- lög. Þá lentu margir kynblendingar og kreólar, sem höfðu sett sig á háan hest vegna þess að þeir voru áttungar eða fjórðungar, í þeirri að- stöðu að þeir voru ekki lengur næst- um hvítir, þeir voru „bara“ svartir eins og allir hinir.“ Um það leyti er frumstæð tónlist svartra að breytast í blús; hverju breyttu þessi umskipti? „Þau skiluðu sér í tónlistinni, því kreólarnir voru betur menntaðir og tónlistarmenn yfirleitt klassískt menntaðir. Þegar þeir fóru svo að umgangast svarta tónlistarmenn sem voru að spila einfaldari afríska tón- list varð til útsettur jass og þróaðri blús. Hvítir tónlistarfræðingar hafa reynt að búa til fæðingarvottorð fyr- ir blúsinn, en það er þvættingur. Ef þú vilt endilega reyna að festa hönd á því hvenær og hvar blúsinn varð til þá var það þegar einstaklingar voru teknir frá fjölskyldum sínum og ættlandi með valdi, þegar börn voru tekln frá móður sinni og seld, þegar mönnum var breytt í dýr; þá varð til blús, þegar menn túlkuðu hlutskipti sitt í fullkominni örvænt- ingu. Umskiptin úr afrískri tónlistar- hefð í frumblús, hljóta að hafa orðið við þessar aðstæður." Kreólamenning og munnleg geymd Hvað með blöndun kreólamenn- ingar og munnlegrar geymdar? „Afríkubúar vora rifnir burt úr menningu sinni, sviptir máli sínu og þvingaðir til að taka upp kristna trú. Þeir náðu þó að gera nokkuð sem er sérafrískt, að bera gott og illt í sömu skál. Þeir sameinuðu kristna trú og vestur-afrísk trúarbrögð; sam- einuðu t.a.m. í trúnni ímynd heilags Péturs og skógarguðsins Ogouns í stað að halda þeim aðskildum. Þann- ig sameinuðu þeir einnig vestræna ritlist og afríska munnlega geymd. Hvítir segja margir að svartir Banda- ríkjamenn tali afleita ensku, en ég held því þvert á móti-fram að þeir tali fyrirtaks mál og miklu betra, við eram að tjá okkur á hátt sem er ofan og neðan orðanna hljóðan." Svartir era áberandi í skemmtana- iðnaði og íþróttum í Bandaríkjunum. „Þeir sem ná langt I dægurtónlist eða íþróttum hafa ekki beitt sér eins og þeir gætu fyrir alla þá sem sitja eftir í fátækrahverfunum. Þeir vilja bara eignast stærra hús með stærri sundlaug, fleiri gullkeðjur, hafa fleiri konur í kringum sig. Því miður er það einnig svo að svartir mennta- menn í Bandaríkjunum mynda eins- konar hástéttarklíkur, sem ég kann ekki við. Sem rithöfundur, útgefandi og blúsmaður er ég á skjön við þá klíku. - Fyrir 20—25 árum stóð réttinda- barátta svartra Bandaríkjamanna, sem ég, líkt og íjölmargir, tók þátt í. Þá opnuðust ýmsar dyr og margir blökkumenn komust inn í háskóla- klíkur, tóku upp akademískt líf og stöðnuðu þar og urðu eins slæmir og þeir sem voru þar fyrir. Ef ekki væri fyrir svarta nemendur sem bera með sér inn í háskólana hugmyndir og strauma úr svörtu samfélagi í dag myndu þessir svörtu akademíkerar ekkert vita hvað væri að gerast á meðal kynbræðra þeirra. Sumir þeirra halda þvi á lofti að.þeir séu svartir innan um víðsýna hvíta koll- ega, en vilja leyna því þar sem það skiptir máli, á vettvangi réttindabar- áttunnar. Yfirborðskenndar teiknimyndapersónur Ástandið hefur versnað mikið síðan á sjöunda áratugnum. Blökku- menn hafa það verra efnahagslega og pólitísk meðvitund er hörmuleg. Á sjöunda áratugnum áttu blökku- menn hetjur; hetjur sem tóku þátt í baráttunni og deildu kjöram með þorra almennings. Hetjur dagsins í dag era popptónlistarmenn og íþróttamenn sem hafa í tekjur millj- ónir dala á ári. Þeir eru í þeirri að- stöðu að geta breytt aðstöðu og kjör- um svartra Bandaríkjamanna; þeir geta barist fyrir auknum menntunar- möguleikum og gegn ólæsi, sem er reyndar að vissu leyti erfítt fyrir þá þar sem þeir eru flestir ólæsir sjálf- ir, þeir gætu barist fyrir pólitískum og menningarlegum umbótum, en eina sem þeir gera er að kasta á milli sín boltum og tuða um líknar- störf, þeir leggja einhveijar þúsundir dala í að láta taka myndir af sér með fötluðum, til að auka tekjur sínar við að auglýsa íþróttaskó eða ámóta. Á sama tíma er ástandið meðal svartra áhangenda þeirra svo slæmt og gildismatið svo brenglað að krakkarnir drepa hveijir aðra til að stela íþróttaskóm eins og stjarnan notar. Ef þessir menn settu 10% af þeirri orku sem þeir eyða í að afla sér fjár í að bæta menntunarhorfur svartra eða auka sjálfsvitund svert- ingja sem búa í hreysum í Chicago, New York eða Washington, og hafa búið í hundrað ár, gætum við gjör- breytt lífí svartra barna. Loks þegar svartir menn era áberandi eru þeir ópólitískir og yfirborðskenndar teiknimyndapersónur sem eru að leggja sitt til sjálfsvígs svarta kyn- stofnsins. Þetta ástand er „besta" gerð þrælahalds sem hægt er að hugsa sér, sem hvíti maðurinn kom á með afburðasnilld." í rapptónlist sumra blökkumanna ber mikið á bræði í garð hvítra. „Já, það er mikil reiði í bókmennt- um líka, en meira ber á þunglyndi og vonleysi. Þetta fer þó allt eftir einstaklingnum, en það er líka mikil ást. Upplýstir villimenn Mat manna á bókmenntum, hvað sé gott og hvað slæmt, byggist á vestrænni fyrirmynd. Svartir rithöf- undar og listamenn eru nýstárlegir eða upplýstir villimenn. Ég kynntist þessu í Bretlandi, þar sem ég sat inni á sjöunda áratugnum fyrir að ráðast á lögregluþjón. Ég var að ræða við hann og hann sagði á yfir- lætislegan hátt að ég hlyti að hafa það gott í Bretlandi því þar væru menn svo umburðarlyndir. Ég sprakk og sló hann, því það sem hann var að segja er „þú ert fyrirlitlegur og óæðri, en það er allt í lagi því við eram svo umburðarlyndir.““ Stundum finnst manni sem svartir rithöfundar nái viðurkenningu þrátt fyrir að þeir séu svartir en ekki vegna getu sinnar, t.a.m. höfundar eins og Ralph Ellison eða James Baldwin. „Þetta er spuming um að vera á réttum stað á réttum tíma. Ef Ellison hefði skrifað Invisible Man 10 árum fyrr eða síðar hefði bókin ef til vill aldrei verið gefm út. Sama má segja um James Baldwin. Baldwin var óvinsæll meðal svartra rithöfunda vegna þess að þeim fannst eins og hann hefði verið valinn sem „þægi- legur“ svartur rithöfundur." Er blúsinn ekki löngu búinn að syngja sitt síðasta? „Nei, blúsinn lifir og styrkir stöðu sína. Hann hefur verið í lægð, en hrár blús hefur verið lifandi. Ég hef verið að kenna blús í skólum undan- farin ár og fmn fyrir því að það er töluverður áhugi hjá ungu fólki, sem er að uppgötva að blúsinn er hluti af menningararfleifð þeirra. Blús og jass ná þó sem stendur ekki til stórs hluta svartra ungmenna, sem hafa dofnað fyrir hreinni tilfinningu. En það lagast." Viðtal: Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.