Morgunblaðið - 09.03.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.1991, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARZ 1991 Maya Lin. Minnisvarði fallinna hermanna í Víetnamstríðinu í Washington. Sköpun Stefnubreyting? Sjónmennta- vettvangur Bragi Ásgeirsson Undanfarið hefur verið óvenju mikið um efni sem skarar sjónmenntir á báðum sjón- varpsstöðvunum og ber þar hæst röð sex þátta á Stöð tvö, sem tóku fyrir hina ýmsu þætti þess sem við nefnum hönnun, en útlendir Design og nefndist þátta- röðin réttilega „Sköpun". Þetta eru atriði sem gegna miklu hlutverki í nútímaþjóðfélagi og eru allt í kringum okkur í hinum smæstu hlutum sem við höfum handa á milli í hina stærri, svo sem vélknúin tæki, bíla, flugvélar og jafnvel geimför. Einfaldlega þá kemur hönnunin alls staðar inn í mótun nútímahluta og þá jafnt í áþreifanlegum sem óáþreifanlegum hlutum. Þá mótar umhverfíshönnun allt líf okkar og þannig hefur vel hannað umhverfi jafn góð áhrif á okkur og illa hann- að og klúðurslegt afleit. Eins og segir í einum þættinum: „Að lifa, borða, verzla eða jafnvel að iðka trúarbrögð hefur allt sína umhverf- isumgerð. Umhverfíshönnun getur verið ferð frá hinu þekkta til hins óþekkta, stökk inn á ókortlögð svæði. Afurð mannshandarinnar og skapandi ímyndunarafls kemur lög- un á autt rými og fyllir það hreyf- ingu og lífi. — Hugmyndir fæðast sem í raun eru ekki komnar frá okkur sjálfum, en það er okkar að framkvæma þær aftur og gæða fersku lífi.“ Hérlendis greina menn yfirleitt hönnun í tvo flokka sem eru hagnýt hönnun og iðnhönnun, en minna fer fyrir óáþreifanlegu hlutunum svo sem að hanna drauma og tálsýnir(I), en það er nú einmitt til í dæminu eins og kom svo vel fram í síðasta þættinum. Auglýsingahönnuðimir nefnast stundum fortölufólkið, en það leitast með öllum mögulegum ráðum við að gera vöruna eftirsókn- arverða. ættimir vom ekki einasta fróðlegir heldur á köflum beinlínis á við hreint skemmtiefni og af þessum þáttum geta hérlendir lært mikið við gerð innlendra þátta um svipað efni. Það má fullyrða að sjónræn hönnun, sé æðra stig skipulags, að því leyti að hún hefur með lífræna þáttinn að gera og tekur miklu fleiri þætti með inn í dæmið, en hægt er að afgreiða með reglustikum og reikni- stokkum. Oft er það þannig að velskipulögð borga- og bæjarhverfi svo og þorp úti á landi, sem líta svo vel út á uppdráttum húsameistaranna verða ólífræn og stöðluð í raun, því þar vantar mannlega þáttinn í fram- kvæmdina. Lífið sjálft í öllum sínum tilbrigðum og margbreytileik. Eg kom ósjálfrátt inn á þetta svið, er ég lýsti nýjum framkvæmdum í Parísarborg er sumar voru fullgerð- ar kringum byltingarárið 1989, en mjög rík áhersla er lögð þar á mann- lega þáttinn. Enda er það svo að maður undrast iðulega í úthverfum borgarinar hve mannlífið er það auðugt, því maður er öðru vanur úr norðrinu. Ekki er það þó alls staðar í París, því menn hafa þar gert vit- leysur eins og annars staðar, en það hefur einmitt orðið til þess að enn meira kapp hefur verið lagt á líf- ræna þáttinn í nýjum framkvæmd- um. Það skiptir nefnilega mestu að fólki líði vel og að mannlífið þróist eðlilega, en að fólk fái ekki þá tilfinn- ingu að það sé lítilsverður smáein- ingur í þrælskipulögðu, stöðluðu og ófijóu umhverfi. Við sjáum það víða, að þótt mannlífíð sé líkast iðandi kviku í sumum stórborgum, þá er oft um lífræna kviku að ræða, en ekki þreytt og tómlegt andlit skynlítils múgs, sem mæddur af andstreymi hvunnda- gsins mjakast áfram. Það gerir ein- mitt lifandi umhverfi, upplífgandi byggingar, fjölbreytilegur klæðnað- ur fólksins og eitthvað óskiljanlegt lífshungur þeirra, er búa í fijálsu samfélagi sem gefur einstaklingnum lými til átaka og drauma. Er svo er komið keppast borgir við að gera úthverfi sín sem lífræn- ust með opnum svæðum og sjónræn- um fjölbreytileika og hér kemur ein- mitt hin lífræna hönnun inn í dæ- mið. Menn hafa lært af mistökum fyrri ára,' ólífrænum svefnborgum, ömurlegum verksmiðjubyggingum og ofskipulögðum íbúðarhverfum í stíl skókassa, sem eru ýmist láréttir eða lóðréttir. í þessum hverfum hef- ur margt óeðlið þróast, lífsleiði er meiri en annars staðar svo og morð og sjálfsmorð tíðari. Og eins og ég sagði í síðasta sjónmenntavettvangi, þá hafa menn tekið það til bragðs sums staðar að sprengja þessi hús í loft upp og byggja ný, sem meira eru fyrir augað, ásamt því að leggja meiri áherslu á opin svæði og upp- lífgandi umhverfi. Ég tek dæmi af húsum og skipulagi vegna þess, að það er einna auðskilj- anlegast, flestir hafa t.d. upplifað, að borgarhlutar, sem eru of skipu- lagðir verða að dauðum hverfum eftir að vinnutíma lýkur. En sömu atriði eru í fullu gildi um allt sem hefur með lífræna sköpun að gera. Að gæða hlutina í kringum okkur lífsmögnun með svipmikilli sköpun og hanna um leið umhverfi okkar og drauma! Ekki fer þetta allt fram á teikni- borðinu því að menn verða að taka tillit til mannlífsins og aðstæðna á hveijum stað. Lífræn sköpun er eng- ar hillingar draumóramanna heldur sér henni í síauknum mæli stað allt um kring eins og þættirnir sex á Stöð tvö voru einmitt til vitnis um. Og til þess að vera í takt við tímana þurfum við útkjálkabúamir, að vera okkur meðvitaðir um þessi atriði og það skiptir í raun sköpum á sumum sviðum. Þá er auðvitað mikilvægast að fjölmiðlar haldi vöku sinni um þessa þróun, sem sjónvörpin hafa ósjálf- rátt verið að gera með ýmsum þátt- um um sköpun undanfarið. Ég minnist gagnmerks finnsks þáttar um ljósmyndun í Ríkissjón- varpinu á dögunum, en því miður var hann á óguðlegum tíma eftir fréttir og ég náði ekki að taka hann úpp. Þessi þáttur var líkt og þættirnir sex ákaflega lifandi og það er fjarri því að slíkt efni eigi að afmarka við sérstakan tíma, heldur á það að koma á almennum sendingartíma líkt og þættirnir um Sköpun. Það er algjör misskilningur að slíkir þættir nái einungis til fámenns hóps og maður veltir því fyrir sér hvort sjónvörp eigi að ná til höfuðs- ins, eða vera miðill fótamenntar, andlausra spennuþátta og innan- tómrar sígljáamenningar. Ég er sístur manna til að óska eftir sjálfsumglöðum menningarvit- um og fjölmiðlafíklum, sem vilja miðstýra sannleik sínum til fólksins og eru á svipuðu menningarstigi og falstrúboðar nútímans. Nei, ég er að auglýsa eftir inni- haldsríkum og hlutlægum þáttum um mikilvæg atriði í mannlífinu, list- ir, menningu og tækni en engri norr- ænni mötun og miðstýringu í anda útkjálkasósíalismans. A nýjum tímum þurfum við víða yfirsýri og umfram allt er mikilvægt að nota myndmiðlana til að auka þekkingu almennings á umhverfi sínu og lífinu allt um kring. Þættir sem slíkir vekja einmitt viðbrögð hjá fólki og lætur það fara að hugsa um hlutina og rýna í um- hverfi sitt, nákvæmlega á sama hátt og vel mótaður hlutur vekur við- brögð hjá hinum þroskaða skoðanda. Hinar miklu breytingar í fjar- skiptum með fullkomnun ljósvakamiðlanna hefur gerbreytt heiminum á fáum árum og er nú sterk asta aflið, sem jafnvel skipulögðustu hervélar ráða ekki við. Nærtækast er hrun kommúnismans fyrir austan tjald með falli Berlínarmúrsins og fyrr en varir kann járntjaldið svo- nefnda, fullkomlega að heyra sög- unni til. Það er því þýðingarlaust að ætla sér að viðhafa sömu vinnubrögð og áður í samskiptum við almenning, því að hann er svo miklu betur upp- lýstur og sjálfstæðari en áður og lætur ekki í sama mæli segja sér fyrir verkum. Þetta kemur fram á mörgum svið- um á stundum óvæntum eins og er um aðsókn að söfnum, sýningum og hvers konar menningarfyrirbærum. Aðstreymið er iðulega margfalt á við það sem búist var við í upphafi, og á hvorn veginn sem er, þ.e. einn- ig mun minni en ráð var fyrir gert. Þannig er Myndsenna (Bilderstreit) í Köln 1989 nærtækasta dæmið, en sú risasýning varð að loka fyrir tím- ann vegna lítillar aðsóknar. En hvað varðar sýninguna Hálist og láglist í MOMA í New York, sem nú er nýlok- ið og flutt hefur verið til Chicago, þá varð aðsóknin öllu meiri en búist var við þrátt fyrir að gagnrýnendur sölluðu hana niður. Var sagt, að manníjöldinn hafi streymt á sýning- una eins og stýrt af ósýnilegum öfl- um! Um leið og almenningur virðist vera orðin meðvitaðri um fjölbreytni mannlífins, þá er eins og einstefnu- og miðstýringarmönnum hafi aukist ásmegin í dauðateygjunum, og menn virðast t.d. vera að samræma lista- skólakerfið víða um heim. En því fylgir sú hætta að svo margt gam- alt og upprunalegt glatist með öllu og víst er það að suma hluti kunna einungis örfáir verkmenntamenn að framkvæma í dag. Á þetta minnist hin snjalla Andrée Putman, og segir að ákveðna aðferð við að búa til gráa gifsáferð á vegg, er hún notar í innanhússhönnun og sem líkist vindlingareyk og ítalir notuðu áður, kunni einungis fjórir iðnaðarmenn í öllum heiminum í dag. Putman, sem byggir mikið á vinnubrögðum fyrir- rennara sinna, sem sumir voru óþekktir, segir, að hún hafi skilað sínu varðandi fortíðina og að hún bæti með því varla miklu við það sem hún kallar fornleifafræði, því að þeir frábæru sem hún fann eru núna frægir. Og eins og hinn heimskunni bíla- hönnuður Gerald Hirschberg orðaði svo réttilega: „Þá er framúrstefnan gagnslaus ef allir eru að bisa við hana, því að þá vantar fastan punkt í tilveruna." Sá maður ætti að vita hvað hann syngur, því að hann er einn af djörfustu hönnuð- um bílaiðnaðarins og hefur bæði verið á oddinum hjá General Motors og Nissan. Breytir reglulega um umhverfi til að staðna ekki. Heill þáttur var einmitt um bíla- iðnaðinn og mikið af honum um Porschefjölskylduna, sem hefur í þijá ættliði hannað frábærar bifreið- ir, en í þeim húsum vilja þeir notast sem mest við handaflið, eða eins og sá er hafði orðið fyrir fjölskylduna sagði: „Nota augu, snertiskyn, ná- kvæmlega og móta í höndunum og með líkamsorku sinni, sem er deyj- andi list.“ Sá sami segir að tilfinning nútímafólks fyrir bílunum og sam- setningu þeirra fari minnkandi og sé einungis eftir hjá eigendum mót- orhjólanna, sem séu í beinu sam- bandi við sjálft farartækið. Ekki er ég að fara út fyrir ramma umræðuefnisins er ég vík að mynd- list, því ekki má gleymast að mynd- listarsýningar og þá einkum þær stóru eru heilmikið hönnunaratriði út af fyrir sig og ekki síður allt myndlistarskólanám, þ.e. lífræn sköpun. Sem myndmiðill er sjónvarpið ein- mitt öðru fremur sköpunar- og hönn- unaratriði, en það vill gleymast í ákafa manna við að þóknast afþrey- ingariðnaðinum og þeirri frómu ósk hans, að þriðja og fjórða flokks efni sé það sem fólkið vill. En það er mikill misskilningur og ég veit að jafnvel ósköp venjulegt fólk hefur tekið það til bragðs að taka upp menningarþætti á laugardags- og sunnudagseftirmiðdögum, sem það getur ekki horft á einhverra hluta vegna. En það er því miður á þeim dögum sem besta efnið er sent út. Auðvitað er afþreyingarefni jafn gott og gilt og annað efni, en það á ekki að hafa þann mikla forgang sem það hefur, því að menningar- efni getur verið mjög skemmtilegt sé það fært í réttan búning, sem er að sjálfsögðu svipmikil sjónræn sköpun. Hér má vísa til þess, að sum lista- söfn eru alltaf full af fólki, jafnt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.