Morgunblaðið - 20.04.1991, Qupperneq 1
MENNING
LISTIR
BLAÐ (j
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991
LISTAHATIÐ
ÆSKUNNAR
Rætt við Sólveigu
Bessadóttur, annan af
tveimur kynnum
á hátíöardagskrá
í Burgarleikbúsinu
LISTAHÁTÍÐ æskunnar verð-
ur formlega sett með Há-
tíðardagskrá í Borgarleik-
húsinu í dag. Dagskráin
hefst klukkan 14.00, en á
undan munu Lúðrasveit og
Götuleikhúsið Auðhumla
leika fyrir gesti fyrir utan
leikhúsið. Hátíðin sjálf hefst
með því að þrettán ára
stúlka, Snædís Eva, flytur
ávarp. Að því loknu syngur
kór Hvassaleitisskóla, en í
þeim kór eru 60-70 börn.
Þá sýna dansnemar rúmbu
og kvartett frá Nýja tónlist-
arskólanum leikur sónötu.
Næsti liður á dagskrá er
Ijóðalestur og síðan stuttur
leikþáttur. Hér verður gert
hlé og hefst dagskráin aftur
klukkan 15.20, þegar hópur
frá Suzuki tónlistarskólanum
leikur fyrir gesti. Næst kem-
ur fram hópur frá Listdans-
skóla Þjóðleikhússins. Hér
er á ferðinni úrvalshópur
11-13 ára stúlkna, sem sýna
frumsaminn dans. Þá koma
nemendur frá Tónskóla Sig-
ursveins og leika fyrir gesti
og að því loknu er Ijóðalest-
ur. Hátíðardagskránni lýkur
með því að Olduselsskóli
flytur leikþáttinn „Klístur". í
hléi syngur kór Austurbæj-
arskóla í andyri leikhússins.
Morgunblaðið/KGA