Morgunblaðið - 20.04.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.04.1991, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRIL 1991 ÉG NÝT HINN - s e g I r o k o 0 n r, s e m o p n a r u m n æ s t u h e I g i s ý n YOKO ONO er líklega ein af þekktustu konum síðustu ára- tuga,- hún er japarrska konan sem margir kenna um að hafa eyðilagt Bítlana, konan sem giftist John Lennon, konan sem söng með honum á hljómplötum og konan sem stóð við hlið hans er geðsjúklingur skaut hann til bana fyrir utan Dakota-bygginguna í New York fyrir rúmum tíu árum. Og í dag er Yoko Ono þekkt sem ekkja Bítilsins. En hún er sitt- hvað fleira. Yoko Ono var nefnilega allþekktur listamaður á sjöunda áratugnum, hún var einn af frumkvöðlum Fluxus- hreyfingarinnar svonefndu í New York um og upp úr 1960; hreyfingar sem innleiddi þar hverskonar gerninga, tónverk, listhluti og frumlega hugmyndalist. Sem frú Ono Lennon hélt hún áfram að vinna að list sinni, og síðustu árin með endurnýjuðum krafti. Nú er hún væntanleg til Islands til að opna samsýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum, og þar verða ennfremur sýnd verk annarra listamanna Fluxus-hreyf- ingarinnar. I tilefni þessa fékk ég tækifæri til að sækja lista- manninn heim í íbúð hennar í Dakota byggingunni morgunn einn fyrir skömmu; í stóra og rúmgóða íbúð með stóru eld- húsi þar sem við Yoko og Jon Hendrics, sem annast sýning- ar á verkum hennar, settumst niður umkringd nokkrum sæl- legum angóruköttum og einum höltum Golden Retriever hundi. Yoko Ono á sýningu hennar i Lisson Galleríinu í London, 1967. Uti féllu rytjuleg snjókom sem engin boð höfðu gert á undan sér, New York-búar höfðu talið vorið komið, og eins var um trén; þau voru óðum að springa út og hrylltu sig í þess- um óvænta kulda. Aðstoðarmaður Yoko kom úr bakaríinu og bar morgunverð á borð, þar á meðal mildan og ákaflega bragðgóðan graflax sem hann fullyrti að væri íslenskur. Þar með var Island kom- ið til tals, og þau komin með hug- ann við væntanlega heimsókn og þurftu margs að spyija; um veðrið, Bláa lónið, myndlist og annað slíkt. En smám saman tókst mér að lauma inn nokkrum spurningum milli eigin svara, og þá kom í ljós að Yoko var meira en fús að ræða um listsköpun sína. Yoko segir að ef tala megi um listferil þá hafi hann alls ekki haf- ist þegar hún kom til New York fyrir 1960, og í raun viti hún ekki hvenær hún hafi byijað að fást við list. ÖIl böm tjái sig til dæmis, þótt þau séu ekki kallaðir listamenn. „Eg get ekki munað hvenær ég varð list- amaður, en ég man hinsvegar eftir þeim tíma þegar ákveðið fólk sem ég þekki, gafst upp á því að vera listamenn," segir hún. - Hvað um Fluxus-hreyfinguna sem varð til hér um 1960 og þú Skuggaverk: Skráargat, 1971. Verk til að stíga á, 1961. að. varst einn af frumkvöðlunum Hvað var að gerast? „Það sem gerist venjulega þegar einhverskonar hópar eða hreyfingar verða til í listum, er að nokkrir ein- staklingar sem eiga eitthvað sam- eiginlegt taka sig saman og ákveða að búa til stefnuskrá. Fluxus varð ekki til þannig. Það sem gerðist var að George Maciunas, einn lista- mannanna, tilkynnti að þetta væri hreyfing, og yrði sem slík að hafa nafn. En við listamennirnir vorum í raun bara að vinna að okkar verk- um, einsömul og á okkar hátt-,' án þess að kalla það Fluxus eða ein- hveiju öðru nafni. Þannig ákvað George í fyrsta lagi að við værum hreyfing, og í öðru lagi ákvað hann nafnið. Hann má eiga heiðurinn af nafninu, það voru hans örlög að koma með það, rétt eins og það var John Lennon, en ekki Paul, George eða Ringo, sem kom með nafnið The Beatles." Fannst sem ég væri að gera eitthvað nýtt - Þrátt fyrir að stefnuskráin væri engin, þá var viss hlekkur á milli ykkar listamannanna. „Já, það er rétt. í ádeilu okkar á samfélagið til dæmis. En mér fannst líka að ég væri að gera eitt- hvað sem væri alveg nýtt.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.