Morgunblaðið - 20.04.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.04.1991, Blaðsíða 10
10' c MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991 Listahátió æskunnar ERFITT AÐ KOMAST AÐ I SAMRÆÐUM VIÐ FULLORÐNA ÞAÐ verður mikið um að vera í Borgarleikhúsinu á morgun, sunnudaginn 21. apríl, og óhætt að segja að húsið verði undirlagt af leiklist frá morgni til kvölds, því þar verða hvorki fleiri né færri en ellefu leiksýningar. Sýn- ingarnar verða bæði á litla og stóra sviði leikhússins og eru það grunnskólar og félagsmiðstöðvar borgarinnar sem sýna verk sem þar hafa verið í æfingu upp á siðkastið. Er þetta aðeins einn liðurinn í Listahátíð æskunnar og má með sanni segja að í Borg- arleikhúsinu verði Leiklistar hátið. jr Alitla sviðinu verða tvær sýningar frá Hólabrekkuskóla, „Þögnin sem hvarf“, og „Hvað gera fullorðnir?" og ein frá Vogaskóla, „Það gerðu þetta allir aðrir“. Þá verð- ur leikhópurinn Norðurljósin með eina sýningu, „Happ“, sem er lát- bragð og spuni og Fellahellir sem sýnir „Hans og Gréta - örlagasaga unglinga", Á stóra sviðinu ríður Ár- bæjarskóli á vaðið og þar áéftir Hólabrekkuskóli, báðir með kabarett. Eftir hádegishlé sýnir Laugarnes- skóli „Bóndadæturnar", og síðan er Austurbæjarskóli með verk sem nefnist „Kúgun“. Þar næst sýnir Hagaskóli „Ævintýri Prins Lu“, og að lokum sýnir Ölduselsskóli „Klíst- ur“. Leiklistin virðist lifa góðu lífí í Hólabrekkuskóla, því þaðan koma þrír leikhópar af þeim ellefu sem taka þátt í leiklistarhátíðinni. Blaða- maður og ljósmyndari Morgunblaðs- ins litu inn á æfingu hjá einum hópn- um, í vikunni og þar voru saman komnir krakkar úr 9. bekk, sem voru að æfa „Þögnin sem hvarf". Þetta voru tólf krakkar, þau Sigríður, Ag- nes, Ágústa, Alda, Edda, Jón Páll, Guðbjörg Erla, Álfheiður Ólafía (að- stoðarleikstjóri), Leifur (hljóð- og ljósamaður), Guðný og Guðrún, ásamt leikstjóra sínum og höfundi verksins, Sigurði Lyngdal. í stuttu máli fjallar verkið um stúlku sem leggur upp í ferð, til að leita að þögninni sem móðir hennar hefur tapað. Móðirin talar í síbylju og heyrir ekkert sem stúlkan hefur fram að færa. Á vegi stúlkunnar verð hin ýmsu dýr, álfar og alls kyns náttúrufyrirbæri og hún þarf að leysa ýmsar þrautir, áður en hún kemst til nornarinnar sem hefur stolið þögn móðurinnar. Þegar hópurinn hefur rennt einu sinni í gegnum verk- ið, setjumst við nið- ur til að ræða það og ég spyr hvort krakkamir séu sam- mála því sem verkið er að segja, það er, hvort þeim finnist erfítt að fá fullorð- ið fólk til að hlusta á sig. „Já,“ svara þau einum rómi: „Full- orðna fólkið er svo frekt að maður kemst aldrei að. Þögnin sem hvarf, er sú þögn sem maður myndar í sam- tali, til að hleypa öðrum að. í verkinu talar mamman í sífellu og stelpan kemst ekki að - vegna þess að þögn- in hefur verið teki frá mömmunni. I lokin, .þegar stelpan hefur fundið þögn mömmunnar, segist hún ætla að passa vel upp á þögnina sína í framtíðinni og hlusta á dóttur sína.“ Er mikil leiklistarkennsla hjá ykk- ur í skólanum? „Tíundi bekkur er með leiklistar- kennslu í vali. Hólabrekkuskóli var Litlft Inn á leikæfingu í Hnlabrekknsknla fyrsti skólinn sem bauð upp á hana sem val og var lengi vel einn, en síðan hafa nokkrir skólar fylgt á eftir. Auk þess er íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur með leiklist- arkennslu," svarar Sigurður Lyngd- al. „í þá kennslu höfum við tekið krakka, allt frá tíu ára aldri og að- sóknin hefur verið mikil. Það hefur oft gerst að krakkar byiji tíu ára, sæki námskeiðin hvem vetur og taki síðan leiklist í vali í 10. bekk. Þann tíma sem ráðið hefur staðið fyrir leik- listarkennslu í skólanum, hafa verið allt frá 60 og upp í 100 krakkar á námskeiðunum í gegnum árin.“ Sem fyrr segir, er það níundi bekk- ur sem hér æfír og af þessum hópi hafa allir nema einn sótt um leiklist í val fyrir næsta vetur. Hvers vegna? Þau eru sammála um að það sé mjög gaman að koma fram. Þau eru líka sammála því sem fram kemur í verkinu, að erfitt sé fyrir böm að komast að í samræðum við full- orðna. En hvaða fullorðna fólk er það helst, foreldrar eða kennarar? „Kennarar,“ svara þau einum rómi: „Allavega komumst við ekki að í skólanum. Þar er almennt ekki hlustað á okkur. Okkur fínnst við oft beitt órétti, þegar við fáum ekki að útskýra okkar mál. Það geta ver- ið eins einfaldir hlutir og að koma of seint. Kennarinn spyr hvers vegna maður hafi sofíð yfir sig og þegar maður ætlar að fara að svara, segir hann kannski: „Nei, vertu ekkert að þessu,“ og síðan fær maður að heyra að maður eigi að fara fyrr að sofa á kvöldin - án þess að það sé endi- lega ástæðan fyrir því að maður kom of seint. Maður verður dálítið van- máttugur, þegar maður fær hvorki að útskýra, né veija sig.“ En nú er það mamman sem hlust- ar ekki í leikritinu. „Já, en okkur fínnst hún fremur vera tákn fyrir fullorðið fólk en mömmur." Krakkamir eru sammála um að mömmur þeirra hlusti betur en kennaramir, en bæta svo við: „Þær fjasa kannski dálítið meira," skellihlæja síðan og standa upp, því líða tekur á kvöldið og um að gera að halda æfíngunni áfram, svo ekki verði sofíð yfír sig næsta morgun. Það nennir örugglega enginn kenn- ari að ansa því að blaðamaður hafi tafíð þau. ssv Morgunblaðið/llúnar Þór HoiftMiliósin: BÆRINN OKKAR BORGIN YKKAR NORÐURUÓSIN, leikhópur átj- án barna á aldrinum 7 til 12 ára, sýnir dagskrá með ýmsum atrið- um á barnalistahátíðinni nú um helgina. Börnin eru öll frá Akur- eyri og hafa sótt námskeið í leik- list undir leiðsögn Arnar Inga Gíslasonar listamanns. Hann hefur til umráða húsnæði í gömlu snyörlíkisgerðinni í Gil- inu svokallað á Akureyri þar sem starfrækt hefur verið leiksmiðja síðustu vikur. Verkið sem börnin sýna heitir „Bærinn okkar, borg- in ykkar“. Ragnheiður, Rakel, Rögnvaldur, Sóley Lilja, Kristjana Hrönn, Sunna, Iris Rut, Bryndís Dröfn,Sandra Hlíf, Ása Vala, Ólöf Ása, Örn Ingi, leikstjóri, Katrín Ösp, Katrín, Karen, Dúa, Tinna, Björg, Katrín, Sigurrós, og Dagný Linda Auk bamanna í leiklistarhópn- um eru með í suðurför fimm krakkar í myndlistarhóp, en þau hafa einnig sótt námskeið hjá Emi Inga. Þau munu sýna fímmtán málverk og jafnmarga skúlptúra í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg. Leikhópurinn Norðurljósin sýnir verk sitt tvisvar sinnum, fyrri sýn- ingin verður í Gerðubergi í dag, laugardag kl. 15, en þá verður sýnd samfelld dagskrá, fyrst leikrit um nýja lausn á happdrættisfysn ís- lendinga, þá látbragðsleikur, ljóða- flutningur og síðan spunaleikrit, en í lokin sýna börnin leikverkið „Bær- inn okkar, borgin ykkar". Stefán Vilhjálmsson hefur gert nýja texta við þekkt lög og sér Bjami Hafþór Helgason um undirleik. í verkinu er reynt að draga upp mynd af því hvernig fólki líði á Akureyri, hvernig þeir líta á sig sem Akureyringa og hvernig er að koma suður til höfuðborgarinnar í heim- sókn. Mikið er um hljóð af ýmsu tagi í verkinu, hreyfilist og dans. Óm Ingi samdi þennan leikþátt í náinni samvinnu við börnin sem leika, þau komu með sínar hug- myndir, gerðu athugasemdir og síð- an var verkinu breytt og það bætt eftir því hvernig vindar blésu hveiju sinni. Seinni sýning Norðurljósanna á verkinu um bæinn sinn verður á leiklistardegi sem haldinn verður á morgun, sunnudag. Þá sýna krakk- amir úr myndlistarhópnum verk sín í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg á sunnudaginn og verður sýningin opnuð kl. 15. Sýnd verða bæði málverk og skúlptúrar, en krakk- amir úr hópnum hafa sótt nám- skeið hjá Erni Inga í vetur. -mþþ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.