Morgunblaðið - 25.04.1991, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.04.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUÐAGUR 25. APRÍL 1991 € - 11 og annarra aðstæðna ákveðið að auka neyslu sína og lækka sparn- aðarhlutfallið. Vextir tóku þá þeg- ar í stað að hækka og lántaka á innlendum markaði, ekki síst sala ríkisvíxla og spariskírteina, varð torveldari. í þessum atburðum fel- ast bein skilaboð til ráðamanna um að vanmeta ekki jafnvægisaðstæð- ur á fjármálamarkaði. íslendingar ættu að grípa tækifærið nú og tengja gengi krónunnar við ECU Á undanförnum árum hefur far- ið fram nokkur umræða í þjóðfé- láginu um framtíð gengis- og gjaldeyrismála og hugsanlega tengingu íslensku krónunnar við evrópska gjaldeyrissvæðið með einhveijum hætti. Nýlega komst opinber nefnd að þeirri niðurstöðu að hagkvæmt væri að tengja gengi krónunnar við ECU með þátttöku í myntsamstarfi Evrópuþjóðanna. Norðmenn stigu fyrir skömmu það skref að taka upp viðmiðun við ECU í gengisskráningu norsku krónunnar en áður hafði mynt- karfa með dollaravægi svipuð og hér er notuð nú verið lögð til grundvallar. Enginn vafi leikur á því að stöð- ugleiki í gjaldeyrismálum er for- senda fyrir því að takast megi að ráða við verðbólgu á íslandi á næstu árum. íslendingar ættu því nú þegar að grípa tækifærið og taka upp viðmiðun við ECU í geng- isskráningu krónunnar og fylgja með því fordæmi Breta (sem hófu þátttöku í Myndbandalagi Evrópu- þjóðanna á síðastliðnu hausti) og Norðmanna. Rökin fyrir ECU- tengingu eru ekki aðeins sá ávinn- ingur í viðskiptum sem af fastteng- ingu hlytist og stöðugt verðlag á borð við það sem ríkir í Evrópu. Rökin eru einnig þau að traustur gjaldmiðill er eitt helsta skilyrði þess að einstaklingar sjái sér hag í því að eignast sparifé og ávaxta til síðari tíma og einnig að fyrir- tæki sjái sér hag í því að byggja upp eigið fé og verðmæti á Is- landi. Gjaldmiðill sem getur hækk- að og lækkað í gengi út og suður er ekki nothæfur til lengdar sem mælieining á verðmæti í veröld þar sem fjármagnsflutningar milli landa eru fijálsir og hver þjóð verð- ur að etja kappi við stórfyrirtæki nágrannalandanna án verndar frá tollmúrum eða öðrum höftum. Höfundur er framkvæmdasíjóri VÍB - Verðbréfamarkaðs tslands- banka hf. W d E'= K1 © EíD 0 E [LGJ KJ QJ (S veitir lán til raunhæfra framfaraverkefna í öllum atvinnugreinum • Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag- stæðum greiðslukjörum. • Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign eða bankaábyrgð. • Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna í samvinnu við umsækjendur. • Sjóðurinn veitir einnig styrki til greiðslu á nauð- synlegri ráðgjöf vegna þróunarverkefna. Lánasjóðurinn er í eigu Norðurlandanna allra. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e. Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði. HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð, pósthólf 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044. FYRIR ÞÁ SEM VILJA GÓBAN MAT og gera kröíur um góða þjónustu. HALLAR6ARDURIHN sími 678555 í HÁDEGINU OG Á KVÖLDIN. Meira en þú geturímyndað þér! 99 Nóg aö gera - en hver er afkoman? Tölvuvæðing á að auka innsýn í hvar og hvenær tap og gróði myndast í rekstrinum. Hugbúnaður á að lækka kostnað, auðvelda ákvarðanatöku, spara tíma og minnka vinnu - bæði þína og annarra! Þegar þú velur hugbúnað ertu að hluta til að spá um framtíðarþróun fyrirtækisins. Búnaðurinn verður að geta vaxið og þróast með rekstrinum, bæði að afköstum og hæfni. Þegar horft er til framtíðar skiptir aðlögunarhæfni hugbúnaðar öllu máli. Kaup þín á viðskiptahugbúnaði eru því mikilvæg viðskipti. Galdurinn er, eins og í rekstrinum, að fá BUSTJORI VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR BÚSTJÓRI hentar bæði einstaklingum og fyrirtækjum í hvers kyns rekstri. Ástæðan er framúrskarandi aðlögunarhæfni kerfisins. Það getur vaxið og stækkað með rekstri fyrirtækisins og mætt hvers konar kröfum um afkastagetu og hæfni í framtíðinni. Og aðlögunin er ódýr, þökk sé innbyggðu og öflugu skýrslugerðarforriti og innbyggðu forritunarmáli sem auðveldar alla þróun kerfisins. meira fyrir minna og halda utan um reksturinn. Velja réttan hugbúnað. Velja BÚSTJÓRA. Afkoman er það sem gildir. Hringdu til okkar í Streng í síma 685130 og Guðbjartur, Ágúst og Sigríður munu fúslega veita þér allar upplýsingar um BÚSTJÓRA og lýsa fyrir þér kostum þessa frábæra kerfis. Viðurkenndur soiuaðih STRENGUR Verk- og kerfisfræðistofa Stórhöfða 15, sími 91-685130

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.