Morgunblaðið - 25.04.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.04.1991, Blaðsíða 16
3 «[ rrtl » * nrrniTf t »irr fT*rT A in nr.OT V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsi ngamiðill! JltaqpisiÞlftfrife 3M«gmW<»íU> VIÐSKIPn AIVINNULÍF X-Xöföar til XTl fólks í öllum starfsgreinum! MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 Auglýsingar „Flókið en spennandi verkefni“ Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu hannar þriggja milljarða auglýsinga- herferð Sameinuðu þjóðanna SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR und- irbúa nú kynningarherferð til að auka skilning almennings um all- an heim á starfi stofnunarinnar. Alþjóðasamtök sjálfstæðra aug- lýsingastofa, BAI, vinna að þessu verkefni í samvinnu við embætl- ismenn Sameinuðu þjóðanna. í þessum samtökum eru um 90 auglýsingastofur frá fimm heimsálfum og er auglýsingastofan Hvíta hú- sið ein þeirra. Auglýsinga- herferðin fyrir SÞ er fyrsta verkefni 3AI þar sem allar stofur innan sam- takanna koma við sögu. Framlag Hvíta hússins er þó meira en flestra ann- arra þar sem Sverrir Björnsson, auglýsinga- hönnuður og starfsmaður stofunnar, er einn af fjór- um hönnuðum sem út- nefndir voru í vinnsluhóp sem sá um grunnvinnuna fyrir kynningarherferðina. Þessa dagana er verið að kynna endanlega niðurstöðu vinnsluhópsins fyrir yfir- mönnum hinna ýmsu deilda SÞ. Áhersla verður lögð á að kynna. starfsemi SÞ í heild. Rannsóknir hafa sýnt að umfang starfseminnar er ekki nógu þekkt og fólk virðist ekki hafa rétta mynd af heildarum- fanginu. Áhersla verður lögð á að ná til þeirra aðila sem hafa áhrif og móta umræður í þjóðfélaginu. Úr samtökunum 3ÁI (Affiliated Advertising Agencies International) voru valdar fjórar auglýsingastofur sem hver um sig tilnefndi einn hönnuð í vinnsluhópinn. Auk Hvíta hússins urðu fyrir valinu auglýs- ingastofur frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Singapore. Þessir aðilar hönnuðu í sameiningu grunn- hugmynd að auglýsingaherferðinni. Sverrir Björnsson sagði í samtali við Morgunblaðið að líkleg skýring á því hvers vegna Hvíta húsið hefði orðið fyrir valinu væri góð frammi- staða stofunnar í alþjóðlegum sam- keppnum innan samtakanna. „Til að byija með fengum við ítarlegar skýrslur um starfsemi SÞ. Við hittumst síðan í New York í janúar þar sem málið var kynnt. Þar voru mættir yfirmenn hinna ýmsu deilda SÞ og við fengúm tæki- færi til þesB að spyrja þá út í starf- semina. Eftir það greindum við verkefnið og komum okkur saman um hvaða aðferðir væri best að nota. Margar hugmyndir duttu út svo til sjálfkrafa, m.a. vegna þess að ekki var hægt að þýða einstaka orð og orðatiltæki yfir á hin ýmsu tungumál. Eins spiluðu þarna inn í ólíkir menningarheimar, það er t.d. mismunandi milli heimshluta hvað þykir ljótt og hvað er fallegt. Þetta flækti málið til muna, en gerði það um leið meira spennandi," sagði Sverrir. Að sögn Sverris var hópurinn kominn með 9 grunnhugmyndir eftir fveggja sólarhringa vinnu. Af þeim voru valdar tvær sem hver hönnuður vann úr ásamt samstarfs- mönnum í sínu heimalandi. Þannig tengist um tíu manna hópur frá Hvíta húsinu þessu verkefni. „Við fengum þannig fjórar mis- munandi hugmyndir sem við kynntum fyrir hver öðrum í gegnum myndbandstæki og á símafundum. Eftir það sát- um við uppi með þijár útgáf- ur. Þær voru síðan metnar með hjálp hönnuða frá þeim auglýsingastofum sem eru aðilar í 3AI. Að lokum var sú útgáfa valin sem kom fyr- ir augu yfirmanna allra deilda SÞ,“ sagði Sverrir. Áætlað er að auglýsinga- herferðin hefjist í haust og standi yfir næstu fimm árin. Á aðalfundi 3AI í San Diego í næstu viku verður útgáfan sem vinnsluhópurinn valdi kynnt fyrir auglýsingastofum innan samtakanna, að því til- skildu að hún hafi hlotið náð fyrir augum yfirmanna SÞ. Gunnar Steinn Pálsson verður þar fulltrúi Hvíta hússins ásamt Sverri, Auglýs- ingastofur ínnan samtakanna munu síðan laga útgáfuna að aðstæðum og venjum hverrar þjóðar. Allar stofur innan 3ÁI tengjast þessu verkefni þannig á einn eða annan hátt. Kostnaður við kynningarherferð- ina er áætlaður um 53 milljónir Bandaríkjadala, eða um 3,2 millj- arðar íslenskra króna. Að sögn Sverris verður leitað til fyrirtækja og stofnana um að styrkja birting- arnar. 3AI mun gefa vinnu sem jafngildir 4 milljónum dollara eða um 240 milljónum íslenskra króna. Fólk Rekstrarsljóri Húsasmiðjunnar mÓSKAR Örn Jónsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri timbursölu Húsa- smiðjunnar hf. Óskar lauk stúd- entsprófi frá Menntaskól- anum við Sund árið 1983 og BS prófi í byggingarverkfræði frá Florida Institute of Technologi árið 1988. Hann hlaut MS gráðu frá sama skóla tveimur árum síðar eftir að hafa varið lokaritgerð sína um burðareiginleika óvenjulegra steypu- gerða. Að loknu BS námi vann Óskar í hálft ár hjá bæjarverkfræðingi í Hafnarfirði. Eftir MS nám hefur hann starfað hjá verkfræðistofunni Línuhönnun við hönnun gatna og burðarvirkja. Óskar er fæddur 11.09.1963. Nýtt starfsfólk til Neytenda- samtakanna mSÓLRÚN Halldórsdóttir viðskiptafræð- ingur hefur verið ráðin í fullt starf hjá Neytenda- samtökunum og mun sinna þar ýmsum Verkefn- um, meðal annars á sviði banka- og tryggingamála. Sólrún er 26 ára gömui. Hún varð stúdent frá Versl- unarskóla íslands voríð 1985 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Haiidelshojskolen í Kaup- mannahöfn sl. vor ■ GARÐAR Guðjónsson hef- ur tekið við starfi ritstjóra Neyt- endablaðsins af Elísabetu Þor- geirsdóttur sem hefur ritstýrt blaðinu á undan-' fömum árum. Jafnframt mun Garðar gegna starfi upplýsingafull- trúa Neytendasamtakanna. Hann hefur verið ráðinn í fullt starf og verður með aðsetur á skrifstofu sam- takanna við Skúlagötu. Garðar er 27 ára gamall. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi vorið 1983 og stundaði nám í þýsku við háskólann í Regens- urg í Þýskalalandi á árunum 1983 og ’84. Hann útskrifaðist frá Norska blaðamanuaháskólanum í Osló vo- rið 1989. Garðar kemur til Neyt- endablaðsis frá Þjóðviljanum, en hefur einnig starfað fyrir DV og Skagablaðið. Helgi Jóhannes- son opnar lög- mannsstofu m HELGI Jó- hannesson hér- aðsdómslög- maður hefur haf- ið rekstur eigin lögmannsstofu í Lágmúla 7 í fé- lagi við þá Jónas A. Aðalsteins- son hrl., Guð- mund Ingva Sig- urðsson hrl., Svein Snorrason hrl., Þórunni Guðmundsdóttur hrl. og Lilju Jónasdóttur lögfræðing. Helgi lauk lagaprófi frá HÍ 1988 og hóf þá störf á lögmannsstöfu Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. Veturinn 1989-90 stundaði hann framhaldsnám í lögfræði i Banda- ríkjunum og lagði þar einkum stund á fög tengd viðskiptum og félaga- rekstri. Hann útskrifaðist vorið 1990 með LL.M. (masters) gráðu frá Uni- versity of Miami. Pottormar í stað Tomma og Jenna m EIGENDASKIPTl h'afa orðið á barnafataversluninni Tommi og Jenni á Laugavegi 12. Nýir eigend- ur eru Magnús Sigurjónsson og Margrét Auður Þórólfsdóttir og skiptu þau jafnframt um nafn á versl- uninni sem nú heitir Pottormar. Verslunin verður opnuð formlega á morgun, föstudag, eftir smávægileg- ar útlitsbreytingar. Að sögn Magn- úsar verður aðal úrvalið í ungbarna- fatnaði, en hægt verður að fá föt á börn til tíu ára aldurs. Garðar Er ekki kominn tími til að tengja? ÞÁ eru Alþingiskosningarnar að baki og munu óhjákvæmilega breyta hinu pólitíska landslagi að einhverju marki, þótt niðurstaða þeirra yrði ef til vill ekki eins af- dráttarlaus og sumir hefðu kosið. Varla þarf glöggan mann til að geta sér til um hvaða stjórnar- mynstur obbinn af frammámönn- um íslensks atvinnulífs vill sjá þeg- ar stjórnarmyndunarviðræðum lýkur. Svo margir úr þeim hópi líta gömlu Viðreisnina í hillingum og hafa lengi þráð að sjá Sjálfstæðis- flokk og Alþýðuflokk taka höndum saman við landsstjórnina á ný. Margir þeirra munu líka telja að nú sé sannarlega þörf á áþekkri endurreisn íslensks atvinnulífs eft- ir þriggja ára stöðnunartímabil og gamla Viðreisnin réðst í eftir haft- atímabil sjötta áratugarins. Það þarf heldur ekki glögg- skyggnan mann til að sjá að í flest- um atriðum fara stefnumál Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks sam- an og eru vel í takt við megin- strauma í efnahags- og viðskipt- alífi vestrænna þjóða, þar sem eru helstu markaðir landsins og verða varla ræktaðir til frambúðar nema hér ríki áþekk hagstjórn og efna- hagsumhverfi og gerist meðal samkeppnisþjóðanna. Það er ekki aðeins í álmáli og afstöðu til Evrópska efnahags- svæðisins sem þessir flokkar eiga pólitíska samleið. Á heildina litið er Ijóst að góð samstaða er um það milli þessara tveggja flokka að farsælasta atvinnu- og efna- hagsstefnan sé sú sem felst í því að búa fyrirtækjunum almennan starfsgrundvöll og forðast sértæk- ar aðgerðir sem raskað geta þeim heildarmarkmiðum sem verið er að reyna að ná fram. Innifalið í þessu er það aukna viðskiptafrelsi sem hér hefur smám saman verið að skjóta rótum, krafan um aukna samkeppni með tilheyrandi ha- græðingu í rekstri fyrirtækja, sem á að skila sér til neytandans, um jafnræði á markaðinum og undan- hald einokunar en að fyrirtækin fái að sama skapi að hagnast og skila eigendum sínum eðlilegum arði. Auðvitað eru einhver ágrein- ingsmál milli þessara tveggja flokka en varla óyfirstíganleg. í stjórnarandstöðu hefur Sjálfstæð- isflokkurinn ef til vill freistast til pólitískrar hentistefnu og yfirboða I húsnæðismálum meðan Alþýðu- flokkurinn heldur fram býsna ein- strengingslegri landbúnaðarpólit- ík. Og veiðigjaldastefna sú sem Alþýðuflokkur hefur gert að sinni í sjávarútvegsmálum á sér vissu- lega öfluga skoðanabræður innan Sjálfstæðisflokksins en þar er líka að finna hatrömmustu andstæð- inga hennar. Einhverjar málamiðlanir eru því óhjákvæmilegar og áreiðanlega æskilegar, því að sumpart færði kosningabaráttan og kosningarnar sjálfar okkur heim sanninn um að á íslandi ríkir á vissan hátt „þýskt“ ástand — þar sem tvær þjóðir búa í sama landi. Varla fór það fram hjá neinum að hér er um margt djúpstæður skoðanamunur á því milli íbúa landsbyggðar og þéttbýl- is hvar frumkvæðið skuli vera í atvinnu- og byggðamálum. Flokk- arnir sem hallastir eru undir mið- stýringu, opinbera forsjá og ríkisaf- skipti voru þeir sem unnu mest á úti á landi meðan hið gagnstæða gerðist á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig svo sem mál skipast að lokum í stjórnarmynduninni sem nú stendur yfir er þetta sá blákaldi pólitíski veruleiki sem varla verður horft framhjá, ef sæmileg sátt á að ríkja í landinu. Þannig virkar lýðræðið. Hin virku markaðslögmál eiga á sama tíma ærinn spotta ófarinn yfir Atlantsála. i helstu sam- keppnislöndum hefðu tíðindi eins og þau að ríkisstjórn hugnanleg atvinnulífinu kynni að vera í burðar- liðnum komið markaðsöflunum á hreyfingu og leitt til hækkandi gengis hlutabréfa og gjaldmiðils viðkomandi lands. Hér gerist hvor- ugt — enda hlutabréfamarkaður- inn ófullburða og krónan ramm- lega afgirt innan veggja Seðla- bankans. Það er löngu tímabært að tengja á milli þeirra stjórnmálaafla sem hafa leiðir markaðsbúskapar bein- línis á stefnu sinni, enda ekkert líklegra til að blása nýju lífi í ís- lenskt atvinnu- og viðskiptalíf, landsmönnum öllum til heilla. BVS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.