Morgunblaðið - 25.04.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.04.1991, Blaðsíða 15
MORGÚNBLÁÐIÐ • ''"LLlLLl '' v ' , VIDSKIPTI/ATVIBINULÍF UÉ'áÍÁÚRÍú'1991 15 smávægilegar uppákomur sem oft geta stöðvað heilu verksmiðjurnar í höndum annarra. En lífsorka manna hér á landi virðist engu að síður leita í flesta aðra farvegi en að skjóta tryggum fótum undir eigin lífsbjörg af eigin frumkvæði og rammleika. Hve margir þeirra sem vinna hjá fyrir- tækjum sem byggja á ótryggum grunni skyldu vinna að því að tryggja eigin afkomu með því að skapa sér sjálfstæð tækifæri til hlið- ar við störf sín hjá öðrum? Og hvé mörg fyrirtæki gera eitt- hvað raunhæft í því að móta eigin stefnu til langs tíma, þróa og bæta starfsemi sína og auka framleiðni í sífellu? Og hve mörg fyrirtæki eru á hverjum tíma með nógu margar nýjar hugmyndir, vörur eða þjón- ustu þróaða til að taka við ef tekjur minnka af starfsemi líðandi stund- ar? Ég hefi gert mér það til dundurs síðastiiðin 2-3 ár að spyrja einstakl- inga sem eru í hættu með störf sín, forstöðumenn fyrirtækja sem sjá fram á ótrygga framtíð og fieira að því hvað þeir væru að gera í málunum til að skapa sér starfsör- yggi og trygga framtíð. Svörin hafa nánast öll verið á einn veg. Fæst fyrirtæki hafa mót- að sér stefnu eða skapað sé ný tækifærí til að taka við af þeim gömlu. Bestu svörin sem ég hefi fengið hjá stjórnendunum hafa ver- ið þau að „beðið sé eftir álverinu"! Éinstaklingarnir sem ég hefi spurt hafa engir gert neitt virkt í að efla þekkingu sína eða skapa sér tækifæri til að taka við ef í harð- bakka slægi! Margir þeirra hafa engu að síður eytt töluverðum tíma í margháttaða endurmenntun sem enginn fyrirsjá- anlegur árangur var af hvað betra starfsöryggi varðar. Hvað myndir þú, lesandi góður, segja um búhyggju bónda sem segði þér á miðju sumri að hann væri að „bíða eftir kartöfluuppskeru haustsins, en hefði að vísu engu sáð um vorið“? Svör af þessu tagi þýða að visu „Lífsorkan og krafturinn er til staðar! Það eina sem gera þarf er að beina honum í þennan farveg ogtryggjaað námið og starf- ið sé skemmti- legt og tryggð- ur sé greiður aðgangur að upplýsingum um ný tæki- færi.“ sem betur fer ekki að allir fljóti sofandi að feigðarósi, ástandið er betra en svo. Þau sýna á hinn bóginn ótrúlegt og oft óafsakanlegt athafnaleysi við nýsköpun og uyppbyggingu framt- íðarinnar hjá einstaklingum sem fyrirtækjum. Einstaklingar sem ég hef spurt hafa engir gert nokkuð raunhæft í að efla þekkingu sína eða skapa sér tækifæri til að efla þekkingu sína eða skapa sér tæki- færi til að taka við ef í harðbak- kann slær! Margir þeirra hafa engu að síður eytt töluverðum tíma í margháttaða endurmenntun sem enginn fyrirsjá- anlegur árangur var af hvað betra starfsöryggi varðar. Og sumir hveijir eyða verulegum tíma í hvers- kyns leikaraskap sem oft.er innan- tómur og í raun hvimleiður. Lífsork- una skortir á hinn bóginn ekki í íslendinga. Af henni er sem betur fer nóg og það gefur von um að ná megi árangri. Athafnaleysið byggist því ekki á áhugaleysi, tímaskorti eða skorti á lífsorku. Jafnvel ekki svo mjög á fjárskorti þótt margir séu heldur blankir. Allt þetta er til staðar eins og sóknin í endurmenntun og hvers- kyns frístundaiðju sannar. Það byggist á hinn bóginn á hugmynda- og upplýsingaskorti. Menn vita ein- faldlega ekki hvað þeir gætu tekið sér fyrir hendur sem þeir gætu þénað á. Og hefðbundin endur- menntun þar sem menn tileinka sér vissa grundvallarþekkingu segir ekkert um þetta. Til að leysa þetta mál þurfa menn að kunna að afla upplýsingá eða hafa góða aðstoð til þess. 011 sú endurmenntun sem í boði er snýst að minnstu leyti um það sem oft skiptir mestu, þ.e. hvernig menn geta skapað sér sjálfstæð og sérstök tækifæri sem gefa þeim sæmilégar tekjur. Bætt ástand En þetta starf þarf ekki að vera svona. Hugsum okkur að tækifæra- sköpun væri gerð að skemmtilegri „þjóðaríþrótt" með þátttöku veru- legs fjölda fólks (t.d. tíunda hvers vinnufærs manns). Hvers vegna ætti okkur ekki að geta tekist eitt- hvað slíkt? Ef menn gengju að þessu verki af sama áhuga og atorku og þeir hafa geri í skákinni og tónlist- arlífinu þá er enginn vafi á miklum árangri! Lífsorkan og krafturinn ef til staðar! Það eina sem gera þarf er að beina honum í þennan farveg og tryggja að námið og starfið sé skemmtilegt og tryggður sé greiður aðgangur að upplýsingUm um ný tækifæri! Og það sem meira er. Þetta er miklu brýnna en spilamennskan sem menn stunda af svo mikilli ákefð sem raun ber vitni. Þetta getur þar að auki orðið jafn skemmtilegt ef ekki skemmtilegra! Og meira til: Þetta er lafhægt! Höfundur er verkfræðingur og forstöðumaður Upplýsingaþjón- ustu Háskóla íslands. ERTU ÚTFLYTJANDI? EÐA VILTU FLYTJA ÚT? Útflutningsráð íslands, í samvinnu við íslandsbanka, Iðnlánasjóð og Markaðsskóla íslands, hefur ákveðið að endurtaka verkefnið ÚTFLUTNINGSAUKNING OG HAGVÖXTUR vegna þess góða árangurs sem orðið hefur af verkefninu. Verkefnið er ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækj- um, með allt að 50 starfsmönnum, sem framleiða útflutningshæfa vöru eða þjónustu. Áhugi á að hefja útflutning eða treysta þegar hafinn útflutning er skil- yrði og fjárhagslegur grundvöllur verður að vera fyrir hendi. Ef þú tekur þátt í þessu verkefni þarft þú að verja þremur dögum í mánuði í aðgerðir tengdar verkefn- inu. Tveir dagar í hverjum mánuði fara í vinnufund í Reykjavík og einn dagur til viðbótar í fyrirtæki þínu með ráðunaut, sem verkefnið leggur til. Þú þarft einn- ig að verja um það bil einni viku í heimsókn á valið markaðssvæði. Áætlað er að hefja verkefnið í maí og Ijúka því í apríl 1992. Kostnaður á fyrirtæki er 320 þúsund kr.sem greiðast í áföngum meðan á verkefninu stendur. Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að snúa sér til Hauks Björnssonar, verkefnisstjóra hjá Útflutningsráði ís- lands og veitir hann allar nánari upplýsingar f Ötflutningsráð fslands " Lágmúla 5, 108 Reykjavík. Sími 91-988777, fax 91-689197. RÁÐHERRASTÓLAR ? Það er nú einu sinni með góða stóla að menn vilja sitja í þeim bæði fast og lengi. Góðir starfsmenn eiga líka sannarlega skilið að sitja í bestu stólum. Þess vegna bendum við öllum þeimf sem eru að velja sér stóla um þessar mundir, óhikað á Drabert stólana, sem þúsundir ánægðra íslendinga hafa kosið sér á undanförnum árum. Vandaður leðurstóll sem hægt er að stilla á ótal vegu og láta sér líða vel í. Upp úr þessum stól stendur enginn ótilneyddur. Verð kr. 121.500,- Léttur og lipur stóll, en þó nýðsterkur og endingargóður. Verð kr. 33.900- Sterkbyggður vinnustóll sem styður vel við breitt bakið. Verð kr. 47.400,- Fínlegur og vel hannaður skrifstofustóll. Ódýr alvörustóll. Verð kr. 19.800.- Sérhannaður tölvustóll sem veitir mjög góðan stuðning við hryggsúlu og mjóhrygg. Hann dregur úr streitu í öxlum og kemur í veg fyrir að þú sitjir hokinn. Verð kr. 48.800,- SKRIFSTOFUHÚSGÖGN HALL.ARMÚLA 2, SÍMI 83509 TELEFAX 680411

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.