Morgunblaðið - 25.04.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKlPTI/'ATVlllIITOtF^]mWMBfjR'25A A'PRÍL W9t
o u
hráefni og hafa tækniþekkingu og
verkþekkingu hjá starfsfólki til að
geta gert úr því þá vöru, sem rnark-
aðurfen krefst á hveijum tíma. í því
felst okkar styrkur. Nú höfum við
sérstöðu sem er íslenska gæran og
á því byggist okkar styrkur einnig
að veruiegu leyti. Nú þegar það hrá-
efni minnkar verðum við að leggja
alla áherslu á að þróa fyrirtækið enn
frekar í þá átt að geta tekið á móti,
unnið og markaðssett fullunnin
skinn úr ijölbreyttara hráefni en
hingað til. Starf okkar sem hér vinn-
um hefur mótast mjög af þessu und-
anfarin misseri."
— Er samkeppnin ekki geysileg
í skinnaiðnaðinum?
„Jú hún er mikil og sérstaklega
við Suður-Evrópuþjóðirnar eins og
Spánverja og ítali. Þeir eru tiltölu-
lega stutt frá viðskiptavinum sínum
og mörkuðum. Hitt er annað mál
að það ríkir ákveðinn rígur á milli
þessara tveggja þjóða, sem er okkar
ávinningur. Við höfum líka orðið
varir við það á þessum 2-3 árum,
sem við höfum átt viðskipti við ítal-
Sjónarhorn
ana að þeim finnst fjarlægðin til
íslands ekki eins mikil eftir að þeir
hófu viðskipti við okkur og þeim
fannst til að byija með. Við höfum
áunnið okkur ákveðinn orðstír og
traust sem við getum notað til að
byggja á.
Hann segir að það sé fljótt að
spyijast, ef menn standi ekki við orð
sín og gæðin séu ekki í lagi. Því
hafi þeir alltaf lagt áherslu á að
þjóna viðskiptavinum sínum vel og
passa vel upp gæðin. Hann tekur
einnig fram, að séu íslensku skinnin
rétt unnin séu þau mjög góð. „Við
flokkum skinnin í þijá megin gæða-
flokka. í fyrsta gæðaflokk fer um
helmingur allra skinnanna. í miðl-
ungsflokk fara u.þ.b. 30-40% og í
þriðja flokk fara um 10-20%. Hver
flokkur hefur sína _ viðskiptavini,
einnig þeir slökustu. Úr þeim skinn-
um eru unnar ódýrari flíkur og lúff-
ur, húfur og þess háttar vörur.“
Bjarni tekur fram að mjög mikil-
vægt sé í allri vinnslunni að flokkun-
in sé rétt bæði vegna nýtingar á
skinnunum og litanna. Sumir litir
MBA-nám í
Viðskip tciháskólmi um
í Ósló
eftir Ríkharð Ottó
Ríkharðsson
Síðastliðið haust hóf ég fram-
haldsnám í viðskiptafræðum og
fyrir valinu varð Viðskiptaháskól-
inn í Ósló, Oslo Handelshöyskoie
(Oslo Business School), sem er
frekar ungur skóli en getið hefur
sér gott orð.
Skólinn, sem stendur á fallegum
stað í miðborg Óslóar, er sjálfs-
eignarstofnun sem býður upp á
almennt nám í viðskipta- og mark-
aðsfræðum. Stjórnendur skólans
leggja mikið upp_ úr samskiptum
við atvinnulífið. Áhersla er lögð á
að fá gestafyrirlesara úr röðum
virtra fyrirtækjastjórnenda, jafnt
norskra sem erlendra. Verkleg
vinna nemenda beinist að því að
gefa þeim sem mesta innsýn í
raunveruleg verkefni (og vanda-
mál) stjómenda fyrirtækja. Það
er gert með reglulegum heimsókn-
um stúdenta til fyrirtækjanna, þar
sem stúdentarnir eiga að fá tæki-
færi til þess að vinna að raunhæf-
um verkefnum.
Frá árinu 1989 hefur Viðskipta-
háskólinn í Ósló boðið upp á
MBA-nám (Master of Business
Administration) fyrstur norrænna
viðskiptaháskóla. Námið fer allt
fram á ensku og mikil áhersla er
lögð á að skólinn sé í raun og
veru alþjóðlegur. Kennslan er með
alþjóðlegu ívafi og um þessar
mundir eru nemendur frá 26 þjóðl-
öndum við MBA-nám í viðskipta-
háskólanum í Ósló.
Nemendurnir á MBA-stiginu
era með mismunandi háskólagráð-
ur. Þeir sem ekki hafa lokið við-
skiptanámi sitja einnar annar und-
irbúningsnám fyrir sjálft MBA-
námið sem tekur þijár annir (eitt
og hálft ár).
Skipuleggjendur Viðskiptahá-
skólans í Osló höfðu viðskiptahá-
skóla í Bandaríkjunum sem fyrir-
mynd þegar skólinn hóf starfsemi
sína. Þrátt fyrir það hafa þeir í
engu gleymt sérstöðu og þörfum
evrópsks markaðar. Mikil áhersla
er lögð á að fá virta erlenda gesta-
kennara til kennslu á MBA-stiginu
og kenna flestir þeirra eitt ár í
senn. Auk fastra kennara er tölu-
vert um að gestafyrirlesarar sæki
skólann heim og miðli nemendum
af reynslu sinni.
Uppbygging og áherslur MBA-
námsins hafa þegar gert skólann
að einum viriasta viðskiptaháskól-
anum í Evrópu. Sem dæmi má
nefna að hið þekkta tímarit Inter-
national Management skipaði
MBA-náminu í Ösló á bekk með
Bocconi, London Business School,
Insead og Erasmus.
Það er gott að dvelja í Ósló,
framfærslukostnaður þar er ámóta
og á íslandi, skólagjöldin fyllilega
samkeppnishæf við það sem geng-
ur og gerist í Evrópu og Banda-
ríkjunum, fyrir utan að námið er
fyllilega lánshæft hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna.
Höfunclur erfyrrum fjármálu-
stjóri hjá OIís og stundar nú iiárn
á MBA-stigi Vidskiptaháskólans í
Ósló.
Tölvumolar
Holberg Másson
Evrópuráð-
stefna um EDI
Fyrirhugað er að halda Evrópu-
ráðstefnu um pappírslaus við-
skipti, „EDI“, í Kaupmannahöfn
4.-6. júní nk. Fyrirhuguð er hóp-
ferð á vegum EDI-félagsins á
þessa ráðstefnu og einnig að heim-
sækja 3. júní fyrirtæki í Kaup-
mannahöfn sem hafa reynslu í
pappírslausum viðskiptum. Nánari
upplýsingar gefur Arnþór Þórðar-
son í síma 27577 og Asgeir Val-
björnsson í síma 697100. Bóka
þarf þátttöku eigi síðar en 1. maí
nk.
Hugbúnað-
arsmíð hjá iðn-
skólanemum
Á Degi Iðnskólanum í Reykjavík
nú í byijun apríl, var kynning á
hugbúnaðarsmíði hjá nemendum á
tölvubraut skólans. Var þar sýnd-
ur áhugaverður hugbúnaður sem
smiðaður var af iðnskólanemum.
Meðal annars var þar sýndur
tölvuleikur sem nýkominn er á
markað og heitir „StjörnuRokk",
og notar hágæðaupplausn skv.
VGA-staðli til framsetningar á
myndum. Leikurinn er íslenskur
-aá.öllxu.leyti-.og-.er .nú.tiL.sölu.
séu eingöngu keyptir í fyrsta flokki,
aðrir í miðlungsflokki og enn aðrir
í lakasta flokknum.
Gæðaeftirlit mikilvægt
Bjarni bendir á að mikilvægt sé
að byija gæðaeftirlit strax í slátur-
húsunum. „Á undanförnum árum
hafa starfsmenn okkar farið í slátur-
húsin og fylgst með fláningu, fyrir-
ristu og söltun. Fullunnin skinn eru
seld eftir stærð og það ræðst strax
í sláturhúsinu, hvort skinnið verður
eins stór og það á upplag til eður
ei. Þá hefur söltunin mikil áhrif á
geymsluþol skinnsins. Ef ekki er
staðið rétt að söltun eða geymslu
getur komið rot í skinnið og það fer
að úldna. í stórum stæðum er fljótt
að verða mikill skaði. Við höfum
ekki lent í því lengi, enda höfum við
átt mjög gott samstarf við sláturhús-
amenn á undanförnum árum.“
— Hveijir eru helstu gallar í
skinni?
„Náttúrulegir gallar eru t.d. tví-
skinnungur, þ.e. liggur skinnið í
tveimur lögum og verður þar af leið-
andi laust á yfirborðinu. Sé þessi
galli til staðar er mjög erfitt að koma
skinninu heilu í gegnum vinnslurás-
ina. Síðan eru illhærur oft í gær-
unni, sem gera það að verkum að
hárræturnar standa það djúpt í
skinninu, að hárin koma í gegn.
Áunnir gallar geta verið af ýmsum
toga, t.d. getur verið stór blettur á
ofanverOu skinni eftir sprautu, sem
skilur eftir örvef í húðinni, og tekur
þá á sig annan lit. í vinnslunni geta
síðan komið fram gallar."
Hjá íslenskum skinnaiðnaði vinna
á þriðja hundrað manns og eru árs-
verkin tæplega 200. í framleiðslunni
vinnur starfsfólk á tví- og þrískiptum
vöktum og segist Bjarni gjarnan vilja
sjá vinnslu allan sólarhringinn vegna
hagkvæmninnar. „Við höfum verið
ákaflega heppnir með starfsfólk,"
segir hann. „Það er ákveðinn fastur
kjarni sem hefur verið hér mjög lengi
og það er ómetanlegt að liafa þetta
fólk. Það hjálpar okkur að halda
uppi gæðum og gera betur.“
— Hver var afkoma fyrirtækisins
fyrir síðasta ár?
„Velta Skinnaiðnaðar Sambands-
ins á síðasta ári var um 800 milljón-
ir króna. Uppgjöri er ekki að fullu
lokið en útlit er fyrir að hagnaður
verði í kringum 30 milljónir. Á áran-
um 1985-87 varð hagnaður hjá fyrir-
tækinu, en árið 1988 féll salan veru-
ilega á Norðurlöndum og það ár varð
imikið tap. Við söfnuðum miklum
birgðum, auk þess sem gengið var
óhagstætt. Árið eftir varð minna tap
eða rúmar 20 milljónir og nú sjáum
við fram á hagnað. Við höfum feng-
ið góðar undirtektir á þeim vörum
sem við kynntum sl. haust og höfum
mikið af pöntunum, þannig að við
erum bjartsýn á framtíðina," segir
Bjarni Jónasson.
HF
sýningar
eni okkar fag
Höfum umboð fyrir allar
helstu vörusýningar í Evrópu
og víðar.
Lóttu okku sjó um ferðina
fyrir þig hvert ó land sem er.
Hjó okkur finnur þú fagfólkið.
H111111S11111
-VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA
Austurstræti 17
Símar 622011 & 622200
co
Z
co
=>
UJ
>
=>
Z
Z
>
=>
Q
Z
oc
uu
>
RAÐSTEFNA
NÁMSKEIÐ EÐA FUNDIR Á DÖFINNI?
I Múlalundi færð þú fundarmöppur, barmmerki
(nafnmerki) , áletranir, merkingar og
annað sem auðveldar skipulag og eykur
þægindi og árangur (oátttakenda.
Allar geröir, margar stæröir, úrval
lita og áletranir aö þinni ósk!
HafSu samband vi& sölumenn okkar
i síma 68 84 76 e&a 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS - Hátúni 10c
Símar: 68 84 76 og 68 84 59.
SÍMSVÖRUN
Þjónusta í síma
Örugg símapjónusta er andlit fyrirtœkisins
Fanný Helgi Þorsteinn
Símanámskeið er ætlað starfsfólki, sem
sinnir símsvörun og þjónustu við
viðskiptavini símleiðis.
Kynntar eru helstu nýjungar í
símatækni, gæði símsvörunar og
áhersla lögð á bætta þjónustulund.
Á námskeiðinu verður einnig farið í
tæknileg atriði, sem tæknimenn Pósts
og símaannast.
Einnig verður símsölutækni gerð skil og
kynntar verða helstu nýjungar á þeim
vettvangi.
Sýning á myndbandi.
Vegna mikilla vinsælda er þetta
námskeiö nú haldið í þriðja sinn á
þessari vorönn.
Námskeiðið er haldið í
Stjómunarfélagi íslands
frá kl. 8.30 til 13.00 dagana
6., 7. og 8. maí.
Leiðbeinendur:
Fanný Jónmundsdóttir,
verkefnisstjóri
Helgi Hallsson, deildarstjóri,
Þorsteinn Óskarsson, deildarstjóri
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15,
sími 621066
„PRESENTATION SKILLS"
Kanntu að halda
athygli áheyrenda?
Að upplýsa áheyrendur þína og halda athygli
þeirra er ekki meðfæddur hæfileiki heldur tækni,
sem þarf að læra.
Anne Bögelund Haukur
• Lifandi framsetningu.
• Hlustendasálfræði.
• Að hanna og undirbúa erindaflutning.
• Að bregðast við spurningum.
• Að nota líkamstjáningu
• Hvenær og hvernig á að nota kimni.
• Að beita röddinni.
• Að undirbúa og stjórna
myndrænum aðstoðartækjum.
Þátttakendur fá persónulegar
ábendingar um hvernig þeir geta bætt
framsögutækni sína og lært að þekkja
sínar sterku hliðar.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Loft-
leiðum dagana 1. 2. og 3. maí frá kl.
08.30 til 18.00. Leiðbeinendur:
Anne Bögelund-Jensen
oa Haukur Haraldsson
Stjórnunarfélag islands
Ánanaustum 15 Sfmi 621066