Morgunblaðið - 30.04.1991, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Reykjavíkurmótið:
Ármann kærir Þrótt
Armenningar hafa lagt inn kæru til K.R.R. á hend-
ur Þrótturum. Ástæðan er sú að Magnús Jónat-
ansson, þjálfari Þróttar, fékk rauða spjaldið í leik
gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu og átti því að taka
út leikbann í næsta leik á eftir sem var gegn Ár-
manni. En Magnús stjórnaði Þrótti í umræddum leik.
Samkvæmt agareglum K.R.R. skal þjálfara liðs sem
vísað er frá leikvelli refsað með leikbanni. Jafnfram
skal Aganefnd sekta viðkomandi félag, ef um brott-
rekstur er að ræða um kr. 10.000. Ef dómstóll K.R.R.
dæmir Ármennigum í hag verða úrslit leiksins 3:0
fyrir Ármann, en Þróttur vann umræddan leik, 5:2.
Þessi niðurstaða, ef af henni verður, kemur til með
að hafa mikil áhrif á hvaða lið fylgir KR-ingum í
undanúrslit mótsins. Þróttur hefur nú 6 stig og lokið
leikjum sínum. Víkingur er með 3 stig og á leik inni
gegn Ármenningum, sem hafa 2 stig. Síðasti leikurinn
gæti því haft úrslitaþýðingu, þ.e.a.s. ef Þróttur tapar
málinu og þremur stigum um leið.
1991
GuAný
Gunn-
steinsdótt-
ir fetaði í
fótsporföð-
urs síns
þegar hún
hampaði ís-
landsbik-
arnum í
handknatt-
leik. Gunn-
steinn
Skúlason
var fyrirliði
meistara-
liðs Vals-
manna á
árum áður.
Konráð til
Dortmund?
Sigurður Bjarnason og Stjarnan hafa
samið við Grosswallstadt en HSÍ ekki
Morgunblaöið/KGA
FORRÁÐAMENN þýska félagsins Dortmund hafa sýnt því mikinn
áhuga á að fá Konráð Olavson, landsliðsmann í KR, til liðs við
sig fyrir næsta keppnistímabil, skv. heimildum Morgunblaðsins.
Dortmundarliðin tvö, OSC Dort-
mund og Eintracht, verða
sameinuð í eitt fyrir næsta keppn-
istímabil. Það fyrmefnda leikur nú
í 2. deild en hitt er á leiðinni upp í
2. deild, þar sem hið sameinaða lið
leikur næsta vetur.
Forráðamenn þýska liðsins eru
að leita að leikmanni í stöðu leik-
stjóra — miðjumanns í sókn. Konráð
hefur lengst af leikið í vinstra hom-
inu, en fór að leika í stöðu miðju-
manns undir stjóm Jóhanns Inga
Gunnarssonar fyrr í vetur. Síðar
hefur hann einnig leikið í skyttu-
stöðunni vinstra megin. Hið samein-
aða lið Dortmund er skipað ungum
leikmönnum, og vilja forráðamenn
liðsins halda áfram á þeirri braut;
vilja byggja upp sterkt lið á ungum
mönnum, í stað þess að fá „gamlan
ref“. Og þeir leggja mikla áherslu
á að fá Islending, eftir góða frammi-
stöðu íslenskra handknattleiks-
manna í Vestur-Þýskalandi undan-
farin ár.
Svo gæti farið að menn frá Dort-
mund komi til landsins síðar í þess-
ari viku til viðræðna við Konráð.
OSC Dortmund hefur oft haft
þekkta erlenda leikmenn í herbúð-
um sínum; t.d. Sigurð Sveinsson
og ungversku stórskyttuna gamal-
kunnu Peters Kovacs.
Þess má og geta að svissneska
1. deildarfélagið Basel, sem er að
leita sér að góðum miðjumanni fyr-
ir næsta tímabil, hefur einnig sýnt
Konráð áhuga.
Sigurður hefur náð samkomu-
lagi við Grosswallstadt
Sigurður Bjamason, landsliðs-
maður í Stjömunni, hefur náð sam-
komulagi við þýska úrvalsdeildar-
liðið Grosswallstadt, en tveir menn
frá félaginu komu hingað á dögun-
um til að ræða við Sigurð eins og
fram kom í Morgunblaðinu. Um er
að ræða tveggja ára samning og
er samningur milli félaganna einnig
tilbúinn — þó svo ekki sé búið að
skrifa undir neitt enn þá. Þýska
félagið og Handknattleikssamband
íslands hafa hins vegar ekki samið,
en skv. alþjóða samningum hefur
HSÍ rétt á landsliðsmönnum í 90
daga á ári. Reikna má með að Sig-
urður verði í landsliðshópi íslands
fyrir B-keppnina í Austurríki næsta
vetur, og óttast Þjóðveijamir að
undirbúningurinn landsliðsins skar-
ist um of við þýsku deildarkeppnina.
Stjömustúlkur Islandsmeistarar:
Sigurganga Fram stöðvuð
Eg trúði þvi ekki fyrr en ég heyrði leikinn flaut- tunni alveg eins og þær gerðu við okkur í bikarúr-
aðan af að þetta hefði tekist. Þrátt fyrir að slitunum. Það var ekki sami kraftur í þeim núna.
við væmm yfir allan leikinn var ég viss um að Ég vona að þessi tímamótasigur okkar sé tákn
meistaraheppni Fram myndi bjarga þeim í lokin," um að kvennahandknattleikur á íslandi sé á upp-
sagði Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjörnunn- leið. Það er ekki gott að vera með eitt lið sem
ar, sem tryggði sér meistaratitlinn í handknattleik einveldi og orðið tímabært að kollvarpa Framveld-
með því að stöðva sjö ára sigurgöngu Fram. „Vöm- inu. Við eigum þennan sigur fyllilega skilið. Liðið
in var mjög sterk hjá okkur. Það var mikil breidd hefur verið lengi í baráttunni og of oft þurft að
í liðinu hjá okkur og allar stóðu sig vel. Við mætt- láta sér lynda annað sætið.“
■ Umsögn / B8
KNATTSPYRNA
t
SKÍÐI: ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR Á AKUREYRI / B40GB5