Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 6

Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. MAI 1991 Stjórnun Mikilvægt að vinna að stefnumótun — segir Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri Granda, þar sem framtíðarstefna fyrirtækisins hefur verið mörkuð undanfarna mánuði Á NÝAFSTÖÐNUM aðalfundi Granda hf., himim fyrsta eftir sameiningu Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík hf. og Granda hf., kom fram að um 190 milljóna króna hagnaður varð af rekstri samsteypunnar. Árið 1989 varð hagnaður af rekstri Granda 16,5 milljónir króna og Hraðfrystistöðvarinnar 46,9 milljónir króna. Afkoma þessa árs segir Brynjólfur Bjarnason framkvæmdasljóri Granda að sé viðunandi og bendir á að hag- ræðing af samruna fyrirtækjanna tveggja sé ótvíræð. Hann seg- ist einnig vekja athygli á því að gengisþróun sl. árs hafi verið með þeim hætti, að mörg fyrirtæki hafi komið út með jákvæða útkomu á árinu 1990, vegna þess að fjármagnsliðir hefðu ekki orðið háir. „Hafi fyrirtæki skuldað mikið í erlendum gjaldeyri, sérstaklega í dollurum, þá hefur það komið fram sem gengis- hagnaður á árinu. Hjá Granda hefur undanfarin þijú ár verið sýnd sérstök færsla í ársreikningi, sem nefnd hefur verið mis- vægi gengis og verðlags, sem nam á sl. ári 107 milljónum króna. Þetta verður til þess að hagnaður af reglulegri starfsemi verð- ur samanburðarhæfari milli ára.“ Þegar Brynjólfur er spurður að því, hvort hagræðingin sé komin í ljós á þessum stutta tíma sem liðinn sé frá sameiningunni, svarar hann að ávinningurinn liggi í aug- um uppi. Þarna hafi tvö öflug fyr- irtæki með svipaðan rekstur sam- einast í eitt enn öflugra, sem þýði í mörgum tilvikum einföldun á rekstrinum. „Við lögðum t.d. fisk- vinnslu Hraðfrystistöðvarinnar í Mýrargötu niður strax einum og hálfum mánuði eftir sameiningu og vinnur starfsfólkið nú í Norður- garði og Grandagarði. Húsið við Mýraragötu er til sölu og verður mikil hagræðing ef okkur tekst að selja það. Rekstur tveggja tog- ara Hraðfrystistöðvarinnar kemur mjög vel inn í rekstur fimm tog- ara Granda og þannig samnýtast margir þættir." Skýr stefnumótun Frá árinu 1985 þegar Bæjarút- gerð Reykjavíkur og ísbjöminn sameinuðust í Granda hf. hefur fyrirtækið verið að laga sig að því markmiði sem sett var á oddinn, þ.e. að sérhæfa sig og beita meiri sjálfvirkni. Þetta segir Brynjólfur að hafi ekki gengið átakalaust, en sé á réttri leið, m.a. með frekari tæknivæðingm- Ekki hefur verið látið þar við sitja, því fyrir nokkrum mánuðum vg.r hafin skipuleg vinna að því að marka framtíðarstefnu fyrir- tækisins, meðal annars með aðstoð Hagvangs og ráðgjafarfyrirtækis- ins Price Waterhouse. Brynjólfur var spurður út í þetta verkefni. „Það er mjög mikilvægt að fyr- irtæki vinni að stefnumótun, setji sér meginhlutverk og skilgreini þau með tilliti til samkeppnis- stöðu,“ segir hann. „Við þetta er notuð ákveðin aðferð, sem mótuð hefur verið m.a. af Michael Porter prófessor við Harvard. Reynt er að gera sér grein fyrir hverjir eru veikleikar og styrkleikar fyrirtæk- isins, ógnanir við það og sam- keppnisstaða þess. í ljósi þessa er síðan reynt að horfa 3-5 ár fram í tímann og búa sér til ákveðna framtíðarsýn." Brynjólfur leggur áherslu á að mikið álag á starfsfólk fylgi stefnumótun sem þessari. Hins vegar temji menn sér ákveðin vinnubrögð þannig að þetta sé góður skóli fyrir þá starfsmenn sem komi við sögu. Lögð áhersla á gæði og áreiðanleika — Að hvaða niðurstöðu komst stjórn Granda og hvernig var stað- ið að framkvæmd stefnumótunar- innar? „Stjómendur Granda og hópur starfsmanna byijuðu í endaðan september að vinna að þessu verk- efni og var fyrsta áfanga lokið um mánaðamótin janúar/febrúar sl. Það tekur um 4-5 mánuði að gera sér grein fyrir hver framtíðarsýnin og hlutverkaskiptingin eigi að vera. Síðan taka við ákveðnar verkáætlanir. Við stefnum á að ljúka 29 verkefnum á einu ári, sem ýmsir vinnuhópar starfa að. Við komumst að því, að megin- hlutverk fyrirtækisins er að vera viðurkennt, öflugt útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki sem kapp- kostar að koma til móts við vel skilgreindar þarfir viðskipta- manna, þar sem lögð er áhersla á gæði og áreiðanleika. Vörur fyrir- tækisins eiga að vera sérgreindar og njóta hærra verðs en staðlaðar vörur. Það er þetta sem við kepp- um að og er verkefni okkar á næstu 3-5 árum. Á bak við þetta liggja síðan fjöl- margar ákvarðanir um fyrirtækið, uppbyggingu þess, eftir hvaða leiðum markaðsstarfsemi fer fram, hvaða arðsemiskröfur við gerum til fyrirtækisins, hver eig- infjárstaðan á að vera o.s.frv. Þetta era hlutir sem ég ætla ekki að tjá mig um hér, en verður geymt hjá fyrirtækinu. Liður í þessu verður að gera sér grein fyrir möguleikum fyrirtækisins og setja sér ákveðin markmið. Þannig verður auðveldara fyrir þá aðila sem sitja við stjórnvölinn að vita að hverju þeir eiga að vinna og hvert er stefnt.“ Mikilvægt að átta sig á stöðu fyrirtækisins — Var eitthvað sem kom ykkur á óvart þegar þið fóruð dýpra ofan í fyrirtækið? Ef til vill eitthvað sem var í lakara ástandi en þið hélduð það vera? „Já, það var ýmislegt sem kom okkur á óvart, en kannski aðallega í kjölfar þess að þurfa að skil- greina hlutina öðru vísi en við voram vön. Við mat á stöðu fyrir- tækisins þurftum við t.d. að átta Morgunblaðið/Ámi Sæberg ATAK — Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri Granda hf. segir að undirbúningsvinna fyrir stefnumótun fyrirtækis sé geysilegt álag á það starfsfólk sem taki þátt í því. Hins vegar sé það mjög gefandi, þar sem fólkið temji sér önnur og betri vinnubrögð. Úr ársreikningi 1990 Heildartekjur Afkoma án dótturfélags Afkoma samstæðu Veltufjármunir Skammtímaskuldir 233,9 millj.kr. 190,3 millj.kr. 734,6 millj.kr. 547,5 millj.kr. Eignir 3.336,0 millj.kr. Skuldir 2.006,5 millj.kr. Eigið fé 1.329,6 millj.kr. Hlutafé 850,0 millj.kr. Fjöldi hluthafa 357 Meðalfjöldi starfsmanna 392 Greidd laun 832,0 millj.kr. Eigið fé í % af heiidareignum 40,0% Hlutfall í % af eigin fé 63,9% Veltufjárhlutfall 1,34 okkur á hvernig samstarfsaðilar okkar, sem eru önnur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki, stæðu. Þá var bæði um að ræða möguleika á hráefnisöflun og íjárhagslega stöðu. Þetta var að vissu leyti nýstár- leg aðferð. Þarna er maður að um s ti upp í stóra vinnustaði þ notenda eru tengd ið tölvuna FYRST OG FREMST SKAFTAHLlB 24 REYKJAVlK SlMI 697700 Alþjóðaviðskipti Viðskiptasendinefnd frá Taiwan væntanleg VON er á viðskiptanefnd frá Taiwan hingað til lands þann 14. maí nk. í tveggja daga heimsókn. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem efnt er til slíkrar heimsóknar hingað en hún er Iiður í ferð nefndarinnar til 5 annarra Evrópuríkja. Verslunar- og Útflutn- ingsstofnun Taiwan, CETRA, stendur að þessari heimsókn og einn forsljóra hennar veitir nefndinni forystu sem samanstend- ur af fulltrúum 15 útflutningsfyrirtækja á Taiwan. Viðskiptaskrifstofa Taiwan á Norðurlöndum sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn annaðist undir- búning heimsóknarinnar en Skrif- stofa viðskiptalífsins og Búnaðar- banki íslands hafa í sameiningu skipulagt komu nefndinnar af hálfu Islendinga. Ætlunin er að gefa einstökum aðilum hjá Skrif- stofu viðskiptalífsins svo og við- skiptavinum Búnaðarabankans í alþjóðaviðskiptum kost á að kynn- ast því sem hinir kínversku gestir hafa fram að færa. Þann 15. maí efnir sendinefndin til sérstakrar vörukynningar í Átt- hagasal Hótels Sögu kl. 10.00- 15.00 þar sem fulltrúar hinna 15 fyrirtækja munu kynna margv- íslegar vörur frá Taiwan m.a. tölv- ur og tölvubúnað, rafeindavörur, bifreiðahluti, gjafavörur, raftæki o.m.fl. Jafnframt er gert ráð fyrir að gestirnir muni koma á fram- færi í sínu heimalandi hugmyndum um útflutning héðan til Taiwan. Viðskipti Islendinga við Taiwan hafa aukist verulega hin síðari ár og er útflutningur þangað umtals- verður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.