Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 10
10 c J 1 v J MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. MAI 1991 Námufyrirtækið Stilfontein Gold Mining hefur þegar tilkynnt að 39 ára gamalli námu í Transva- al verði fljótlega lokað. Róttækar spamaðaraðgerðir dugðu ekki til að rétta hag námunnar. Á síðustu þremur árum var starfsmönnum fækkað úr rúmlega níu þúsundum í tæplega þijú þúsund. Árið 1990 voru framleidd 603 tonn af gulli í Suður-Afríku. Fram- leiðslan hafði þá minnkað um 10% á níunda áratugnum. Á sama tíma jókst gullframleiðsla vestrænna ríkja um 72% og varð 1.740 tonn í fyrra. Framleiðsla annarra ríkja var 450 tonn. ENDURNYJUN — Pólska flugfélagið Lot hyggst selja sovézkar vélar sínar á mjög góðu verði og endurnýja með vestrænum vélum. Flug Allur flugfloti pólska flug- félgsins Lot er tíl sölu Sovézkar flugvélar ósamkeppnishæfar Pólska ríkisflugfélagið Lot hef- ur sett allan flugflota sinn, nærri 30 flugvélar smíðaðar í Sovétríkjunum, í sölu fyrir „málamynda-verð“ þar sem vél- Verslun Uppsagnir hjá Marks & Spencer í London - en verslunum fjölgað á meginlandinu BRESKA stórverslanakeðjan Marks & Spencer ætlar að segja upp 850 manns í sparnaðarskyni. Hefur fyrirtækið ekki gripið til jafn róttækra aðgerða í 30 ár en talsmenn þess segja, að þær eigi ekki að hafa nein áhrif á áætlan- ir um aukin umsvif á meginlandi Evrópu. mundir er verið að opna verslun í Liege í Belgíu en síðan koma Amst- erdam, Haag, Nantes, Toulouse og Sevilla. Þá er unnið áfram að áætl- unum um útibú á Norðurlöndum. arnar eru of dýrar í rekstri til að standast samkeppni á fijáls- um markaði. Gripið verður til fleiri spamaða- raðgerða svo sem útleigu á rekstri innanlandsflugs félagsins og fækkun í 8.000 manna starfsliði félagsins um 2.000 manns, segir Bronislaw Klimaszewski forstjóri Lot. Þessar sparnaðaraðgerðir eiga að auðvelda félaginu að endumýja flugflota sinn með kaupum á vest- rænum- flugvélum áður en fyrir- huguð einkavæðing Lot kemur til framkvæmda eftir þijú ár. Að sögn Klimaszewskis fengist nán- ast ekkert verð fyrir Lot flugfélag- ið á fijálsum markaði ef félagið sæti eingöngu uppi með Ilyushin og Tupolev vélar sínar. Nú þegar liggur fyrir tilboð frá Kína um kaup á öllum sovézkum flugvélum Lot, en svo virðist sem yfirvöld flugmála í Sovétríkjunum séu ekki sátt vicÞþá lausn. Til að tryggja varahluti og þjónustu fyrir vélamar þurfa sovézk yfírvöld að leggja blessun sína yfír kaupin. Klimaszewski átti fyrir stuttu fund með stjórendum Aeroflot í Moskvu um málið, og að honum loknum sagði hann að enn væru möguleikar á samningum við Kínveija þótt ekkert liggi þar end- anlegt fyrir enn. Annar kostur væri að Aeroflot, sovézka flugfélagið, keypti flog- flota Lot og nýtti hann á sínum flugleiðum. Lot hefur þegar tekið þijár leiguvélar af gerðinni Boeing 767 í þjónustu sína, og segja talsmenn félagsins að viðhaldskostnaður sovézkra flugvéla sé tífalt meiri en þeirra vestrænu. Landbúnaður Markaðseinokun sænsks landbúnaðar afnumin og matvælaverðið lækkað Mikill matarkostnaður hefur kynt undir launahækkunum og verðbólgu og skert samkeppnisgetu sænsks iðnaðar Suður-Afríka Kreppaí gulliðnaði oglokun blasir við Jóhannesarborg, Reuter. LOKUN blasir nú við mörgum suður-afrískum gullnámum. Haldist verð á gullúnsu til lengdar nálægt 350 dollurum kann gullframleiðsla i landinu að minnka um fjórðung. Gull- verð hefur lækkað sökum vax- andi heimsframleiðslu samtímis því að kostnaður hefur aukist. Um 450.000 manns starfa við gulliðnað í Suður-Afríku. Það hefur vakið nokkrar áhyggj- ur í Bretlandi, að jafnvel Marks & Spencer skuli neyðast til að skera niður en fyrirtækið hefur á sér sér- stakt orð fyrir góðan rekstur og var talið næsta ónæmt fyrir dálitlum sveiflum í efnahagslífínu. Vekur það ekki síst athygli, að 300 stjórn- endur og verðandi stjórnendur skuli vera meðal þeirra, sem sagt var upp, og margir telja, að með þessu hafí fyrirtækinu orðið á mikil mis- tök. Með uppsögnunum er annars stefnt að því fyrst og fremst að endurskipuleggja starfsemina í Baker Street, höfuðstöðvum Marks & Spencer í London, en þar starfa 4.750 manns af 62.000 starfsmönn- um alls. Er kostnaðurinn við upp- sagnimar áætlaður nærri 1,7 millj- arðar ísk. Rodney Forrest, sem er sérfróður um málefni smásöluverslunarinnar, telur ekki, að Marks & Spencer hafi orðið meira fyrir barðinu á samdrættinum í bresku efnahagslífí en aðrar verslanir. Segir hann, að uppsagnimar sýni aðeins, að það hafí verið unnt að koma við sparn- aði og hagræðingu hjá fyrirtækinu og bendir á, að til þessara aðgerða hafí verið gripið í kjölfar nokkurrar hækkunar á hlutabréfum þess. Á þessu ári ætlar Marks & Spenc- er að fjölga verslunum á megin- landinu úr 12 í 18. Um þessar SVÍAR fara nú brátt að njóta ávaxtanna af þeim uppskurði, sem verið er að gera á sænskum landbúnaði en eins og víðar hefur hann verið hvorttveggja í senn, ofverndaður og ofstyrktur. Um siðustu mánaðamót ákvað ríkis- stjórn jafnaðarmanna að auka innflutning útlendra landbúnað- arafurða um 10% og er búist við, að við það muni matvælaverð í Svíþjóð iækka um 3-5%. Var talið víst, að þessi breyting yrði sam- þykkt með miklum meirihluta á þingi. Nýju reglumar eiga að taka gildi 1. júlí nk. en í fyrra var samþykkt á þingi, að þá skyldi einnig hafíst handa við að a.fnema markaðseinok- un sænsks landbúnaðar. Almennar þingkosningar verða í Svíþjóð eftir fímm mánuði og virðist það ætla að verða keppikeflið hvaða flokkur getur lofað mestri lækkun á mat- vöruverði. Matur er óvíða dýrari en í Svíþjóð og stjórnvöld eða jafnaðar- menn ákváðu nýlega, að virðisauka- skattur á matvælum, sem er 25%, yrði lækkaður. Það getur þó ekki komið til framkvæmda fyrr en í haust. Áherslan á hagsmuni neytenda „Breytingarnar á landbúnaðar- stefnunni þýða það, að hagsmunir neytandans verða hafðir í fyrir- rúmi,“ segir Matts Hellström, land- búnaðarráðherra Svíþjóðar, en ríkisstjórnin vill að lögmál markað- arins, framboð og eftirspum, ta'ki við af verndarstefnunni, sem fylgt hefur verið í hálfa öld. Á meðal annars að koma í veg fyrir offram- leiðslu en kostnaður sænskra skatt- borgara við að selja hana á niður- settu verði á heimsmarkaði hefur verið hátt í 30 milljarðar ísk. á ári. Hellström segir, að það gangi ekki lengur, að ríkið eða með öðrum orðum launþegar í landinu ábyrgist verð fyrir útfluttar landbúnaðaraf- urðir og 1. júlí nk. verður byijað á að létta innflutningshömlum af korni, mjólk, eggjum og kjöti. Til að auðvelda sænskum bændum markaðsaðlögunina, sem á að taka fimm ár, hefur verið ákveðið að styrkja þá með um 130 milljörðum ísk. í stuttu máli má segja, að stefna stjórnvalda sé sú, að sænsk- ur landbúnaður njóti ekki meiri styrkja en landbúnaður EB-ríkj- anna. Almenningnr fagnar aðgerðunum Breytingunum á landbúnaðar- stefnunni hefur verið tekið afar vel í Svíþjóð og bendir það vissulega til, að þær sé löngu tímabærar. Eins og fyrr segir er matvælaverð hæn-a í Svíþjóð en víðast annars staðar og fer meðalfjölskyldan jafn- aðarlega með 20% teknanna í mat- Iðnaður Frönsk verka- lýðsfélög ráðast gegn Volvo París, Reuter. TVÖ stærstu verkalýðsfélög Frakklands, CGT og CFDT, hafa fordæmt fyrirhugað samstarf Volvo og Mitsubishi Motors Corp- oration í Hollandi. Verkalýðsfé- lögin krefjast þess að Renault komi í veg fyrir að af samstarf- inu geti orðið. I mörgum löndum Evrópubandalagsins hafa verið settar hömlur á innflutning jap- anskra bifreiða. Til dæmis má markaðshlutdeild japanskra bif- reiða ekki fara yfir 3% i Frakk- landi. Því er haldið fram að með samstarfinu sé Volvo að hleypa Mitsubishi bakdyramegin inn á markaði Evrópubandalagsins. Samstarfið varðar verksmiðjur Volvo Car BV í Hollandi. Volvo á 30% í verksmiðjunum og hollenska ríkið 70%. f óformlegu samkomu- lagi er gert ráð fyrir að Mitsubishi eignist þriðjung í verksmiðjunum á móti jöfnum hlut Volvo og hollenska ríkisins. Reiknað er með að samn- ingar verði undirritaðir í haust. Hin hlið málsins er sú að á síðasta ári gerðu Renault og Volvo með sér samkomulag um víðtækt samstarf. Meðal annars var samið um að Renault keypti 25% hlut í fólksbif- reiðadeild Volvo og 45% í vörubif- reiðadeildinni. Á móti eignaðist Volvo 20% hlutafjár Renault og kauprétt á 5% til viðbótar. Þeir samningar mættu á sínum tíma andstöðu frönsku verkalýðsfélag- anna. Talsmenn verkalýðsfélaganna segja að í samningi Volvo og Ren- ault séu ákvæði sem tryggja að hvorugt fyrirtækjanna geti hafið samstarf með öðrum bifreiðafram- leiðendum án samþykkis hins. Verkalýðsfélögin vilja að Renault beiti þessu neitunarvaldi til að hindra samstarf Volvo og Mitsu- bishi. Verkalýðsfélag kommúnista, CGT, telur enn fremur algjörlega óafsakanlegt að franskt fyrirtæki starfi með þessum sænska Tróju- hesti japanskra bifreiðaframleið- enda. Talsmenn Renault hafa hins vegar sagt að samkomulag Volvo og Mitsubishi sé Renault hagstætt og að ótti verkalýðsfélaganna sé ástæðulaus. inn. Á síðasta áratug jókst matar- kostnaðurinn meira en í öðrum Vestur-Evrópuríkjum og raunar um meira en nam verðbólgunni í landinu. Hvers vegna ekki fyrr? Eins og að líkum lætur eru sam- tök bænda ekki sammála Hellström, sem þau hafa sakað um bein svik, og bændur hafa mótmælt breyting- unum með ýmsum hætti. Við sænskan landbúnað starfa hins veg- ar aðeins 3% landsmanna, ræktað land svarar aðeins til 10% af flatar- máli Svíþjóðar og landbúnaðar- framleiðslan er aðeins 2% af vergri þjóðarframleiðslum Svía. Það kemur kannski mest á óvart, að landbúnaðarstefnunni skuli ekki hafa verið breytt fyrir lifandis löngu því að mikill matarkostnaður hefur kynt undir launahækkunum og verðbólgu, sem aftur hefur dregið úr samkeppnisgetu sænsks iðnaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.