Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 12
m o
'MO-RGUNBLAÐIEy <VIBSllPtIÍAWMWfiífföi -Maí^¥i
Vörusýningar
Eimskip kynnir þjónustu sína á
stærstu flutning'asýningu íEvrópu
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
EIMSKIPAFÉLAG íslands
kynnti þjónustu sína ásamt 374
öðrum fyrirtækjum á stærstu
flutningasýningu í Evrópu, sem
haldin var í apríl í Rotterdam í
Hollandi. Er þetta í þriðja sinn
sem Eimskip tekur þátt í sýning-
unni, sem hefur verið haldin ann-
að hvert ár síðan 1983. í þetta
sinn var kynnt þjónusta á öllum
hugsanlegum fiutningasviðum,
auk þess sem sýnd voru tæki til
flutninga ásamt ýmsum nýjung-
um i flutningatækni. Þá kynntu
flestar stærri hafnir í Evrópu
aðstöðu sína og þjónustu.
Sýningarbás Eimskips vakti at-
hygli fyrir tvennt. í fyrsta lagi var
básinn einfaldur og stílhreinn að
gerð og sagði allt sem þurfti að
segja um fyrirtækið. í öðru lagi
bauð Eimskip Hollendingum og
öðrum sýningargestum að taka
skák við Jóhann Hjartarson stór-
meistara.
Hollendingar hafa lengi verið
miklir áhugamenn um skákíþróttina
og taflmennska er almenn þar í
landi. Þá gafst sýningargestum og
tækifæri til að fylgjast með skák-
einvígi Jóhanns og hollenska stór-
meistarans Van der Wiel, en þeir
tefldu átta skákir. Jóhann hlaut 5‘/2
vinning, en Van der Wiel 2'/2.
SYNINGARBAS — Viðureign Jóhanns Hjartarsonar og Van der Wiel vakti mikla athygli sýning-
argesta á bás Eimskips.
Erlendur Hjaltason forstöðumað-
ur utanlandsdeildar Eimskips sagði
að meginmarkmið Eimskips með
þátttöku í sýningunni væri að
treysta sambandið við núverandi
viðskiptavini ytra og vekja athygli
á þeirri þjónustu og sérþekkingu,
sem félagið réði yfír. Hann sagði
að vera Jóhanns Hjartarsonar á
básnum hefði vakið verðskuldaða
athygli og dæmi væri þess að
áhugamenn um skák hefðu komið
langa vegu til að tefla við hann.
Eimskip hefur — á þeim þremur
sýningum sem fyrirtækið hefur tek-
ið þátt í — vakið athygli á veru
sinni á einhvern hátt. Á síðustu
sýningu, fyrir tveimur árum, heim-
sótti ungfrú alheimur, Linda Pét-
ursdóttir, básinn og vakti það mikla
athygli.
Erlendur sagði að fyrirtækið
hefði á síðustu árum þróast frá því
að vera skipafélag 0g flutningafyr-
irtæki í það að vera þjónustufyrir-
tæki. Reynt væri að markaðssetja
þá óumdeilanlegu sérstöðu sem fé-
lagið hefði í þekkingu á þjónustu
við fiskiðnað og þá sérstaklega
flutning á frystum sjávarafurðum.
Nútíma flutninga- og samskipta-
tækni gerði fyrirtækinu kleift að
sjá um og skipuleggja flutninga
langt út fyrir eigin flutningaleiðir.
Eimskip væri að keppa á alþjóðleg-
um markaði og yrði að leggja
áherslu á að standa jafnfætis keppi-
nautum sínum.
Árið 1985 opnaði Eimskipafélag-
ið skrifstofu í Rotterdam, en þar
starfa um þessir mundir 16 manns.
Forstöðumaður skrifstofunnar er
Hjörtur Hjartar.
////
UÓSRITUNAR-
VELAR
RICOH Ijósritunarvélar eru óvenju sterkar og endingargóðar.
Hannaðar með það í huga að þær geti unnið óslitið með fullum afköstum
og miklum gæðum í stórum verkefnum sem smáum.
LR 1
Lítil handhæg „þessi netta".
Góð fyrir minni fyrirtæki eða
sem aukavél. Pappírsstærð A4.
Kr. 62.850. staðgr. m/vsk
FT2260
„Vinnuhesturinn", nett og
örugg Ijósritunarvél með mikla
möguleika. T ekur stærst A3 og
minnstA6. Stækkarog
minnkar frá 50-200%.
Kr. 189.800. staðgr. m/vsk
M 5
FT3320
Góð Ijósritunarvél fyrir
meðalstór fyrirtæki og meðal
notkun. Pappírsstærð A4.
Kr. 78.973. staðgr. m/vsk
Sérstaklega hentug Ijósritunar-
vél fyrir fyrirtæki sem Ijósrita
mikið í stærðinni A4.
Ódýr í rekstri og áreiðanleg.
Kr. 109.890. staðgr. m/vsk
FT4418
FT4490
Mjög áreiðanleg Ijósritunarvél
með mjög mikla möguleika,
svo sem að Ijósrita beggja
vegna á pappfrinn.
Gífuriega afkastamikil og
áreiðanleg hágæðavél fyrir
fyrirtæki og skóla. Hraðvirk og
einföld (notkun.
Kr. 229.500. staðgr. m/vsk Kr. 299.500. staðgr. m/vsk
SKIPHOLT 17 • 105 REYKJAVÍK WW&B SlMI: 91-27333 ■ FAX 91-628622
'aco'
Tölvuráðunautar í 5 ár
Við eram með frá framathugun til lokafrágangs.
Við eram óháðir • þess vegna leita þeir kröfuhörðustu til okkar.
Leitið nánari upplýsinga!
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík
Sími: (91) 68 80 90 • Bréfsími: (91) 68 83 83
VANDIÐ MEÐFERÐ
HÚSBRÉFA
Komiö hefur í Ijós, aö nokkur misbrestur er á því,
aö frágangur á húsbréfum sé nægilega góöur hjá
ýmsum þeim aðilum, sem hafa hann með
höndum. Gildir þaö jafnt um einstaklinga sem
fjármálastofnanir. Formsatriöum er í ýmsum
tilvikum ekki fullnægt, t.d. vantar stundum
heimilisfang framseljanda og/eða dagsetningu
framsals. há.hefur borið viö, aö formlegt
umboö fylgi ekki húsbréfi þegar þaö erframselt
af öðrumen eiganda.
Af þessu tilefni skal þaö brýnt fyrir öllum þeim,
sem annast meöferö húsbréfa, þ.á.m. framsal
þeirra, aö útfylla þau til fulls og hlíta í hvívetna
ákvæöum 3. gr. reglugerðar um útgáfu á
hlutaðeigandi húsbréfaflokki. Sé húsbréf framselt,
samkvæmt umboöi, verðurformlegt umboð
aö fylgja húsbréfinu, framsali til sönnunar.
Löggiltir veröbréfasalar geta þó framselt
samkvæmt geymdu umboði, sbr. 5. gr. I. um
verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóöi, nr. 20/1989.
Reykjavík, 2. maí 1991,
[&] HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 696900