Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
-nm&r
m
□
lal
|a|
G.
□
o
o
o
o
o
iDllallDllalIöllDlIallDllDlIaHöllQllDllöllöl
Varövelsla og
meöhöndlun
Ijösmyiida
Námstefna um Ijósmyndasöfn verður haldin
á Hótel Holiday Inn, þriðjudaginn 14. maí
kl. 13.00-17.15.
Skráning til 10. maí hjá Kristínu Geirsdóttur
vs. 600814, hs. 82074, og Stefaníu Júlíus-
dóttur vs. 694542, hs. 45041.
|o|
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
IKAUP OG SALA 1
U P P L Ý S 1 N G A R
9 . M A í 19 9 1
Hlutabréf hafa hækkað um 10,3% að meðaltali frá áramótum.
Sé arður meðtalin er hækkunin frá áramótum 14,2%.
STAÐGREIÐSLA ÁR MISM. A K/SÍ% gildir.E maí | SÖLUG. HÆKK. F. ÁRAM. HÆKK. M.ARÐI
KAUP SALA V/H* INNRAV
Almenni hlutabrélasj. hl 90 4,00 1,05 1,09 3,8% 3,8%
Eignarh.íél. Alþýðub. hl. 90 4,00 1,68 1,75 4,89 1,12 31,8% 38,7%
Eignarh.lél. Iðnaðarb. hí 90 4,00 2,30 2,40 6,99 1,09 26,3% 31,6%
Eignarh.lél. Versl.b. hl. 90 4,00 1,73 1,80 8,03 1,07 28,6% 35,7%
Hf. Eimskipafélag íslands 90 3,80 5,44 5,65 16,90 1,48 6,2% 8,8%
Fjárfestingarlélag íslands hf 90 5,00 1,35 1,42 9,18 1,30 5,2% 5,2%
Flugleiðir hf. 90 3,80 2,30 2,39 10,95 1,05 3,9% 7,9%
Grandi hf. 90 4,00 2,54 | 2,65 11,84 1,69 15,3% 18,7%
Hampiðjan hf. 90 5,00 1,71 ; 1,80 13,23 0,98 0,0% 4,4%
Hlutabréfasjóðurinn hf. 90 5,00 1,58 1,66 0,3% 6,3%
íslandsbanki hf. 90 4,00 1,54 1,60 10,29 1,16 11,9% 18,9%
Olíufélagið hf. 90 4,50 5,50 5,76 16,72 1,02 0,2% 2,3%
Olíverslun íslands hf. 90 4,50 2,15 2,25 15,84 1,00 7,1% 11,9%
Sjóvá-Almennar hf. 90 4,50 6,12 6,41 55,46 3,25 0,0% 1,4%
Skagstrendingur hf. 90 3,00 4,37 4,50 4,91 1,15 16,5% 20,0%
Skeljungur hf. 90 4,50 6,02 6,30 33,85 1,23 3,4% 5,7%
Tollvörugeymslan hf. 90 3,50 1,00 1,04 50,56 0,87 2,1% 7,5%
Útgerparf. Akureyringa hf. 90 3,00 3,98 4,10 10,45 1,48 23,6% 26,3%
Áskilinn er réttur til að takmarka þá upphæð sem keypt er fyrir.
* V/H hlutfall er reiknað sem hagnaður eftir skatta deilt í markaðsvirði hlutabréfa.
* * H/H hlutfall er reiknað með því að deila hlutafé að nafnvirði upp I hagnað eftir skatta.
Hlutfallið sýnir hagnað á hverjar 100 kr. í nafnverði.
3
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3. 600 AKUREYRI S. (96) 25000
JE2
ÍTMvra <
Ríkisstofnanir
Fjármálaráðuneytið
endurskipulagt
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur verið endurskipulagt. Á vorþingi
var gerð sú breyting á lögum Stjórnarráðsins að fjárlaga- og hag-
sýslustofnun, er heyrði undir fjármálaráðherra sem sjálfstæð stofn-
un, var sameinuð fjármálaráðuneytinu. Ólafur Ragnar Grímsson,
þáverandi fjármálaráðherra, tók þá ákvörðun um að unnið skyldi
að sameiningu og endurskipulagningu á ráðuneytinu það ár. Stóð
sú vinna fram á fyrstu mánuði þessa árs og hefur árangri hennar
nú verið hrundið í framkvæmd með nýju skipulagi ráðuneytisins,
sem tók gildi í apríl sl., samkvæmt upplýsingum Magnúsar Péturs-
sonar, ráðuneytisstjóra.
Allt frá árinu 1985 hefur skipan
Stjórnarráðs íslands verið til end-
urskoðunar. Sú skoðun hefur m.a.
tekið til þeirra stjórnardeilda sem
heyra undir fjármálaráðherra og
til hlutverka annarra ráðuneyta við
gerð ijárlaga og fjármálastjórnar.
Aukin þátttaka hvers ráðuneytis í
fjárlagagerðinni og vaxandi
ábyrgð ráðherra á íjármálum sinna
ráðuneyta hafa veikt rökin fyrir
nauðsyn þess að halda ijárlaga-
og hagsýslustofnun sem sjálf-
stæðri stjórnardeild, að mati
Magnúsar.
Þá hefur það og haft áhrif, að
starfssvið ijármálaráðuneytisins
hefur eðlilega breyst nokkuð hin
síðari ár. Árið 1986 var Ríkisend-
urskoðun flutt úr ijármálaráðu-
neytinu og heyrir nú beint undir
Alþingi og Lánasýsla ríkisins var
stofnuð á sl. ári og til hennar flutt
umsjá með lántökum og skuldum
ríkissjóðs.
í febrúar 1990 fól fyrrverandi
ijármálaráðherra, Ólafur Ragnar
Grímsson, þáverandi hagsýslu-
stjóra, Magnúsi Péturssyni, að
taka við störfum ráðuneytisstjóra
fjármálaráðuneytisins og hefja
undirbúning sameiningar fjárlaga-
og hagsýslustofnunar við ráðu-
neytið og jafnframt taka hlutverk
og skipulag starfseminnar til end-
urskoðunar.
Ákveðið var að fá óháðan rekstr-
arráðgjafa er leggja skyldi á ráðin
um endurskipulagninguna og var
Tryggvi Sigurbjarnarson verk-
fræðingur fenginn til vei-ksins. Þá
áttu starfsmenn veigamikinn þátt
í endurskipulagningunni.
í aðalatriðum miðar endurskipu-
lagningin að því að færa starfsemi
ráðuneytisins í þann farveg að það
leggi aukna áherslu á stefnumótun
í ríkisfjánnálum en að ýmis dagleg
afgreiðslumál, sem fram að þessu
hafa tekið mikið af starfskröftum
ráðuneytisins, er færð til annarra
ráðuneyta og stofnana þar sem
sem þau eiga betur heima.
Skipulag ráðuneytisins
Með skiptinu ráðuneytisins í
fimm starfsskrifstofur er álitið að
ráðuneytið geti á fullnægjandi hátt
sinnt þeim málum sem undir það
falla. Þannig er ábyrgð og störfum
dreift hæfilega. Hver skrifstofa um
sig er fullburðug starfseining. Boð-
leiðir ráðherra og ráðuneytisstjóra
við skrifstofurnar og skrifstofu-
stjórana eiga með þessu móti að
gefa færi á því að innan hverrar
skrifstofu megi byggja upp faglega
færni, nægilega mikið sjálfstæði
og rétt umhverfi til þess að takast
á við krefjandi málefni.
Helstu verkefni einstakra
skrifsta verða eftirfarandi:
Tekju- og lagaskrifstofu er
ætlað það hlutverk að móta stefnu
við tekjuöflun ríkisins, vinna að
umbótum á núverandi tekjuöflun-
arkerfi, könnun nýrra leiða og
undirbúningi nýmæla. Þá verði
lögð áhersla á sérstakar athugan-
ir. Þannig er nú t.d. unð að athug-
un á skattalegri meðferð kvóta í
sjávarútvegi og landbúnaði. Eftirlit
með framkvæmd laga og reglna
um tekjuöflunina og stjórn og sam-
ræming innheimtuaðgerða er og
eitt af verkefnum skrifstofunnar.
Eins og nafnið bendir til fer skrif-
stofan með samning og túlkun laga
og reglugerða um tekjuöflun og
önnur mál lagalegs eðlis fyrir ráðu-
neytið. Samskipti við fjölþjóðlegar
stofnanir á sviðið skatta og tolla,
m.a. OECD, GATT, EFTA, EB,
Tollasamvinnuráðið o.fl. eru eðli
málsins samkvæmt allmikil. Fyrir-
ferðamest upp á síðkastið hafa
verið tolla- og viðskiptamál vegna
samningagerðar um Evrópska
efnahagssvæðið.
Snorri Olsen er starfandi skrif-
stofustjóri, en skipaður skrifstofu-
stjóri er Indriði H. Þorláksson, sem
nú er í leyfi til 1. ágúst nk. til að
gegna störfum varafulltrúa Norð-
urlanda í stjórn Alþjoðagjaldeyris-
sjóðsins í Washington. A tekju- og
lagaskrifstofunni starfa átta sér-
fræðingar auk skrifstofustjóra.
Verkefni Efnahagsskrifstofu
er einkum að fylgjast með þróun
efnahagsmála, þannig að unnt sé
að byggja áætlanir um fjármál
ríkisis á haldgóðum forsendum.
Skrifstofan vinur að stefumótun í
ríkisfjármálum í samvinnu við aðr-
ar skrifstofur. Þá gerir hún áætun
um tekjur ríkissjóðs vegna fjárlaga
á hverju ári, en einnig til lengri
tíma ásamt þvíað leggja mat á
áhrif, m.a. peningaála á ríkissjóð.
Erlent samstaf og skýrslugerð á
sviði efnahags- og ríkisfjármála
ásamt samskiptum við OECD,
EFTA, Norðurlönd o.fl. eru á verk-
efnisskrá skrifstofunnar. Skrif-
stofustjóri er Bolli Þór Bollason en
með honum starfa þrír hagfræð-
ingar.
Gjaldaskrifstofa ber ábyrgð á
gerð áætlunar um dreifingu gjalda
og lánsfjár innan ársins og hefur
eftirlit með framkvæmd flárlaga
og afkomu ríkissjóðs. Þá er hún
ábyrg fyrir eignamálum ríkisins
og hefur umsjón með framkvæmd
laga um opinberar framkvæmdir í
samvinnu við samstarfsnefnd um
opinberar framkvæmdir. Skrifstof-
an ijallar einnig um málefni at-
vinnufyrirtækja sem koma til kasta
ráðuneytisins að því er varðar
eignaraðild ríkissjóðs að slíkum
fyrirtækjum. Skrifstofustjóri er
Þórhallur Arason og er hann jafn-
framt staðgengill ráðuneytisstjóra
og ber þar með ábyrgð á daglegum
rekstri í fjarveru hans. Með honum
starfa 5 sérfræðingar.
Fjárlagaskrifstofa er ný í nú-
verandi skipulagi en hún var mynd-
uð að hluta úr fjárlaga- og hag-
sýslustofnun. Þungamiðjan í starfi
skrifstofunnar er undirbúningur
að stefnumótun um fjárlög og láns-
íjáráætlun, gerð, ritstjóm og frá-
gangur fjárlagafrumvarps og sam-
skipti við Alþingi og önnur ráðu-
neyti vegna fjárlaga og lánsfjár-
laga. Um þessar mundir vinnur
skrifstofan að sérstakri athugun á
sviði gjalda- og lánsfjái'mála og á
umbótum á fjárlaga- og áætlunar-
gerð ríkisins. Einnig er þar unnið
að greinargerð um áhrif einkavæð-
ingar. Þá mun þessi skrifstofa sjá
um að samræma umsagnir um
stjórnarfrumvörp og önnur þing-
mál sem ríkisstjórn og Alþingi leita
álits á hjá ráðuneytinu. Þá tekur
fjárlagaskrifstofan þátt í erlendu
starfi sem lýtur að fjárlagagerð
og tengdum málum. Skrifstofu-
stjóri er Halldór Árnason og starfa
með honum 8 sérfræðingar.
Starfsmannaskrifstofa hét áð-
ur Launaskrifstofa enda hefur
þessi skrifstofa fengið annað og
breytt hlutverk. Eftirleiðis er meg-
inverkefni hennar að móta stefnu
um starfsmannahald og launamál
ríksins, undirbúningur kjarasamn-
inga í samvinnu við samninga-
nefnd ríkisins, umsjón með fram-
kvæmd kjarasamninga og túlkun
þeirra. Þá heyrir einnig undir skrif-
stofuna að gera úttektir á starfs-
mannahaldi ríkisins, kjaraathug-
anir o.fl. og að undirbúa starf ráðn-
inganefndar ríkisins. Þáttur skrif-
stofunnar við stefnumótun, eftirlit
og leiðbeiningar mun eflast en lau-
nagreiðslur færast til stofnana.
Skrifstofustjóri er Birgir Guðjóns-
son.
Auk þessara skrifstofa starfar
rekstrardeild sem annast öll verk-
efni er lúta að almennum rekstri
ráðuneytisins, þ.á.m. rekstraráætl-
un fyrir ráðuneytið, starfsmanna-
hald, skjalaumsjá, póst- og
símþjónusta og útgáfuumsjón.
Deildarstjóri er Haraldur Sverris-
son.
CROiun
Lyftarar
Gæði og gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
w*
BlLDSHOFÐA 16 SIMI6724 44 TELEFAX672580