Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 15
leei íam .e flUDAQUTMMr-i lIJUHHIVTfiMT^IHZglV maAjanuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
15
FJármála- q láðherra
ráðuneytið
Meginskipulag og helstu verkefni
Magnús Pétursson
Ráðuneytisstjóri
Tekju- og laga- skrifstofa Efnahags- sknifstofa Gjalda- skrifstofa FjáPlaga- skpífstofa Stapfsmanna- skpifstofa
Stefnumótun um tekjur Efnahagsumfjöllun Gjalda- og lánsfjárdreifing Fjárlagagerð Stefnumótun, kjarasamningar
Lögfræðilegt álit Tekjuáætlun og dreifing Lánamál Lánsfjárlög Framkvæmd samninga
Tekjueftirlit Þjóðhagsstærðir Gjalda- og lánaeftirlit Fjáraukalög Launaeftirlit
Sérstakar athugunir Afkoma ríkissjóðs Opiberar framkv. og eignir Framkvæmd fjárlaga Launaafgreiðsla
Stjórnsýsla skatta og tolla Peningamál Atvinnuvegamál Rannsóknarverkefni Réttindi og skyldur
Erlent samstarf Hagrannsóknir Stjórnsýsla stofnana Umsagnir um þingmál Þjónusta og tækni
Erlent samstarf Sérstök verkefni, kjararannsóknir
Rekstpapdeild Hagsýsla
Rekstur ráöuneytis, sameiginleg þjónusta, útgáfu- og upplýsingamál, rekstrareftirlit meö stofnunum, Þróunarnefnd. Tölvumál
Tölvumolar
Holberg Másson
Hugbúnaður
fyrirfisk-
markaði
Fiskmarkaður Suðurnesja héfur
samið við Verk- og kerfisfræðistof-
una hf. og Hewlett Packard á ís-
landi um kaup á hug- og vélbúnaði
til notkunar fyrir Fiskmarkað Suð-
urnesja. Var samningur þar að lút-
andi undirritaður í byijun apríl. Um
er að ræða nýtt kerfi fyrir Fisk-
markað Suðurnesja, en fram til
þessa hafa þeir notað kerfi smíðað
af Rekstrartækni og keyrt á IBM
S/36. Nýja kerfið verður keyrt und-
ir UNIX-stýrikerfi á HP 9000-tölvu
og verður hugbúnaðurinn skrifaður
í C++. Áætlað er að umfang verks-
ins sé um 5 mannár.
Fiskmarkaður Suðurnesja, FMS,
rekur nokkra gólfmarkaði á Suður-
nesjurn, einnig selur FMS í gegnum
tölvukerfi sitt sem er beintengt
mörkuðunum. Getur FMS þannig
boðið upp fisk í Keflavík, Grindavík,
Sandgerði, Hafnarfirði, Vest-
mannaeyjum og Dalvík.
Hugmyndin með nýja kerfinu er
sú, að ekki einungis geti FMS rekið
bað sem sitt kerfi, heldur stendur
öðrum aðilum, sem hafa áhuga á
að reka fiskmarkaði, til boða að
kaupa umrætt kerfi fyrir eigin notk-
un og tæknilega er grundvöllur fyr-
ir því að tengja fiskmarkaði, sem
keyptu þennan hugbúnað, saman í
eitt stórt uppboðskerfi þannig að
hægt sé að bjóða samtímis frá mjög
mörgum stöðum og mörkuðum í
sama fisk.
Forval um
rannsóknar-
stofuhugbúnað
Stóru spítalarnir í Reykjavík, þ.e.
Borgarspítalinn, Landspítali og
Landakotsspítali, hafa í sameiningu
ákveðið að leita að hentugum hug-
búnaði fyrir rannsóknarstofur
sjúkrahúsanna. Leitað hefur verið
til nokkurra erlendra aðila um
slíkan hugbúnað. Er Hjarni hf. eini
innlendi aðilinn sem tekur þátt í
forvalinu, en nýtt kerfi fyrir minni
ransóknarstofur frá Hjarna hf. er
nú þegar í notkun hér á landi.
Verið er að leita að lausn á við-
amiklu verkefni sem tengist flókn-
um tækjabúnaði rannsóknarstofu í
meinefna- og blóðmeinafræði. Gert
er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyr-
ir fljótlega um hver fær verkefnið.
Aukning á sölu
AST-töIva
í byrjun apríl var kynning á nýj-
um tölvum frá AST hjá Einari J.
Skúlasyni hf., umboðsmanni AST á
íslandi. AST er þekkt fyrir að selja
eina af vandaðri tölvunum á PC-
markaðinum en AST-fyrirtækið
hafði áður fyrr að mestu leyti ein-
beitt sér að framleiðslu stungukorta
í PC-tölvur til samtengingar við
m.a. IBM-stórtölvur eða til að gátta
PC-net. AST hefur hin síðustu ár
farið meira yfir í framleiðslu á
PC-tölvum og er þekkt m.a. fyrir
að framleiða PC-tölvur sem mögu-
leiki er á að skipta um örgjörva í
og er þannig t.d. hægt að kaupa
20 MHz 386SX-tölvu og skipta út
1-2 árum seinna fyrir 33 eða 50
MHz 486-tölvu ef reikniþörf nota-
ndans eykst.
í samtali við Martin F. Dolney,
sölustjóra AST fyrir Norðurlönd,
kom fram að markaðshlutdeild AST
og þýðing Evrópumarkaðarins fyrir
AST hefur aukist verulega. Ekki
er um að ræða mikla aukningu í
sölu í Bandaríkjunum, en verulega
aukningu í Evrópu. AST hefur nú
um 2.500 starfsmenn og var veltan
á síðasta ári 700 milljónir Banda-
ríkjadala. Hann segir að AST ætli
sér að reyna að ná forystu á tölvu-
markaðinum með tækninýjungum
og hágæðavöru. Einnig segir hann
að AST-menn séu mjög ánægðir
með árangur Einars J. Skúlasonar
hf. í sölu á einmenningstölvum hér
á landi á síðasta ári og hafi salan
síðustu sex mánuði sl. árs þrefald-
ast miðað við fyrri part ársins og
líti vel út á þessu ári, en EJS hafi
selt yfir 300 AST-vélar á síðasta ári.
TOLVUR — í
síðasta mánuði
færði Hewlett
Packard á íslandi
Rannsóknastofnun
byggingariðnaðar-
ins tölvubúnað að
gjöf í tilefni 25 ára
afmælis stofnunar-
innar á síðasta ári.
Rannsóknastofnun-
in hefur notað HP
9000 tölvu frá árs_-
byijun 1990. Á
myndinni sést
Frosti Bergsson,
forstjóri Hewlett
Packard á Islandi,
afhenda Hákoni
Ólafssyni, forstjóra
Rannsóknastofnun-
arinnar, gjöfina.
-.1
; H//LASER;
fyrir leik,
lærdóm og störf
Laser XT/3 10 MHz
m/40MB höröum diski, VGA litaskjár
Tilboðsverð kr. 99.572 stgr.
Laser 286 AT/2X 12 MHz
3,5" drif og 45MB harður diskur
Verð frá kr. 98.730 stgr.
Laser 386 SXE 16 MHz
3,5" drif og 45MB harður diskur
Verð frá kr. 138.870 stgr.
Laser 386 25MHz og 85MB HD
Verð frá kr. 239.580 stgr.
Laser 386 33MHz og 85 MB HD
Verð frá kr. 256.950 stgr.
<2\
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780