Morgunblaðið - 09.05.1991, Side 16

Morgunblaðið - 09.05.1991, Side 16
?, a Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! tcet JAl/ .0 flUOAOUTMMll GlGAjavrjDJIOM VIÐSKIPn AIVINNULIF Wterkurog KJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Morgunblaðið/KGA SAMHERJAR — Frá vinstri eru Haraldur Karlsson, hjá Verkfræðistofu Heimis, Sveinn ívarsson og Guðmundur Gunnarsson hjá Arkitektaþjónustunni, Karl Arnarson óg Örn Arnar Ingólfsson hjá ísgraf og Heimir Þór Sverrisson hjá Verkfræðistofu Heimis. Tölvubúnaður Sambýlið hentar vel Þrjú fyrirtæki flytja starfsemina undir sama þak FYRR á þessu ári fluttu fyrirtækin Arkitektaþjónustan sf., ísgraf og Verkfræðistofa Heimis Þ. Sverrissonar í sameiginlegt húsnæði að Laugavegi 13. Fyrir stuttu var nýja húsnæðið kynnt fyrir viðskiptavin- um fyrirtækjanna. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Arkitektaþjónustunnar, hentar sambýlið þessum aðilum vel vegna ákveðinnar samvinnu þeirra á milli og samnýtingu á tækjabúnaði. Isgraf er umboðs- ogjijónustuað- ili fyrir Intergraph á íslandi, sem sérhæft er í framleiðslu á grafískum kerfum. Notendur Intergraph eru aðallega stærri stofnanir og verk- fræðiþjónustur, en Arkitektaþjónust- an sf. er enn sem komið er eina íslenska arkitektastofan sem notar slíkan tölvubúnað. Eitt af verkefnum Arkitektaþjónustunnar í dag er skipulagsvinna fyrir Reykjavíkur- borg. Heimir Þ. Sverrisson, sérhæfir sig í UNIX—hugbúnaði og vinnur mikið við uppsetningu heildarkerfa fyrir stærri stofnanir. Hann hefur m.a. hannað tölvukerfi fyrir Sjávar- útvegsráðuneytið vegna kvótans. Örn A. Ingólfsson, hjá ísgraf, sagði að til skamms tíma hefði Int- ergraph tölvubúnaður verið of dýr fyrir íslenskan markað. „Það er eitt og hálft ár frá því að við hófum inn- flutning á þessum tölvubúnaði og á þeim tíma hefur vélbúnaðurinn lækk- að til muna. Þumalfingurreglan virð- ist vera sú að á 18 mánuðum lækki vélbúnaður um helming, en hugbún- aðurinn haldi sér í verði,“ sagði Örn. Intergraph teiknikerfi má nota á einmenningstölvur og Macintosh tölvur. Guðmundur sagði að þeir hefðu fyrst hugsað sér að nota Int- ergraph á einmenningstölvu, en á þeim tíma sem leit stóð yfir að hent- ugri tölvu hefði Intergraph vélbúnað- ur lækkað það mikið í verði að ákveð- ið var að slá til. „Þessi búnaður sem við keypt'um er nokkuð fullkominn og kostaði um tvær milljónir, en lág- markskostnaður er 7-800 þúsund krónur. Það gleymist þó oft að stóra fjárfestingin er fólgin í þeirri þjálfun sem þarf til Jiess að nota svona kerfi og eins í þeim upplýsingum sem fara inn á tölvuna," sagði Guðmundur. 1 öllum Intergraph kerfum er ákveðinn grunnpakki sem nefnist Microstation 32 og er það sjálft teiknikerfið. Við hann eru tengdir sérstakir pakkar fyrir arkitektúr, burðarþolsmælingar, landupplýs- ingakerfí o.m.fl. og munu um 4.000 hugbúnaðarpakkar vera til á kerfið. Örn sagði nýjungina aðallega fólgna í því að með Intergraph væri hvert módel fullunnið á tölvuna og síðan klippt til þess að færa út mis- munandi teikningar eftir því sem við ætti hverju sinni. Ef breytinga væri þörf, t.d. vilji til að líta á ákveðið módel frá mismunandi sjónarhorn- um, þyrfti ekki að draga teikninguna upp á nýtt. Nóg væri að breyta til- teknum skipunum í tölvunni og hún reiknaði þá á skömmum tíma út nýtt sjónarhorn teikingarinnar. Int- ergraph búnaðurinn sparaði þannig mikjnn tíma og fyrirhöfn. Skipulag ríkisins, Rafmagnsveitur ríkisins, Rannsóknarstofnun land- búnaðarins og Skógrækt ríkisins eru meðal notenda Intergraph hérlendis. Að sögn Arnar hefur Intergraph fyr- irtækið boðist til þess að lána Skipu- lagi ríkisins allan þann hugbúnað sem þarf til að vinna tilraunaverk- efni um upplýsingagagnagrunn fyrir ísland, en þingsályktunartillaga þess efnis upp á 2,5 milljarða króna var samþykkt nýlega. T o r g i d Fólk Fjármálasljóri BYKO M BRYNJA Halldórsdóttir hefur verið ráðinn fjármálastjóri BYKO. Birna lauk prófi frá viðskiptafræði- deild Háskóla ís- lands árið 1981. Hún vann um nokkurra ára skeið sem ijármálastjóri Verslunarbank- ans. Þegar Is- landsbanki var stofnaður varð hún forstöðumað- ur Útibúatengsla bankans. Brynja er gift Jóni Þorbjörnssyni og eiga þau tvö börn. MFyrirrennari Brynju í starfi, Arni Arnason, hefur ekki alveg sagt skilið við BYKO, því að hann hefur nú tekið við sem stjórnar- formaður BYKO af stofnandanum Guðmundi H. Jónssyni. Sjálfur hefur Arni keypt fyrirtæki föður síns, Arvík og er kominn þar til starfa. Auglýsingafólk á framabraut MANDREA Haraldsson og Jón Örn Marinósson eru nýir yfirmenn hjá Islensku auglýsingastofunni hf. Er tilgangur þess að ráða sér- staka yfirmenn teiknistofu, hug- myndavinnu og textagerðar liður í því að styrkja og efla fagdeildir fyrirtækisins. Með þessum skipu- lagsbreytingum varð Andrea hönn- unarstjóri Islensku auglýsinga- stofunnar frá og með 1. maí sl. Andrea er fædd í Bandaríkjunum og útskrifaðist frá Smith College í Northampton í Massachusetts 1975 með BA- gt'áðu á m.a. myndlistarsviði. Hún starfaði síðan á auglýsingastofu vestra 1975-80 en stofnaði þá eigin stofu í Boston sem sérhæfði sig í bæklingum og ársskýrslum. Andrea fluttist til íslands 1987, vann á auglýsinga- stofunni Svonagerum við 1987-88 og síðar á Islensku auglýsinga- stofunni 1988-89 að hún fluttist aftur til Bandaríkjanna um tíma. Andrea er gift Eyþóri Haralds- syni, framkvæmdastjóra og eiga þau einn son. ■ JÓN Örn Marinósson var ráð- inn yfirmaður textadeildar frá sama tíma. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Islands 1974 en starfaði síðan hjá Ríkisút- varpinu næstu 15 árin, fyrst sem fréttamaður og síðan sem tónlist- arstjóri. Haustið 1989 réðst Jón Örn til starfa hjá Islensku auglýsingastofunni sem textagerðarmaður og hefur starfað þar síðan. Jón Örn er kvæntur Sigríði D. Sæmundsdóttur og eiga þau þrjú börn ■ FRÁ helsta keppinaut íslensku auglýsingastofunnar, Hvíta hús- inu berast þær fréttir að Páll Bragi Kristjóns- son sé á Jeiðinni heim frá Arósum þar sem hann var við framhaldsnám í viðskiptafræðum og mun hann taka við starfi fjármála- stjóra auglýsinga- stofunnar á ný jafnframt því sem áformað er að hann verði stjórnarformaður henn- ar. EinarBen. fékk síldartorfu í afmælisgjöf M EINAR Benediktsson fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefnd- ar varð fertugur nú í vikunni. Að því er viðskiptablaðið hefur fregnað er Einar afburða skipulagður og vill hafa allt á sínum stað. Vinir hans vildu gleðja hann og gefa honum eitthvað sem kæmi að góð- um notum í þessu skyni. Þar sem erfítt er að festa hönd á síldartorf- um létu þeir útbúa listaverk með síld á. Hvort sem síldin kemur eða fer getur Einar nú verið viss um að hann geti gengið að sinni síldar- torfu vísri! Brynia Jóii Örn Vaxfahækkunin sem lá í loftinu VAXANDI þenslumerki í efnahagslíf- inu að undanförnu hafa nú leitt til almennrar raunvaxtahækkunar sem væntanlega verður staðfest var með hækkun á vöxtum spariskír- teina ríkissjóðs í næstu viku. Reikna má með að bankar og sparisjóðir fylgi í kjölfarið og hækki sína vexti frá 21. maí. Vaxtahækkanir sem nú ganga yfir þurfa ekki að koma á óvart þegar litið er til ástands mála á peningamarkaði. Þannig hefur yfirdráttur ríkissjóðs við Seðlabanka vaxið hröðum skrefum og gjaldeyr- isstaðan rýrnað umtalsvert. Þá hef- ur þróun inn- og útlána verið óhag- stæðari en á sama tíma í fyrra og lausafjárstaða innlánsstofnana hef- ur versnað. Samhliða þessu hafa innlausnir ríkisvíxla verið meiri en sala þeirra. Útistandandi ríkisvíxlar drógust saman úr um 8 milljörðum um áramót í 5 milljarða í apríl. Sala þeirra tók hins vegar nokkurn kiþp í kjölfar vaxtahækkunarinnar nú í vikunni og hafa selst víxlar fyrir um 2 milljarða síðustu daga þannig að staðan er nú um 7 milljarðar. Þann samdrátt sem varð í ríkisvíxlum má rekja til þeirrar staðreyndar að stjórnvöld hikuðu við að bregðast við þróuninni í peningamálum fyrir kosningar og hækka vextina. Meðan ríkisvíxlar báru 11,5% forvexti voru bankavíxlar með allt að 17% for- vexti enda hefur sala þeirra siðar- nefndu verið mjög góð. Þó verður einnig að hafa í huga að lausafjár- staða bankanna sem haldið hefur upp stöðu ríkisvíxla hefur verið erfið upp á síðkastið. Ætla má að vextir af spariskírtein- um ríkissjóðs verði hækkaðir úr 6,6% í 8% og er þá miðað við svo- nefnd skiptikjör og þau kjör sem áskrifendur hafa notið. Stærri kaup- endur á borð við lífeyrissjóði munu hins vegar gera kröfu um nokkru betri kjör. Það sem af er þessu ári hafa aðeins selst spariskírteini fyrir um 1.400 milljónir og ríkisbréf fyrir um 200 milljónir. Hins vegar hafa innlausnir numið um 2,3 milljörðum og stefnir því í algjört óefni í láns- fjáröflun ríkissjóðs innanlands ef ekki verður brugðist hart við í sölu ríkisverðbréfa. Spariskírteinin eiga sér hins vegar harðan keppinaut sem eru húsbréfin en ávöxtunar- krafa þeirra var hækkuð í gær úr 8,4% í 8,5%. Ávöxtunarkrafan hefur sem kunnugt er verið að þokast upp á við undanfarna mánuði eins og á t.d. bankabréfum en vextir af þeim hafa hækkað úr 6,5% í 7% að með- altali frá áramótum. Þá fá stærri kaupendur bankabréfa álag þannig að vextir umfram verðbólgu geta numið yfir 8%. Vextir af spariskír- teinum hafa ennfremur verið að hækka á Verðbréfaþingi og nú siðast í gær hækkaði Seðlabankinn tilboðsávöxtun um 0,3% eða í 8,15%. Búast má við að ákvarðanir banka og sparisjóða um vexti verði miðað- ar við það að þær gildi fram á haus- tið. Hins vegar má reikna með að bankarnir gangi lengra en ríkið og hækki vexti um allt að 3%. Þann 1. febrúar lækkuðu vextir af óverð- tryggðum og verðtryggðum útlán- um bankanna um allt að 0,5% en Ijóst er nú að sú lækkun var vart raunhæf. Einnig er nú gert ráð fyrir heldur meiri verðbólgu en reiknað var með við síðustu vaxtaákvörðun. Því má ætla að vaxtahækkun bank- anna verði allt að 2,5-3% á óverð- tryggðum lánum. Ennfremur má búast við að allt að 3% vaxtahækk- un á verðtryggðum lánum en vaxta- breytingar banka og sparisjóða munu að líkindum taka gildi frá 21. þ.m. Draga má ýmsar ályktanir af þeirri stöðu sem nú er komin upp í peningamálum þjóðarinnar. Ljóst er vaxtahækkun á ríkfsvíxlum og spariskírteinum er óhjákvæmileg vegna stöðu ríkisfjármála. Burtséð frá því má jafnframt telja hækkunina rökrétta hagstjórnaraðgerð til að hamla gegn þenslu, hvetja til aukins sparnaðar. og stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum. KB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.