Morgunblaðið - 04.06.1991, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞRQI lfJ?ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991
B 3
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
ÍÞRÚmR
FOLK
■ FREDRICK Millichip, formað-
ur enska knattspyrnusambandsins,
verður eftirlitsmaður UEFA á leik
íslands og Tékkóslóvakíu á Laug-
ardalsvelli á miðvikudagskvöld.
Millichip kom til landsins í gær og
er þetta fyrsta heimsókn hans til
landsins.
Sprett úr spori á æfíngu í gærkvöldi. Arnór Guðjohnsen, Gunnar Gíslason, Sævar Jónsson og Hlynur Stefánsson.
Morgunblaðið/Bjami
Leikur í Keflavík:
Hólmbert
breytir
liði sínu
Lið íslands ogTékkóslóvakíu,
skipuð leikmönnum 21 árs
og yngri, mætast í Keflavík í
kvöld kl. 20. Fyrri leik liðanna
ytra sl. haust lauk með stórsigri
Tékka, 7:0, þannig að greinilega
verður við ramman reip að
draga.
„Ég veit ekkert um Tékkana,
en skilst að þetta sé eitthvert
súper-lið,“ sagði Hólmbert Frið-
jþnsson, þjálfari íslands, við
Morgunblaðið í gær. Tékkarnir
hafa sigrað örugglega ? öllum
leikjum sínum til þessa; m.a.
Fr&kka 3:1 í Frakklandi og Al-
bani 5:1 í Albaníu.
Líkur eru að einhverjar breyt-
ingar verði gerðar á liði íslands
frá því í leiknum gegn Albaníu
ytra á dögunum. Það kemur
ekki í ljós fyrr en ? dag hvort
Víkingurinn Helgi Björgvinsson
verður leikfær, en hann liefur
verið meiddur. Helgi verður aft-
asti maður ef hann leikur, og
Kristján Halldórsson, ÍR, verður
þá á miðjunni — sennilegast í
stað Arnars Grétarssonar, sem
er lítillega meiddur. Þá kemur
annað hvort Brandur Siguijóns-
son, ÍA, eða Örn Torfason; Val,
inn ? vörnina ? stað Ágústs Olafs-
sonar, Fram.
Ólafur meiddur
Óvíst hvort Ólafur Þórðarson verði með gegn Tékkum á morgun
ÓLAFUR Þórðarson, miðvallar-
leikmaðurinn sterki frá Lyn í
Noregi, er meiddur og gat ekk-
ert æft með landsliðinu í gær.
Því er enn í lausu lofti hvort
hann getur verið með í Evrópu-
leiknum gegn Tékkum í Laug-
ardalnum á morgun, en Bo Jo-
hansson, landsliðsþjálfari
sagðist reyndar seint í gær-
kvöldi, eftir að hafa ráðfært sig
við lækni landsliðsins, bjart-
sýnn á að Ólafur geti leikið.
MT
Olafur er tognaður í vöðva
framan á læri, og hefur verið
í meðferð hjá Siguijóni Sigurðs-
syni, lækni, en Bo ætlar að sjá til
fram á síðustu stundu hvort hann
verður leikfær. Segist geta bætt
Andra Marteinssyni inn í hópinn
allt fram á síðustu stundu. Hann
var með ? Albaníu, en meiddist Iítil-
lega með FH gegn KR á fimmtu-
daginn. Er þó leikfær nú.
„Ólafur meiddist fyrst í Albaníu
og lék bikarleik með Lyn á fimmtu-
dag. En þá varð hann að fara af
velli er t?u mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik. Hann er alltaf já-
kvæður, vill helst spila, en við verð-
um að bíða og sjá. Það er undir
honum komið hvort hann leikur, en
ég er bjartsýnn á að hann verði
með,“ sagði landsliðsþjálfarinn við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Atli og Arnór með
Atli Eðvaldsson, sem tók út eins
leiks bann í viðureigninni við Al-
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Ekki brotið á David
Morgunblaðið sagði á föstudag að brotið hefði verið á Valsmannin-
um Davíð Garðarssyni í leiknum gegn Víkingi á fímmtudags-
kvöld með þeim afleiðingum að Davið hefði tvibrotnað á sperrilegg.
Sjónvarpsupptaka RUV frá leiknum sýnir hins vegar greinilega að
ekki var brotið á Davíð. Hann teigði sig framhjá Víkingi í þeirri von
að ná til boltans, en í stað þess að renna á grasinu festist ökklinn í
mjúkum vellinum og sperrileggurinn gaf sig.
baníu í Tirana á dögunum, er aftur
kominn í landsliðshópinn og tekur
við fyrirliðastöðunni. Hann leikur
sem miðvörður fyrir framan Guðna
Bergsson, og því má reikna með
að Gunnar Gíslason verði hægri
bakvörður en Sævar Jónsson verði
færður yfir í stöðu vinstri bakvarð-
ar og Ólafur Kristjánsson setjist á
bekkinn. Þá er Arnór Guðjohnsen
mættur til leiks á ný og verður
næst örugglega í framlínunni ásamt
Eyjólfi Sverrissyni, í stað Antonys
Karls Gregoi-ys, sem lék í Albaniu.
Arnór meiddist í leik með Bordeaux
tveimur dögum fýrir Albaníuleikinn
og kom þv? ekki til Tirana.
LiðTékka
Eftir því sem Morgunblaðið hafði
spurnir af ? gær verða fimm breyt-
ingar á liði Tékka frá því í fyrri
leik liðanna sl. haust. Markvörður-
inn Miklosko, sem leikur með West
Ham á Englandi, stendur í markinu
— en Jen Stejskal frá QPR var í
markinu í fyrri leiknum. Aftasti
varnarmaður verður sá sami, Koc-
ian, en báðir iniðverðirnir verða
nýir, Grussman og Titel. Á miðj-
unni verða Hasek, Kubik, Kula,
Hapal og Nenec en þrír þeir fyrst-
nefndu léku gegn íslandi í haust.
Framlínumennirnir tveir verða svo
þeir sömu, Thomas Skuhravy og
Vaclav Danek.
Tékkarnir komu til landsins
si'ðari hluta dags í gær og fóru rak-
Ieiðis á Selfoss, þar sem þeir hafa
aðsetur fram að leik.
H WACSLAV Jira, formaður
tékknseka knattspyrnusambands-
ins, kom til landsins með liði sínu
í gær. Hann er einn af varaforsetum
UEFA.
■ ÓLAFUR Þórðarson gerði tvö
mörk er Lyn sigraði 3. deildarlið
Furuseth 6:0 í 1. umferð norsku
bikarkeppninnar í síðustu viku.
Ekkert var leikið í norsku knatt-
spyrnunni um helgina vegna lands-
leiks Norðmanna og Itala annað
kvöld.
■ GUNNAR Gíslason leikur að
öllum líkindum 50. landsleik sinn
gegn Tékkum annað kvöld.
■ ATLI Eðvaldsson setur vænt-
anlega nýtt landsleikjamet gegn
Tékkum. Hann leikur 68. landsleik
sinn og hefur þá bætt landsleikja-
met Marteins Geirssonar.
■ SIGURÐUR Grétarsson og
félagar ? Grasshopper gerðu
markalaust jafntefli í Lugano í
svissnesku deildinni á föstudags-
kvöidið, og Sion gerði einnig jafn-
tefli. Sigurður og félagar eru ?
efsta sæti þegar tvær umferðir eru
eftir en Sion stigi á eftir. Liðin
mætast um næstu helgi, en Sigurð-
ur verður þá í banni. Fékk þriðja
gula spjaldið sitt í leiknum í Lugano.
■ ANDRI Marteinsson úr FH er
17. maður í landsliðshópnum og
kemur inn fari svo að Ólafur Þórð-
arson nái sér ekki af meiðslunum.
■ MICHEL Platini, landsliðs-
þjálfari Frakka, og aðstoðarmaður
hans, Gerard Houllier, koma til
landsins á morgun til að fylgjast
með leiknum á Laugardalsvelli.
Næsti leikur ? riðlinum verður ein-
mitt viðureign Frakka og. Tékka
í París í haust.
■ NAPOLÍ keypti í gær franska
landsliðsmanninn Laurent Blanc
frá Montpellier fyrir 330 millj. ísl.
kr. Blanc er varnarleikmaður, sem
hefur einnig leikið á miðjunni. Hann
skrifaði undir tveggja ára samning.
■ OTTMAR Hitzfeld, þjálfari
Sigurðar Grétarssonar hjá Grass-
hopper, hefur verið ráðinn þjálfari
hjá Dortmund.
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND
Eyjólfur skoraði
með skalla í Köln
FráJóni
Halldóri
Garöarssyni
i Þýskalandi
Eyjólfur Sverrisson skoraði mark
með skalla þegar Stuttgart
vann stórsigur, 6:1, á Köln ? Köln.
Stuttgart hefur leikið tólf leiki í röð
án þess að tapa og
á félagið góða
möguleika á að
tryggja sér UEFA-
sæti. Matthias
Sammer, sem átti stórleik með
Stuttgart, hefur skrifað undir nýjan
samning við félagið - til 1994,
þannig að hann fer ekki til Inter
Mílanó.
Ásgeir Sigui-vinsson var einnig í
sviðsljósinu í Köln. Hann lék forleik
með úrvalsliði S-Þýskalands gegn
N-Þýskalandi. Margir gamalkunnir
kappar léku og jauk leiknum með
öruggum sigri Ásgeirs og félaga,
5:1.
Kaisreslautern er svo gott sem
búið að tryggja sér meistaratitilinn.
Félagið vann í Bremen, 2:1, á sama
tíma og Bayern Múnchen tapaði,
2:3, fyrir Wattenscheid. Kaisers-
lautern er með fjögurra stiga for-
skot á Bayern þegar tvær umferðir
eru eftir. Fögnuður Kaiserslaut-
ern-manna var mikill í Bremen. Svo
mikill að einn leikmaðurinn, Thom-
as Dooley, gleymdist, þegar liðið
hélt út á flugvöllinn í Bremen.
Stuðningsmaður Kaiserslautern
brást skjótt við og ók Dooley út á
flugvöll, þannig að hann rétt náði
flugvélinni sem leikmenn félagsins
fóru með.
Karl-Heinz Feldkamp, þjálfari
Kaiserslautem, hélt upp á 57 ára
afmælisdag sinn á laugardaginn,
en hann er elsti þjálfarinn í úrvals-
deildinni. Þjálfari Wattenscheid,
Hannes Bongartz, er fyrrum leik-
maður Kaiserslautern. Uli Höness,
framkvæmdastjóri Bayern og Jupp
Heynckes, þjálfari félagsins, játuðu
sig sigraða eftir tapið gegn Watt-
enscheid og óskuðu Kaisterslautern
til hamingju með meistaratitlinn.
Kaisterslautern leikur næst gegn
Möncnengladbach heima og s?ðan
gegn Köln á útivelli.
41 þús. áhorfendur fögnuðu þeg-
ar Schalke tryggði sér sæti ? úrvals-
deildinni á laugardaginn.
BOSS
OpnaGR-mótið ló.júní