Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 8
NBA-DEILDIN
iÞRÓntR
:ssí»
HANDKNATTLEIKUR / /SPANN
íslendingamir kvöddu
á sannfeerandi háll
FJÓRMENNINGARNIR Kristján
Arason, Alfreð Gíslason, Sig-
urður Sveinsson og Geir
Sveinsson kvöddu spænska
handboltann um helgina og eru
á heimleið. Þeir léku allir vel
með félögum sínum í lokaum-
ferðinni og fögnuðu hver á sinn
hátt.
Kristján gerði 7/1 mörk fyrir
Teka á útivelii í 24:16 sigri
gegn Alicante. Þar með varð Teka
í 2. sæti með 26 stig og tryggði
sér þátttökurétt í Evrópukeppni
meistaraliða með Barcelona, sem
sigraði í keppninni á dögunum og
varð spænskur meistari með 30
stig.
Taldi dagana
Kristján var mjög ánægður að
leik loknum. „Það er mjög þægileg
tilfínning að vera loksins kominn í
frí. Eg var farinn að telja dagana
og nú getur maður farið afslappað-
ur í golf! Annars var mikilvægt að
ná öðru sætinu miðað við það sem
á undan hafði gengið og ég er
ánægður með gengi liðsins og eigin
frammistöðu að undanförnu. En nú
eru viss kaflaskipti. Löngum ferli
erlendis er lokið og næst er að und-
irbúa nýtt tímabil með FH.“
Kristján verður kvaddur sérstak-
lega á næstu dögum. Bæði ætlar
félagið að halda honum kveðjuhóf
og stuðningsmenn liðsins annað.
Hann hefur lengi verið meiddur á
öxl og sagðist ætla að taka sér
gott frí, en láta reyna á öxlina
seínna í sumar. Hún væri mjög stíf
og viðkvæm, en útlitið væri gott
og vonandi yrði hann orðinn góður
í haust.
Alfreð fékk bronsið
Alfreð gerði 210 mörk í 1. deild
á Spáni og varð 3. markahæsti leik-
maður mótsins. Ilann var með 6/4
mörk í síðasta leiknum, þegar Bida-
soa vann Caja Madríd 24:22. Bida-
soa fékk 24 stig og varð í 4. sæti,
en sigraði í bikarkeppninni í vetur
og verður með í Evrópukeppni bik-
arhafa.
„Það er undarleg tilfinning að
vera að fara frá þessu, en það er
kominn tími til að fara að gera eitt-
hvað heima,“ sagði Alfreð við Morg-
unblaðið, en hann var kvaddur sérs-
taklega í matarveislu, þar sem
nokkur þúsund gestir voru mættir.
Sigurður gerði 11 mörk
Sigurður gerði 11 mörk í 26:23
sigri Atlétícó Madríd gegn Geir
Sveinsson og samheijum í Granoll-
ers. Atléticó fékk 25. stig og varð
í 3. sæti, en komst ekki í Evrópu-
keppni — Valencia fer í Evrópu-
keppni félagsliða.
„Þetta gekk ágætlega, en sigur-
inn skipti í raun litlu máli,“ sagði
Sigurður.
Geir lék einnig vel og gerði 3
mörk fyrir Granollers. „Þetta var
kveðjuleikurinn, allavega í bili,“
sagði Geir.
„ '.- %
.Æmx
Kristján Arason er á heimleið til að þjálfa og leika með FH eftir árangursríka atvinnumennsku erlendis. „Ég var
farinn að telja dagana og nú getur maður farið afslappaður í golf!“
Pat Riley
Riley
þjáliar
NewYork
PAT Riley var á föstudag ráðinn
þjálfari New York Knicks. Hann
fær 6 milljónir dollara fyrir
fimm ára samning.
Riley hefur starfað hjá NBC
sjónvarpinu frá því hann hætti
sem þjálfari Los Angeles Lakers.
Hann sagði í samtali við fréttamenn
að hann saknaði
Frá þess að fá ekki að
Gunnari stjóma liði og því
Valgeirssyni hafi hann ákveðið
i Bandarikiunum , TT
að soðla um. Hann
sagði það skilyrði fyrir ráðningu
sinni að New York myndi ekki selja
Patrick Ewing.
Riley var þjálfari Los Angeles
Lakers í níu ár og stýrði liðinu til
sigur í NBA-deildinni 1982, 1985,
1987 og 1988 og var útnefndur
þjálfari NBA-deildarinnar 1990.
Hann hefur náð bestum árangri
allra þjálfara í NBA-deildinni.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Perkins tryggði Lakers sigur
Fyrsta tap Chicago á heimavelli í yfirstandandi úrslitakeppni
LOS Angeles Lakers vann
Chicago Bulls 91:93 í fyrsta
leik liðanna í úrslitum um
NBA-titilinn í Chicago á sunnu-
dagskvöld. Sam Perkins
tryggði sigur Lakers með
þriggja stiga körfu þegar 14
sekúndur voru eftir. Þetta var
jafnframt fyrsta tap Chicago í
úrslitakeppninni á heimavelli.
Leikurinn var hnífjafn frá upp-
hafi til enda. Til marks um það
SPJOTKAST
skiptust liðin á um að hafa forystu
26 sinnum og í 14 skipti var jafnt.
Chicago hafði yfir í
leikhléi, 53:52.
Lakers náði sér vel
á strik í þriðja leik-
hluta og var yfir,
68:75.
í byijun þriðja leikhluta var
Magic Johnson hvíldur í 2 mínútur
og á meðan skoraði Chicago 10
stig. Lokasekúndurnar voru æsi-
spennandi. Þegar mínúta var til
Gunnar
Valgeirsson
skrifarfré
Bandaríkjunum
leiksloka hafði Chicago yfír, 91:89.
Sam Perkins gerði þriggja stiga
körfu fyrir Lakers þegar 14 sek.
voru eftir, 91:92. Michael Jordan
átti möguleika á að vinna leikinn
er 5 sek. voru eftir, en knötturinn
dansaði á körfuhringnum en fór
ekki ofaní. Lakers náði frákastinu
og fékk síðan vítaskot er brotið var
á Byron Scott. Hann skoraði úr
síðara skotinu og sigur Lakers í
höfn, 91:93.
Michael Jordan var stigahæstur
í liði Chicago með 36 stig. Sam
Perkins var stighæstur í liði Lakers
með 22 stig. Magic Johnson lék
mjög vel, gerði 19 stig, tók 9 frá-
köst og átti 10 stoðsendingar.
Næsti leikur liðanna fer fram í
Chicago aðfarnótt fimmtudags, en
síðan verða þrír leikir í Los Ange-
les. Það lið sem fyrr vinnur fjóra
leiki verður meistari.
Raty bætti heims-
metið um tæp-
lega fimm metra
S 8 9
FINNSKI spjótkastarinn Seppo Ráty
bætti heimsmetið í spjótkasti karla
um tæpa fimm metra á litlu móti í
Punkalaidun í Finnlandi á sunnu-
dag.
Ráty kastaði spjótinu 96,96 metra,
en eldra metið, sem hann átti sjálf-
ur, var 91,98 metrar. Það met setti hann
á móti í Japan í síðasta mánuði. Rigning
var og hliðaivindur er hann setti metið
19 35 i 1
í fimmta kasti sínu.
Ráty, sem er heimsmeistari frá 1987
og bronsverðlaunahafi frá Ólympíuleik-
unum í Seoul 1988, vareini spjótkastar-
inn á heimsmælikvarða sem tók þátt í
mótinu. Hann er fyrsti Finninn til að
bæta cigið heimsmet í meira en 21 ár.
Hann bætti heimsmet Steve Backleys
(90,98 m) í Japan og nú bætti hann það
aftur. Ráty virðist því til alls líklegur í
sumar.
Þróun heimsmeta í spjótkasti
(Kastlengd í .metrum, nafn, þjóðemi og dagur):
86.04 86.74 A1 Cantello (Bandar.) 5.6.59 1.6.61
87.12 Teije Pcderson (Noregi) 1.7.64
91.72 l’edcrson 2.9.64
91.98 ■lania busis (Sovétnkin)
92.70 Jorma Kinnunen (Kinnlandi) 18.6.69
93.80 Luais 6.7,72
94.08 Klaus Wolfermann (V-Þýskal.) 5.5.73
94.58 Miklos Nemcth (Ungvctjalandi) 26.7.76
96.72 Fcrene Paragi (Úngvcri'alandi)
99.72 Tom Pctranoff (Bandar.)
. 15.5.83104.80 Uwe Hohn (A-býskal.) 20.7.84
■Spjótinu breytt 1986.
85.74 Kiaus Tafclmcier (V-Þvskal.) 22.9.86
87.66 Jan Zeleznv (Tékkósl.)
89.10 Patrik Boden (Svlþjóð) 24.3.90
89.58 Stcvc Backlcy (Bretlandi) 2.7.90
89.66 Zeieány
90.98 Backleý
91.98 Seppo Riity (Finnlandi) 6.5.91
96.96 Raty