Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 11
teei iviúi sr h'joagutmmi'-i 1IJUHK!TO\ITiÍIH2ö1V gigjuIií/uoho'
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
B 11
Tölvuiðnaður
Stjómarformaður JBMles
starfsmönnum pistilinn
Hvað er til ráða?
Akers sagði í áðurnefndri
ræðu að eftir að hafa beitt einni
aðferð í sex ár væri kominn tími
til að reyna aðra. Reyndar má segja
að Akers hafi þegar gert svo mikið
á þessum sex árum að svigrúm til
frekari aðgerða sé takmarkað. Frá
1985 hefur starfsmönnum fækkað
um 47.000 án þess að komið hafi
til uppsagna. Svo margir hafa verið
færðir til í starfi að því er haldið
fram að annað eins hafí ekki átt
sér stað í Bandaríkjunum frá því
hermenn sneru heim úr seinni
heimsstyijöld. Jafnframt hefur fyr-
irtækið sett nýjar vörur á markað.
Akers sagðist sjálfur ekki sjá mögu-
leika á frekari sölu eigna. í mars
síðastliðnum var gengið frá sölu
BRENT Henderson deildarstjóri sótti nýlega námskeið fyrir stjórn-
endur IBM. Forstjóri og stjórnarformaður IBM, John Akers, flutti
yfir þeim skammarræðu og byijaði á að kvarta undan því að stjórn-
endur kæmu orðum hans ekki áleiðis til undirmanna sinna. Hender-
son tók þetta svo bókstaflega að hann skrifaði ræðuna niður og
dreifði henni síðan með tölvu'pósli um fyrirtækið. Þaðan barst ræð-
an til fjölmiðla og varð tilefni mikilla skrifa um stöðu og stefnu IBM.
Opinberlega hefur John Akers
kennt almennum efnahagssam-
drætti um erfiðleika IBM. Innan-
dyra skellir hann hins vegar skuld-
inni á starfsmenn, ef marka má
Henderson. Akers sparaði ekki
stóru orðin þegar hann sakaði
starfsmenn um værukærð og sof-
andahátt á sama tíma og fyrirtæk-
ið tapaði mörkuðum. Hann sagði
að veruleg íjölgun sölumanna í
Bandaríkjunum á síðustu fjórum
áram hefði nánast engu skilað.
Starfsmenn í verksmiðjum og á
rannsóknarstofum fengu það líka
óþvegið fyrir að framleiða óvandað-
ar vörur og geta ekki haldið sig
' innan tímamarka. Formaðurinn
hvatti stjórnendur til að bregða
svipunni á loft og reka þá starfs-
menn sem minnstu afkasta.
Venjulega heyrir ekki til stórtíð-
inda að forstjóri skammi undirmenn
sína og hóti uppsögnum. Um fyrir-
tækið, sem leiðir bandarískan tölvu-
iðnað inn í 21. öldina, gegnir öðru
máli. Margar bækur hafa verið rit-
aðar um velgengni IBM og stjómun
þess hefur þótt til fyrirmyndar.
Velgengnin hefur meðal annars
verið skýrð með föðurlegri um-
hyggju fyrir starfsmönnum. Stefna
IBM hefur verið sú að segja engum
upp þótt illa ári enda hefur fyrir-
tækið ævinlega endurheimt fyrri
styrk.
Hvað er að?
Ádrepa Akers þarf hins vegar
ekki að koma neinum á óvart og
kunnugir segja að hann hafi gefið
tóninn fyrir hálfu ári. Hlutur IBM
á heimsmarkaði var 37% árið 1983
en er nú kominn niður í um 23%.
Frammistaðan í Japan og Evrópu
hefur valdið sérstökum vonbrigð-
um. Sérfræðingar reikna með að
hagnaður fyrirtækisins minnki um
þriðjung á yfirstandandi ári og
hlutabréf IBM þykja ekki lengur
örugg fjárfesting. Þessu vill Akers
breyta áður en hann lætur af störf-
um vegna aldurs eftir hálft fjórða
ár.
Sérfræðingar eru sammála um
að vandi IBM nái langt út fyrir al-
mennan efnahagssamdrátt og kalli
á gagngera endurskipulagningu.
IBM leggur höfuðáherslu á að veita
viðskiptavinum góða þjónustu og
fyrir það hafa kaupendur mátt
borga í hærra vöruverði. En nú
hefur sú breyting orðið á mörkuðum
að notendur kjósa fremur einfaldan
og staðlaðan tölvubúnað sem ekki
krefst þess að framleiðandinn haldi
stöðugt í höndina á þeim. IBM get-
ur einfaldlega ekki lengur selt
tölvubúnað fyrir hærra verð en aðr-
ir og því þarf að minnka kostnað
og auka framleiðni. Akers vill koma
í veg fyrir að bandarískur tölvuiðn-
aður sofi yfir sig eins og kom fyrir
bæði stáliðnað og bifreiðaiðnað.
Sennilega er hann þakklátur Brent
Henderson fyrir að setja vekjara-
klukkuna opinberlega af stað.
þeirra deilda sem fram-
leiða ritvélar, leysi-
prentara og skrifstofu-
búnað.
Síðustu aðgerðir í
starfsmannamálum
hafa ekki verið annað
en fínstilling. Eftirlaun-
areglum var nýiega
breytt í þeim tilgangi
að hvetja starfsmenn til
að hætta fyrr. Þá hefur
starfsmönnum verið
gert að taka allt upp-
safnað sumarfrí áður en
þeir hætta í stað þess
að fá það greitt. Fjöld-
auppsagnir myndu líka
mæta verulegri and-
stöðu innan fyrirtækis-
ins enda gengju þær
þvert á stjórnunarhefð.
Viðbrögð starfsmanna við ummæl-
um Akers hafa heldur ekki látið á
sér standa. Haft var eftir einum
þeirra að orsök vandans væri skri-
fræði og seinagangur í æðstu
stjóm. Sérfræðingar hafa líka lagt
til aukna valddreifingu og sjálf-
stæðari rekstrareiningar sem geti
Fjöldi starfsmanna IBM í þús-
undum.
Markaðshlutdeild IBM á
heimsvísu. Um er að ræða vél-
búnað, hugbúnað og^ þjónustu
við notendur.
40%c
30%I
20%:
1074
I I I I I
I I I I I
I I I I I
I I I I I
‘13 ‘84 '85 ‘88 ‘87 ‘88 ‘89 ‘90 ‘91*
Heimild: Gartner Group
Vöni
sýningar
eruokkarlag
Höfum umboð fyrir allar
helstu vörusýningar í Evrópu
og víðar.
Lóttu okku sjó um ferðina
fyrir jjig hvert ó land sem er.
Hjó okkur finnur þú fagfólkið.
iimmsiiiii
brugðist hraðar við breytingum og
aðgerðum keppinauta. Annar
starfsmaður hélt því fram að Akers
bæri sjálfum að axla ábyrgðina og
segja af sér. Menn bíða því spennt-
ir eftir framhaldi þessa máls.
Heimild: Newsweek, The Wall
Street Journal.
-VIÐSKIPTAÞJONUSTA
Austurstræti 17
Símar 622011 & 622200
Bestir í alþjóðlegum sportfatnaði
SÆVAR KARL &. SYNIR
Kringlunni, sími 689988
/ FYRSTA SÆTI
ÞRJUARIROÐ
í FÖÐURLANDIJEPPANNA ERU MENN EKKIIVAFA!
í þ rjú ár í róð hefur hið heimsþekkta bllablað FOUR WHEELER
metið að bestu og hagkvœmustu kaupin í 5 dyra jeppum séu í
isuzu Trooper, af 10 sem blaðið prófaði.
Isuzu Trooper er nú mest seldi erlendi jeppinn í Bandaríkjunum.
Reynslan afþessum bll hérlendis er frábœr, enda koma hingað
bílablaðamenn frá mörgum löndum Evrópu tll þess að prófa hann I
umhverfi sem á við hann.
Isuzu Trooper er ekki bara
góðs fólksbíls.
jeppi, hann hefur líka alla eiginleika
Komdu með r/ilskylduna meðþét
tilokkarogreynsluaktuþessum
frábœra bll. sem menn meta
svo mlklls í fððurtandl jeppannal
Verð á þessum frábœru bílum er aðeins frá 2.075.000 kr.
fyrir 5 dyra bíl (staðgreiðsluverð).
BÚNAÐUR ER MEÐAL ANNARS:
Zilogllðha allmlkll og spameytm bensínvH með belnnl irmspýltngv eða2,8l
100 ha díselvél með lorþjðppu og belnnl innspftlngu • AHslýit • ARhemlar
með lœsingavara • Framdrttslokur • Tregðulœslng á atturdritl • Samlœslng
óhuröum • Raldrítnar rúðuvindui • Sporlfelgui • Rafhltuð framsœtl
• Otvarp með segutbandi • Hðþtystpvottur fyrir aðaHjós • Dagljósabúnaður.
NÚ EINNIG FÁANLEGIR SJÁLFSKIPTIR
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ.
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN.
G®9
HÖFÐABAKKA9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300