Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 12

Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991 r-r \ ir. ", ; rm Mynt Til umræðu að gengi krónunnar verði skráð oftar á hveijum degi Fjallað um tengingu krónunnar við ECU á fundi Verslunarráðsins SÖLUAÐILAR: E. TH. MATHIESEN HF. PENNINN SF„ HALLARMÚLA 2 E.TH. MATHIESEN HF. BÆJARHRAUN110 ■ HAFNARFIRÐI - SÍMI651000 TENGING íslensku krónunnar við Evrópumyntina, ECU, er forsenda þess að ná megi stöðugleika og aga í hagstjórn hér á landi. Þessi var niðurstaða Ólafs Davíðssonar framkvæmdastjóra Félags íslenskra iðn- rekenda og Vilhjálms Egilssonar alþingismanns í framsöguerindum þeirra á morgunverðarfundi Verslunarráðsins á miðvikudag. Birgir Isleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri sagði að til greina kæmi að hefja tíðari gengisskráningu krónunnar síðar á þessu ári. Gengi er nú skráð einu sinni á dag,‘ en yrði skráð þrisvar eða oftar samkvæmt þeim til- lögum sem hafa verið til umræðu. Ólafur og Vilhjálmur voru sam- mála um að stefna bæri að því að gengi íslensku krónunnar réðist af framboði og eftirspurn á gjaldeyri innanlands. Hlutverk Seðlabanka yrði að halda gengi krónunnar föstu innan viðmiðunarmarka, með kaup- um og sölu á gjaldeyri. Birgir tók að nokkru undir þeirra orð, en vildi fara hægar í sakirnar og kanna málið betur. Hann kvaðst ekki hafa gert upp hug sinn um tengingu krón- unnar við Evrópumyntina. Tenging krónunnar við ECU fæli í sér að stjórnvöld afsöluðu sér rétti til gengisbreytinga. Fijálsir ijár- magnsflutningar myndu einnig valda því að vextir hér á landi yrðu þeir sömu og meðal grannþjóða. Stjórn peningamála yrði að miða að því að tryggja fastgengið, með stöð- HLUTABREF HLUTABREF I SÆPLASTl HF. LOKSINS FÁANLEG AFTUR í okt í fýrra sáum við um útboð á hlutabréfum Sæplast hf. og voru bréfin seld á genginu 6,85 og seldust upp. Eigendur þessara bréfa hafa fengið um 23% hækkun á eign sína (að meðtöldum 15% arði og 10% jöfnun) frá þessum tíma. Þess má geta að lánskjaravísitalan hefur hækkað um 6% á sama tímabili. Upplýsingar um hlutabréf Bankar Ehf. Alþýðubankans hf. 1.62 1,70 1,56 1,09 21,03% 10% 5.88% 10,0% 1.359 Ehf. Iðnaðarbankans hf. 2,33 2,43 2,02 1,20 12,94% 10% 4,12% 9,4% 2.029 Ehf. Verslunarbankans hf. 1,70 1,79 1,44 1.25 10,73% 10% 5,59% 16,6% 1.572 Islandsbanki hf. 1,62 1.70 1,38 1,23 9,15% 10% 5,88% 0% 4.896 Samgöngufyrirtæki ^FIugleiðir hf. 2,37 2,48 2.24 l.ll 8,65% 10% 4,03% 10.0% 4.637 Hf. Eimskipafélag Islands 5.57 5.84 3.82 1,53 5.72% 15% 2,57% 10.0% 5.959 Framleiðslufýrirtæki Hampiðjan hfy 1,82 1,91 1,84 1,04 7,13% 8% 4,19% 0% 563 ► Sæplast hf. 7,20 7,51 4,49 1,67 18,76% 15% 2,00% 10,0% 314 Hlutabréfasjóðir ^Auðlind hf. 1,01 1,06 n r T T Á S K R Á 0% 244 ► Hlutabréfasjóðunnn hf. 1.61 1.69 1.47 1.15 12.68% 12% 7,10% 10,0% 651 Olíufélög Olíufélogið hf. 5.55 5,78 6,05 0.96 6,38% 15% 2,60% 20,0% 3.255 ► Ölíuverslun Islands hf. 2,15 2,25 2,28 0,99 6,36% 10% 4,44% 0% 1.497 Skeljungur hf. 6,02 6,30 5.13 1,23 ■ 2,96% 15% 2,38% 10,0% 2.441 Útgerðarfyrirtæki Grandi hf. 2,57 2,7 0 1.56 1.73 8,29% 10% 3,70% 0% 2.295 Skagstrendingur hf. 4,25 4,46 3.91 U4 20,52% 15% 3,36% 10,0% 459 Útgerðarfélag Akureyringa hf. 4,26 4,41 2,78 1,61 8,78% 10% 2,24% 10,0% 2,114 Annað •1,74 ^Ármannsfell hf. 2.35 2,45 U4 1,40 6,82% 10 4,08% 0% 319 Fróði h f. 0,95 1,00 1.97 0,87 3,71% 0 0% 0% 146 Sjóvá-Almennar hf. 6.1 6,4 1,20 3,25 1,81% 10 1,56% 10,0% 1.478 ► Tollvörugeymslan hf. 1.00 1.05 1.66 0,87 1,98% 6 5.71% 10.0% 153 ^Þróunarfélag íslands hf. 1,64 1,74 1,05 -6,60% 0 0% 0% 600 ► Þessi hlutabréf eru til sölu hjá Kaupþingi hf. Skýringar á hugtökum: Eigið fé I. Innra virði = —77;------— Hlutafé Virði hlutabréfa skv. bókfærðri eign fyrirtækisins sl. áramót Sölugengi 2-<?-w= lnnravirði £f stærra en I, þá metur markaðurinn hlutabréfm meira en bókfært virði segir til um sI. áramót Hagnaður Markaðsvirði 3. HIV - hlutfall Sú prósenta sem rekstur félagsins skilar hluthöfum miðað við núverandi gildí bréfanna. KAUPÞING HF Kringlunni 5, sími 689080 ugleika í hagkerfinu og viðskiptum þess við útlönd. Svíþjóð, Finnland og Noregur hafa nýlega tengst evrópska mynt- samstarfinu einhliða, með það í huga að gerast fullgildir aðilar. Hugsanleg tenging íslensku krónunnar við ECU yrði af öðrum toga, þar sem hún fæli ekki í sér neinar skuldbindingar gagnvart öðrum þjóðum. Gengi krónunnar yrði einfaldlega miðað við aðra myntkörfu en í dag og munar þar mestu um brottfall dollars og yens. Við það ykist nokkuð áhætta í viðskiptum sem fara fram í myntum utan Evrópu. Ólafur sagði að gjarnan væri var- að við því að stíga svo afdrifaríkt skref í gengismálum, fyrr en náðst hefði meiri stöðugleiki í efnahagslíf- inu. Það gæti hinsvegar orðið bið á því að slík staða kæmi upp. Með því að slá breytingunni á frest væri einn- ig fórnað þeim ábata sem fælist í gengisfestu og aga í stjórn peninga- og ríkisfjármála. Iðntæknistofnun KYNNINGARRIT — Iðntæknistofnun hefur gefíð út kynningarrit um starfsemi hinna ýmsu deilda stofnunarinn- ar þar sem lýst er á skipulegan hátt þeirri þjónustu sem hver rekstareining býður viðskipta- vinum sínum. I ritinu er einnig að finna rekstrartölur Iðntækni- stofnunar frá síðasta ári. Þá eru þar talin upp fjölmörg fyrirtæki sem áttu umtalsverð viðskipti við stofnunina á síðasta ári og kemur fram að fjöldi viðskipta- vina var þá á annað þúsund. Auglýsingar Hvar eru mörkin á milli frumleika og smekkleysu ? Benetton gagnrýnt fyrir að ganga of langt og telja að tilgangurinn helgi meðalið ítalska fyrirtækið Benetton leggur jafnan upp í auglýsingaherferð síðla vetrar og á vorin og það var engin undantekning á því að þessu sinni. Auglýsingarnar frá Benetton þykja hins vegar dálitið sér á báti því að áherslan er alls ekki á vöruna frá fyrirtækinu, fatnaðinn, heldur á það, sem „máli skiptir“ á hverjum tíma, til dæmis á einhver samfélagsmálefni, og oft þykja þær ögrandi og stundum í meira lagi vafasamar. Sem dæmi um stef í auglýsingum Benettons má nefna kynþáttamálin (United Colors of Benetton) þar sem böm af ýmsu þjóðerni og litarhætti sameinast í einu faðmlagi og að sjálfsögðu í fötum frá fyrirtækinu. I nýjustu auglýsingunum virðist innihaldið hins vegar ekkert eiga sameiginlegt með söluvörunni. Hér er einkum um að ræða tvær auglýsingar. Sýnir önnur her- mannagr^freit þar sem hafsjór af hvítum krossum og tvær Davíðs- stjörnur senda frá sér friðarboðskap og var aðallega birt þegar loftárás- ir bandamanna á Irak stóðu sem hæst en hin, opnuauglýsing, sýnir marglita smokka reyna að blása lífi í baráttuna gegn alnæminu. Þar eru líka fimm Gosa-fígúrur, sem hafa ýmislegt að athuga við „steinrunna samfélagshætti“ vorra tíma. Dregin til baka Síðamefnda auglýsingin móðg- aði svo sem engan en það gegndi öðru máli um þá fyrrnefndu. Hún var afturkölluð þegar Samband ít- alskra auglýsingastofa bannaði hana. Luciano Benetton og hinn kunni Ijósmyndari hans, Oliviero Toscani, afsökuðu sig með því, að auglýsingin hefði verið gerð löngu áður en Persaflóastríðið braust út. Smokkaauglýsingin er enn í gangi þótt mörg blöð í Evrópu og næstum öll þau bandarísku neiti að birta hana og enginn hefur reynt að hindra, að ókeypis smokkum sé úthlutað í Benetton-verslununum beggja vegna Atlantshafs. Allt fyrir athyglina Þeir, sem harðast hafa gagnrýnt Benetton-auglýsingarnar, segja, að tilgangurinn með þeim sé sá einn að fá ókeypis umtal og umfjöllun í fjölmiðlum. Luciano Benetton neit- ar því að sjálfsögðu. í viðtali við ítalska blaðið La Republica sagði hann, að upplýsingaflóðið í ijölmiðl- um væri svo mikið, að fólk kæmist ekki yfir það. Það blaðaði í gegnum blöð og tímarit án þess að taka eftir auglýsingunum og fyrirtæki eins og Benetton, sem auglýsti fyr- ir fjóra milljarða ísk. á ári, hefði ekki efni á slíkum lúxus. Meginreglan hjá Benetton er sem sagt sú, að auglýsingin verði að vekja athygli og í öðru lagi á hún að snúast um einhver samfélags- mál, umhverfisvernd eða það, sem er í brennidepli hveiju sinni. Lífsstíllinn skiptir meira máli en vörugæðin Það hefur vissulega tekist að gefa Benetton-vörunum ákveðna ímynd og sjálf vörugæðin skipta minna máli í því sambandi. Margir kaupa Benetton-vörumar með sama hugarfari og Coca Cola, það er hluti af lífsstílnum og það er svo ekkert nýtt við það. í ævisögu sinni, „Ég og bræður mínir: Saga um velgengi“, segir Benetton, að auglýsingar með börn- um af ýmsum litarhætti hafi verið notaðar fyrst 1985 og þá til að leggja áherslu á, að fyrirtækið seldi litríkar vörur og væri alþjóðlegt. Síðar var farið að gæla við stef eins og lýðræði og jafnrétti. í nýjustu auglýsingunum frá Benetton er komið inn á eldfimari efni, ýmis átakamál í samfélaginu, og sú spurning hlýtur að vakna hvar mörkin séu á milli þess, sem er viðeigandi, og kaupskaparins. Eða með öðrum orðum, hvenær verða auglýsingar frá Benetton beinlínis ósmekklegar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.