Morgunblaðið - 13.06.1991, Side 16

Morgunblaðið - 13.06.1991, Side 16
XJöfóar til XX fólks í öllum starfsgreinum! Fólk Kögun hf. íLos Angeles og Rockville ■ KÖGUN hf. hefur undanfarna mánuði verið að auka við starfsemi fyrirtækisins í Bandaríkjunum. Fyrirtækið er nú með starfsemi bæði í Los Angeles í Kaliforníu og í Rockville í Maryland. Eftir- taldir starfsmenn hafa undanfarið verið ráðnir til starfa til viðbótar við þá er áður voru farnir utan. ■ KARL B. Mýrdal verkfræðing- ur er fæddur 2.4. 1954. Hann lauk stúdentsprófi frá Fertile-Beltr- ami High Scho- ol í Minnesota í Bandaríkjunum árið 1972, en hefur verið bú- settur í Þýska- landi frá 1974 og stundaði þar nám í útvarps- og fjarskiptatækni á árunum 1975-78. Síðan var hann í eitt ár við iðnskól- mn í Verden an der Allen og í framhaldi af því við tækniskólann t Bremen. Karl lauk þaðan verk- fræðiprófi sem „Diplom-Ingenieur" í september 1982. Árin 1982-86 starfaði hann hjá flugvélaverk- itniðjunum Dornier System GmbH í Friedrichshafen. Frá ár- inu 1986-90 starfaði hann við þróun vél- og hugbúnaðar hjá Krupp -\tlas Elektronik í Bremen. Karl mun vinna á fjarskiptasviði Kögun- ir hf. og verða staðsettur næstu tvö árin í Rockville, Maryland. Karl á þrjú börn. fl STEINDÓR KristjÁnsson raf- magns- og tölvu- verkfræðingur sr fæddur 15.7. 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðisviði Menntaskólans á ísafirði árið 1977. Árið 1977-78 nam íiann stærðfræði jg tölvufræði við University of Oregon í Bandaríkjunum og lauk iíðan BS gráðu í rafmagns- og ölvuverkfræði við Oregon State University árið 1980. Á árunum Álafoss PRÁTT fyrir ítrekaða og rausnar- lega aðstoð hins opinbera við Ála- foss virðast fyrirtækinu nú öll sund lokuð. Til þessa hefur því verið haldið á lofti í umræðu um Álafoss að fyrirtækið sé kjölfesta ullariðn- aðar í landinu. Nyti þess ekki við /rði ekki spunnið band úr lopa í 'andinu og bændur sætu uppi með /annýtt hráefni. Það er því vert að gefa gaum þeirri fullyrðingu Ernst rtemmingsen hagfræðings sem sett er fram í nýjasta tölublaði i/ísbendingar, að eina von íslensks ullariðnaðar sé að Álafoss verði lagt niður í núverandi mynd. Þegar rætt er um opinbera að- stoð við fyrirtæki bregða menn gjarnan fyrir sig þeirri röksemd að þau veiti atvinnu og skapi auknar tekjur fyrir þjóðarbúið. Álafoss virðist uppfylla hvorugt skilyrðið. Álafoss skuldar landsmönnum um 760 milljónir króna sem fyrir- tækið hefur fengið að láni á liðnum tveimur árum. Þetta eru um VIÐSKIFTIAIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991 Wterkurog k_/ hagkvæmur auglýsingamiðill! 1980-82 stundaði Steindór nám í Columbia University Graduate School of Business í Bandaríkjun- um og lauk þaðan MBA prófi á sviði „Information Systems" og „Finance/Accounting". Hann var starfsmaður Microtölvunnar hf. á árunum 1982-88. Frá árinu 1989 var Steindór starfsmaður Hjama hf. Hann hóf störf hjá Kögun í janúar sl. og fiuttist til Los Angeles í febrú- ar. ■ TÓMAS Gíslason tölvuverk- fræðingur er fæddur 28.11. 1964 og lauk stúdentsprófi af eðlisfræðibraut MH árið 1984. Hann hóf nám í verkfræði við Washington University í St. Louis 1984 og lauk þaðan BS prófum í rafmagns- verkfræði og tölvunarfræði 1987. Tómas var starfsmaður Verk- og kerfisfræðistofunnar sumarið 1986 og svo frá námslokum 1987 þar til hann réðst til Kögunar í mars sl. Tómas er staðsettur í Los Angeles. Hann er kvæntur Sig- þrúði Erlu Arnardóttur og eiga þau tvær dætur. ■ EINAR BRAGI Indriðason raf- magns- og tölvu- tæknifræðingur er fæddur 7.5. 1959. Hann lauk loftskeytamanna- prófi 1978, einn- ig raungreina- deildarprófi frá Tækniskóla ís- lands 1981. Á árunum 1982-86 Einar Bragi nam hann rafmagnstæknifræði við Ingeniörhöjskolen Aarhus Tekn- ikum í Danmörku og lauk þaðan BS gráðu í rafmagns- og tölvunar- fræðum. Á árunum 1978-89 starf- aði Einar sem loftskeytamaður í afleysingum hjá m.a. Hafrann- sóknarstofnun, Reykjavíkur- radíó og Siglufjarðarradíó. Að loknu námi var hann deildarstjóri hjá Milog Data a/s í Árósum á árunum 1986-89. Frá sumri 1989-90 starfaði Einar Bragi sem sjálfstæður verktaki í Danmörku og vann áfram að verkefnum fyrir iðnfyrirtæki. Einar Bragi hóf störf hjá Kögun 15. febrúar sl. og flutt- ist til Los Angeles í apríl. Hann er kvæntur Þóru Elínu Helgadótt- ur arkitekt og eiga þau tvö börn. ■ SIGURÐUR ÓMAR Sigurðs- son tölvunar- fræðingur er fæddur 17.7. 1957 og lauk stúdentsprófi af náttúrufræði- skori Mennta- skólans við Sund vorið 1978. Hann hóf nám í tölvunar- fræði við California State Uni- versity Chico haustið 1981 og lauk þaðan BS prófi vorið 1985 og MS prófí ári síðar. Omar var starfs- maður SKÝRR á árunum 1979-81 og Verkfræðistofunnar Strengs hluta árs 1984. Að námi loknu hóf hann störf hjá Tæknideild IBM 1986-90 við þjónustu og bilana- greiningu stýrikerfa. Haustið 1990 réðst Onjar til starfa hjá söludeild Einars J. Skúlasonar hf. Ómar fluttist til Los Angeles í mars sl. Hann er kvæntur Ágústu Hreins- dóttur hárgreiðslumeistara og eiga þau fjögur börn. ■ JÓN ARNI Bragason vélaverk- og tölvunarfræð- ingur er fæddur 8.9. 1960. Árið 1983-84 var hann nemi í HI . Að því loknu hélt hann til Bandaríkanna og stundaði nám við Florida Int- ernational Uni- versity, Miami, frá hausti 1984-87. Þaðan lauk hann BS gráðu í véla- verkfræði og tölvunarfræði. MS gráðu í vélaverkfræði lauk Jón Arni síðan frá University of Miami árið 1990. Með námi var hann aðstoðarmaður við rannsóknir og kennslu við vélaverkfræðideildir Florida International University og University of Miami. Frá vori 1989 hefur hann starfað við rann- sóknir og kennslu við vélaverk- fræðideild Florida International University. Jón Árni hóf störf hjá Kögun í janúar sl. og er hann stað- settur í Los Angeles. Hann er kvæntur Elísabetu Einarsdóttur og eiga þau þijú börn. ð ■ BJARNI Birgisson tölvunar- fræðingur er fæddur 9.12. 1964. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Sund vorið 1984 og BS prófi í tölvun: arfræðum frá HÍ vorið 1987. í maí 1990 lauk Bjarni Bjarni námi við Indiana Univers- ity, Bloomington, Indiana í Bandarikjunum, með MS gráðu í tölvunarfræðum. Á árunum 1986- 88 vann hann sem undirverk- taki fyrir Tölvumyndir hf. Hann starfaði sem kerfisfræðingur/forrit- ari hjá Reiknistofu bankanna 1987- 88. Hann var forstöðumaður upplýsingamiðstöðvar kerfissviðs hjá Reiknisstofu bankanna í Reykjavík frá maí 1990 og þar til hann hóf störf hjá Kögun hf. í jan- úar sl. Bjarni er staðsettur í'Los Angeles og er kvæntur Hrefnu Bjarnadóttur tölvunarfræðingi, þau eiga eitt barn. ■ BALDUR Pálsson er fæddur 4.7. 1951. Hann lauk f stúdents- prófi frá MH árið 1971. Hann stundaði nám í sálfræði við Há- skóla Islands veturinn 1971-72 Á árun- um 1972-75 var hann við nám í Aston University í Birmingham á Englandi í „Communication Sci- ence & Linguistics" og lauk B.Sc. with Honours 3rd. árið 1975. Bald- ur lagði stund á forngrísku og l_atínu við guðfræðideild Háskóla ísiands 1987-89. Auk þess hefur hann lokið fjölda námskeiða í tölvu- tækni og forritun. Baldur vann sem kerfisfræðingur hjá SKÝRR frá árinu 1975-77 og hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð frá 1977-80. A árinu 1980 réðst hann til Sparisjóðs Keflavíkur sem kerfisfræðingur og starfaði þar, allt þar til hann hóf störf hjá Kögun í mars sl. Frá 1985 hefur Baidur einnig unnið við tölvudeild Orðabókar Háskóla Is- lands. Auk þess sem hann kenndi um tíma viðskiptalega forritun við HÍ. Baldur er staðsettur í Los JónÁrni Baldur er dragbítur á ullariðnað 15.000 krónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Þessir peningar eru nú uppurnir. Eigið fé fyrirtækisins er neikvætt um 600 milljónir króna. Fyrirtækið hefur tapað hátt á þriðja milljarð króna á þremur árum. Fjármunum sem hefðu getað borið arð í höndum annarra hefur verið sóað í rekstri sem rýrir þjóðartekjur í stað þess að auka þær. í annan stað blasir við að rekst- ur Álafoss í núverandi mynd trygg- ir ekki atvinnu 400 starfsmanna til frambúðar. Markaðir fyrir hefð- bundnar ullarvörur á Vesturlönd- um hafa hrunið. Fyrirtækið reiðir sig nú á samninga við Sovétmenn, sem kaupa tæpan helming fram- leiðslunnar. Þetta eru ótrygg og áhættusöm viðskipti. Á síðasta ári voru um tveir þriðju hlutar við- skipta Álafoss við Sovétmenn í líki vöruskipta. Til þess að koma fram- leiðslu sinni í verð þurfti fyrirtækið að taka við eplaþykkni, hunangi, stígvélum, haglabyssum og nagla- efni svo fátt eitt sé nefnt. Erfiðleikar ullariðnaðar hafa bitnað á aðilum um allt land á undanförnum árum. Á síðasta ári varð einn umsvifamesti útflytjandi á þessu sviði, Hilda, gjaldþrota. Heit^ má að markaður fyrir hefð- bundnar islenskar ullarvörur sé nú bundinn við sölu til ferðamanna sem heimsækja ísland og granna okkar á öðrum Norðurlöndum. Prjóna- og saumastofur á land- inu eru nú 13 en voru fjórfalt fleiri fyrir sex árum. Þessar stofur hafa þreytt þorrann og góuna. Hér eru um að ræða smá og sveigjanleg fyrirtæki sem bera ekki þær þungu byrðar sem riðið hafa Álafossi að fullu. Óhjákvæmilegur fylgifiskur ríkis- afskipta í atvinnulífi er að draga úr samkeppni. Einkaaðilar sem þurfa að borga vexti af fé og bera ábyrgð á eigin ákvörðunum geta ekki til langframa keppt við ríkis- styrktar verksmiðjur. Þegar við bætist að fyrirtækjum á opinberu framfæri er leyft að sökkva æ dýpra í skuldafenið, er verið að vinna atvinnugreininni mikið ógagn. í skýrslu sem lögð var fyrir ríkis- stjórn á síðasta vori um stöðu Ála- foss kemur glögglega fram að nýt- ing fjármuna í fyrirtækinu var langtum verri en hjá keppinautum þess. Til þess að ná sömu nýtingu fastafjármuna hjá Álafossi og öðr- um fyrirtækjum í ullariðnaði hefði þurft að minnka fjármunastofninn um helming. Um aðrar kennitölur úr rekstri, á borð við veltu birgða og viðskiptakrafna gegnir sama máli. Þetta er aðeins ein vísbending af mörgum um að einkaaðilar hafa náð betri árangri við erfiðar að- stæður í þessari grein, en hið opin- bera. Ef Álafoss verður gjaldþrota Angeles og kvæntur Sigurbjörgu Ottesen, þau eiga tvö böm. Fjármálastjóri SH Verktaka ■ HELGI Lárusson hefur verið ráðinn fjármálastjóri SH Verktaka. Helgi er fæddur 16.4.1960. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1980 og stund- aði nám í viðskiptadeild Háskóla Islands. Þaðan útskrifaðist Helgi sem viðskiptafræðingur árið 1986. Þá starfaði Helgi í Hagsýsludeild Sambandsins árin 1986-1987. Á árunum 1987-90 var Helgi fjár- málastjóri Félagsstofnunar stúd- enta. Frá lok ársins 1990 til 1. maí var haiin deildarstjóri Hagdeildar hjá Olís. Helgi er kvæntur Hólmf- ríði Haraldsdóttur og eiga þau tvö börn. Markaðssijóri SL ■ Helgi Pétursson hefur verið ráðinn markaðs- stjóri Sam- vinnu- ferða/Landsýn- ar. Hann mun sjá um markaðs- og kynningarmál ferðaskrifstof- unnar. Helgi er kennari að mennt og lauk BA prófi í fjölmiðlun frá The Amer- ican University árið 1983. Hann hefur starfað við fjölmiðlun hér á landi frá árinu 1975, á dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi. Textagerð en ekki dagskrár- gerð ■ STEFÁN Jökulsson gekk um mánaðarmótin til liðs við AUK hf. - Auglýsingastofu Kristínar eins og skýrt var frá hér í blaðinu. Þar var hins vegar sagt að hann væri dagskrárgerðarmaður hjá AUK, en hið rétta er að sjáifsögðu að hann mun starfa þar sem texta- og hug- myndasmiður. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. er engin ástæða til þess að óttast að einkaaðilar muni ekki sjá sér hag í því að yfirtaka þann hlgta af starfsemi fyrirtækisins sem get- ur borið arð. Ernst Hemmingsen segir í áður- nefndri grein að í framtíðinni hljóti íslenskur ullariðnaður að byggja á litlum einkafyrirtækjum. Ef ríkis- styrkjum við Álafoss verði haldið áfram muni þau fyrirtæki sem enn tóra lúta í lægra haldi. Ný ríkisstjórn hefur það markm- ið að draga úr opinberum umsvif- um, með niðurskurði og einkavæð- ingu. Álafoss er líklega eitt ský- rasta dæmi um skipbrot þeirrar stefnu er rekin hefur verið í at- vinnumálum landsbyggðarinnar á undanförnum árum. Aukin aðstoð eða aðrar aðgerðir til björgunar yrðu hvorki fyrirtækinu, atvinnu- greininni eða þjóðinni til hagsbóta. BS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.