Morgunblaðið - 02.07.1991, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.07.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. JULI 1991 B 5 KNATTSPYRNA / 1. DEILD Eyjamenn fyrstir til að sigra Blika Enn gerðu Vestmannaeyingar út um leik á síðustu mínútunum EYJAMENN eru enn við sama heygarðshornið og náðu að snúa leik sér í vil á lokamínútunum, voru undir 1 -2 þegar áttatíu mínút- ur voru liðnar af leiknum en unnu samt 3-2. „Þetta sýnir bara karakterinn í liðinu að ná að vinna þetta upp og sigra, þetta færir okkur nær því sem við viljum vera, toppi deildarinnar. Leik- ir okkar eru samt allt of kaflaskiptir. Ef við náum að laga það getum við gert góða hluti," sagði Lúðvík Bergvinsson eftir leik- inn, en þetta var fyrsti leikur hans með ÍBV si'ðan 1987. Sigfús Gunnar Guðmundsson skrifarfrá Eyjum Leikurinn fór fram í nokkrum vindi og léku heimamenn undan honum í fyrri hálfleik. Þeir höfðu frumkvæðið framan af og Bergur Ágústsson átti tvö góð færi. Skallaði framhjá úr fyrra færinu og skaut yfir úr því seinna. Eyja- menn komust yfir á 15. mínútu þegar Arnljótur Davíðsson gerði þriðja mark sitt á tímabilinu. Blikar komust hægt og sígandi inn í leikinn og Rögnvaldur Rögn- valdsson átti skot rétt framhjá og hættulegasta færi þeirra í hálfleikn- um átti síðan Grétar Steindórsson, en Þorsteinn markvörður varði koll- spymu hans vel. Eyjamenn notuðu of mikið af löngum útspörkum frá marki sínu undan vindinum og gafst það illa enda er það ekki þeirra leikstíll. Blikar virtust ætla að apa eftir þeim þegar þeir léku undan vindinum í síðari hálfleik en hættu því þó fljót- lega. Bæði lið reyndu frekar að leika boltanum með jörðinni og þá fóru hlutirnir að gerast. Markakóngurinn Steindór Elíson jafnaði metin á 59. mínútu og ann- 1B Hlynur Stefánsson ■ w sendi knöttinn fyrir markið, Leifur Geir Hafsteins- son skallaði aftur fyrir sig á Arnljót Davíðsson, sem klippti boltann skemmtilega í mark- homið ijær á 15. mín. ■fl B Hilmar Sighvatsson I ■ I tók aukaspyrnu hægra megin við vítateiginn. Hann sendi yfir teiginn á Grétar Steindórsson sem lagði boltann fyrir markið á Steindór Eiíson og markahæsti maður 1. deild- arinnar afgreiddi hann í markið af stuttu færi á 59. mín. 1 ■ 2 langa sendingu inná vítateig ÍBV. Þorsteinn mark- vörður Gunnarsson hljóp út úr markinu en Sigurjón Kristj- ánsson náði að skalla aftur fyr- ir sig, yfir Þorstein og í markið. Þetta gerðist á 71. mín. 2b 0% Lúðvík Bergvinsson ■ mm og Martin Eyjólfsson léku skemmtilega saman inn í vítateig á 80. mín. og það end- aði samleikurinn með því að Martin lagði boltann snyrtilega fyrir fætur Lúðvíks, sem þrum- aði knettinum í bláhornið. 3b ^ Lúðvík Bergvinsson ■ mm sendi á Hlyn Stefáns- son, sem braust upp að enda- mörkunum hægi-a megin þaðan sem hann sendi boltann laglega fyrir á Leif Geir Hafsteinsson sem skallaði í netið af stuttu færi. Þetta var á 86. mín. ar markahrókur Blika, Sigutjón Kristjánsson, kom þeim yfir á 71. mínútu. Siguijón var nýkominn inná sem varamaður. Eyjamenn vöknuðu aftur til lífsins og á áttugustu mínútu náði Lúðvík að jafna og sex mínútum síðar skoraði Leifur Geir Hafsteins- son sigurmarkið með skalla, en hann skoraði einnig sigurmarkið gegn Blikum síðast þegar liðin átt- ust við, þá í 2. deild. Það mark kom seint í leiknum og fleytti Eyjamönn- um upp í 1. deild. Eftir þetta reyndu Blikar örvænt- ingarfullt að jafna og minnstu mun- aði þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma að það tækist. Grétar fékk boltan utan teigs og skaut þrumuskoti í þverslá og yfir. „Það hlaut að koma að því að við töpuðum. Eg bjóst aldrei við að við færum taplausir í gegnum mót- ið og fyrst við þurftum að tapa vildi ég helst tapa í leik sem er svona jafn og fjörugur og mikið um tæki- færi á báða bóga,“ sagði Hörður Hilmarsson þjálfari UBK eftir leik- Morgunblaðið/KGA Sigurður Guðmundsson, markvörður Stjörnunnar, sem leysti Jón Otta Jónsson af hólmi í gær, horfir á eftir boltanum í netið eftir skot Heimis Guðjónssonar. Sigurður átti alla möguleika á að veija, en hélt ekki knettinum. Heppnin gengin í lið með KR-ingum MEISTARAHEPPNIN gekk til liðs við KR-inga í gærkvöldi er þeir fengu Stjörnuna í heimsókn. Liðin skildu jöfn, 1:1, og geta KR-ing- ar þakkað markvörðunum — Ólafi Gottskálkssyni, sem varði hvað eftir annað meistaralega, og Sigurði Guðmundssyni, sem fékk á sig hroðalegt klaufamark — að þeir fengu annað stigið. „Mínir menn voru einfaldlega slakir, en ég kann enga skýringu á því. Við vorum heppnir að fá annað stigið. Það vantaði ein- hvern neista í liðið — þetta var engin spilamennska," sagði Guðni Kjartansson, þjálfari KR, eftir leikinn og er óhætt að taka heilshugar undir þau orð. Skapti Hallgrímsson skrifar Þijá burðarása vantaði í Stjörnuliðið; markvörðinn Jón Otta Jónsson og varnarmennina Birgi Sigfússon og Zoran Coguije. Þeir voru allir í leik- banni og sá grunur læddist að manni í byrjun leiks að Vest- urbæingar ættu ekki von á að Stjörnumenn yrðu þeim erfið hindrun, en það fór held- ur betur á annan veg. Leikurinn var óyggjandi sönnun þess að ekk- ert er öruggt í knattspyrnunni. Frumkvæðið var Stjörnunnar í fyrri hálfleik, liðið skapaði sér góð færi, en klaufaskapur leikmanna liðsins ’ og frábær frammistaða Ólafs í KR-markinu kom I veg fyrir að heimamenn væru undir er blásið var til leikhlés. Hinum megin átti Heimir að vísu gott skot sem sleikti þverslána og Sigurður varði einu sinni vel frá Ragnari, en hættulegu færin voru Stjörnumanna. Þór Ómar, Valdimar, Lárus, Ingólfur ógnuðu allir. Besta færið fékk Lár- us — stóð á markteig eftir að Ólaf- ur varði fast skot Valdimars — en hitti ekki markið. Ódýrt mark KR-ingar hófu seinni hálfleikinn af miklum krafti, sóttu nánast lát- laust en færin létu á sér standa. En svo kom markið, upp úr engu. Heimir skoraði með föstu skoti utan teigs. Sigurður markvörður missti knöttinn í netið. Þrátt fyrir griðarlegt áfall neit- uðu Garðbæingar að gefast upp og jöfnuðu aðeins tíu mín. síðár, er Sveinbjörn Hákonarson átti sann- kallaðan þi-umufleyg upp í þaknetið 1m Heimir Guðjónsson ■ W átti þrumuskot að marki utan vítateigs á 68. mín. Engin hætta virtist þó á ferðum, Sigurður markvörður henti sér fyrir boltann — en það var engu líkara en hendur hans gaJfu eft- ir, og boltinn lak í netið. ■| H aj| Ingólfur Ingólfsson vann boltann af harð- fylgi af Gunnari Skúlasyni skammt utan vítateigs á 79. mín., renndi inn í teig hægra megin á Rúnar Sigmundsson, sem var nýlega kominn inn á sem varamaður. Rúnar renndi laglega til baka út í teiginn þar sem Sveinbjörn Hákonarson kom aðvífandi og hamraði knöttinn með hægra fæti upp í þaknetið. Glæsilega gert. hjá Ólafi. Gjörsamlega óverjandi. Strax í næstu sókn munaði minnstu að Stjarnan skoraði aftur. Kristinn átti glæsilega fyrirgjöf frá vinstri, Valdimar kastaði sér fram og skallaði knöttinn en hann fór hárfínt framhjá. KR-ingar voru meira með bolt- ann í seinni hálfleik en sköpuðu sér ekki hættuleg færi. Liðið var langt frá sínu besta; boltinn gekk þokka- lega úti á velli en þegar nær dró vítateig andstæðinganna rann flest út í sandinn. Stjörnumenn vissu greinilega að þeir ættu erfitt verk- efni fyrir höndum án þriggja mikil- vægra manna, en þeir börðust vel, léku skynsamlega og geta — þegar upp er staðið — nagað sig í handar- börkin að hafa ekki farið á brott með öll þrjú stigin úr Frostaskjól- inu. „Ég held að þetta hafi verið sann- gjarnt þegar á heildina er litið. Við vorum mun sterkari í fyrri hálfleik en þeir bytjuðu af miklum krafti eftir hlé. Ég hef trú á þessu hjá okkur og hef alltáf haft. Þetta var gott til að fá sjálfstraustið aftur — við hefðum auðvitað viljað fá öll stigin þrjú en ég er sáttur við þetta,“ sagði Sveinbjörn Hákonar- son, Stjörnunni, og bað um að fá að hrósa dómaranum — „Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem ég heyri leikmenn ekki nöldra í dómafanum. Mér finnst Eyjólfur eiga hrós skilið. Hann stóð sig frá- bærlega.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.