Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ iÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
B 9
KNATTSPYRNA / SHELLMOTTÝS
„Spældur ad geta
ekki komið aftur“
- sagði Sveinbjörn Á. Sveinbjörnsson
úrGróttu besti markvörður mótsins
Eg er að koma hingað í fyrsta
skipti og þetta er búið að vera
rosalega gaman, það kom mér rosa-
lega á óvart að vera valinn besti
markmaðurinn, bjóst alls ekki við
því en ég er mjög ánægður með
þetta, sagði Sveinbjörn A. Svein-
björnsson besti markvörður móts-
ins.
„Ég er samt spældur að geta
ekki komið aftur því > næst fer ég
upp í 5. flokk. Uppáhaldsmarkmað-
urinn minn er Ólafur Gottskálksson
KR-ingur og ég ætla að reyna að
vera jafn góður og hann þegar ég
verð stór,“ sagði Sveinbjörn kampa-
kátur að loknu þessu móti.
mælisqjöfin
- sagði Daníel ÓmarFrímannsson,
ÍBK, besti varnarmaður mótsins
Eips og Sveinbjörn er Daníel
Ómar Frímannsson að koma
í fyrsta skipti á Shell-mót og hann
tók það með trompi og var valinn
besti varnarmaðurinn.
„Mér kom ekki til hugar að ég
yrði fyrir valinu, þetta var alveg
frábært, ég verð 10 ára næsta
laugardag og þetta var alveg ör-
ugglega besta afmælisgjöf sem
ég gat fengið. Mig hefur alltaf
langað til að vera í vörninni,
skemmtilegra að verjast sóknar-
mönnum andstæðinganna heldur
en að vera í sókninni. Það var
toppurinn á þessu móti fyrir mig
að vera valinn besti varnarmaður-
inn.“
Ekki bara knattspyrna! Morgunbiaðið/s.G.G.
Það var ýmislegt gert annað en að leika knattspyrnu á mótinu. Hér er einn
ungu knattspyraumannanna að reyna að troða sér í gegnum bíldekk.
Þeir bestu!
Morgunblaðið/S.G.G.
Frá vinstri: Sveinbjörn Á. Sveinbjörnsson, besti markvörður mótsins, Daði Guðmundsson, besti leikmaður mótsins og
Daníel Ómar Frímannsson, besti varnannaður mótsins. Með þeim er Hermann Gunnarsson, sem var kynnir á úrslita-
leikjunum og afhenti verðlaun.
Markahæstir
Arnar Sigurðsson, UBK.................... 19
Gunnbjöm Sigfússon, FH....................17
Snorri Steinn Guðjónsson, Vai.............17
SigurðurL. Jóhannesson, Fylki ............16
Gunnar D. Ólafsson, Stjörnunni............14
Arnar Sigurðsson úr Breiðabliki varð markakóng-
ur mótsins. Hér er hann með þá 19 bolta sem hann
kom í netið hjá andstæðingnum.
„Átti aldrei von á að fá
svona mörg verðlaun"
- sagði Daði Guðmundsson,
besti leikmaðurShell-mótsins
DAÐI Guðmundsson besti leikmaður Shellmótsins
sem var að koma í annað sinn á þetta mót var
valinn besti leikmaður mótsins af þjálfurum, þótti
leika geysivel og vera útsjónarsamur leikmaður,
félagar hans hjá Fram sögðust aldrei hafa verið
í vafa með að hann yrði valinn, en Daði sagði að
honum hefði komið þetta mjög á óvart og hann
hefði ekki búist við þessu, en innst inni var hann
að vonast eftir þessu og sú ósk hans rættist.
ÆT
Eg vil þakka þetta hvað það eru góðir strákar í liðinu
með mér og svo höfum við mjög góðan þjálfara.
Þegar ég var að mæta í þetta mót núna átti ég aldrei von
á að fá svona mörg verðlaun," en Daði var með 4 verð-
launapeninga hangandi um hálsinn og bikarinn fyrir að
vera valinn besti maður mótsins, en einnig vann Fram-lið-
ið í innanhússfótboltanum, þar sem Daði var fyrirliði og
fékk það eignar- og farandbikar.
„Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt rétt einsog
í fyrra,“ sagði Daði.
Morgunblaðifi/S.G.G.
Pressulið Shellmótsins skipuðu eftirtaldir: Markverðir: Markús Máni Mikaelsson, Val og
Þórhallur Ólafsson, KR. Aðrir leikmenn: Gunnar H. Þoivaldsson, Þór Ve., Björn Viðar Ásbjörns-
son, Fylki, Andri Már Helgason, UBK, Þórður Halldprsson, Þór Ak., Hafþór Theodórsson, Fram,
Sævar Gunnarsson, ÍBK, Jónas Þór Guðmundsson, ÍK, Guðmundur Bjarnason, Grindavík, Valur
Úlfarsson, Vikingi og Sveinn Stefánsson, IÍA.
Morgunblaðið/S.G.G.
Landslið Shellmótsins skipuðu eftirtaldir: Markverðir: Sveinbjörn Á. Sveinbjörnsson, Gróttú
og Viðar Guðmundsson, ÍR. Aðrir leikmenn: Daði Guðmundsson, Fram, Arnar Sigurðsson, UBK,
Elvar L. Guðjónsson, Val, Guðjón Ingi Hafliðason, Fylki, Magnús Már Lúðvíksson, KR, Gunn-
björn Sigfússon, FH, Atli Sævarsson, Stjörnunni, Unnar Hólm Ólafsson, Týr, Pétur Georg Mark-
an, Víkingi og Daníel Ómar Frímannsson, ÍBK.