Morgunblaðið - 14.07.1991, Side 4
G
4 C
leei LIUL-.t-I íiUUAUJWHUfc UKIAJJIVlUUHOM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991
John Gotti er skugga-
filiö ameríska
draumsins: götustrák-
urinn sem varð tor-
eftir Huga Ólafsson
JOHN Gotti titlar sig sem pípulagna- og rennilásasölumann í New
York. Það er þó á allra vitorði að hann er foringi Gambino-fjölskyld-
unnar, stærstu glæpasamtáka Bandaríkjanna. Hann hefur þrisvar
verið handtekinn í foringjatíð sinni — og þrisvar verið sýknaður
vegna ónógra sannana. Nú bíður hann enn einu sinni réttarhalda
og að þessu sinni telja yfirvöld sig hafa sterkari gögn í höndunum
en áður. Eitt helsta tromp þeirra er Philip Leonetti, háttsettur Mafíu-
félagi frá Fíladelfíu, sem rauf þagnareið Mafíunnar og hefur komið
ófáum félögum sínum á bak við rimlana með vitnisburði sínum.
afían í Bandaríkjunum er nú alls
staðar á undanhaldi nema ef vera
skyldi á hvíta tjaldinu. Því fer þó
fjarri að hundrað ára sögu hennar
sé lokið. Mafían telur ennþá yfir tvö
þúsund innvígða félaga í tuttugu
og fjórum „fjölskyldum" — eins og
einstök félög eru kölluð — og hefur
þúsundir annarra á sínum snærum.
Velta hennar hefur verið áætluð
allt að 30 milljörðum dollara.
Mafían hefur alltaf verið öflugust
í New York borg, þar sem fimm
íjölskyldur skipta með sér verkum
og láta að auki að sér kveða víðs
vegar í norðausturríkjunum og jafn-
vel í Kaliforníu. Stærst þeirra er
Gambino-fjölskyldan, sem er um
fimm hundruð manna fyrirtæki sem
fæst við fjárkúgun, fjárhættuspil,
innheimtu „verndargjalda", eitur-
lyfjasmygl og aðra skylda starf-
semi; eiginlega flest annað en pípu-
lagnir og rennilásasölu.
Glæstur frami í undirheimum
John Gotti fæddist árið 1940 á
Manhattan, sonur fátækra innflytj-
enda frá Suður-Ítalíu. Hann var
skapbráður slagsmálahundur og
byijaði ungur á þeim leik að veifa
hnífum framan í jafnaldra sína til
að innheimta „verndargjald" af
þeim. Hann þótti greindur, en hætti
skólagöngu sextán ára gamall. Þá
var hann orðinn foringi götustráka-
klíku og hafði reglulega samband
við Mafíuna í hverfinu til að ganga
úr skugga um að fólk sem hann
vildi hrella, eða búðir sem hann
hugðist hnupla frá, væru ekki und-
ir vemdarvæng hennar. Sautján ára
var hann fyrst handtekinn fyrir lík-
amsárás.
Allur „starfsferill" Gottis hefur
verið röngu megin við lögin. Hann
kom víða við í undirheimum New
York áður en hann gekk til liðs við
glæpaklíku sem fékkst við skipu-
lagðan bílaþjófnað og var undir
stjóm Carlos Gambinos, helsta
Mafíuforingja borgarinnar. Þar
vann hann sér gott nafn, þar sem
hann hafði góða skipulagshæfileika
og var ófeiminn við að ganga í
skrokk á fólki sem yfirboðurunum
var illa við. Hann þokaðist upp á
við í mannvirðingastiganum og var
viðriðinn okuriánastarfsemi, veð-
mang, fjárkúgun og dreifingu á
ólöglegum klámmyndum, svo nokk-
uð sé talið. Hann fékk nasasjón af
samtaka Bandaríkj-
anna. Nú vonast yfir-
völð til aö geta kom-
ið honum bak við lás
og slá meðhjálp
morðingia, sem rauf
hagnareið Mafíunnar.
Lík Pauls Castellanos liggur á gangstétt fyrir framan veitingastað á Manhattan.
eiturlyfjaheiminum þegar Gambino
setti á laggirnar „sikileysku leiðina"
til að taka við „frönsku leiðinni“
(sem einhveijir kannast kannski við
úr kvikmyndinni „The French
Connection" með Gene Hackman)
í heróínsmygli.
Þrátt fyrir mannkosti sína og góð
kynni af hinni ijölbreyttu starfsemi
Mafíunnar þurfti Gotti að bíða lengi
eftir að vera formlega innvígður í
La Cosa Nostra. Hans gullna tæki-
færi kom árið 1972 þegar syni
Carlos Gambinos, Emanuel, var
rænt af félögum í írskri fúlmenna-
klíku sem stundaði þá afar áhættu-
sömu iðju að hnupla Mafíufélögum
og skila þeim gegn lausnargjaldi.
Þeir fengu 100.000 dollara fyrir
strákinn eftir langar samningavið-
ræður, en stuttu eftir útborgun
fannst lík Emanuels. Slík viðskipti
við voldugustu glæpaforingja
Bandaríkjanna kunnu ekki góðri
lukku að stýra. Gotti var settur
yfir þriggja manna hóp sem fékk
það verkefni að ná foringja klfkunn-
ar, James nokkrum McBratney,lif-
andi ef kostur væri svo Carlos
Gambino gæti sjálfur séð um að
sonarins væri fuilhefnt.
Þremenningarnir þefuðu Mc-
Bratney uppi á krá nokkurri og
hugðust handtaka hann í krafti
falsaðra lögregluskilríkja. Hann
gerði sér hins vegar grein fyrir
hveijir þama voru á ferð og barðist
á móti og á endanum var hann
skotinn til bana inni á kránni. Gotti
var handtekinn fyrir morðið, en
hlaut ótrúlega vægan dóm. Hann
var í tæp tvö ár í fangelsi, en mút-
aði vörðunum til að sjá sér fyrir
helstu lífsþægindum í steininum og
fylgja sér heim í helgarferðir. Loks-
ins þegar hann kom út var hacn
formlega innvígður í Mafíuna. Þá
var Carlo Gambino nýdáinn (náttúr-
legum dauðdaga) og mágur hans,
„stóri Paul“ Castellano, tekinn við
„fjölskyldunni".
Castellano var foringi í níu ár
og er af sumum talinn einn besti
stjórnandi sem Mafían hefur átt á
síðari árum. Hann hafði mikið við-
skiptavit og var gífurlega varkár:
fór sjaldan út af heimili sínu, sem
stóð á hói á hæsta stað í New York-
borg og var kallað „Hvíta húsið“.
Gotti var gerður að foringja hóps
innan Gambino-íjölskyldunnar og
tók meðal annars upp stórfellda
heróínsölu. Hann reyndi að gæta
þess að almennir sölumenn hefðu
engin sannanleg tengsl við hóp
hans. Það var ekki aðeins gert til
að forðast afskipti lögreglunnar,
heldur vildi Gotti ekki að Castellano
vissi að hann stóð í sjálfstæðum
eiturlyfjaviðskiptum. Yfirboðara
hans grunaði sitt, en sló ekki hend-
inni á móti gróðanum sem Gotti
sendi upp goggunarröðina. Enginn
hinna 23 hópa innan Gambino-íjöl-
skyldunanr aflaði eins vel og hans.
Innan tveggja ára frá vígslunni
var Gotti orðinn einn helsti valda-
maðurinn í Mafíunni. Það fór af
honum orð fyrir ofsa og grimmd
og hann tók oft sjálfur þátt í „skít-
verkum“ sem háttsettir mafíosar
létu yfirleitt metnaðarfulla undir-
menn sjá um. Viðbrögð Gottis við
dauða sonar síns segja sitt um
manninn. Nágranni hans, John Fav-
ara, ók á drenginn og þótti sýnt
að hann hefði varla getað afstýrt
slysinu þar sem drengurinn skaust
á reiðhjóli út á götu fyrir bíl hans.
Lögreglan hvatti Favara til að
flytja, en hann dró það of lengi og
„hvarf“ ijórum mánuðum síðar, í
júlí 1980, og hefur ekki sést eftir
það. Ekkert var hægt að sanna á
Gotti, sem var á Florida þegar Fa-
vara var kippt upp í sendiferðabíl
á leið úr vinnu.
Guðfaðirinn myrtur
Gotti varð fyrir alvarlegu áfalli
þegar lögreglan upprætti heróín-
hring hans árið 1983 og handtók
bróður hans og marga helstu sam-
starfsmenn. Hann missti helstu
tekjulind sína og Paul Castellano
varð ævareiður yfir bíræfni undir-
mannsins, sem hann taldi ögra lög-
reglunni og ógna allri yfirstétt
Mafíunnar. Orðrómur innan Maf-
íunnar sagði að Castelláno biði eft-
ir hentugu tækifæri til að losa sig
við Gotti fyrir fullt og allt.
Castellano var hins vegar sjálfur
orðinn valtur í sessi. Varkárni hans
olli gremju á meðal gróðafíkla í
Gambino-fjölskyldunni og aðrar
ijölskyidur voru móðgaðar vegna
þess að hann lét sjaldan sjá sig á
mikilvægum stundum, svo sem við
jarðarför eigin varaforingja, Aniello
Dellacroce. Gotti færði sér vaxandi
einangrun foringjans í nyt og kom
sér í mjúkinn hjá öðrum helstu vald-
amönnum Mafíunnar í New York.
Til að bæta gráu ofan á svart fyrir
Castellano hafði alríkislögreglan,
FBI, komið fyrir hlerunarútbúnaði
í „Hvíta húsinu“ þrátt fyrir varð-
hunda, lífverði, sjónvarpsmyndavél-
ar og þjófavamarkerfi. Þar var
spjallað hispurslaust um starfsemi
og félaga Mafíunnar og á grund-
velli þeirra upplýsinga lét lögreglan
til skarar skríða.
Þann 25. febrúar árið 1985 voru
allir foringjar og varaforingjar fjöl-
skyldnanna fimm handteknir og
ákærðir fyirr skipulagða glæpa-
starfsemi. Þetta var eitt versta áfall
sem Mafían hefur nokkurn tíma
orðið fyrir. Castellano var látinn