Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
OAUQM-yua SIJUmMJOm ciKfAja/i n,;-;, m
FJOLMIÐLAR SUNNUÐAGUR 14. JÚLÍ 1991
C 19
Helgi Hálfdanarson:
HREINLÆTI
Það var fyrir allmörgum árum,
að ég var staddur á Akureyri
sem snöggvast. Samferða mér var
útlendingur, sem var að litast um
á Norðurlandi. Hann kunni nokkuð
FOLK
i Jjölmiðlum
■Jónas R. Jónsson tók við stöðu
dagskrárstjóra
á innlendri
dagskrárdeild
í íslenzku, svo við gátum spjallað
saman. Við vorum setztir upp í
langferðabíl, sem innan stundar
skyldi halda af stað til Reykjavík-
ur. Bíllinn stóð í grennd við dálitla
grasflöt, sem þar var á gatnamót-
um. Útlendingurinn hafði orð á
því, hvað Akureyri væri snyrtilegur
bær, og kom okkur saman um að
þar væri vel fyrir öllu séð í þeim
efnum. Þetta var snemma morguns
og fáir á ferli.
Rétt sem vagnstjórinn er að
koma sér fyrir í ekilssætinu, sjáum
við hvar virðulegur maður og vel
klæddur kemur gangandi eftir
næstu götu og stefnir fram hjá
grasflötinni. Allt í einu víkur hann
útaf gangstétt og tekur strikið fram
á flötina. Ekki höfðum við veitt því
athygli, að á henni miðri lá blað-
snifsi, líklega slitur úr dagblaði, sem
þangað hafði fokið og stöðvazt í
grasinu. Maður þessi gekk rakleitt
að sneplinum, tók hann upp og
sneri með hann spölkorn til baka
eftir götunni. Þar stakk hann hon-
um í sorpílát og hélt svo áfram ferð
sinni. Hvorki hægði hann göngu
né flýtti á þessum útúrdúr, og eng-
in svipbrigði urðu á honum séð.
Þetta virtist vera sjálfsagt mál.
Sá erlendi rak upp stór augu.
Þessu líkt kvaðst hann aldrei mundu
sjá í sínum heimabæ, að „prúðbúinn
heldri maður“ gerði lykkju á leið
sína til að grípa upp rusl á almanna-
færi og koma því fyrir. Þar fengi
allt slíkt að bíða þess, að gatan
yrði hreinsuð í einni ferð.
Ég hélt því fram; að þarna gæti
hann séð eina af skýringum þess,
hvað Akureyri væri fögur og vist-
ieg; þar legðust greinilega allir á
eitt um almennt hreinlæti.
Það vildi svo til, að ég bar kennsl
á þennan mann, sem reyndar var
alkunnur borgari á Akureyri. Hann
hét Kristján Kristjánsson og var
löngum kenndur við bíla. Það vissi
ég að Kristján var sérstakt snyrti-
menni; en þó dettur mér ekki í hug
að hanii hafi að því leyti verið nein
undantekning í sínum bæ. Víst má
vel vera að hann hafi orðið einhveij-
um samborgurum sínum til fyrir-
myndar. En ekki varð annað ráðið
af svip þessa hreinlega bæjar en
að þar ætti hann æði marga sína
líka, sem að minnsta kosti gættu
þess að missa ekki úr höndum sér
neitt það sem bezt væri komið í
sorpílátum.
A þeim árum sem síðan eru liðin
hefur mér oft komið atvik þetta í
hug. Því má fagna, að víða um lanð
hefur hreinlæti á almannafæri stór-
batnað. Og þó væri þeim málum
enn betur komið, ef fleiri hefðu
dæmi þessa mæta Akureyrings í
huga.
Stöðvar 2 og
Bylgjunnar
fyrir skömmu,
samfara flutn-
ingunum upp í
Lyngháls.
JÓNAS
■Á mánudaginn hefur Hallgrím-
ur Thor-
steinsson störf
á Bylgjunni og
mun hann hafa
umsjón með
þættinum ís-
land í dag
ásamt Sigurði
Hlöðverssyni.
Auk þess verð-
ur þátturinn
lengdur, og
17-19.30.
HALLGRÍMUR
stendur nú frá
■Guðrún Þóra Hjaltadóttir, sem
hefur haft um-
sjón með
Morgunþætti
Bylgjunnar
ásamt Eiríki
Jónssyni mun
fá Júlíus
Brjánsson sér
til aðstoðar við
stjórn Morg-
unþáttarins.
Vmnupallar
f -
l\lú er rétti tíminn til að panta vinnupalla. Til afgreidslu strax.
Plettac-verkpallasamstæður SL 70/SL100 úr áli eða sinkhúðuðum stálrörum:
Aukin hagkvæmni samfara auknu öryggi.
JÚLÍUS
Stof nkostnaðurinn er ekki eini
mælikvarðinn á það hversu hag-
kvæmir verkpallar eru. Hröð upp-
setning, alhliða notagildi og löng
ending eru að minnsta kosti jafn
mikiivæg. Rör úr gæðastáli, sink-
húðuð að innan og utan, standast
veður og vind og hinar hörðu
kröfur hversdagsins og gólfborð-
in úr riffluðu og sinkhúðuðu stáli.
Þannig er tryggt að nota má
SL 70/SL100 áratugum saman!
tn nai llflH ftf Dalvegi 16, Til
sölu A dl laP III 200Kópavogi. IftMft ftftftl Símar 42322 -641020. leigu
iQkmarkanir d umferð í
Kvosinni vegna gatna-
framkvæmdo
Nu stárida yfir gatnaframkvæmdír í Vonarstræti, Tempiarasundi
og norðurbluta Tjarnargötu, göturnar verba malbikaÖar,
stein-lagbar og settar snjobræbslutagnir í þær. jafnframt verbur
norburbakki Tjarnarínnar endurbyggður. Nauðsyniegt er ab
loka götunum meðan á framkvæmd stendur. Verkið verbur
unnib í áföngum. Eftirfarandi er endurskobub áætlun um
verktíma einstakra áfanga. _
■ ■
Verktími:
Vonarstræti austan nr. 10.............30. apríl -15. sept.
Templarasund .........................5. júlí - 15. ágúst.
Vonarstræti frá nr. 8 ab Tjarnargötu
og Tjarnargata frá Vonarstræti ab nr. 4..1. júlí -15. sept.
Tjarnargata frá nr. 4 aö Kirkjustræti...1. júní - 6. ágúst.
Tjarnargata frá Vonarstræti ab nr. 20...15. júlí - 20. okt.
Til 15. sept. verbur ekki unnt ab aka um Vonarstræti frá
Lækjargötu ab Suburgötu. Þess í stab erökumönnum bent á
ab aka Skólabrú, Pósthússtræti og Kirkjustræti.
Framkvæmdum vib Tjarnargötu milli Vonarstrætis og Kirkju-
strætis verbur hagab þannig, ab abkoma verbur möguleg ab
bílastæbi Alþingis.
Vib upphaf hvers áfanga verbur auglýst nánarum
lokanir gatna og breytingar á umferb.
Borgarverkfræbingurinn í Reykjavík
Umferbardeild
o
Q
£