Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ GLER OG GLUGGAR 3öi«ÍUöAfllRrS9..SEPTEMBER 1991
4 C f'3
Slagregnsskápurinn hjá Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins. í
honum er hægt að mæla margs konar álag sem gler og gluggar á
íslandi verða að standast.
í slagregnsskáp má mæla styrk,
vindþéttleika og regnþéttleika. Skáp-
urinn er smíðaður úr málmplötum
sem soðnar eru saman í loftþéttan
kassa á grind úr stálprófílum. í
skápnum er sleði sem mótor keyrir
upp og niður fyrir framan próf-
stykki. í þennan sleða eru leiddar
margar loftslöngur og vatn. Þannig
má vélrænt skapa slagregnsálag með
mismiklu stillanlegu yfirálagi í
skápnum. Utan dyra eru öflugur
blásari og mótor sem skapa álagið.
Auk mælingar á slagregnsþétt-
leika og loftþéttleika má einnig
mæla svignun bæði glers og glugga-
pósta við vaxandi álag í skápnum.
Tvö rannsóknaverkefni Rb að und-
anförnu eru varðandi glugga. Annað
er þróun glugga- og hurðafram-
leiðslu sem unnið er í samvinnu við
Félag glugga- og hruðaframleiðenda
og Iðntæknistofnun. Hitt er gleijaðir
gluggar og er í samstarfi við IGH
og framleiðendur einangrunarglers
sem hafa myndað samtökin Samband
íslenskra húshlutaframleiðenda, SÍH
og Iðntæknistofnun.
Þessi verkefni tengjast hvort öðru
og er markmið síðarnefnda verkefn-
isins að framleiddir verði gleijaðir
gluggar sem settir verði í eftirá.
Þannig verði til vænlegur valkostur
miðað við þá hefð að setja glugga í
steypumót. Kostir þess eru margir,
m.a. að gluggarnir ættu að komast
óskemmdir í húsið þegar allri gróf-
vinnu er lokið.
■-*sászss!!:&ssiasa8i8E§ás&áÞSgæs)38téaaa/aK>G3Ba^
TVOFOLD LIMING
- MARGFÖLD ENDING!
% GLERBORG HE
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333
Verktakar - húsbyggjendur - húseigendur
Aratuga reynsla okkar og
þekking kemurykkurtil góða
í nýsmíði og endurnýjun.
Gerum föst verðtilboð.
Fáið faglega ráðgjöf
hjá sölumönnum
okkar á söluskrifstofu
v/Reykjanesbraut
íHafnarfirði.
RAMMI
við Reykianesbraut í Hafnarfirði - Sími 54444
——---------------------------- -rmnmntt